Morgunblaðið - 08.04.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 59
FRÉTTIR
FRÁ opnun skrifstofunnar í Mjddd.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Annar borgarafundur Siðfræðistofnunar
Rætt um fjölmiðla, lýð-
ræði og opinbera umræðu
ANNAR umræðufundur Sið-
fræðistofnunar, í röð fjögurra
funda, undir heitinu Borgara-
fundir Siðfræðistofnunar um lýð-
ræði og opinbera umræðu á ís-
landi verður haldinn laugardag-
inn 10. apríl í Odda, stofu 101, kl.
12-14. Að þessu sinni munu þau
Asgeir Friðgeirsson blaðamaður
og Hanna Katrín Friðriksen
blaðamaður ræða um íslenska
fjölmiðla í ljósi lýðræðis og mál-
efnalegrar umræðu.
Þau munu meðal annars fjalla
um þátt fjölmiðla í virku lýðræði
og skyldur þeirra í lýðræðislegu
þjóðfélagi. Einnig munu þau
ræða um möguleika íslenskra
fjölmiðla til að fjalla um mikil-
væg þjóðmál á vandaðan og
gagnrýninn hátt og forsendur
þess að efla megi málefnalega
opinbera umræðu í íslenskum
fjölmiðlum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Vinnumiðl-
un höfuð-
borgar-
svæðisins
Á VEGUM Vinnumiðlunar höfuð-
borgarsvæðisins hefur verið opn-
uð þjónustuskrifstofa á Þöngla-
bakka 1, 2. hæð í Mjódd.
I kjölfar laga um vinnumark-
aðsaðgerðir sem tóku gildi 1. júlí
1997 var öll vinnumiðlun og þjón-
usta við atvinnulausa flutt frá
sveitarfélögunum til ríkisins en
hverju sveitarfélagi var áður skylt
að annast atvinnuleysisskráningu.
Svæðisvinnumiðlarnir eru nú í öll-
um kjördæmum landsins og starfa
þær undir stjórn Vinnumálastofn-
unar.
Vinnumiðlun höfuðborgarsvæð-
isins annast vinnumiðlun, ráðgjöf
og atvinnuleysisskráningu á svæði
sem nær frá Kjós til Hafnarfjarð-
ar og er skrifstofunni í Mjódd
einkum ætlað að þjóna atvinnu-
leitendum sem búa í Mosfellsbæ,
Grafarvogi, Ái'bæ, Breiðholti og
Kópavogi. Auk þjónustuskrifstof-
unnar í Mjódd og aðalskrifstof-
unnar í Engjateigi 11, Reykjavík,
er atvinnuleysisskráning í Hafnar-
firði.
Miðað við þann fjölda sem er á
atvinnuleysisskrá á höfuðborgar-
svæðinu í dag, um 2.400 einstak-
lingar, má gera ráð fyrir að 800 til
1.000 kjósi að nýta sér þjónustu
þessarar nýju skrifstofu, miðað
við búsetu.
Á þjónustuskrifstofunni í Mjódd
verður boðið upp á aðstöðu fyrir
atvinnuleitendur til að skrifa at-
vinnuumsóknir á tölvu, sími er til
afnota, dagblöð liggja frammi og á
upplýsingatöflum eru tilkynningar
um laus störf og úrræði í boði.
Með samtengingu tölvubúnaðar í
Mjódd, Engjateigi og Hafnarfirði
geta nú atvinnulausir staðfest at-
vinnuleysi sitt á þeim skráningar-
stað sem best hentar hverju sinni.
Þjónustuskrifstofa Vinnumiðl-
unar höfuðborgarsvæðisins í
Mjódd verður opin alla virka daga
frá kl. 9-16.
---------------
GPS-námskeið
fyrir
almenning
BJÖRGUNARSKÓLI Lands-
bjargar og Slysavarnafélag Is-
lands stendur fyrir námskeiði í
notkun GPS-gervihnattastaðsetn-
ingartækja fyrir almenning í
Reykjavík, dagana 19. og 20. apríl
nk. Námskeiðið verður haldið í
húsnæði skólans að Stangarhyl 1,
Reykjavík.
Námskeiðsgjald er 2000 krónur
og eru námskeiðsgögn innifalin.
Væntanlegir þátttakendur til-
kynni þátttöku eigi síðar en fyrir
hádegi föstudaginn 16. apríl.
Segðu í einu orði
Aðgangur að fréttum og greinum Morgunblaðsins
frá 1987 fram á þennan dag
ÓKEYPtS AÐGANGUR
ftÐ GftGNASAFWNU l ^PR—'
fn á mbUs
Leitaðu upplýsinga um það sem þér er hugleikið
í Gagnasafni Morgunblaðsins.
crnelltu á Gagnasai
Með einu eða fleiri leitarorðum getur þú fundið
greinar, fréttir, viðtöl eða umfjöllun um viðfangsefnið. Gagnasafnið getur
því nýst öllum sem þurfa að afla heimilda og fróðleiks í leik, starfi og námi.
Prófaðu að leita í Gagnasafninu og sjáðu möguleikana. Gagnasafnið er á mbl.is.
GAGNASAFN