Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 1B FRETTIR Samvist, Qölskylduráðgjöf, lögð niður Aform um ný meðferð- arúrræði með haustinu ÁFORM eru uppi um að í stað Sam- vistar fjölskylduráðgjafar, sem lögð hefur verið niður, verði leitað nýrra úrræða í samvinnu við aðra með- ferðaraðila. Áhersla yrði lögð á að ná til fjölskyldna þeirra sem ánetj- ast hafa fíkniefnum. Samvist fjölskylduráðgjöf, sem stofnuð var sem tilraunaverkefni tveggja sveitarfélaga, Reykjavíkur- borgar og Mosfellsbæjar, og starfað hefur síðan í mars 1996, hefur nú verið lögð niður og er hætt að taka við tilvísunum. Jón Björnsson, framkvæmdastjóri þróunar- og fjöl- skyldusviðs borgarinnar, sagði að með ákvörðun Mosfellsbæjar að taka ekki áfram þátt í verkefninu hefði verið sjálfgert að endurskoða yrði starfsemina. I Samvist sagði Jón að tekist hefði að byggja upp mjög góðan hóp fagmanna sem unn- ið hefði vel saman, en borginni hefði þó ekki fundist að nýttist sem skyldi og hefði kostað meira en ásættan- legt hefði verið talið. Um hugsanleg kaup borgarinnar á þjónustu Samvistar sagði Jón að ekki hefði náðst saman um þann þátt, en hinsvegar væri áætlað að ná samningum við hliðstæðan aðila sem starfaðþ utan borgarkerfisins og óháð því. Áhersla yrði á það lögð að ná til fjölskyldna þeirra unglinga sem ánetjast hefðu fíkniefnum svo og að sinna forvarnarverkefnum. Sagði Jón að stefnt væri að því að þessi þjónusta yrði í boði með haustinu. Yfir 2000 viðtöl Að sögn Brynjólfs Brynjólfssonar sálfræðings, eins af fimm starfs- mönnum Samvistar, var þjónusta ráðgjafarinnar mikið notuð. Til að mynda voru á árinu 1998 skráð 364 tímapantanir, sem leiddu til 2.088 viðtala við einstaklinga og fjölskyld- ur. Þá sagði Brynjólfur að telöiar hefðu verið upp viðræður við borg- ina þegar kom að því að sá tími sem verkefninu var ætlaður var liðinn, bæði hvað varðar aukin verkefni en einnig að hugsanlegt væri að borgin gerði þjónustusamning við Samvist varðandi áframhald á starfinu, en uppúr þeim viðræðum hefði slitnað nú í apríl. Þá hefði einnig verið horft til þess að Samvist gæti ann- ast alla lögbundna skilnaðarráðgjöf í sveitarfélögunum tveim, en sú hugmynd hefði ekki náð fram að ganga. Sagði Brynjólfur mjög alvarlegt að nú virtist blasa við úrræðaleysi fyrir þann fjölda fólks sem ljóst væri að vildi nýta sér þjónustu sem fengist utan skóla og félagslega kerfis borgarinnar, og innan Sam- vistar hefði byggst upp mikil reynsla og þekking sem nú nýttist miklu síður. Alvai-legt ástand blasir við Regína Ásvaldsdóttir, forstöðu- maður Miðgarðs félagsmiðstöðvar Grafarvogs, taldi mjög alvarlegt ástand blasa við ef ekki kæmu til önnur úrræði í stað Samvistar, sem hún sagði mjög mikið nýtt af íbúum Grafarvogs. „Við vitum ekki hvert við eigum að beina þeim sem þurfa á þessari þjónustu að halda,“ sagði Regína og benti einnig á að eftir því sem hún vissi til hefði álagið þyngst á Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, sem sinnt hefði sömu þjónustu og Samvist og hefðu biðlistar þar lengst vemlega. Byggðastefna ' borg I Ráðstefna Reykjavíkurlistans um skipulagsmál höfuðborgarinnar laugardaginn 17. apríl kl. 13.00 - 16.30 í Norræna húsinu Dagskrá 13.00-13.15 Skráning fundarmanna 13.15-13.25 Ráðstefnan sett ri Guðrún Ágústsdóttir, formaður skipulags- og umferðarnefndar Reykjavíkur. Fyrri hluti 13.25 -14.00 Reykjavík og höfuðborgarsvæðið - svæðisskipulag Hvert á borgin að vaxa? Þurfa öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu að vaxa í takt? Höfuðborgin - landsbyggðin! Frárennslismál margra sveitarfélaga í ólagi VERIÐ er að leggja mikið ræsi út frá Arnarneslandi í Garðabæ. Víða ekki hægt að standa við tímamörk Framsögumenn: Sigfús Jónsson, ráðgjafi og landfræðingur. Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður byggðaþróunarmála Þjóðhagsstofnunar. 14.00 -14.35 Umræður og fyrirspurnir Þátttakendur í pallborði auk framsögumanna: Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins. Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur. 14.35- 14.55 Kaffihlé Seinni hluti 14.55 -15.40 Miðborgin og þróunaráætlun Landfyllingar - umhverfismál. Sambýli flugs og byggðar. Áhrif landfyllinga á umhverfi og náttúrufar. Framsögumenn: Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri Reykjavíkur. Trausti Baldursson sviðsstjóri vistfræðisviðs Náttúruverndar ríkisins. Trausti Valsson skipulagsfræðingur og dósent við Háskóla Islands. 15.40 -16.15 Umræður og fyrirspurnir Þátttakendur í pallborði auk framsögumanna: Helgi Hjörvar borgarfulltrúi. Álfheiður Ingadóttir líffræðingur. Guðrún Jónsdóttir arkitekt. HJÁ mörgum sveitarfélögum sem enn eiga eftir að koma frárennslis- málum sínum í lag standa nú yfir forathuganir og hönnunarvinna á mannvirkjum. Ljóst er að mörg þeirra munu ekki geta staðið við tímamörk sem lög kveða á um vegna mikils kostnaðar við fram- kvæmdimar, en mengunarvarna- reglugerð kveður á um að öll sveit- arfélög eigi að hafa lokið þessum framkvæmdum fyrir árslok 2005. Sveitarfélögin standa nú frammi fyrir kröfum um hreinsun frá- rennslis og fórgun úrgangs en framkvæmdir þessar eru mjög fjárfrekar og reynast mörgum sveitarfélögum þungar í skauti. AI- þingi setti árið 1995 lög um hvemig ríkið ætlar að koma til móts við sveitarfélögin með styrkjum til þessara framkvæmda. Að sögn Hafsteins Helgasonai-, verkfræðings hjá Línuhönnun hf., sem sér um flestar forathuganir og hönnun fyrir sveitarfélög um land allt, er víða verið að skoða þessi mál. Til að geta sótt um styrk verða sveitarfélögin að láta vinna forathugun sem Línuhönnun hf. eða aðrir til þess bærir aðilar fram- kvæma. I skýrslu Línuhönnunar koma fram nokkrir kostir sem sveitarfélagið getur valið um og innifelur kostnaðaráætlun við mannvirkjagerð, hönnunarvinnu og rekstur fráveitunnar. Þegar sveitarfélagið hefur lagt fram framkvæmdaáætlun og skýrslu um forathugun getur það sótt um styrk hjá fráveitunefnd umhvei'fis- ráðuneytisins. Að sögn Hafsteins má gróflega áætla að kostnaðurinn við að koma þessum málum í lag sé á bilinu 40-60 þúsund krónur á íbúa. Þannig er kostnaður bæjarfélags með tvö þúsund íbúa um 100 millj- ónir króna. Styrkir fráveitunefndar eru greiddir eftir á, aðeins til verk- legra framkvæmda. Víða unnið að úrbótum Hjá Línuhönnun hf. er í samvinnu við verkfræðistofur úti um land, sem eru í fyrirtækjaneti verkfræði- stofa, verið að vinna að eða er ný- lokið forathugunum og hönnunar- vinnu, t.d. fyrir Akranes, Tálkna- fjörð, Bolungarvík, Sauðárkrók, Dalvík, Siglufjörð og Selfoss. „Framkvæmdir í Reykjavík eru á lokastigi, á Akureyri og Hafnar- firði eru þær langt komnar og miklar framkvæmdir standa nú yf- ir í Garðabæ. Þá er hönnun fráveit- unnar hafin á Selfossi," sagði Haf- steinn Helgason, yfirmaður um- hverfissviðs Línuhönnunar hf. 16.15 -16.35 Samantekt - ráðstefnuslit Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Ráðstefnustjóri: Sigrún Magnúsdóttir, formaður borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans. Ráðstefnugjald 500 kr. Allir velkomnir REYKJAVIKUR LISTINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.