Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ + Ásta Laufey Gunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 1. september 1914. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 9. aprfl síðastliðinn. Foreldrar liennar voru Ingibjörg Gísladóttir, f. 20.12. 1891, d. 12.3. 1993, og Gunnar Gíslason, f. 14.8. 1886, d. 25.10. 1917. Stjúp- faðir Ástu var Zoph- arn'as Friðrik Sveins- son, f. 2.9. 1886, d. 12.9. 1963. Systkini Ástu eru: Soffía Friðrika Zophaníasdóttir, f. 1919, d. 1985; Sigurður Zoph- aníasson, f. 1922; Ingvi M. Zoph- aníasson, f. 1924; Kjaitíin Reynir Zophaníasson, f. 1930; og Svein- björg Zophaníasdóttir, f. 1931. ^ Hinn 14. mars 1937 giftist Ásta Sigurþóri Óskari _ Sæ- mundssyni, f. á Bakka í Ölfusi 25.10. 1915. Foreldrar hans voru Guðbjörg Sigurðardóttir, Mágkona mín Ásta Laufey er lát- in. Hún gekkst undir mikla skurð- aðgerð á Sjúkrahúsi Reykjavíkur nokkrum dögum áður en hún lést. Mig langar að minnast hennar og f. 1887, d. 1963, og Sæmundur Jónsson, f. 1884, d. 1971. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru: Gunnar Friðberg, f. 21.8. 1936, sambýl- iskona Sigurdís Baldursdóttir; Sig- urður, f. 8.8. 1937, kvæntur Helgu Baldursdóttur, þau eiga sex börn og 11 barnabörn; Ingi- björg, f. 19.3. 1939, gift Ágústi Inga Eyjólfssyni, þau eiga þrjú börn og sex barna- börn; Sæmundur, f. 1.5. 1943, kvæntur Maríu Einarsdóttur; og Guðbjörg, f. 2.10. 1955, maki I Jóhannes Ingólfur Jónsson, þau eiga tvö börn, þau skildu; maki II Jóhann Baldursson, þau eiga tvö börn. titför Ástu Laufeyjar fer fram frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð í dag og hefst atliöfn- in klukkan 11. festa nokkrar línur á biað, enda seg- ir meira en 30 ára vinátta til sín, þegar góð og kærleiksrík mann- eskja á í hlut. Aðeins þriggja ára gömul missti MINNINGAR Ásta föður sinn, árið 1917. Móðir hennar, Ingibjörg Gísladóttir, hin mætasta kona, háði þá harða lífs- baráttu eins og á stóð, til þess að halda barninu hjá sér, sem henni tókst giftusamlega. Ingibjörg gift- ist síðan Zóphoníasi Sveinssyni, húsasmiði árið 1919, þá var Ásta orðin fimm ára. Ásta hefur sagt mér að Zóphonías hafi ávallt reynst sér hinn besti faðir, meðan hans naut við. Eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurþóri Sæmundssyni, bónda og síðar trésmiði, giftist Ásta hinn 14. mars 1937. Þau bjuggu fyrst á Reyðarvatni og Þorleifsstöðum á Rangái’vöilum, en í Heklugosi 1947 fór bær þeirra í eyði. Það var þeim mikill missir og lífsreynsla að lenda í slíkum ósköpum. Næst fluttust þau að Þórunúpi í Hvolhreppi og bjuggu þar í meira en áratug, en fluttu síðan til Reykjavíkur og bjuggu þar í 18 ár, þar til þau keyptu húsið Litlagerði 14 á Hvols- velli. I næstu götu við þau bjuggum við Denna, í Stóragerði 17, og var því mikill samgangur á milli heimila okkar. Þá kynntist ég Ástu mæta- vel. Hún var mikil gæðakona, bæði greind og vel verki farin, mjög víð- lesin og hafði ákveðnar lífsskoðanir. Eg naut þess að ræða við hana um menn og málefni. Er syrti að, hvað heilsu og aldur snerti, fluttust þau Ásta og Sigur- þór í dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli og bjuggu þar síðustu tvö til þrjú árin og undu hag sínum mætavel. ÁSTA LAUFEY GUNNARSDÓTTIR Hér hefur verið stiklað á stóru í lífshlaupi Ástu og Sigurþórs. Alla tíð fylgdist Ásta vel með okkur Dennu og börnunum og var hún ávallt fyrst að hringja á afmælis- og tyllidögum og óska okkur til ham- ingju. Hver stund sem við lifum er í raun og veru merk timamót. Þau mikilsverðustu lærum við stundum ekki að meta fyrr en eftir á. Hugur okkar Dennu er hjá eiginmannin- um, sem mest hefur misst og send- um við honum, bömum hans og öðr- um ástvinum einlægar samúðar- kveðjur. Brottferð Ástu til sólar- landa eilífðarinnar er heillaför, þar sem ástvinir biðu í varpa og tóku á móti henni. Þangað liggur leið okk- ar allra. Eg þakka allt frá okkar fyrstu kynnum. Pað yrði margt, ef telja skyldi það. I lífsins bók það lifir samt í minnum, er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Eg fann í þínu heita stóra hjarta þá helgu tryggð og vináttunnar Ijós er gerir jafnvel dimma daga bjarta, ' úr dufti lætur spretta lífsins rós. (M.J.) Sveinn Elíasson. Jesús, láttu mig eignast þinn frið. Unn þú mér í þínum friði að sofa, í þínum friði að deyja, í þínum friði upp að rísa og í þínum friði eilíflega að gleðjast. Amma, áttu mola? eða amma, áttu kex? voru spurningar sem amma var vön að heyra, ekki aðeins frá barnabörnum og barnabarna- börnum heldur líka frá krökkunum í Litlagerðinu. Amma lumaði alltaf á kexi eða mola og var ekki spör á að láta okkur fá þegar við stóðum og horfðum á hana með biðjandi augum. Þegar ég kom í heimsókn til ömmu og afa frá Eyjum átti ég alltaf von á litlum pakka með ein- hverju dóti eða litabók og litum. „Bara svo þér leiðist ekki hjá ömmu gömlu,“ var amma vön að segja þegar hún rétti mér dýrgripinn í hvíta umbúðapappírnum. Nei, það var ekki hægt að láta sér leiðast hjá ömmu, maður hafði alltaf eitthvað til að dunda sér við. Þær voru ekki fáar stundirnar sem við krakkarnir eyddum í skúrnum hans afa og töl- uðum við hestana eða sátum og kúrðum hjá ömmu og horfðum á sjónvarpið eða lásum í bók. Það fyrsta sem ég man eftir þeg- ar ég hugsa um ömmu var hlýjan í fanginu hennar og ég held að sú hlýja sé það sem ég eigi eftir að sakna mest af öllu. Hvíldu í friði, elsku amma, og láttu Guð og englana finna hlýjuna sem þú gafst okkur í svo mörg ár. Elsku afi, ég elska þig og vona að góður Guð hjálpi þér og styrki í sorginni. Þín dótturdóttir Marsibil Anna Jóhannsdóttir. Elsku amma, nú ertu farin héðan og ég veit að þú ert komin í annan og betri heim þar sem þér líður vel. Q jfV JjCJ I I SINGAR Gleðilegt sumar í orlofshúsum og tjaldvögnum VR VR auglýsir eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum félagsins sumarið 1999. VR hefur tekið á leigu nokkur hús yfir hásumarið og hefur nú yfir að ráða 46 húsum auk þess sem 28 tjaldvagnar eru til útleigu. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: Einarsstöðum á Völlum, S-Múlasýslu • Flúðum, Hrunamannahreppi • Akureyri • Bakka í Vatnsdal Húsafelli í Borgarfirði • Ölfusborgum við Hveragerði • lllugastöðum í Fnjóskadal • Miðhúsaskógi í Biskupstungum • Stykkishólmi • Kirkjubæjarklaustri • Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi Tjaldvagnar Einnig geta félagsmenn leigt tjaldvagna til 6 eða 13 daga. Tjaldvagnarnir eru leigðir frá miðvikudegi til þriðjudags. Leigugjald Vikan í Miðhúsaskógi og á Flúðum kr. 11.000,- Vikan annars staðar kr. 9.500,- Tjaldvagn 6 dagar kr. 7.500,- Tjaldvagn 13 dagar kr. 15.000,- Úthlutunarreglur Réttur til úthlutunar fer eftir félagsaldri í VR að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur eru á skrifstofu VR, í VR blaðinu og á vefnum, www.vr.is. Umsóknareyðublöð Hægt er að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu félagsins í Húsi verslunarinnar, 1. hæð eða senda umsókn úr VR blaðinu bréfleiðis eða í myndrita, 510 17 27. Einnig er hægt að sækja um á vefnum, www.vr.is. Ekki er tekið á móti umsóknum símleiðis. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 23. apríl. nk. Svör verða send umsækjendum bréfleiðis 4. maí. Starf okkar eflir þitt starf Verzlunarmannafélag Reykjavíkur FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Iðju Aðalfundur Iðju, félags verk- smiðjufólks verður haldinn á Grand Hóteli Reykjavík, Hvammi, mánudaginn 26. apríl 1999 kl. 17.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Sameining við Eflingu: Tillaga um skoðanakönnun meðal félags- manna um sameiningu við Eflingu verður borin fram á fundinum. 3. Önnur mál. Reikningar Iðju fyrir árið 1998 liggja frammi á skrifstofu félagsins. Kaffiveitingar í boði félagsins. Iðjufélagar eru hvattirtil að mæta á fundinn. GAR FELAGSUF Dalvegi 24, Kópavogi. Almenn samkoma kl. 14.00. Ræðumaður Helga R. Ármanns- dóttir. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFELAG ISLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagsferðir 18. apríl Kl. 10.30 Kalmanstjörn — Staðarhverfi. Um 5—6 klst. gönguferð um Prestastíg, gömlu þjóðleiðina úr Höfnum til Grinda- vikur. Verð 1.500 kr. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Einnig stansað við kirkjug. Hafnarfirði og á Njarðvíkurfitjum. Kl. 13 Gengið í Fornasel. Um 3 klst. ganga frá Krisuvíkurvegin- um að Fornaseli, forvitnilegum stað sem fáir þekkja. Gengin verður hluti af Hrauntungustíg og komið við í gamalli fjárborg. Fróðleg og skemmtileg ferð undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar frá Umhverfis- og útivistarfélagi Hafnarfjarðar. Verö 1.000 kr., frítt f. börn m. fuli- orðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin, Mörkinni 6 kl. 13 og frá kirkjug. Hafnarfirði kl. 13.20. Afmælis- og jarðfræðiferð á Reykjanes á sumardaginn fyrsta kl. 11. Nánar kynnt eft- ir helgi. ... i SAMBAND fSŒNZKRA ■%&(>■ KRISTNIBOÐSFÉLAGA Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Tilboðsdagar Samkoma á Holtavegi 28 kl. 20.30. Maður tryggir ekki eftir á: Torbjörn Lied spyr hvort þú sért viss? Hvers vegna í ósköpun- um Afrika? Guðlaugur og Vai- gerður kristniboðar svara á óvenjulegan og myndrænan hátt. Erla og Rannveig Káradætur syngja. Friðrik Jensen Karlsson kveður sér hljóðs. Kaffi verður selt eftir samkomuna. </t Hflllvcignrstig 1 • simi 561 4330 Dagsferðir sunnud. 18. apríl Frá BSI kl. 10.30 Svínaskarðs- leið, hin forna þjóðleið austan Esju gengin. Verð 1.400/1.600 kr. Frá BSÍ kl. 10.30 Esjuganga á skíðum. Verð 1.200/1.400 kr. Ferðaáætlun 1999 fæst á skrifstofu félagsins á Hallveigarstíg. Hægt er að panta eintak í síma 561 4330. Skálavörður óskast Útivist óskar eftir að ráða skála- vörð i Fimmvörðuskála til skála- vörslu frá miðjum júní og út ágúst. Til greina kemur að ráða hluta timans. Upplýsingar veitir skrifstofa Útivistar. Heimasíða: centrum.is/utivist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.