Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 76
76 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska Smáfólk /lF I PLAVTHE TWO, HE'LL PR0BA6LY PIAY THE FOOR,BUT IF I PLAY . THE 5IK,MAWE HE'LL PLAY THE NINE.. IF I PLAV ONE '0FTHE5E WITHTHE) REP 5POT5, HE'LL PROBABLT PLAf ONE OF THE BLACK 5POT5.. I KNOU; HE CAN BE VERY CLEVER.. j I DON T HAVE THE SLI6HTE5T IPEA WHAT 6AME WE'RE PLAVIN6.. Ef ég legg út tvistinn, þá lætur hann sennilega út fjarkann, Ég veit að hann getur verið mjög snjall... en ef ég læt út sexuna, þá lætur hann kannski út níuna... Ég hef ekki grænan grun hvaða spil við erum að spila... Ef ég legg út þetta með rauðu blettunum, þá leggur hann Itklega út eitt af þessum með svörtu blettunum BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hvat vas þat undra er ek úti Frá Halldóri G. Jónssyni: ÞESSI ljóðlína hins foma kvæðis flaug mér í hug, þegar ég fór að hug- leiða furðuverk það, er bar fyrir augu mín á leið um Barðaströnd fyr- ir nokkrum dögum. Stórvirkar vinnuvélar og tilheyrandi jai’ðrask yftr tún, úthaga og mýrarflóa í þeim tilgangi að leggja nýjan veg í stað þess sem fyrir er. Allnokkrum sinnum hef ég ekið veginn um Barðaströnd, ýmist sjálfur eða í fylgd með öðrum, og yfirleitt talið mig kominn á einn besta malar- veg á Vestfjörðum. Lætur það að lík- um því að vegarstæðið upp undir hlíð- unum og sumstaðar fram með sjónum er sérstaklega þurrt, auk þess sem farið er að malbika hann á köflum. Nú virðist Vegagerð ríkisins hafa komist að þeirri furðulegu niður- stöðu, að færa þurfti þennan að mörgu leyti ágæta veg á löngu svæði frá hlíðinni niður yfir tún bænda og yfír mýrarflóa með æmum tilkostn- aði. Enga hugmynd hef ég um hvað þessi reginvitleysa muni kosta fjár- vana vegagerð. Ekki kem ég auga á að tilgangur- inn sé sá að forðast snjóþyngsh því þetta er einn snjóléttasti vegur á Vestfjörðum. Eg fæ ekki skilið að hér sé um að ræða annað en að verið sé hugsunarlaust að fleygja fjármunum á glæ, því vitanlega verður gamli vegurinn, með sínum malbiksköflum og létta viðhaldi lagður af. Og skítt veri með eina brú eða svo, sem byggð var fyrir nokkrum áratugum og gæti þjónað sínu hlutverki fram eftir næstu öld, og kostað hefur talsverða fjármuni á þeirra tíma mælikvarða. Til að skýra betur fyrir þeim, sem ekki þekkja til, er tilhögun vegasam- bands í þessum landshluta á þá leið, að stysta leið fyrir okkur Bflddælinga til að komast í Breiðaferjuna Baldur, ef við ætlum þessa leið til Reykjavík- ur og sömu leið heim aftur, að fara inn Suðurfirði og upp úr Trostanfirði, niður Penningsdal og að Brjánslæk u.þ.b. 50 km langan veg. Vegna fá- tæki sinnar sér Vegagerðin enga möguleika á að halda þessari leið op- inni að vetrinum, og þetta umkomu- leysi hennar höfum við skilið mæta- vel og þessvegna ekið yfír þrjá fjall- vegi: Hálfdán, Mikladalsháls og Kleifaheiði u.þ.b. helmingi lengi-i leið til að komast í Baldm'. Segja má að vitanlega getum við flogið af Bfldudalsflugvelh, og mikið rétt. En auk þess sem það er okkur u.þ.b. helmingi dýrara en að fara á eigin bfl, og koma Hvalfjarðargöng- um þar áþreifanlega við sögu, er hagræðið við að hafa bflinn til eigin nota á Reykjavíkursvæðinu ómetan- legt, ef við þurfum að standa þar í nokkra daga. Eg efa ekki að það fjármagn, sem þama er verið að kasta, mér liggui' við að segja út í loftið, mundi nægja til að gera okkur Bflddælingum leið- ina í Baldur greiðfæraii í áratugi ef ekki út aha næstu öld og jafnvel leng- ur. Kunningi minn á Ströndinni sagði mér, að enginn heimamanna gæti skflið þessai' framkvæmdir, og lét að því hggja að leiðin, sem valin er væri sú óhagkvæmasta, sem hægt væri að fara m.a. yflr mýrarflóa þar sem veg- urinn mundi síga og sökkva með til- heyrandi viðhaldi um óræða framtíð. Mér er því spum: Hvat vas þat undra er ek úti sá? Hversvegna flanar Vegagerðin að þvflíkum framkvæmd- um, þegar bráðnauðsynlegar fram- kvæmdir verða að sitja á hakanum vegna fjárskorts? Og vel að merkja, hér er verið að fara með almannafé. Hver ákveður þessi ósköp? Eg vona sannai'lega að þeim kr. 418 millj. sem nú heyrist að verja skuh til vegabóta á Vestfjörðum verði varið á vitrænni hátt, og ekki tel ég saka að þar verði að einhverju leyti heimamenn hafðir með í ráðum. HALLDÓR G. JÓNSSON, Bfldudal. Bræðrabönd Frá Þórunni Krístínu Emilsdóttur: ÉG SEST hér niður við tölvuna mína með sorg í hjarta! Hörmungar þær sem dynja yfir þjóðarbrot fyrr- verandi Júgóslavíuþegna skera mig í hjartað,og ég veit að svo er líka með marga samlanda mína. Að sjálfsögðu hef ég ekki fullan skiln- ing á ástæðum stríðsins frekar en þorri landsmanna, því sem betur fer erum við hérna á eyjunni okkar al- sendis ókunn stríðsátökum og trú- arheift J)ó svo að svo hafí ekki alltaf verið. Eg set niður fáein orð núna því að mér setur ugg! í fréttum ný- verið heyrði ég að persóna frá einu þjóðarbrotinu bæri brigður á starfs- kraft Rauða krossins, vegna þess að starfsmaðurinn kæmi frá öðru þjóð- arbroti. Það setti að mér hroh. Gæti það gerst hérna á mínu fagra og friðsæla landi að fósturböm okkar lifðu ekki í sátt og samlyndi? Að hörmungar þær sem geisa erlendis gætu smitast hingað? En í einni svipan varð mér Ijóst að svo myndi ekki verða, það fólk sem hingað kemur er að sjálfsögðu að leita þess sama og stór hluti mannkyns þ.e. friðar. Friðar til að ala upp böm sín við sæmilega eðlilegar aðstæður, afla sér og sínum menntunar og þroska með Guð sinn að leiðarþosi. Bón mín til þjóðar minnar nú er að við tökum höndum saman og biðjum þann sem við treystum best að senda ljós og frið til fósturbama Islands, sérstaklega þeim sem hafa djúp sár í hjarta vegna ófriðar og hörmunga því tengdu. Ég veit að minn skilningur á stríðsátökum og eða aldargömlum erjum er mjög takmarkaður. En ég eins allir aðrir get sest niður stund- arkom og beðið fyrir friði. Það er mitt framlag. ÞÓRUNN KRISTÍN EMILSDÓTTIR, Víghólastíg 4, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.