Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 76
76 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Smáfólk
/lF I PLAVTHE TWO,
HE'LL PR0BA6LY PIAY
THE FOOR,BUT IF I PLAY .
THE 5IK,MAWE HE'LL
PLAY THE NINE..
IF I PLAV ONE
'0FTHE5E WITHTHE)
REP 5POT5, HE'LL
PROBABLT PLAf
ONE OF THE
BLACK 5POT5..
I KNOU; HE
CAN BE VERY
CLEVER.. j
I DON T HAVE THE
SLI6HTE5T IPEA WHAT
6AME WE'RE
PLAVIN6..
Ef ég legg út tvistinn, þá lætur hann sennilega út fjarkann, Ég veit að hann getur verið mjög snjall...
en ef ég læt út sexuna, þá lætur hann kannski út níuna... Ég hef ekki grænan grun hvaða spil við erum að spila...
Ef ég legg út þetta með rauðu blettunum, þá leggur hann
Itklega út eitt af þessum með svörtu blettunum
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hvat vas þat
undra er ek
úti
Frá Halldóri G. Jónssyni:
ÞESSI ljóðlína hins foma kvæðis
flaug mér í hug, þegar ég fór að hug-
leiða furðuverk það, er bar fyrir
augu mín á leið um Barðaströnd fyr-
ir nokkrum dögum. Stórvirkar
vinnuvélar og tilheyrandi jai’ðrask
yftr tún, úthaga og mýrarflóa í þeim
tilgangi að leggja nýjan veg í stað
þess sem fyrir er.
Allnokkrum sinnum hef ég ekið
veginn um Barðaströnd, ýmist sjálfur
eða í fylgd með öðrum, og yfirleitt
talið mig kominn á einn besta malar-
veg á Vestfjörðum. Lætur það að lík-
um því að vegarstæðið upp undir hlíð-
unum og sumstaðar fram með sjónum
er sérstaklega þurrt, auk þess sem
farið er að malbika hann á köflum.
Nú virðist Vegagerð ríkisins hafa
komist að þeirri furðulegu niður-
stöðu, að færa þurfti þennan að
mörgu leyti ágæta veg á löngu svæði
frá hlíðinni niður yfir tún bænda og
yfír mýrarflóa með æmum tilkostn-
aði. Enga hugmynd hef ég um hvað
þessi reginvitleysa muni kosta fjár-
vana vegagerð.
Ekki kem ég auga á að tilgangur-
inn sé sá að forðast snjóþyngsh því
þetta er einn snjóléttasti vegur á
Vestfjörðum. Eg fæ ekki skilið að hér
sé um að ræða annað en að verið sé
hugsunarlaust að fleygja fjármunum
á glæ, því vitanlega verður gamli
vegurinn, með sínum malbiksköflum
og létta viðhaldi lagður af. Og skítt
veri með eina brú eða svo, sem byggð
var fyrir nokkrum áratugum og gæti
þjónað sínu hlutverki fram eftir
næstu öld, og kostað hefur talsverða
fjármuni á þeirra tíma mælikvarða.
Til að skýra betur fyrir þeim, sem
ekki þekkja til, er tilhögun vegasam-
bands í þessum landshluta á þá leið,
að stysta leið fyrir okkur Bflddælinga
til að komast í Breiðaferjuna Baldur,
ef við ætlum þessa leið til Reykjavík-
ur og sömu leið heim aftur, að fara
inn Suðurfirði og upp úr Trostanfirði,
niður Penningsdal og að Brjánslæk
u.þ.b. 50 km langan veg. Vegna fá-
tæki sinnar sér Vegagerðin enga
möguleika á að halda þessari leið op-
inni að vetrinum, og þetta umkomu-
leysi hennar höfum við skilið mæta-
vel og þessvegna ekið yfír þrjá fjall-
vegi: Hálfdán, Mikladalsháls og
Kleifaheiði u.þ.b. helmingi lengi-i leið
til að komast í Baldm'.
Segja má að vitanlega getum við
flogið af Bfldudalsflugvelh, og mikið
rétt. En auk þess sem það er okkur
u.þ.b. helmingi dýrara en að fara á
eigin bfl, og koma Hvalfjarðargöng-
um þar áþreifanlega við sögu, er
hagræðið við að hafa bflinn til eigin
nota á Reykjavíkursvæðinu ómetan-
legt, ef við þurfum að standa þar í
nokkra daga.
Eg efa ekki að það fjármagn, sem
þama er verið að kasta, mér liggui'
við að segja út í loftið, mundi nægja
til að gera okkur Bflddælingum leið-
ina í Baldur greiðfæraii í áratugi ef
ekki út aha næstu öld og jafnvel leng-
ur. Kunningi minn á Ströndinni sagði
mér, að enginn heimamanna gæti
skflið þessai' framkvæmdir, og lét að
því hggja að leiðin, sem valin er væri
sú óhagkvæmasta, sem hægt væri að
fara m.a. yflr mýrarflóa þar sem veg-
urinn mundi síga og sökkva með til-
heyrandi viðhaldi um óræða framtíð.
Mér er því spum: Hvat vas þat
undra er ek úti sá? Hversvegna flanar
Vegagerðin að þvflíkum framkvæmd-
um, þegar bráðnauðsynlegar fram-
kvæmdir verða að sitja á hakanum
vegna fjárskorts? Og vel að merkja,
hér er verið að fara með almannafé.
Hver ákveður þessi ósköp?
Eg vona sannai'lega að þeim kr.
418 millj. sem nú heyrist að verja
skuh til vegabóta á Vestfjörðum verði
varið á vitrænni hátt, og ekki tel ég
saka að þar verði að einhverju leyti
heimamenn hafðir með í ráðum.
HALLDÓR G. JÓNSSON,
Bfldudal.
Bræðrabönd
Frá Þórunni Krístínu Emilsdóttur:
ÉG SEST hér niður við tölvuna
mína með sorg í hjarta! Hörmungar
þær sem dynja yfir þjóðarbrot fyrr-
verandi Júgóslavíuþegna skera mig
í hjartað,og ég veit að svo er líka
með marga samlanda mína. Að
sjálfsögðu hef ég ekki fullan skiln-
ing á ástæðum stríðsins frekar en
þorri landsmanna, því sem betur fer
erum við hérna á eyjunni okkar al-
sendis ókunn stríðsátökum og trú-
arheift J)ó svo að svo hafí ekki alltaf
verið. Eg set niður fáein orð núna
því að mér setur ugg! í fréttum ný-
verið heyrði ég að persóna frá einu
þjóðarbrotinu bæri brigður á starfs-
kraft Rauða krossins, vegna þess að
starfsmaðurinn kæmi frá öðru þjóð-
arbroti.
Það setti að mér hroh. Gæti það
gerst hérna á mínu fagra og friðsæla
landi að fósturböm okkar lifðu ekki í
sátt og samlyndi? Að hörmungar
þær sem geisa erlendis gætu smitast
hingað?
En í einni svipan varð mér Ijóst að
svo myndi ekki verða, það fólk sem
hingað kemur er að sjálfsögðu að leita
þess sama og stór hluti mannkyns þ.e.
friðar. Friðar til að ala upp böm sín
við sæmilega eðlilegar aðstæður, afla
sér og sínum menntunar og þroska
með Guð sinn að leiðarþosi. Bón mín
til þjóðar minnar nú er að við tökum
höndum saman og biðjum þann sem
við treystum best að senda ljós og frið
til fósturbama Islands, sérstaklega
þeim sem hafa djúp sár í hjarta vegna
ófriðar og hörmunga því tengdu.
Ég veit að minn skilningur á
stríðsátökum og eða aldargömlum
erjum er mjög takmarkaður. En ég
eins allir aðrir get sest niður stund-
arkom og beðið fyrir friði. Það er
mitt framlag.
ÞÓRUNN KRISTÍN EMILSDÓTTIR,
Víghólastíg 4, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.