Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Sjóræningjar og apar
með drauma um skegg
LEIKIR
eiga það sameiginlegt að vera í
Karíbahafinu. Hönnuðir LucasArts
hafa gert sitt besta til að líkja sem
best eftir andrúmsloftinu sem þar
ríkir og tekist það afar vel. I öllum
leikjunum hljómar hugljúf reggí-
groove-tónlist og langar hvítar
strendur og pálmatré gegna stóru
hlutverki í hverjum einasta leik.
Aðalpersóna leiksins er Guy-
brush Threepwood, ungur maður
sem á sér þann draum að gerast
sjóræningi. Hann birtist fyrst á
eyjunni Mélée þar sem hann hafði
vonast eftir að hitta einhvern sem
gæti kennt honum undirstöðuatriði
iðnarinnar. í gegnum alla þrjá leik-
ina breytast draumar seinheppnu
hetjunnar lítið en hann nær aldrei
þvi takmarki að finna fjársjóð eða
verða alvöru sjóræningi, a.m.k.
ekki í þeim skilningi er hann hafði
vonast eftir. Annar stór draumur
Guybrush er að honum vaxi loksins
skegg, en það virðist ekki ætla að
rætast úr þessu, í öðrum leiknum
hafði hann reyndar ágætis alskegg
en í þriðja leiknum hvarf það aftur
Guybrush til mikillar armæðu.
Þrjár aðrar aðalpersónur ganga í
gegnum alla leikina: Elaine Marley
landstjóri, eina sanna ástin í lífi Gu-
ybrush, sem er því miður meiri
maður en Guybrush og eiga þau
fremur stormasamt samband.
Sjóræninginn LeChuck, hættulegur
og dauður sjóræningi sem varð
snemma erkió-
vinur Guybrush
vegna ástai-
hans á Elaine
og að lokum
kona, sem,
vegna vöntunar
á betra nafni, við
skulum nefna
Voodoo-kon-
una, hún er
alltaf í öllum
leikjunum og sú
persóna er hjálpar
Guybrush mest í baráttu sinni
við LeChuck.
Olíkt leikjum eins og Blade
Runner eiga leikirnir þrír það
sameiginlegt að LucasArts
hefur aldrei reynt að gera þá
of raunverulega. í fyrstu
vegna skorts á þekkingu til
þess arna en síðar vegna
þess að söguþráður leiksins
Monkcy Island
Monkey Island-Ieikjasyrpa frá
LucasArts þar sem saman er pakkað
þremur lcikjum; The Secret Of Mon-
key Island, Monkey Island: LeChucks
Revenge og The Curse Of Monkey Is-
land. LucasArts gefur út, Activision
dreifir.
THE SECRET Of Monkey Is-
land var fyrst gefinn út af
LucasArts, sem þá var lítið fyrir-
tæki, árið 1990. Þá voru ævintýra-
leikir óþróaðir og oft voru leikirnar
bara með texta. Leikurinn
sló umsvifalaust í gegn
fyrir ótrúlegan söguþráð,
snjallar persónur og
fyndni. Leikurinn Monkey
Island: LeChucks Revenge
fylgdi í kjölfarið árið 1992
og vakti ekki síður athygli
aðdáenda ævintýraleikja.
Þegar hér var komið var
LucasArts þegar komið í
fremstu röð í hönnun ævintýra-
leikja og önnur fyrirtæki farin ac
apa eftir.
Enginn Monkey Island-leikur var
áætlaður eftir LeChucks Revenge
en árið 1995 ákváðu LucasArts-
menn að gera Monkey Island-leik
til, The Curse Of Monkey Island. Sá
sló einnig í gegn og var meðal ann-
ars valinn bestí leikur ársins af fjöl-
mörgum leikjatímaritum. Fyrir
stuttu kom út sérstök heildarútgáfa
af Monkey Island-leikjunum, þar
sem þeim er öllum pakkað saman
í þriggja diska sett.
Monkey Island-leikirnir gerast
allir á mismunandi eyjum sem allar
myndi ekki passa
við raunverulega
grafík. Ekki það
að leikirnir séu of
ýktir eða persón-
urnar fáránlegar,
langt því frá.
Monkey Is-
land-leikirnir
hafa hlotið mikið
lof fyrir flottar
persónur og vel
teiknað landslag.
Einnig hefur ákvörðunin um að
halda leikjunum teiknuðum auð-
veldað þeim mikið að skapa þetta
sérstaka Monkey Island-andrúms-
loft sem höfðar til svo margra spi-
lenda.
Þeim, sem hafa hugsað sér að
prófa leikina, er eindregið ráðlagt
að byrja á fyrsta leiknum þrátt fyrir
yfirburði þriðja leiksins í grafík og
hljóði. Ástæðan fyrir því er einfald-
lega sú að án þekkingar á bak-
grunni Guybrush og annarra per-
sóna og staða í leiknum er erfitt að
klára þriðja leikinn. Einnig er það
margra mat að fyrsti leikurinn sé sá
allra besti í seríunni.
Flestir sem spilað hafa seríuna í
gegn geta vafalaust verið sammála
greinarhöfundi um það að Monkey
Island-leikimir séu án efa allra
bestu ævintýraleikir sem komið
hafa út til þessa. Meðal annars hafa
verið gefnar út þónokkrar Monkey
Island-sögur sem samdar hafa verið
út frá leikjunum. I dag er hins veg-
ar aðeins hægt að nálgast þær á
Netinu þar sem fjölmargar Monkey
Island-heimasíður hafa verið settar
upp.
Ingvi Matthías Árnason
Þráðlaus blá-
tannarstaðall
SAMHLIÐA því sem notkun eykst á farsím-
um og lófatölvum eykst áhugi manna fyrir
þráðlausum gagnasendingum, ekki síst til að
hægt sé að senda upplýsingar á milli slíkra
tóla og einnig auðvelda samskipti við móður-
tölvu og myndavélar. Á nýafstaðinni CeBIT-
sýningu kynntu fjölmargir framleiðendur
nýjan staðal á því sviði sem dregur nafn sitt
af Haraldi blátönn Danakonungi.
IrDA, innrauð tengi, eru víða eins og flestir
þekkja en þeir eru teljandi á fingrum annarr-
ar handar sem nota þau. Það er ekki síst
vegna þess að þó IrDA-tengi sé til staðar er
ekki víst að hægt sé að nota það, meðal ann-
ars vegna þess að staðlar eru svo skammt á
veg komnir. Gott dæmi um það er auglýsing
sem birt var í blöðum í tilefni af myndinni
You’ve Got Mail, þar sem Ericsson sími var
notaður við Macintosh PowerBook-tölvu til að
senda póst og taka við honum um innrautt
tengi. Leit vel út í auglýsingunni en ekki eins
vel í raunveruleikanum því samkvæmt upp-
lýsingum á vefsvæði Ericssons er þetta ein-
faldlega ekki hægt og verður ekki hægt í fyr-
irsjáanlegri framtíð. Álíka vandræði blasa við
Nokia 6110-notendum sem ætla að nota sím-
ann sinn til að „tala“ við Macintosh
PowerBook eða vélar með WindowsCE um
innrauða tengið; það er ekki hægt og verður
ekki hægt. Prentaraframleiðendur hafa og
verið seinir á sér að setja innrauð tengi á
prentara sína, þrátt fyrir augljóst hagræði, og
ekki nema einn, Hewlett-Packard, sem er
með IrDA-tengi sem staðal á prenturum sín-
um.
Stjórn IrDA-félagsins hefur tekið undir
gagnrýni á IrDA-staðalinn og lofar bót og
betrun með nýjum staðli, IrDA 2.0. Flutn-
ingsgeta verður þá verulega aukin, stuðning-
ur innbyggður fyrir nettengingu og auðvelduð
uppsetning og stýring. Nýi staðallinn kemur í
kjölfar aukins áhuga á IrDA-tækni, meðal
annars eru að koma á markað tengi fyrir
myndavélar og mótöld og sumir framleiðend-
ur hafa kynnt smávaxna Ijósmyndaprentara
sem tekið geta við myndum beint úr mynda-
vél með IrDA-tengi. Þrátt fyrir þetta tefla
margir fram nýjum staðli á móti IrDA, og
flestir fremstu framleiðendur tækni- og tölvu-
búnaðar hafa tekið upp á sína arma Blátann-
arstaðalinn.
Blátönn, sem dregur nafn sitt af Danakon-
^ Bluetooth.
ungi, er staðall yfir útvarpstækni, sem fram-
leiðendur sjá fyrir sér að eigi eftir að koma í
stað IrDA. Sendingar samkvæmt Blátannar-
staðli geta flutt bæði gögn og rödd og hafa
það framyfir IrDA meðal annars að þurfa
ekki að vera í sjónlínu til að senda eða taka
við. Blátönn notar 2,4 GHz bylgjusviðið sem
hefur verið nokkuð notað og fyrir vikið eru
sendar og móttökubúnaður ódýr og víða til.
Búnaðurinn leitar uppi hreina rás innan sviðs-
ins og stillir sig eftir því sem truflanir krefj-
ast.
Flutningsgeta Blátannartækja verður tals-
vert meiri en IrDA, en sem stendur er hún
áætluð 721.000 bitar á s. Talsverð áhersla er
lögð á öryggi í gagnaflutningi og meðal ann-
ars beitt dulritun og tíðnistökkum til að tor-
velda njósnir. Tæknin byggist á pakkasend-
ingum og nær sambandi upp undir tíu metra
frá sendi/móttakara. Pakkamir eru smærri
en áður hefur tíðkast og tíðnistökkin örari, en
það gefur betra samband, minnkar möguleika
á njósnum eins og getið er en minnkar líka
líkur á truflunum.
Á móti kemur að 2,4 GHz sviðið hefur sín-
ar takmarkanir, því eftir því sem fleiri tól
fara að nota það til að senda gögn eða taka
við þeim því meiri líkur eru á að þau trufli
hvert annað og kallar meðal annars á lengri
bið eftir hreinni rás. 2,4 GHz er einnig
sveiflutíðni vatnssameinda og notað í ör-
bylgjuofnum sem valda truflunum í sending-
um og geta jafnvel hindrað þær á stóru
svæði ef ofninn lekur. Einnig fara sendingar
í gegnum veggi og því illt við að eiga ef ein-
hver í næstu íbúð eða skrifstofu er með 2,4
GHz nettenginu, því þá er lítið afgangs fyrir
aðra í nágrenninu.
Blátannarstuðningsaðilar eru flestir helstu
framleiðendur á sviði tölvu- og fjarskipta-
tækni, þar á meðal Intel, IBM, Toshiba,
Ericsson, Nokia, 3COM/Palm, Compaq, Dell,
Lucent, Motorola, Qualcomm og svo má telja
en alls eru um 200 þátttakendur í verkefninu.
Gefur augaleið að Blátönn á eftir að verða
ríkjandi staðall, en þó líklegt að innrauð sam-
skipti haldi velli enn um sinn.
Þessar þýsku gæðavélar hafa
heldur betur slegið I gegn. Nú
koma þær með innbyggðu
12MB Voodoo2 þrfviddarkorti
og 4 leikir fylgja. 17' skjár og
DVD fullkomna dæmið.
• 17* skjár • Intel 400 Mhz örgjörvi
• 64 MB innra minni ■ 8 A GB diskur
• 8 MB skjákort • DVD drif
• 12MB Voodoo2 þrivlddarhraðall
• 56K mótald og 2 mánuðir á netinu
• 16 bita hljóðkort og hátalarar
• Lyklaborð og mús
Voodoo2 er orðinn staðallinn I þrfvíddarkortum i dag.
Leikir sem styðja 3D hraðal umturnast. Þrlvlddarkortinu
er bætt aukalega við það sem er I tölvunnt^^
Einfalt I uppsetningu ■ geðveik áhrif!
Opið laugardag og surmudag!
PIOMEER
Tómir geisladiskar á frábæru
veroi. Seldir I stykkja tali!
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444