Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
JOHANN ADOLF
ODDGEIRSSON
+ Jóhann Adolf
Oddgeirsson
var fæddur 9. nóv-
ember 1913 á
Grenivík við Eyja-
fjörð. Hann lést 5.
apríl síðastliðinn.
Faðir hans var Odd-
geir skipstjóri á
Grenivík f. 23.10.
1880, d. 1971, Jó-
hannsson í Saurbrú-
argerði austan
Eyjafjarðar, frá
Stekkjarflötum í
Skagafirði Gísla-
sonar; móðir Odd-
geirs var Kristín Sigurðardóttir
Bjarnasonar frá Fellsseli í
Köldukinn. Móðir Jóhanns Ad-
olfs var Aðalheiður, f. 9.11.
1885, d. 1977, Kristjánsdóttir
frá Hróarsstöðum í Fnjóskadal
Guðmundssonar (Reykjaætt úr
Fnjóskadal). Kristján og Lísbet
bjuggu að Végeirsstöðum í
Fnjóskadal. Móðir Aðalheiðar
var Lísbet Bessadóttir frá
Skógum í Fnjóskadal. Móðir
Lísbetar var Margrét frá Heið-
arhúsum á Flateyrardalsheiði
Jónsdóttir. Bessi var Eiríksson
hins sterka frá Stein-
kirkju.
Oddgeir og Aðal-
heiður bjuggu á
Hlöðum á Grenivík
og var Jóhann Adolf
hið fimmta í röð tólf
barna þeirra. Systkin
Jóhanns Adolfs: 1)
Agnes, gift Jóni
Björnssyni, bæði lát-
in. 2) Alma, býr í
hárri elli á Grenivík,
gift fsak Vilhjálms-
syni, hann látinn. 3)
Aðalheiður, bjó á
Akureyri, var gift Al-
freð Pálssyni verslunarmanni,
bæði látin. 4) Björgólfur, dáinn
eins mánaðar. 5) Vernharður sjó-
maður, býr á Hlöðum á Grenivík.
6) Fanney býr á Akureyri, gift
Jóhanni Konráðssyni söngvara,
hann látinn. 7) Hlaðgerður, bjó
lengst af á Raufarhöfn, gift Birni
Friðrikssyni verslunarmanni. 8)
Margrét, býr í Kópavogi, gift
Grími Bjömssyni tannlækni. 9)
Sigríður, býr í Reykjavík, gift
Eric Steinssyni lögregluþjóni,
tvíburi við Sigríði er 10) Hákon,
býr í Reykjavík, málari og söngv-
ari, kvæntur Fridel Oddgeirs-
son. 11) Björgvin skipsljóri
kvæntur Lám Egilsdóttur, bú-
sett á Selljarnarnesi.
Jóhann Adolf kvæntist 13.
nóvember 1948 Steinunni Guð-
jónsdóttur, f. 18.3. 1924. Guð-
jón, faðir hennar, var skipstjóri
á Grenivík, Agústsson frá
Finnastöðum á Látraströnd.
Móðir Steinunnar var Sigríður
Jóhannsdóttir. Börn Jóhanns
Adolfs og Steinunnar em: 1)
Oddgeir skipstjóri, f. 30.8.
1946, kona hans er Margrét Jó-
hannesdóttir. 2) Guðjón skip-
sljóri, f. 10.2. 1948, kona hans
er Elísabet Ragnarsdóttir. 3)
Ægir, f. 10.2. 1951, d. 8.11.
1970. 4) Aðalheiður sjúkraliði,
f. 4.5. 1953, sambýlismaður
Birgir Pétursson. 5) Björgólf-
ur, forstjóri Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað, f. 28.8. 1955,
kona hans Málfríður Pálsdóttir,
6) Sigríður kennari á Grenivík,
f. 11.7. 1961, sambýlismaður
Valur Friðvinsson. 7) Oddný,
kennari á Grenivík, f. 4.1. 1967,
sambýlismaður Arnþór Péturs-
son. Barnabörn Jóhanns Adolfs
og Steinunnar em tólf. Þau
hjón bjuggu alla ævi á Greni-
vík.
Utför Jóhanns Adolfs fer
fram frá Grenivíkurkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Miki] kempa er fallin, á níræðis-
aldri, Jóhann Adolf Oddgeirsson,
skipstjóri frá Grenivík við Eyja-
fjörð. Nú þarf mannlýsingu eins og
þær verða bestar.
Jóhann Adolf var einn af dug-
mestu skipstjórum þjóðarinnar frá
því fyrir stríð og fram yfir 1970,
löngum aflakóngur, hvort sem var á
síldinni eða á vetrarvertíð á þorsk
frá Grindavík. Þetta var á þeim ár-
# um sem það gilti að færa afla að
landi. Löngu síðar varð það að sett
voru takmörk á veiðar skipa, þá
höfðu tímarnir breyst mikið.
Jóhann Adolf var af þekktri ætt
harðsækinna skipstjóra og dugnað-
armanna. Oddgeir Jóhannsson fað-
ir hans skipstjóri á Grenivík var
aflasæll, kempa mikil - af Fellssels-
ætt í Köldukinn. Móðir Jóhanns
Adolfs, Aðalheiður, var af þeirri
kjammiklu Steinkirkju-ætt úr
Fnjóskadal, Lísbet Bessadóttir
móðir hennar var systir Jóhanns
kirkjusmiðs Bessasonar á Skarði í
Dalsmynni, sem var alkunnur garp-
ur á sinni tíð. Kristján frá Hróars-
stöðum faðir Aðalheiðar hafði verði
næmur á söng.
Jóhann Adolf hafði mikið úr ætt-
um sínum. Hann var óvenju þrótt-
legur að vallarsýn, maður meðalhár
en feikn þykkur undir hönd, svipur
andlits var skúlptúr, talröddin sér-
kennilega hljómmikil; ungur var
hann kappsamur íþróttamaður; alla
ævi fylgdi hann vel eftir. Hann var
flugnæmur á músík, söngröddin
var djúpur barítónn. Vel gerður
maður hvar sem á var litið. Hann
var á hafi úti alla starfsævina.
Oddgeir og Aðalheiður, foreldrar
Jóhanns Adolfs, settust að á Hlöð-
um á Grenivík upp úr aldamótunum
síðustu. Þorpið var ekki orðið til.
Verður nú mikil saga af þeim hjón-
um. Oddgeir hófst handa við útgerð
frá Grenivík og gekk vel og brátt
verður mikill uppgangur í útvegi
hans. Aðalheiður fæðir 12 börn, 11
náðu fullorðinsaldri, eitt misstu þau
kornabarn. I fyrstu var félag um
útgerðina við svila Oddgeirs, Stefán
Stefánsson, sem kvæntur var Frið-
riku systur Aðalheiðar. Og það er
sótt á mótorbátum þess tíma langt
út í haf ef þurfti.
Jóhann Adolf vex upp með þess-
ari útgerð og vinnslu fisksins í landi
sem allir tóku þátt í. Hinn harð-
skarpi piltur tekur kornungur við
skipstjórn, 16 ára gamall, er þá
með Hókon, bát föður síns, og
gengur afbragðs vel. Skipstjórnar-
réttindi hlaut hann svo 18 ára og
gengur alltaf vel.
Upp úr stríði stofna þeir til um-
fangsmeiri útgerðar þeir Jóhann Ad-
olf og Þorbjöm Askelsson, harðdug-
legur maður, sem hafði einnig rekið
útgerð á Grenivík, og fleiri með
þeim.
Stofnað var útgerðarfélagið
Gjögur hf. sem enn starfar með
miklum blóma. Keyptir voru stærri
bátar, Vörður og Von. Jóhann Ad-
olf stýrði Verði lengi og með sér-
stakri farsæld. Þegar skipin stækk-
uðu tók hann við þeim, Askeli, Odd-
geiri, Hákoni, - og er við skipstórn
allt fram undir sjötugsaldur að
hann fer í land - eftir hálfa öld við
stjómvölinn. Þá höfðu tveir synir
hans tekið við sama hlutverki, enda
í engu eftirbátar fóður síns. - Það
hafði töluvert gengið á, á síldinni,
og hljómaði röddin úr brúnni; það
gekk reyndar töluvert á líka í landi,
þar sem Þorbjörn Askelsson stýrði
fyrirtækinu; og talsvert gekk líka á
í Slippstöðinni á Akureyi'i hjá
Skapta Askelssyni þegar skipin
voru tekin í slipp og búin undir síld-
ina. Allt er þetta orðið að sögu -
sem ekki mun endurtaka sig.
Jóhann Adolf hafði mikið úr ætt-
um sínum. Aðalheiður móðir hans
t
Eiginmaður minn,
SVEINN BERGSSON,
lést aðfaranótt fimmtudagsins 15. apríl sl. á
sjúkrahúsi í Bode í Noregi.
Jarðarförin fer fram 22. apríl á Andoy, Noregi.
Fyrir mína hönd og bræðra hins látna,
Randi Bergsson,
Jón G. Bergsson,
Sigurður Bergsson.
t
Elskulegi sonur okkar, barnabarn, bróðir og
unnusti,
MAGNÚS MÁR BJÖRNSSON,
sem lést af slysförum föstudaginn 9. apríl
síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Háteigs-
kirkju mánudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Björn Björnsson, Kolbrún Bergmann Magnúsdóttir,
Björn Jónsson,
Olga Guðrún Sigfúsdóttir,
Margrét Sigfúsdóttir, Elmar Kristjánsson,
Birna Ósk Björnsdóttir, Cecil King Lewis jr.,
Linda Björk Jónasdóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför
ELIMARS HELGASONAR
bónda,
Hvammi, Holtum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkradeildar
Lundar á Hellu.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Pálsdóttir,
Sigurbjörg, Sveinn og fjölskylda.
hafði afbragðs músíkgáfu. Oddgeir
faðir hans hafði einnig góða söng-
rödd. Hlutu þetta öll börn þeirra að
arfi og mörg ríkulega.
Það er sagt að á haustkvöldum
gerði fólk úr nágrenninu sér erindi
niður á Grenivík - það var verið að
beita fyrir næsta dag - og það var
sungið við verkin - ailir að beita,
frá sjö ára aldri til sjötugs, og allir
sungu, kór með fjórum röddum,
ættmóðirin Aðalheiður stjómaði,
kórinn í beitningaskúrnum er yfir
20 manns, allt afkomendur hennar,
skyldmenni eða venslafólk. Það var
von að fólkið úr nágrenninu kæmi
til að vera með. Samt vissi enginn
þá að í hópnum voru að vaxa upp
fimm einsöngvarar og grunnur
lagður að öðrum sjö - og annað eins
af skipstjórum - allir voru að kepp-
ast við, að beita.
Það stendur enn einn af þessum
skúrum, sá sem Jóhann Stefánsson
átti, systursonur Aðalheiðar.
Vefur sögunnar er nú ofinn nýj-
um þráðum.
Jóhann Adolf kvæntist Steinunni
Guðjónsdóttur skipstjóra á Greni-
vík Ágústssonar frá Finnastöðum.
Synir þeirra þeir Oddgeir og Guð-
jón báðir skipstjórar; Björgólfur er
forstjóri Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað, - hinn fjórði, Ægir, hann
lést ungur, mannvænlegur maður.
Dæturnar Sigríður og Oddný eru
kennarar á Grenivík, Aðalheiður
starfsmaður Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri.
Steinunn sér nú mann sinn
hverfa til moldar í Grenivíkur-
kirkjugarði, hann er genginn til
sögu, þar sem margir af ættmenn-
um hvíla fleiri. Kirkjan á Grenivík
hefur alltaf átt virðingu sjómanna
sinna.
Nú verða einhverjir aðrir
á undan að ganga
Guð veiti bjargráð og blessun
byggðinni minni.
(I.G.)
Lára Egilsdóttir,
Valgarður Egilsson.
Jóhann Adolf Oddgeirsson skip-
stjóri er til moldar borinn í dag,
mikil kempa og hafði verið sjómað-
ur frá barnæsku. Hann var fæddur
á Hlöðum í Grenivík og átti ættir
sínar að rekja úr byggðunum aust-
an Eyjafjarðar. Faðir hans, Odd-
geir Jóhannsson, var frá Saurbrú-
argerði skammt norðan Víkur-
skarðs. Bæjarstæðið er uppi á ofur-
lítilli grasflöt og sjávargatan há og
brött. Það er þess virði að ganga
upp á flötina og hugsa til fyrri kyn-
slóða. Það þurfti þrekmenn til að
bera lífsbjörgina upp brattann. Slík
lífsbarátta er nútímamanninum
óskiljanleg enda þurfti hörku til að
lifa af á fyrri tímum.
Á miðri síðustu öld fór sjósókn að
aukast frá Grenivík og þorpsmynd-
un varð þar í byrjun þessarar aldar.
Oddgeir frá Saurbníargerði var
einn af frumkvöðlunum og hóf Jó-
hann Adolf sjóróðra með föður sín-
um innan við fermingu á bátnum
Hákon sem var annar í röðinni með
því nafni. Síðan tók hann við bátn-
um og var í útgerð með föður sínum
fram til 1940 er báturinn var seld-
ur. Jóhann Oddgeir var síðan á ver-
tíðum í Sandgerði með báta frá
Hrísey og Dalvík og Brís Guð-
mundar Péturssonar á Akureyri.
Þáttaskil urðu í sjómennsku Jó-
hanns Adolfs þegar útgerðarfélagið
Gjögur var stofnað á Grenivík 1946.
Það var i rauninni almennings-
hlutafélag en þeir Þorbjörn Áskels-
son útgerðarmaður stóðu fyrir því.
Fyrsti báturinn Vörður kom í árs-
byrjun 1947 og tók Jóhann Adolf
við honum og var síðan með Áskel,
Oddgeir, Vörð og að síðustu Hákon,
mikið loðnu- og síldarskip. Þó
Grenivík hafi verið heimahöfn skip-
anna var óhjákvæmilegt að miðstöð
fyrirtækisins færðist til Grindavík-
ur þar sem bátarnir voru gerðir út
á vertíð. Þó var reynt að vera á
trolli út af Norðurlandi á vorin
fram að síldarvertíð.
Jóhann Adolf var meira en hálfa
öld á sjó eða til 69 ára aldurs. Það er
löng sjómannssaga. Enda má með
vissum hætti segja að hann hafi ver-
ið persónugervingur þeirrar kyn-
slóðar sjómanna sem hófu róðra á
smábátum í upphafi þessarar aldar
og lifðu síðan allar þær breytingar
sem auðlegð og nýjasta tækni köll-
uðu fram. Hann var fjölskyldumað-
ur en örlög hans urðu þó þau að
vera langdvölum fjarri heimöi sínu.
Hann mælti þó aldrei æðruorð. Sjó-
mennskan átti hug hans allan og
naut hann virðingar í sinni stétt
enda mikill aflamaður, mikiU skip-
stjóri og fór vel með áhöfn sína.
Árið 1948 kvæntist Jóhann Adolf
Steinunni Guðjónsdóttur frá Gröf,
atorku- og sæmdarkonu. Þau voru
hamingjusöm í sínu einkalífi og áttu
barnaláni að fagna. Eftir að börnin
voru uppkomin fór Steinunn til Gr-
indavíkur með manni sínum yfir
vertíðina og vann þar. Síðan settust
þau að heima á Grenivík að loknu
löngu dagsverki. Þá hafði Jóhann
Adolf kennt þess sjúkdóms sem að
síðustu dró hann til dauða. Vel var
að honum hlúð og um hann hugsað
heima á Hafbliki og undir lokin
lagði Steinunn með dætrum sínum í
rauninni meira á sig en hægt er að
ætlast tö. Haustið 1997 fór Jóhann
Adolf tö dvalar inn í Skjaldarvík og
dó í Seli á annan í páskum.
Eg sá Jóhann Adolf síðast á tón-
leikum Kristjáns Jóhannssonar og
Jónu Fanneyjar Svavarsdóttur,
frændsystkina hans, og Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur í Iþróttahöllinni í
fyrra. Hann naut þeirrar stundar
enda músíkalskur eins og allir af
því kyni, góður bassi og söng í
karlakór og í kirkjukórnum.
Með Jóhanni Adolf er fallinn í
valinn einn af þeim skipstjórnar-
mönnum sem mestan svip hefur
sett á fiskveiðar íslendinga á þess-
ari öld. Hann var drengskaparmað-
ur og prúðmenni og stafaði hlýju
frá honum. Hann verður minnis-
stæður þeim sem honum kynntust.
Þessar línur bera þér, Steinunn,
börnum þínum og fjölskyldu, hlýjar
kveðjur okkar Kristrúnar. Það er
mikill missir eftir mikinn mann. Við
biðjum Guð að blessa ykkur og
vaka yfir minningu Jóhann Adolfs
Oddgeirssonar.
Halldór Blöndal.
Jóhann Adolf Oddgeirsson, Addi,
er látinn. Árið 1946 stofnuðu Addi,
faðir minn Þorbjörn Áskelsson og
fleira gott fólk útgerðarfélagið
Gjögur á Grenivík og tók Addi við
skipstjórn á fyrsta báti félagsins,
Verði ÞH 4, í upphafi árs 1947. Var
Addi síðan með skip Gjögurs sam-
fleytt til 1980 að hann hætti sjó-
mennsku. Hann var mikill aflamað-
ur, farsæll stjórnandi og vel liðinn
af áhöfn sinni, léttur í lund og söng-
elskur eins og ættmenni hans
mörg, en gat þó hvesst sig á stund-
um en ekki lengi.
Þegar sjómennsku lauk komu
þau hjónin, Addi og Steinunn, suð-
ur í Grindavík og sáu um verbúð
Gjögurs með sama myndarskap og
reisn og þau ráku heimili sitt oft
mannmargt.
Með þeim í Grindavík voru dætur
þeirra, en synirnir Oddgeir og Guð-
jón eru nú skipstjórar á Hákoni.
Sonur þeirra Ægir var einnig sjó-
maður, en hann lést úr krabbameini
árið 1970 aðeins 19 ára gamall.
Björgólfur hefur ekki heldur sleppt
hendinni af útgerð, er nú forstjóri
Sfldarvinnslunnar á Neskaupstað.
Síðast stjórnaði Addi Hákoni ÞH
250, sem seldur var til Chile 1987.
Það sama ár var nýr Hákon smíð-
aður í Noregi og kom Addi með að
sækja hann og sigldi með honum
heim skömmu fyrir jólin, var það
trúlega lokaferð hans á sjó.
Eg vil þakka Adda fyrir gott
samstarf og trausta vináttu í þau 40
ár sem við höfum unnið saman að
rekstri Gjögurs og harma að geta
ekki fylgt honum síðasta spölinn,
en ég veit að fjarvera mín í Chile nú
og fyrirhuguð nýsmíði hefði verið
honum að skapi.
Blessuð sé minning hans.
Ég og fjölskylda mín vottum
Steinunni og fjölskyldunni innöega
samúð.
Guðmundur Þorbjörnsson.