Morgunblaðið - 17.04.1999, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 77
Eiði á Langanesi
Eiðsvik á Langanesi. í Eiðisvatn sést t.v. á myndinni.
Heiðarflall í baksýn.
Frá Kristni Kristjánssyni:
í LANDNÁMABÓK segir:
„Þessir menn hafa land numit í
Austfirðingafjórðungi, er nú munu
upp talðir, ok ferr hvat af hendi
norðan til fjórðungamóts frá Langa-
nesi á Sólheimasand, ok er þat sogn
manna, at þessi fjórðungr hafi fyrst
albyggðr orðit. Gunnólfr kroppa hét
maðr, son Þóris hauknefs hersis;
hann nam Gunnólfsvík ok Gunnólfs-
fell ok Langanes allt fyrh' útan
Helkunduheiði ok bjó í Fagravík.
Hans son var Skúli herkja, faðir
Geirlaugar.“
Landnám Gunnólfs hefur að stór-
um hluta verið þar sem síðar varð
Austurhreppur (sjá kort um helstu
landnám í Austfirðingafjórðungi).
Nafnið Fagi-avík þekkist ekki nú, en
á að öllum líkindum við Eiðisvík því
á Islandskorti dönsku prófessor-
anna Erichsen og Sehönning frá ár-
inu 1771 er Eiðisvík nefnd Fa-
gradalsvík (þess má geta að nöfn
hafa breyst frá landnámabók, í með-
förum manna í gegnum aldh-nar, svo
sem Gunnólfsfell heitir nú Gunnólfs-
víkurfjall, Viðfjörður í Sturlubók
heitir nú Miðfjörður o.s.frv.).
Eiðisvík er stór vík austan á
Langanesi miðju og markast af
Kumblum í norðri en Fagranesi í
suðri. Fagranes er einnig bær
kenndur við nesið. Hin langa og
fengsæla strönd, frá Gunnólfsvík
norður fyrir Font allt inn til Sauða-
ness, að landnámi Keltils þistils, með
Eiðisvík miðsvæðis, hefur hæft
Gunnólfi vel. Eiðisvatn er allstórt
stöðuvatn inn af víkinni en mjótt eiði,
sem víkin er nú kennd við, skilur það
frá hafinu. I vatninu er góð silungs-
veiði, lax gengur í það og fuglalíf er
mikið. Bærinn Eiði er norðan við
vatnið, en sunnan við það er fornbýli.
Sá bær gat vel heitið Fagravík. Forn
örnefni eru þar frá ómunatíð svo
sem Naust inn af ós Eiðisvatns og
Skiphóll nokkru innar. Nokkuð ör-
uggt er að skipgengur ós með góðu
skipalægi hefur verið við Eiðisvatn
við landnám og aðstæður tiltölulega
góðar til lendingar. Sunnan til í
Eiðisvatni er dýpri áll inn í Eiðisvatn
sem nánast örugglega hefur einnig
verið vel skipgengur fyiir rúmlega
1100 árum þegar Gunnólfui' kroppa
kom á þessar slóðir. Ef ós væri opinn
inn í vatnið nú á tímum væri hægt að
sigla langt inn í Eiðisvatn á stór-
straumsflóði enn þann dag í dag um
fyrrgreindan ál. Land er að rísa á
þessu svæði eftir að ísaldarjökull
hopaði og botn Eiðisvatns hækkar
einnig stöðugt vegna uppkasts á
þara, timbri og finum sandi úr sjó,
myndunar á lífrænum botnjarðvegi
og sets frá aur úr ám og lækjum. Allt
í kringum Eiðisvatn sjálft er sjáv-
arnúið grjót sem sýnir að fyrir löngu
var vatnið allt sjávai'vík.
Augljóst er að landnámsbær
Gunnólfs hefur ekki staðið í Gunn-
ólfsvík, því Gunnólfsvíkur er sér-
staklega getið í landnámabók, en
ekki sem þess staðai' þar sem Gunn-
ólfur bjó, heldur er sagt í landnáma-
bók að hann hafi búið í Fögruvík.
Nafngiftin Gunnólfsvík er á hinn
veginn helgun á mörkum landnáms
Gunnólfs í suðri. Auk þess er Gunn-
ólfsvík inn úr Finnafirði sem Finni
nam. Þess vegna hefur Gunnólfur
kroppa varla viljað hafa bæ sinn í
Gunnólfsvík, þar sem Finni átti
fjörðinn allan að Gunnólfsvík. Land-
kostir eru auk þess litlir í Gunnólfs-
vík og eftir litlu að sækjast með að
staðsetja landnámsbæ þar, fast við
landnám annars manns í suðvestri
en með brattar og torfærar hlíðar
Gunnólfsfells og Helkunduheiði á
hina höndina. Auðskilið er einnig, að
höfðingjasonur sem Gunnólfur
kroppa hafi þurft að hafa meira
svigrúm til allra átta.
Þeir' sem þekkja til landkosta og
aðstæðna á Langanesi sjá strax, að
landnámsmaður hefur ekki byggt
bæ sinn á Fagranesi. Sá staður hef-
ur enga þá kosti sem ætla má að
landnámsmaður, sem nóg landrými
hafði, hafi verið að sækjast eftir.
Þaðan er örðug leið yfir fjöllin.
Hvorki eru þar nokkur landgæði að
ráði né auðvelt að koma við sigling-
um eða sjósókn, því vík er þar engin
og lending mjög erfið við sæbratta
strönd. Fagranes er afar afskekktur
staður og einangraður frá öðrum
hlutum landnáms Gunnólfs. Mjög
ólfklegt er að svo stórættaður mað-
ur, sem Gunnólfur kroppa sonur
Þóris hauknefs hersis, konungs í
Noregi, hafi sett niður bú sitt á Fa-
granesi. Hann hefur viljað búa fyrir
miðju sínu landnámi, með thtölulega
góðar samgöngur á landi um hið
lága Eiðisskarð (hefur einnig verið
nefnt Eiðisdalur) og til hafs frá
Eiðisvík, en þessir einstöku kostir
fylgdu búsetu í Eiðisvík. Eiði við
Eiðisvík var alltaf fyrrum talið eitt
gildasta og blómlegasta býli á
Langanesi og þótt víðar væri leitað.
Nokkuð ljóst er því að landnáms-
bær Gunnólfs var í Eiðisvík (Fa-
gradalsvík), í landnámabók nefnt í
Fagravík (í vík), en ekki á Fagranesi
(á nesi). Eiðisvík er eina víkin í land-
námi hans sem eitthvað kveður að
og hefur einhverja þá landkosti sem
eftirsóknarverðir eru. Menn sem
heimsótt hafa staðinn á síðari tímum
hafa haft á orði að fagurt sé í Eiðis-
vík. Svo má geta þess að víkingur
var Gunnólfur kroppa konungssonur
svo sannarlega.
KRISTINN KRISTJÁNSSON,
Bárðarbúð, Hellnum.
iðSmss*®
á awm A*>«R
... ageR
hM.FVIRÐÍ’r Et-ow 0TSO^ bAKPOKAR' „
SWÍSHORN‘°5ONOFMNAÐUJ-lARfMNAÐUR.
GOVfVO^. bOXUR. B°'Í1tp,.\/ÖROb.
ÖtPOR. HRf »W®SS^»R.
NYTT KORTATIMABII
\dag
HREYSTI
---sport vömhus
Fossháisi 1 - Sími 577-5858