Morgunblaðið - 17.04.1999, Side 81
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó hefur tekið til sýninga myndina The Corr-
uptor með Chow Yun-Fat og Mark Wahlberg í aðalhlutverkum.
Spilling og löggæsla
Frumsýning
NICK Chen (Chow Yun-Fat) er einn
þeirra lögi-eglumanna í New York
sem njóta mestrai- virðingar og hafa
hlotið flestar viðurkenningar fyiir
störf sín. En Nick er spilltur og hefur
notfært sér tengshn við kínverska
undirheimabaróna til þess að ná
starfsframa innan lögreglunnai’. Nú
er hann orðinn rannsóknarlögreglu-
raaðm- í fremstu röð og andlit þehTai’
deildar sem berst við kínversku
glæpagengin; hann hefur það verk-
efni að varðveita friðinn í Kínahverf-
inu.
En það verður breyting þegai’ nýr
raaður kemur í deildina, Danny
Wallace (Mark Wahlberg). Hann ger-
h- sér enga grein fyrir því viðkvæma
spillingarjafnvægi, sem einkennir
störf yfii’boðara hans. Þess vegna
fara hlutimir að breytast þegar ný
glæpaklíka fer að láta kveða að sér og
reynir að draga Danny inn í spilling-
arvefinn. Þá verður Chen að ákveða í
hvom liðinu hann ætlar að spila.
Handrit þessarar myndar, sem er
hasarmynd með dramatísku ívafi, var
skrifað í þeim tilgangi að leggja enn
frekari grundvöll að vinsældum kín-
verska leikarans Chow Yun-Fat í
Bandaiákjunum. Chow hefur áður
leikið í einni bandarískri mynd, hinni
vinsælu Replacement Killers, þar
sem hann lék á móti Mira Sorvino.
Hann hefur í á annan áratug verið
vinsælasti leikari Kína og stjama í
Hong Kong myndum John Woos og
fleiri leikstjóra. En þótt John Woo sé
meistari hasarmyndanna er Chow
Yun-Fat annað og meira en venjuleg
hasarhetja.
„Chow Yun-Fat er Fred Astaire
hasarmyndanna,“ segir Mira Sorvino,
óskarsverðlaunahafi og fyrrum mót-
leikari hans. „Gene Kelly var ímynd
karlrembunnar í söng- og dansmynd-
unum gömlu en Fred var alveg jafn-
karlmannlegur, bara miklu meira el-
egant. Chow Yun-Fat er mest elegant
hasarhetjan í bransanum.“
Chow hefur hlotið fjölmörg verð-
laun fyrii’ leik sinn í myndum í heima-
landinu og engin kínversk stjama
WmS'i • ¥ f í
fjt 2* ; i
MARK Wahlberg, sem leikur Danny, á tali við leikstjórann James Foley.
CHOW Yun-Fat ieikur spilltan
lögreglumann, Nick Chen.
hefur sýnt viðlíka fjölhæfni því hann
er jafnt á heimavelli í hasarmyndum,
gamanmyndum og dramatískum
harmsögum enda er hann stundum
kallaður „hetjan með þúsund andlit-
in“ vegna þess að hann kemur til skila
inm-i spennu og sálarþrengingum
þeirra sem hann leikur jafnvel í
mestu hasarmyndum. „Jafnvel þegar
Chow Yun-Fat er að rista upp kviðinn
á einhverjum aukaleikara stafar frá
honum andlegu lífi og innri við-
kvæmni,“ sagði einn gagnrýnandi.
Leikstjóri myndarinnar er James
Foley, sem áður hefur m.a. gert
myndimar At Close Range, Reckless,
Feai- og Glengarry Glen Ross, en
enga hasarmynd fyir en þessa.
Þeir eru spennandi par Yun-Fat
og Foley, sem var langt kominn í
námi sem sálgreinandi þegai’ hann
sneri sér að kvikmyndagerð.
„Sterkasta hlið James er geta hans
til að vinna með samskipti á hvíta
tjaldinu, t.d. i myndum eins og
Glengarry Glen Ross og At Close
Range þar sem flókin samskipti á
nótum föður og sonar eru í brennid-
epli. Það á líka við hér,“ segir fram-
leiðandi myndarinnar Dan Halsted,
en meðal annarra framleiðenda má
nefna Oliver Stone.
„Ég nýt þess að fjalla um allar þær
flóknu hliðar sem áhrif fóðurins geta
haft á menn. Þessi mynd fjallar um
samskipti fóður og sonar og allt hatr-
ið, sem getur kviknað milli þeirra,"
segir Foley. „Ég nýt þess að ná fram
því sem býr undir yfirborðinu, sam-
skiptamynstrinu milli fólks. Nær-
mynd af frábærum leikara á tilfmn-
ingaþrunginni stund er það mest
spennandi sem ég get hugsað mér í
kvikmynd.“
Hinn aðalleikari myndarinnar,
Mark Wahlberg, sló í gegn í aðalhlut-
verki myndarinnar Boogie Nights,
The Basketball Diaries og The Big
Hit og Fear, eftir James Foley. Þá á
Wahlberg að baki feril sem popp-
stjarna.
Snemmkomin
úttekt á öldinni
TUTTUGASTA öldin fer inn í sög-
una sem ein skrítnasta öld mann-
kynssögunnar, sem annars vegar
öld mikillai’ heimsku, öfundar, hat-
urs og stríðsglæpa, en hins vegar
öld glæsilegustu framfara í sögunni
á svo að segja öllum sviðum, tækni-
legum jafnt og líffræðilegum. Á slík-
um upplýstum tímum hefði mátt bú-
ast við efldri siðgæðisvitund. En í
stað þess hefur henni
hrakað, þangað til svo
er komið, að sveita-
menn uppi á íslandi
koma saman, um hund-
rað manns, og heimta að manndráp
skuli látin í friði suður í álfunni.
Þetta hefur hugmyndafræði
svartasta íhalds, sem þekkst hefur í
heiminum, leitt af sér í hugum ein-
feldninga.
Tuttugustu öldinni vii’ðist bráð-
liggja á að ganga frá eftirmælum
sínum, ef mai’ka má þær tvær þátt-
araðir, sem rfldsrásin sýnir um þess-
ai’ mundh’, Oldina okkar og Kalda
stríðið. í Oldinni okkar er sagt frá
einstökúm dæmum í þróun ýmissa
ríkja innan álfa, en nokkuð snemmt
er að segja þá sögu, því hún er ekki
öll enn eða afleiðingar hennar ljósar.
Saga aldarinnar er engu að síðui’
forvitnileg, enda rifjar hún upp mik-
ilsverða atburði, sem höfðu áhrif á
framvinduna. Síðasti þáttui-inn var
um atómsprengjuna, gjöreyðingai’-
vopnið, sem gaf kalda stríðinu sann-
færingarkraftinn. Tilbúningur atóm-
sprengjunnar átti að verða leyndar-
mál einnar þjóðar. Nú ræður hátt í
tug þjóða yfir gjöreyðingunni. Hefur
þá vísindamönnum tekist að koma á
í raun því ógnaijafnvægi, sem þeir
Oppenheimer og Niels Bohr töldu
nauðsynlegt, samkvæmt því sem
sovéskar heimildir herma.
Um Kalda stríðið gegnir því máli
að afleiðingar
þess verða að
koma í ljós langt
aftur eftir 21.
öldinni. Hér
SJÓNVARPÁ
LAUGARDEGI
er
bæði átt við þann mikla heilaþvott,
sem fer enn fi’am í skólakerfum
Vesturlanda, allt frá því að farið er
að kenna sex ára börnum, þangað til
þau útskrifast úr háskóJa, og ein-
stakar þjóðh’, sem sitja lamaðai’ eft-
ir langvarandi viðjar einræðisherra
og telja sér ftjálst að „hreinsa til“
samkvæmt hefðum bræðraflokka,
bæði gömlum og nýlegum, saman-
ber hreinsanimar í Kosovo.
Nokkur nýbreytni er það hjá rík-
isrásinni og Stöð 2 að sýna veiði-
þætti. Það framtak er út af fyiir sig
þakkarvert, enda mátti fara að halda
að einungis sagnalítið fólk hefði að-
gang að sjónvarpi með prívatspaug
sitt. Nú ei-u þeir Pálmi Gunnarsson
og Eggert Skúlason með sinn þátt-
inn hvor, Pálmi í sjóbirtingi og
bleikju á í-íkisrásinni og Eggert
skjótandi á Stöð 2. Það er svolítið
vandmeðfarið að gera þætti úr þessu
efni, því hvorki sjóbirtingur eða gæs
láta sig nokkru varða hvort sjónvarp
er með eða ekki; öfúgt við mannfólk-
ið, sem mundi margt hvert vilja að
minnsta kosti falla í yfirlið byðist því
sjónvarpstaka. Hins vegar á gæsin
engan kost. Hún verður að falla fyrir
Eggerti. Öðru máli gegnir með sjó-
bh-tinginn og bleikjuna. Pálmi gefui'
þessu vatnafé líf.
Nokkrar raunir henda þá sem
lenda í útsendingum sjónvarps og
útvarps. Kosningabaráttan ætlar
ekki að hefjast vegna góðæris í
landinu vegna þess að stjómarand-
staðan hefur gripið dauðahaldi í
gamla kommataktík, að stíga fram
og segja við kjósandann: „Ég skal
borga þér hærri laun“. Stjórnarand-
staðan tekur skýi-t fram að hún ætl-
ar ekki að hækka laun verkamanna,
eða annarra láglaunastétta almennt.
Hún ætlar að hækka laun aldraðra
og öryrkja. Kosningabaráttan flýtur
ekki langt á þessu, enda vora 95%
aldraðra að lýsa því yfir í skoðana-
könnun að þeir ættu nóga peninga.
Sem sjónvarpsefni eru frambjóð-
endafundh- hi-útleiðinlegir, og bætir
ekkert úi’ þótt örli á skemmtidag-
skrá hjá húmanistum, anarkistum
og jesúítum. Það eina sem stjórnar-
andstaðan gæti gert úr þessu væri
að banna góðærið.
Indriði G. Þorsteinsson
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 81 /
f ' ^
Trimform námskeið
Dagana 30. apríl - 4. maí verða haldin námskeið í
rafnuddi fyrir þá sem vinna við eða hafa áhuga á
að læra að vinna með Trimform.
Námskeið 1 verður dagana 30 apríl - 2 maí.
Á námskeiöinu verður m.a. farið í:
• grunnatriði TEMS lögmálsins
• alhliða þjálfun og endurhæfingu
• bakvandamál
• vöðvabólgumeðferðir
• meðhöndlun gigtarsjúklinga
• íþróttaáverka - þvagleka o.fl.
Námskeiö 2 verður dagana 3-4 maí.
Á námskeiöinu verður megináhersla lögð á:
• mismunandi grenningaraöferðir
• húðstyrkingu
• vandamál með appelsínuhúð
• fegrunarmeðferðir o.fl.
Leiðbeinandi er Brítta G. Madsen
Skráning og upplýsingar í síma 511 4100
Trimform á íslandi
Alþjóða versíunarfélagið ehf.
Skipholti 5, 105 Reykjavík.
- ' J
Heilsubótar dansleikur
eftir skemmtidagskiá Ladda og
• ^>1 1 • X
Klass
leikurfyrir dansi
frákl. 23.30 íkvöld.
Söngvarar: Sigriín Eva Ármannsdóttir
og Reynir Guðmundsson
4
Radisson SAS
Saga Hotel
Reykjavík
__________Mfmisliar
Arna Þorsteinsddttir og Stefán Jökulsson
slá á léttari ndtur á Mfmisbar
OTTÓ - GRAFlSK HÖNNUN