Morgunblaðið - 17.04.1999, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 83
KYIKMYNDIR/Kringlubíó sýnir fiölskyldumyndina Simon Birch sem byggð er á skáldsögunni A Pra-
yer for Owen Meany eftir metsöluhöfundinn John Irving.
Smávaxna
undrið og
vinur hans
Frumsýning
LEIKST
J°hnson o-efi,n i •,
nokkur holh-úð J^Í'JUaw
Eirch. VI^ tókuv á
SIMON Bii-ch (Ian Michael Smith)
var smávaxnasta barnið sem
nokkru sinni hafði fæðst í sögu
spítalans í Graveston. Læknarnh-
sem tóku á móti honum lýstu því
yfir að hann væri sannkallað
fa’aftaverk og sjálfur er hann ið-
inn við að minna fólk á að svo sé
þegar því hættir til að gleyma
því. Simon er sannfærður um að
hann eigi eftir að verða mikil
hetja en hann bara veit ekki
með hvaða hætti það verðui-. Á
meðan hann bíður röki-æðir
hann um trúmál við hinn
stjómsama kennara sinn í
sunnudagaskólanum (Jan
Hooks) og bókstafstrúar-
prestinn (David Straithahm),
ferðast um í hliðarvagninum
á hjóli besta vinar síns (Joe
Mazzello) og leikur sér með
honum í homabolta. Örlögin
grípa svo skyndilega í taumana þegar
Simon slær boltann eitt sinn með
óvæntum og alvarlegum afleiðingum.
Upp frá því tvinnast örlög vinanna
saman þar sem þeir reyna hvor um
s>g að fínna það sem þeir hafa glatað.
Joe reynir að komast að því hver fað-
ir hans er og Simon reynir að komast
að því hvaða sérstaka tilgang guð hafi
íetlað því smágerða kraftaverki sem
hann er.
Kvikmyndin Simon Birch á rætur
að rekja til skáldsögunnar A Prayer
for Ovven Meany eftir metsöluhöf-
undinn John Irving. Þegar leikstjóri
myndarinnar og handsritshöfundur,
Mark Steven Johnson, las bókina
fyrst gat hann með engu móti lagt
hana frá sér þar sem hún var ólík
öllu sem hann hafði áður lesið. Þegar
hann hafði lokið lestrinum var hann
strax staðráðinn í að gera einhvern
tíma kvikmynd sem byggði á henni
og sá ásetningur hans hefur nú ræst.
Johnson er sennilega þekktastur
fyrir handrit sín að hinum vinsælu
myndum um gömlu mennina fúl-
lyndu, Grumpy Old Men, sem þeir
Jack Lemmon og Walther Matthau
léku, en einnig skrifaði hann handrit
myndanna Big Bully með Robert
Moranis og Frost með Tom Amold.
Hinn 11 ára gamli Ian Michael
Smith sem leikur Simon Birch hefur
ekki áður leikið í kvikmynd, en Jos-
eph Mazzello sem leikur vin hans
IAN Michael Smith leikur Simon Birch og Joseph Mazzello
leikur besta vin hans.
MEÐAL leikara í Simon Birch eru Oliver Platt og Ashley Judd sem
hér eru ásamt aðalleikaranum Ian Michael Smith.
Joe á hins vegar margar myndir að
baki. Ferill hans hófst þegar hann
var aðeins fimm ára gamall, en þá
lék hann í sjónvarpsmyndinni Un-
speakable Acts með Jill Clayburgh
og Brad Davis. Sjö ára gamall lék
hann í myndinni Radio Flyer sem
Richard Donner leikstýrði og meðan
á tökum myndarinnar stóð kynnti
Donner hann fyrir Steven Spielberg.
Ári síðar réð Spielberg Joseph til að
fara með hlutverk Tims Murphy í
Jurassie Park og fjórum árum síðar
fór hann með hlutverk í framhalds-
myndinni Jurassic Pai-k: The Lost
World. Hróður hins unga leikara
barst víða og ekki leið á löngu þar til
Richard Attenborough fékk hann til
að leika á móti Anthony Hopkins og
Debra Winger í Shadowlands. Næst
lék hann í myndinni River Wild með
þeim Meryl Streep og Kevin Bacon
og síðan í myndinni The Cure þar
sem hann lék eyðnisjúkan dreng. Þá
kom myndin Three Wishes þar sem
Joseph lék á móti Patrick Swayze og
Mary Elizabeth Mastrantonio og síð-
ast lék hann í myndinni Starkid sem
nýlega var sýnd hér á landi.
MúlaPjassvika á mörkum sumars og vetrar
Ekki bara snar-
brjálaðir menn
DJASSKLÚBBURINN Múlinn
sem starfi-æktur er á efri hæð
Sólons íslanduss fagnar
sumarkomu með glæsilegri
tónleikaviku dagana 18. til 25. apríl.
I stjórn Múlans eru Tómas R.
Einarsson, Pétur Grétarsson,
Olafur Jónsson og Jón Kaldal,
fulltrúi Jazzvakningar. Þeir segja
djassinn vera að vinna stöðugt á, að
hlustendahópurinn hafi aldrei verið
breiðari eða stærri.
Djassinn hefur síast út /
þjóðfélagið
„Síðustu tíu til fimmtán ár hefur
spilurum fjölgað töluvert og mun
fleiri setja djass efstan af því sem
þeir vilja gera. Þetta þýðir meiri
stílbreidd en áður, að margvíslegar
gerðir af þessari tónlist eru
iðkaðar," segir Tómas. „Allt þetta
hefur gert það að verkum að
ójassinn nær víðar en áður og hann
hefur síast út í þjóðfélagið."
Djassinn er farinn að heyrast við
mjög mörg tækifæri, og það hefur
aukið atvinnutækifæri djassleikara
til muna. „Við fáum fleiri tækifæri
«1 að spila af fingrum fram og
óformlega, og þá verður Múlinn
fyiir okkur útgangur fyrir dagskrár
sem eru mjög metnaðarfullar; þar
sem við lítum í eigin barm,“ segir
slagverksleikarinn Pétur.
„Umsóknirnar um að spila á
Múlanum eru sífellt að verða
uietnaðarfyllri enda kemur fólk
sérlega á Múlann til að hlusta."
Ekki lengur djass eða ekki djass
Margar umsóknir bárust
Múlanum um að fá að spila í upphafi
sumars, og því notuðu
stjórnarmenn tækifærið til að
Áhuffl á djassi hefur
aukist til muna
á seinustu árum og
það ku vera aukinni
breidd að þakka.
brydda upp á þeirri nýjung að halda
Múladjasshátíð, og segir Pétur
dagskrána skemmtilega fjölbreytta.
„Undanfarin ár hafa skýrst línur í
sambandi við ákveðnar stefnur, og
nú er fólk tengt við ákveðnar
tegundir af djassi sem var ekki
Morgunblaðið/Ásdís
SIGURÐUR Flosason kemur
fram á þremur tónleikum í
Múladjassvikunni.
áður. Annaðhvort var það djass eða
ekki djass. Nú eru til fjölmargar
gerðir af djasstónlist, þvi hún hefur
þróast eins og önnur tónlist og
skilið eftir sig alls konar för.“ Pétur
vildi í því sambandi nefna
tónleikana síðasta vetrardag, þegar
leikin verður tónlist Miles Davis frá
sex ára tímabili. „Það hefur mælst
mjög vel fyrir hjá gestum Múlans
þegar settar era mjög skýi-ar línur í
tónlistarvali á tónleikum."
Sigurður Helgason,
veitingamaður á Sóloni íslandusi,
segir það vera sérlega ánægjulegt
að hafa haft Múlamenn innanborðs.
„Þetta lyftir staðnum upp á hærri
stall. Hingað koma unglingar undir
tvítugu sem ég hélt að hlustuðu ekki
á djass. Einnig eram við að sjá
áheyrendur yfir sjötugu, þannig að
það er skemmtilegur og
fjölbreyttur hópur sem kemur að
njóta djassins. Vonandi eigum við
eftir að sjá sem flesta í þessari
skemmtilegu djassviku sem
framundan er.“
„Já, það era ekki lengur bara
snarbrjálaðir menn sem hlusta á
allt sem heitir djass og svo aðrir
sem loka eyrum fyrir honum.
Áheyrendur hafa líka yngst og
stundum þekkir maður ekki kjaft í
salnum sem er útaf fyrir sig mjög
ánægjuleg tilfinning," segir Tómas
R. að lokum.
MÚLADJASSVIKA
Á SÓLONI ÍSLANDUSI.
Tónleikarnir
hefjast kl. 21.30
18.4 Kristjana Stefánsdóttir
Djass fyrir fólkið í Iandinu með
söngkonunni og völdum undir-
leikuruin.
19.4 Marllyn Mead
Þessi bandariski þverflautuleik-
ari flytur tónlist eftir Theoloni-
us Monk.
20.4 Öðlingakvötd
Gulldrengir meðal hljómlistar-
manna til margra ára leika af
alkunnri snilld.
21.4 Tónlist hljóðrituð af
Miles Davis ‘49-’5S.
Matthías Hemstock trommari
leiðir hljómsveit í nokki-um upp-
áhalds lögum sínum frá ofan-
greindu tímabili.
22.4 Heimstónlist og al-
þjóðlegur spuni
Szymon Kuran fíðluleiknri
ásamt kunnum djössurum.
23.4 Guitar Islandíco / Trio
Pianocchio
Björn Thoroddsen gítarleikari
og Eyþór Gunnarsson píanóleik-
ari leiða hvor sitt tríóið.
24.4 Kvartett Papa Jazz
Rúnav Georgsson blæs íslensk
og erlend lög á tenórsax ásamt
félögunum.
25.4 Bassabræðumir
Tómas R. og Óli Stoltz
Bræðurnir leika hvor á sinn
kontrabassann lög eftir islenska
og eiienda lagasmiði.
MYNDBÖND
Réttar-
drama
Verjendurnir
(The Defenders)___
Sjónvarpsmynd
★%
Leikstjórn: Andy Wolk. Aðalhlutverk:
Beau Bridges og Mertha Plimpton.
96 mín. Bandarísk. CIC myndbönd,
mars 1999. Aldurstakmark: 12 ár
RÉTTARSALURINN er ein vin- '
sælasta sviðsmynd amerískra bíó-
mynda. Endalaus haugur hefur ver-
ið framleiddur af
kvikmyndum,
þáttum og sjón-
varpsmyndum
sem fjalla um
verksvið réttar-
lögfræðinga og
er hér á ferðinni
mynd úr sjón-
varpsmyndaröð
af þeirri gerð.
Sagan er ákaflega einföld og þunn
þótt tekið sé á alvarlegum málefn-
um: ofbeldi öfgahópa gagnvart
minnihlutahópum og tjáningarfrelsi
einstaklingsins. Skýr skil eru milli f
réttra og rangra hliða í málum sem
þessir öflugu lögfræðingar taka að
sér og þau taka aldrei að sér mál
peninganna vegna. Hugmyndafræð-
in sem myndin boðar er því óvenju
augljós og samtöl persóna litast af
þessari einfóldu framsetningu.
Hinsvegar er henni ekki ætlað að
vera meira en stundaraiþreying í
sjónvarpi og rétt sleppur sem slík.
Guðmundur Ásgeirsson
'slim-line’
dömubuxur frá
gardeur
Uðumv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
■ ___ _________■
Gott kvöld!
Meö skemmtilegri
kvöldstund á Restaurant
Óöinsvé má gera gott
kvöld betra!
Glæsilegur veitingastaður með
spennandi rétti við allra hæfi.
.. cjerðu gott kvöld betra!