Morgunblaðið - 17.04.1999, Síða 84
84 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ferð um undirheima klámiðnaðarins
HOLLYWOOD hefur á
síðastliðnum árum malað
milljónir dollara á mynd-
um um raðmorðingja,
geðsjúklinga og um myrk öngstræti
hinnar mannlegu sálar. Peningavél
kvikmyndaiðnaðarins gengur fyrir
handritum sem á einn eða annan
hátt fjalla um hyldýpi sálarteturs-
ins. Umræddar myndir hafa hlotið
mikla aðsókn bíógesta í Evrópu en
eru þar engu að síður mjög um-
deildar. Viðbjóður í nærmynd sem
gengur fram af áhorfendum. Og í
lokin dágóður skammtur af banda-
rískum siðferðisboðskap en einmitt
hann fer misvel í evrópska kvik-
myndaunnendur.
Myndavélinni er beint að myrk-
ustu hyldjúpum mannlegs eðlis. Sál-
in er gerð að upphafspunkti og
megininnviði sögunnar. Það hlýtur
að gefa fyrirheit um spennu og að-
dráttarafl myndarinnar eykst. Eins
virðast vekja forvitni nútímamanns-
ins að glæpir eru sýndir í nærmynd.
Honum er ekld hlíft við neinum
smáatriðum glæpsins enda er hann
á höttunum eftir þeim. Hann nýtur
þess beinlínis að fylgjast með „sósí-
alrealískum“ hryllingi, viðbjóði sem
teygir sig langt handan veiks
ímyndunarafls hins auma lítils-
megnuga einstaklings er lifir og
hrærist í fjölmiðlasamfélagi nútím-
ans.
Umgjörð slíkra kvikmynda stenst
varla samanburð ómerkilegrar
spennumyndar en það kostar þó
nokkra hæfileika að fylla upp í hana
með hæfilegum skammti af trúverð-
ugum hryllingi sem kemur hári
áhorfandans á hreyfingu. I mynd
Jonathan Damme Lömbin þagna
gekk dæmið upp, einnig hjá David
Fincher í „Seven“ og „The Game“
en hins vegar væri skömm að nefna
meistarann David Lynch í sömu
andrá.
Á valdi viðbjóðsins
Andrew Kevin Walker, handrits-
höfundur spennuhryllingsins,
„Seven“ er mættur á ný með
áþekka sögu og í henni nýtur hann
sín jafnvel enn betur. Aftur er það
aðalpersónan sem stendur and-
spænis ófyrirsjáanlegum hryllingi.
En hryllingur leynist ekki aðeins
innst í sálartetri aðalpersónunnar
eins og í „Seven“ þar sem raðmorð-
ingi hinna sjö dauðasynda vekur
ófreskju góða lögreglufulltrúan.s til
lífsins (Brad Pitt) sem verður sjálf-
ur ofbeldishneigður í lok myndar-
innar.
I þetta skipti sendir Walker aðal-
persónuna á vit viðbjóðs sem á sér
engan líkan. Sögusviðið er klámiðn-
aðurinn í Bandarikjunum. Hann
þrífst á skítugum fantasíum geð-
sjúkra ríkra karlmanna um kynlíf
og ofbeldi, sem á vissu augnábliki
breytast í hreint hræðilegan raun-
veruleika. Raunveruleika sem allt í
senn vekur forvitni og andstyggð
áhorfandans sem situr engu að síð-
ur dolfallinn, límdur við sætið af
spennu einni saman.
Til vítis og
aftur til baka
Miðdepill sögunnar er svokölluð
„snuff-kvikmynd“, með nokkurra
mínútna efni teknu upp á súper - 8
mm filmu. Tveir leðurklæddir karl-
menn fá kynferðislega útrás fyrir
sjúklegar hneigðir sínar á ungri
varnarlausri stúlku og kvalalosti
þeirra nær hámarki þegar þeir
myrða hana á hrottafenginn hátt.
Að beiðni vellauðugs kaupsýslu-
manns er atburðurinn kvikmyndað-
ur en hann hafði óskað eftir slíku
efni til einkanota. Ekkja hins ágæta
manns finnur myndina í öryggis-
hólfi og ræður einkaspæjarann
Tom Welles (Nicolas Cage) til að
komast á snoðir um örlög ungu
stúlkunnar. Á vörum gömlu kon-
unnar brennur spurningin um
hvort morðið sé sviðsett eða hvort
stúlkan hafi raunverulega verið
drepin meðan á tökunum stóð.
Welles hefur lengi beðið eftir stóra
tækifærinu sem bætt gæti starfs-
möguleika hans. Hann tekur málið
Hj arta myrkursins
8 mm verður frumsýnd um helgina
í Stjörnubíói. Joel Schumacher
leikstjóri og Nicolas Cage aðal-
leikari myndarinnar voru viðstaddir
Evrópufrumsýningu á kvik-
myndahátíðinni í Berlín. Rósa
Erlingsdóttir fór á myndina og
talaði við stórstjörnurnar um
undirheima Kaliforníu.
Joel Schumacher Nicolas Cage
að sér. Hann leggur í ferðalag; fer
til helvítis og aftur til baka. Hann
upplifir hluti sem eru verri en hans
verstu martraðir.
Welles lifir vernduðu fjöld-
skyldulífi ásamt konu sinni Amy
(Catherine Keener) og ungbarninu
Cindy. Hann tekur að sér rútínu-
mál, njósnar um karla sem eigin-
konur gruna um framhjáhald. Ekk-
ert of hættulegt, ekkert of ógn-
andi ... þar til grunsamlega 8 millí-
metra myndin kollvarpar lífi hans
og sendir hann í ferð á vit myrk-
ustu afkima mannlegs samfélags.
8 mm fylgist með ferðalagi
Welles frá vesturströnd til austur-
strandar Bandaríkjanna þar sem
hann leitar sannana um afdrif
stúlkunnar sem er honum með öllu
óviðkomandi - hún heltek-
ur hann, eltir uppi sam-
visku hans. Réttlætis-
kenndin keyrir hann
áfram í átt að lausn morð-
málsins. Hann gleymir
öllu öðru og fjarlægist
fjölskyldu sína meira dag
frá degi. Á stöku stað
eru áhorfendur minntir
á andstæðu þess við-
bjóðs er Welles upplif-
ir; hið fagra fjöld-
skyldulíf, hamingju
ungra hjóna og sak-
leysi stúlkubamsins
Cindy. Símtölin heim
veita hvíld frá því
myrkri er umlykur
hetjuna. Enn er góða
fólkið til staðar. En
ekki er allt sem sýn-
ist. Hjónabandið
stendur höllum
fæti. Eiginkonan
fer í taugarnar á
einkaspæjaranum
og símtölin heim
verða flöt og yfir-
borðskennd: „ég-
elska-þig-sakna-
þín-ég-þín-líka“
samtöl. Það
kemur að því að
Welles hættir að
hringja heim.
berjast gegn þegar hann lagði í fór
sína. Hvert er réttmæti slíks boð-
skapar? Var meinleysi Welles að-
eins yfirskin? Eða erum við jafnvel
öll úlfar í sauðargæru þegar á reyn-
ir? Göngum við í lið með skrímslun-
um þegar við byrjum að herja á þau
og kynnumst dýflissum þeirra af
eigin raun?
Gagnrýnendur eru almennt þakk-
látir Schumacher fyrir að benda á
dökkar hliðar mannlífisins í stór-
borgum Bandaríkjanna en deila þó
um siðferðislegan boðskap myndai'-
innar því mörgum hveijum finnst
hann á köflum hálf ólystilegur.
Beinh- Sehumacher virkilega spjót-
um sínum að klámheiminum eða er
honum kannski alveg sama um öm-
urleg hlutskipti þeirra er láta leið-
í lið með
djöflinum
um í
Á sama tíma er hann staddur í
undirheimum klámiðnaðarins, í
eins konar helvíti hans. Max
(Joaquin Phoenix) leiðsögumaður
Welles um vítið segir: „Djöfullinn
er byrjaður að breyta þér.“ Áhorf-
andinn er aftur minntur á afgrunn-
inn. Verði maður þátttakandi í hel-
víti heldur það manni í heljargreip-
um. Því dýpri innsýn sem maður
öðlast því betur tekst djöflinum að
horfa í gegnum mann. Þetta er
samlíking myndarinnar. Hinu góða
og hinu illa er stöðugt stillt upp á
móti hvort öðru, í mótsögn við
hvort annað en þar á milli eru óað-
skiljanlegir strengir. Alls 45 mínút-
ur myndarinnar fjalla um baráttu
Welles við hið illa. Þegar hann loks
finnur hina seku er ekki aftur snú-
ið; hann tekur lögin í eigin hendur.
Hann fremur jafn hrottafegna
glæpi og þá sem hann ætlaði að
ast á þær villigötur sem hann lýsir í
myndinni? Hvað vakir fyrir leik-
stjórum Hollywood sem velja slíka
umgjörð fyrir spennumyndir? Þess-
um spurningum verður hver og einn
að svara eftir að hafa séð myndina.
Hún er vel þess virði. Schumacher
hittir í mark með þessu efnisvali því
það er löngu tímabært að sýna okk-
ur, sem njótum lystisemda lífsins
dags daglega, einn afkima vestræn-
ar siðmenningar.
Blákaldur raunveruleiki
Joel Schumacher segir hlutverk
Tom Welles eins og skrifað fyrir
Nicolas Cage. „Nicolas Cage er að
mínu mati besti leikari sinnar kyn-
slóðar,“ segir Schumacher og bætir
við: „Mig hefur langað að vinna
með honum í langan tíma. Ég er
fullviss um að val mitt var rétt því
Cage var tilbúinn að ganga alla leið.
Hann er leikari sem hefur efni á því
að taka áhættu, óttast ekki hlut-
verk sín og þrátt fyrir velgengni
sína er hann enn einn mesti núlif-
andi listamaður Hollywood."
Aðspurður um mótsagnir mynd-
arinnar segir Schumacher að hann
hafi við lestur handritsins ímyndað
sér muninn á venjulegu friðsælu
hversdagslífi og stríði. Samanburð-
urinn hefði hjálpað honum að finna
svar við spurningunni af hverju
slæmir hlutir henda góðar mann-
eskjur. „I lok myndarinnar stendur
Tom Welles á mörkum góðs og ills,
eins og dyravörður sem meinar
hinu illa aðgang að hinu góða.“ Og
Sehumacher minnir á að milljónir
manna fremja glæpi dags daglega
fyrir misgöfugan málstað, í nafni
Guðs eða föðurlandsins.
„Hvert er mat okk-
ar á því hvað er raun-
veruleiki og raunveru-
legt?“ spyr
Schumacher viðstadda
blaðamenn. Hann talar
viðstöðulaust í heilar
tuttugu mínútur og fær-
ir okkur tölulegar stað-
reyndir um klám og
glæpi í Bandaríkjunum.
Blaðamönnum verður
ljóst að þessum heims-
fræga leikstjóra stendur
alls ekki á sama um þessa
hluti. Að hans mati eru
kvikmyndir eins og Falling
Down og 8 mm lýsing á
bláköldum veruleika; veru-
leika sem flestir vita af en
veigra sér við að viðurkenna
því sannleikurinn er yfir-
þyrmandi.
Schumacher yfirgaf
heimili látinna foreldra sinna
aðeins þrettán ára gamall.
Hann bjó á götunni þar til
hann fékk tækifæri einn dag-
inn sem hann greip; hann fékk
vinnu í hönnunarskóla þar sem
hann var svo heppinn að verða
uppgötvaður. Eftir gerð mynd-
anna um Leðurblökumanninn er
Joel Schumacher margfaldur
milljónamæringi og getur án efa
leyft sér að taka miklar áhættur.
Hann segir að hann hafi að eigin
raun upplifað skúmaskot lífsins,
mannlega niðurlægingu og illsku
sem hann verði að segja frá. Fall-
ing Down, sem fjallaði um ofbeldi
og félagslega ringulreið í lffi eins
manns, snerti taug bandarísks sam-
félags og hún fékk mikla og mjög
jákvæða umfjöllun. Schumacher
vonar að 8MM veki fólk á sama
hátt til umhugsunar um allar þær
mótsagnir og „perversjónir" sem
eru svo augljóslega stór hluti af
samfélagi okkar.
Tvöfalt siðferði
Honum verður tíðrætt um
hræsni og tvöfalt siðferðisgildi
landa sinna. Viðskiptavinir klám-
iðnaðarins séu ekki aðeins gamlir
skítugir karlmenn í regnkápum.
Um sjötíu af hundraði Bandaríkja-
manna viðurkenni að hafa drýgt
hór á lífsleiðinni. í Bandaríkjunum
velti klámiðnaðurinn um tíu millj-
örðum dollara [700 milljarðar
króna] árlega. Á sama tíma velti
kvikmyndaiðnaðurinn um þremur
milljörðum dollara [210 milljarðar
króna]. Fatafellubarir og klámbúll-
ur mali gull en tekjur þeh-ra séu
hærri en af öllum öðrum menning-
arviðburðum samanlagt.
Samt verða allir óttaslegnir og
fyllast viðbjóði þegar bent er á
þessar staðreyndir því Bandaríkja-
menn vilja gefa sig út fyrir að vera
kirkjurækið gott fólk. Bandaríska
kvikmyndaeftirlitið heimilaði sýn-
ingu á 8MM eftir erfiðar samning-
arviðræður og fyrirskipaðar breyt-
ingar á myndinni. Aðspurður segir
Schumacher ekki skilja að það sé
heimilt sýna myndir sem 500
manns láta lífið í en ef það gerist í
nærmynd sé morðið bannað.
Schumacher bendir einnig á að
Bandaríkjamenn séu mjög stoltir af
skotvopnum í einkaeign en þau séu
um 200 milljónir talsins. Texas státi
af sjötíu milljónum byssna, það séu
um fjórar á hvern íbúa fylkisins.
„Við dýrkum ofbeldi en á sama
tíma krossfestir kvikmyndaeftirlit-
ið leikstjóra sem vilja fjalla um það.
Við eyðum tíu milljörðum dollara í
klám á ári, en ef forseti Bandaríkj-
anna gerir þau heimskulegu mistök
að daðra við einkaritara sinn eða
taka þátt í munnmökum við hana er
það siðferðisbrot. I þessu endur-
speglast hinn margumræddi
bandaríska harmleik," segir hann.
Að lokum talar Schumacher um
örlög hundraða þúsunda barna og
unglinga sem hverfi árlega í
Bandaríkjunum. Sum þeirra stijúki
að heiman. Leiðin liggi til Los Áng-
eles. Þau dreymi um frægð og
frama í Hollywood. Mörg þeirra,
oftast unglingsstúlkur, fái fyrsta og
síðasta hlutverk sitt í klámmyndum
sem ríkir karlmenn selji á frjálsum
markaði. Um þann harmleik og um
afskiptaleysi okkar gagnvart þess-
um börnum fjallar 8 mm,“ segir
Joel Schumacher.
Erum stödd í eigin bakgarði
Cage segir myndina vera för til
helvítis. „Það er mjög ógnvekjandi
hversu stutt förin er. „Við erum
ekki í frumskóginum heldur í eigin
bakgarði. Ofbeldið á sér stað allt í
kringum okkur, á öllum tímum sól-
arhringsins verða saklausir ung-
lingar fórnarlömb þess, aðeins örfá-
um metrum frá heimilum okkar,“
segir hann.
Tökur myndarinnar stóðu aðeins
yfir í fjóra mánuði. „Guði sé lof“,
segir Cage, „hefði myndin tekið
lengri tíma í vinnslu hefði ég byrjað
að óttast um geðheilsu mína og
samleikara rninna." En þrátt fyrir
erfitt viðfangsefni segir Cage að
Schumacher hafi haldið liðinu
gangandi með gamansemi og góð-
um starfsanda. Samleikarar Cage
ei-u ekki af slakara taginu, Joaquin
Phoenix (Max), James Gandolfini
(Eddie Poole) og Peter Stormare
(Dino Velvet) sem unnendur Coen
bræðranna muna eftir úr myndun-
um Fargo og Stóra Lebowski.
Leikur þeirra beggja í hlutverkum
klámkónga er hreint ógleymanleg-
ur og mikil lyftistöng fyrir 8 mm.
Að mati Cages er Welles eins-
konar staðgengill sameiginlegarar
samvisku bandarísks þjóðfélags.
Sem nýbakaður faðir vilji hann að
samfélagið sé góður og heilnæmur
staður. En sá veruleiki sem hann
mæti í eigin vinnutíma byrji að
myrkva lífið innra með honum. Á
þann hátt fjallar myndin, að mati
Cage, fyrst og fremst um persónu
einkaspæjarans Tom Welles og um
vald glæpsins sem haldi honum í
heljargreipum. Cage segist sjá
hlutverk sitt sem leikara í því að
kanna og rannsaka alla mannlega
eiginleika. „Ég er hugfanginn af
mannlegu samfélagi og er þeirrar
skoðunnar að hlutverk kvikmynda,
sem sterkasta miðils allra tíma, sé
að sýna öll skúmaskot veruleikans,
sama hversu óþægilegur sá veru-
leiki ku vera,“ segir hann.