Morgunblaðið - 03.06.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 65
ÞJÓNUSTA
FRÉTTIR
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinn á Eyrarbakka:
Opið alla daga frá kl. 10-18 til ágástloka. S: 483-1504.
BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opiö kl.
13.30- 10.30 virka daga. Slmi 431-11255.___
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, LofUkeytastöíinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá
kl. 13-17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir
samkomulagi.__________________________________
FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐl, Garðvegi 1, Sandgerði,
sími 423-7551, bréfsími 423-7809. Opið alla daga kl. 13-
17 og eftir samkomulagi.____________________
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík cr opið alla daga I sum-
ar frá kl. 9-19.______________________________
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, ReyKjavík. Opið
þriðjud. og miðvikud. kl. 15-19, fimmtud. kl. 17-21, föstud.
og laugard. kl. 15-18. Simi 551-6061. Fax: 552-7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun HafnarQarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.___
KJARVALSSTAÐlR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum._________________
LANDSBÓKASAFN fSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22, föst. kl. 8.15-19. Laugd.
9-17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laug-
ard. og sunnud. S: 525-5600, bréfe: 525-5615._
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, SeHossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.__________
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagaríur-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga, frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirlyuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppi. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud._________________________
USTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opiö
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekiö á móti
gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar i sima 553-2906.
UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni L Opið
alla daga frá kl. 13-16. Sími 563-2530._____
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17.__________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með mir\jagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandfs og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU Reykjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam-
komulagi. S. 567-9009._____________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öörum
tímum f sfma 422-7253._____________-__________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 58 er lokað í
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfe: 461-2562.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis
á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp-
ar og bekkjardeildir skóla haft samband viö safnvörð í
síma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara
umtali._____________________________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opiö virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tfma eftir samkomulagi.__________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30- 16._________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opiö samkvæmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Búkasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sfmi 555-4321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaöastræti 74, s. 661-
3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stend-
ur til marsloka. Opin laugardága og sunnudaga kl. 13.30-
16.__________________________________________
SJÓMINJASAFN (SLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfiröi, er
opiö laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólanema og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 565-4251._____________________________
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl.
18-17. S. 581-4677._________________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Húpar skv. samkl.
Uppl.ls: 483-1166,483-1443.___________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagaröi v/Suöur-
götu. Handritasýning opin daglega frá 1. júnf til 31.
ágúst kl. 13-17.____________________________
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Sfmi 431-5566._______
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags fslands,
Garðlnom: Opið um helgar frá kl. 13-16._____
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudagakl. 11-17._______________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til fóstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.______________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opiö alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga.____________________
NÁTTÚHUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokaö I vetur
nema eftir samkomulagi. Sfmi 462-2983.______
NORSKA HÚSIÐ f STYKKISHÓLMI: Opiö daglega I sum-
arfrákl. 11-17.__________________________
ORD DAGSINS ____________
Rcykjavfk sfml 551-0000. ~
Akureyri s. 462-1840.________________________
SUNDSTAÐIR __________________________________
SUNDSTAÐIR I REYKJAVfK: Sundhöilin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, hclgar kl. 8-19. Opiö I baö og hcita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
10. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19.
Breiöholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl.
8-22. lýjalarneslaug opin mán. og flmmt. k). 11-15. þri.,
mið. ogföstud. ki. 17-21,____________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-föst. 7-21. Laugd. og
sud, 8-18. Sölu hætt hálfttma lyrir lokun.___
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálfttma tyrir lokun._
HAFNARFJÖRDUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöl! Hafnarfjaröar: Mád.-
föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.__________
VARMÁRLAUG f MOSFELLSBÆ: Oplö virka daga kl.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN f GRINDAVÍK:Opiö alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-16 um helgar. Slmi 426-7665.____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21, Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____
SUNDLAUGIN f GARÐI: Opin mán.-föst. kL 7-9 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sfmi 461-2532.__________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-fdst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._ .
JADARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________
BLM LÓNIÐ: Opiö v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
FJOLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla
daga kl. 10-18. Kaffihúsið opið á sama tfma. Sfmi 5757-800.
SORPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garöabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-
2205.
Hátíð hafsins haldin í Reykjavík
í fyrsta sinn um næstu helgi
I AR verða hafnardagurinn og sjó-
mannadagurinn sameinaðir í fyrsta
sinn í Hátíð hafsins sem fram fer
dagana 4.-6. júní nk. Á föstudegin-
um 4. júní verður hátíðin foi-mlega
hringd inn á Ingólfstorgi með skips-
klukkunni úr síðutogaranum Ingólfí
Amarsyni. Laugardagurinn er til-
einkaður hafnardeginum en sjó-
mannadagurinn verður haldinn há-
tíðlegur á sunnudeginum.
Fjölbreytt hátíðardagskrá verður
við Gömlu höfnina og á Ingólfstorgi
sem sniðin er að allri fjölskyldunni.
Sérstakur gestur hátíðarinnar verð-
ur John Prescott, aðstoðarforsætis-
ráðherra Bretlands, sem jafnframt
er þingmaður Hull og fyrrverandi
forystumaður í samtökum sjómanna
og verkalýðsleiðtogi í sjómannastétt.
Þeir aðilar sem standa að þessu
átaki eru Sjómannadagsráð,
Reykjavíkurborg, Reykjavíkurhöfn
og Útvegsmannafélag Reykjavíkur
og er ætlunin að Hátið hafsins verði
árlegur helgarviðburður í borgarlíf-
inu í framtíðinni. Með þessum hætti
verður vakin athygli á gildi sjó-
mennsku, sjávarútvegs, hafnar-
starfsemi höfuðborgarinnar og hin-
um sterku tengslum sérhvers ís-
lendings við hafið.
3.600 hafa farist á öldinni
Þetta er síðasti sjómannadagur-
inn sem haldinn er á þessari öld og í
tilefni af því verður þeirra sjómanna
sem drukknað hafa á öldinni sér-
staklega minnst. Sjómenn hafa fært
miklar fómir við störf sín, segir í
fréttatilkynningu. Á fyrsta fjórð-
ungi aldarinnar fórust að jafnaði 70
sjómenn á ári og í seinni heims-
styrjöldinni fórust 380 íslendingar
svo dæmi séu tekin. Talið er að um
3.600 sjómenn hafí látist við störf
sín á öldinni.
Fjölbreyttur
hafnardagur
Á hafnardeginum, sem hefst kl.
10 á laugardagsmorgninum, flauta
öll skipin í Gömlu höfninni hátíðina
inn. Á Miðbakka fer m.a. fram ís-
landsmótið í handflökun, dorgveiði-
keppni bama, björgunartækjasýn-
ing slysavamadeildanna Ingólfs og
Alberts og einnig verður þar mark-
aðstorg sjávarfangs, handverks-
markaður og sjávarfangsmarkaður
í Kolaporti. Eftir hádegi verður
skemmtidagskrá á hátíðarpalli á
Miðbakka, siglingakeppni Brokeyj-
ar á ytri höfninni, skemmtisigling
fjölskyldunnar með Sæbjörgu og
margt fleira verður í boði. Kl. 15
verður skemmtidagskrá á Ingólfs-
torgi undh’ yfirski’ift Hátíðar hafs-
ins og um kvöldið verður hefðbund-
ið sjómannadagshóf á veitingahús-
inu Broadway sem tileinkað verður
sjómannskonunni.
Minningarathöfn
í Fossvogskirkju
Sjómannadagurinn hefst með því
að fánar verði dregnir að húni á öll-
um skipum í höfninni. Kl. 10 hefst
athöfn við minningaröldu sjómanna-
dagsins í Fossvogskirkjugarði en
þar mun John Prescott, varaforsæt-
isráðherra Bretlands, og Guðmund-
ur Hallvarðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, leggja blómsveig
við minnisvarðann. Hin árlega sjó-
mannaguðsþjónusta verður í Frí-
kirkjunni kl. 11 og mun biskup ís-
lands, herra Karl Sigurbjörnsson,
minnast sjómanna sem farist hafa á
öldinni.
Formleg dagskrá hefst á Mið-
bakka kl. 14 og meðal ræðumanna
verður John Prescott, varaforsætis-
ráðherra Bretlands, og Árni M.
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra.
Fjölbreytt fjölskyldudagskrá verð-
ur við Gömlu höfnina allan daginn.
Sjávarveisla
veitingahúsanna
Fjöldi veitingahúsa í miðborginni
tekur virkan þátt í Hátíð hafsins
með alls kyns tilboðum úr forðabúri
hafsins og öðrum skemmtilegheit-
um. Sérstakt gluggamerki Hátíðar
hafsins auðkennir veitingahúsin
sem taka þátt í dagskrá helgarinn-
ar.
Skákþing
Hafnarfjarðar
SKÁKÞING Hafnarfjarðar 1999
fer fram dagana 4.-6. júní 1999.
Mótið er öllum opið og er mótið lið-
ur í Bikarkeppninni í skák. Mótið
er jafnframt minningarmót um
Freystein Þorbergsson.
Umferðartaflan er sem hér seg-
ir: Föstudaginn 4. júní kl. 20-23
verða tefldar þrjár atskákir (25
mín.), laugardaginn 5. júní kl.
11-15 fjórða umferð, laugardaginn
5. júní kl. 16-20 fimmta umferð,
sunnudaginn 6. júní kl. 11-15 sjötta
umferð og sunnudaginn 6. júní kl.
16-20 sjöunda umferð.
Atskákir verða 25 mín. kapp-
skákir, einn og hálfur klukkutími á
30 leiki og hálftími til að klára.
Teflt verður eftir Monrad kerfi og
verður mótið reiknað til stiga.
Verðlaun 20.000 kr., 12.000 kr. og
8.000 kr. fyrir þrjú efstu sætin og
bókaverðlaun fyrir þrjá efstu menn
15 ára og yngri. Ef þátttaka verður
innan við 20 manns lækka verð-
launin. Þátttökugjald er 1.500 kr.
fyrir 16 ára og eldri, 1.000 kr. fyrir
15 ára og yngri.
Núverandi skákmeistari Hafnar-
fjarðar er Sigurbjörn Björnsson.
Nánari upplýsingar um bikar-
keppnina í skák má fmna á slóð-
inni: www.simnet.is/hellir/bik-
ark99.htm
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar 40 ára
Afmælisfagnaður
og kosningahátíð
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Garðabæj-
ar er fjörutíu ára í dag, 3. júní, og
mun af því tilefni efna til afmælis-
fagnaðar í Sljörnuheimilinu milli
kl. 18 og 20. Heiðursgestur verður
Geir H. Haarde, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins.
í frétt frá afmælisnefndinni
kemur fram að Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar var stofnað árið 1959
í Samkomuhúsi Garðahrepps og
að stofnfélagar hafi verið 124 en
nú séu félagar tæplega tífold sú
tala. I lögum félagsins segir að
markmið þess sé að vinna að
þjóðlegri og víðsýnni framfara-
stefnu í þjóðmálum með hags-
muni allra stétta og öfluga sam-
einingu þjóðarinnar fyrir augum.
Grundvöllur stefnunnar sé frelsi
og sjálfstæði þjóðar og einstak-
lings, séreignarskipulag og jafn-
rétti allra þjóðfélagsþegna. Þessu
markmiði hyggist félagið ná með
því að fylgja eindregið Sjálfstæð-
isflokknum að málum, styðja
hann við kosningar og vinna að
hugsjónum hans.
_ A stofnfundi félagsins hélt
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisfiokksins og þingmaður
Gullbringu- og Kjósarsýslu og
síðar Reykjaneskjördæmis, ávarp
og fjallaði um kjördæmamálið, en
þá stóð fyrir dyrum kjördæma-
breytingin árið 1959, sem mark-
aði núverandi kjördæmaskipan.
Sagði hann að miklar væntingar
væru gerðar til nýja skipulagsins
sem myndi tryggja Sjálfstæðis-
flokknum réttan fjölda þing-
manna miðað við kjósendatölu og
gera honum um leið fært að
mynda sterka stjórn með hvaða
flokki sem væri. Þar reyndist
Ólafur sannspár en Viðreisnar-
stjórnin var mynduð þá um haust-
ið.
í fréttinni er bent á að Sjáif-
stæðisfiokkurinn hafi setið við
stjórnvölinn síðustu tvö kjörtíma-
bil og fengið endurnýjað umboð
við síðustu kosningar. I Reykjanes-
kjördæmi hafi staða fiokksins ætíð
verið sterk en sjaldan sem nú þeg-
ar flokkurinn hlaut 44,7% atkvæða
og sex þingmenn. f prósentum
talið sé þetta sterkasta útkoma
flokksins á landsvísu og í kjör-
dæminu allt frá árinu 1974.
EIN myndanna á sýningunni.
iNUSTA
Hundruð bíla-
mynda í Laugar-
dalshöllinni
Á STÓRSÝNINGU Fornbflaklúbbs
íslands í Laugardalshöllinni 4. til 6.
júní verða auk 70 fornbíla sýnd
hundruð ljósmynda úr safni klúbbs-
ins.
„Myndirnar spanna mestalla
bflasöguna, teknar á tímabilinu frá
1904 til 1980. Þar er að finna ara-
grúa bfla af öllum stærðum og
gerðum víða um landið. Á þessum
myndum eru fjölmargir einstak-
lingar og hefur gengið fremur erf-
iðlega að bera kennsl á þá. For-
ráðamenn ljósmyndasafns Forn-
bílaklúbbsins vilja því hvetja sem
flesta til að koma í Laugardalshöll-
ina um næstu helgi og aðstoða þá
við að bera kennsl á fólkið og bíl-
ana,“ segir í fréttatilkynningu frá
Fornbflaklúbbnum.
Dansarinn
Ben Luis
S
til Islands
DANSARINN Ben Luis kemur til
mánaðardvalar á Islandi þann 4.
júní á vegum Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar.
„Ben Luis heldur námskeið í
„break“ ásamt Natasha Royal sem
kennt hefur „break“ við Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar og þjálfað
fslandsmeistarana í „break“ og
marga aðra. Ben Luis heldur
einnig námskeið í „house“, „popp-
ing“ og salsa.
Ben og Natasha sýna dansa á
þjóðhátíðarskemmtunum 17. júní
og eru fáanleg til sýninga á
skemmtistöðum í júní, segir f
fréttatilkynningu frá Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar.
------*-*-*-----
• •
Onnur skógar-
ganga sumarsins
ÖNNUR skógarganga sumarsins í
röð gangna á vegum skógræktarfé-
laganna í fræðlusamstarfi þeirra við
Búnaðarbanka íslands verður
fimmtudaginn 3. júní kl. 20.30. Göng-
urnai’ eru skipulagðar í samvinnu við
Ferðafélag Islands. Öllum er heimil
þátttaka.
Skógargöngurnar verða helgaðar
athyglisverðum ræktunarsvæðum
skógræktarfélaganna á Suðvestur-
landi. Þetta eru léttar göngu við hæfi
allra aldurshópa, segir í fréttatil-
kynningu. I þessari skógargöngu,
sem er í umjá Skógræktarfélags
Mosfellsbæjar, verður gengið um
Hamrahlíðarskóg og Hlíðartún og að
Lágfelli undir leiðsögn staðkunn-
ugra manna. Boðið verður upp á létt-
ar veitingar á leiðinni.
Rútuferð býðst á 500 kr. kl. 20 frá
húsi Ferðafélags Islands, Mörkinni
6. Þeim sem það kjósa er velkomið
að mæta beint á staðinn fyrir kl.
20.30. Hamrahlíðarskógur er austan
Vesturlandsvegar gegnt Blikastöð-
um. Þeir sem mæta í allar göngur
sumarsins fá að launum fallegt jóla-
tré á næstu jólum.
----------------
LEIÐRÉTT
Verðlaun frá VÍ
I frétt um útskrift Verzlunarskóla
íslands í gær láðist að telja upp nöfn
þeirra sem hlutu bókaverðlaun fyrir
hæstu aðaleinkunnir á stúdentsprófi.
Þau eru: Karen Áslaug Vignisdóttir,
Rúnar Örn Hafsteinsson, Helga
Harðardóttir, Margrét Ágústa Þor-
valdsdóttir, Eva Halldórsdóttir, Úlf
Viðar Níelsson, Björg Fenger, Sig-
urhanna Kristinsdóttir og Bjarni
Eyvinds Þrastarson.
Þá hlutu Bryndís Ýr Pétursdóttir,
Pétur Árni Jónsson, Margrét Ágústa
Þorvaldsdóttir, Elín Viola Magnús-
dóttir, Heiðrún Grétarsdóttir, Elsa
Gunnarsdóttir, íris Halldórsdóttir,
Hildur Björg Hafsteinsdóttir, Bjarni
Eyvinds Þrastarson, Valgerður
Ottesen Arnardóttir, Rafn Herlufsen
og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
verðlaun fyrir árangur í einstökum
námsgreinum, auk þeirra sem nefnd
voru í blaðinu í gær.
Áður óbirt smásaga
I umfjöllun um Tímarit Máls og
menningar í blaðinu í gær er talað um
að birtur sé endm-minningaþáttui’ eft-
h’ Jón Óskai’ skáld. Hið rétta er að
þarna er um að ræða áður óbirta
skáldsögu eftir Jón frá 1987 sem nefn-
ist Blíðan í augum hennar. Beðist er
velvirðingar á þessari missögn en það
tekið fram að ekki kemm- fram í tíma-
ritinu hverslags texti er þama á fei’ð.