Morgunblaðið - 03.06.1999, Blaðsíða 80
#
ÖRUGG ÁVÖXTUN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Kaup Baugs á
10-11 rannsökuð
Samtök
verslunar
fagna
rannsókn
SAMKEPPNISSTOFNUN til-
kynnti í gær að hún hygðist taka til
rannsóknar kaup Baugs hf. á versl-
anakeðjunni 10-11. Haukur Þór
Hauksson, formaður Samtaka versl-
unarinnar, kveðst fagna því að Sam-
keppnisstofnun skuli rannsaka kaup-
in og uppfylla þannig hlutverk sitt,
þ.e. að tryggja samkeppni og sann-
gjarna viðskiptahætti.
„Fyrir utan tilburði Baugs til
markaðsdrottnunar hef ég aldrei
skilið strið Baugs gegn heildsölun-
um. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru
að reyna að búa til grýlur úr heild-
sölunum til að upphefja sjálfa sig.
En Bónus var stofnað í samstarfí við
heildsala og með trausti almennings
og það var aldrei nein grýla í sög-
unni,“ segir Haukur Þór.
Ný kynslóð kaupfélagsstjóra
Hann kveðst þeirrar skoðunar að í
raun og veru hafl forsvarsmenn
Baugs ekkert á móti heildsölustiginu.
„Þeir þola bara ekki að aðilar óskyld-
ir þeim skuli eiga hlut að virðiskeðj-
unni. Baugsmenn eru að mínu áliti ný
kynslóð af kaupfélagsstjórum, eins og
frá blómatímum kaupélaganna. Þeim
gekk vel en þeir þoldu engum að
keppa við sig og gengu alltaf alla leið
til að hrista af sér samkeppni. Og vel-
gengni annarra þoldu þeir ekki,“ seg-
ir hann. „En við vitum nú hvemig fór
fyrir kaupfélögunum og kaupfélags-
stjórunum og enginn saknar þein-a.“
Haukur kveðst telja þversögn fel-
r-n» ast í annars vegar málflutningi for-
svarsmanna Baugs og hins vegar því
að nú sé fyrirtækið Aðföng, sem er í
eigu Baugs, orðið stærsta heildsölu-
fyrirtæki landsins. „Þannig að það er
nærtækt fyrir Baugsmenn að lækka
sína eigin álagningu," segir Haukur.
Fyrirætlanir um byggingu nýs álvers í Reyðarfírði
Ekki óraunhæft að afla
þriðjungs fjármagns hér
HALLDÓR J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka Islands, telur að
ekki sé óraunhæft að ætla að afla
megi um þriðjung þess fjármagns
sem þarf til þess að fjármagna nýtt
álver á Reyðarfirði, eða um tíu
milljarða, á meðal íslenski-a fjár-
festa. Forsvarsmenn lífeyrissjóða
sem Morgunblaðið ræddi við voru á
einu máli um að hugsanleg fjárfest-
ing í nýju álveri í Reyðarfirði gæti
verið mjög áhugaverð, en þeir tóku
þó fram að enn væri margt óljóst
varðandi þetta verkefni.
I frétt Morgunblaðsins í gær
kemur fram að stofnkostnaður 120
þúsunda tonna álvers er talinn
nema 30 milljörðum kr. og að nú sé
gert ráð fyrir að eignarhluti Norsk
Hydro verði 20-25% en hlutur ís-
lenskra og annarra erlendra fjár-
festa 75-80%.
„Ég hef sjálfur mikla trú á að
þetta geti verið mjög hentug upp-
hafsstærð fyrir íslenskar aðstæður
og rekstur álvers Norðuráls í
Grundartanga sýnir að það er vel
hægt með hagsýni og góðu skipu-
lagi að stofnsetja og reka millistórt
álver,“ sagði Halldór J. Kristjáns-
son.
Metin á arðsemismælikvarða
„Verkefni af þessum toga eru
einfaldlega metin á arðsemismæli-
kvarða," sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, stjórnarformaður Fram-
sýnar. „Ef þarna er um mjög
áhugavert verkefni að ræða þá tel
ég að stjórnir lífeyrissjóðanna
skoði það eins og hver önnur. Við
höfum fylgst með þessum viðræð-
um og undirbúningi málsins. Okk-
ur finnst þetta áhugavert mál og
viljum halda áfram að fylgjast með
því. Við metum það þannig að
margt sé ennþá óljóst í málinu og
það sé ekki nálægt því komið í
þann búning að hægt sé að taka af-
stöðu til þess hvort menn vilja vera
með í þessu eða ekki,“ segir Þórar-
inn.
■ Álver í Reyðarfirði/11
Aurskriða
féll úr
Grundarfjalli
ALLMIKIL aurskriða féll úr suð-
urhlíð Grundarfjalls í Reykhóla-
sveit um klukkan 14 í gær. Að
sögn Guðmundar Ólafssonar, sem
býr á bænum Grund í Reykhóla-
sveit, var um tveggja klukku-
stunda langur aðdragandi að
skriðunni, sem hófst með því að
sprungur mynduðust í skál uppi í
fjallinu uns hún brotnaði frá fjall-
inu og rann niður á fáeinum mín-
útum.
Skriðan teygði sig um 200
metra til hiiðanna og er um 300
metra löng og staðnæmdist í
fjallshfíðinni og skifdi eftir sig
mikil ummerki en olli ekki
skemmdum. Að sögn Guðmundar
mældist þykkt skriðunnar um 5
metrar, en þessi skriða féll nánast
á sama stað og snjóflóð sem féll úr
fjallinu hinn 18. janúar árið 1995
og hreif með sér öll útihúsin á
bænum Grund.
Morgunblaðið/Guðmundur Ólafsson '
SKRIÐAN er um 200 metrar á breidd og um 300 metra löng, en þykkt liennar mældist um 5 metrar.
Jeppamennirnir sem óku yfir Grænlandsjökul eru komnir heim
Morgunblaðið/Jim Smart
LEIÐANGURSMENNIRNIR, sem óku fram og til baka yfir Græn-
landsjökul, lentu á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöld og þar tóku um 30
manns á móti þeim.
Mannbjörg þegar Bensi sökk
„Blotnuðum að-
eins í skálmarnar“
„Spennu-
fall í
* hópnum“
LEIÐANGURSMENNIRNIR, sem
óku fyrst austur yfir og síðan vest-
ur yfir Grænlandsjökul eða alls um
2.000 km, lentu á Reylqavíkurflug-
velli um klukkan 21.30 í gærkvöld.
Um 30 manns tóku þar á móti þeim.
„Það er spennufall í hópnum
núna,“ sagði Arngrímur Her-
mannsson, einn leiðangursmanna,
við heimkomuna. „Það sem helst
stendur upp úr eftir svona ferð er
hversu hópurinn stóð vel saman og
leysti erfið verkefni vel en loka-
spretturinn yfir skriðjökulinn (við
Syðri- Straumfjörð) á bakaleiðinni
var án efa erfiðasta verkefnið."
„Eftir því sem maður keyrir
neðar í jökulinn verður hann alltaf
úfnari og úfnari og þegar um 10
km voru eftir niður að jökulrönd-
'•■Rnni vorum við eiginlega orðnir
hálf stopp nema að senda menn á
undan og þræða leiðina. Þarna
voru bæði vatnsrásir, sprungur,
krapapyttir og miklir hryggir. Við
urðum að kanna hvern metra fyrir
sig, brúa sprungur og spila bflana
upp úr alls konar aðstæðum. Menn
voru að vinna við þetta meira og
minna í tvo sólarhringa án þess að
sofa og sumir sofnuðu standandi."
„Nú verður bara slakað á því
það er gríðarlegur léttir að þetta
skuli vera búið,“ sagði Arngrímur,
en aðspurður um það hvort ekki
væri í bígerð að gera betur sagði
hann að efiaust væri það hægt en
að hann hygðist láta einhveija
aðra um það.
Vert er að minna á að upplýsing-
ar um leiðangurinn, m.a. dagbók,
er að finna á Morgunblaðsvefnum á
Netinu. Vefslóðin er:
http://www.mbl.is.
„BENSI fór á hliðina á örfáum
sekúndum. Við klifruðum upp eftir
bátnum um leið og hann snerist en
sluppum við að fara fyrir borð,
blotnuðum aðeins í skálmarnar,"
segir Óskar Jónsson, skipstjóri á
trillunni Bensa frá Patreksfirði
sem lagðist á hliðina og fylltist af
sjó um klukkan 18 á gærkvöld.
Þetta gerðist um 22 mflur frá Pat-
reksfirði. Einn maður var um borð
í Bensa ásamt Óskari og varð hon-
um heldur ekki meint af.
• „Við vorum dálitla stund á þak-
inu en settum síðan björgunarbát-
inn á flot og skriðum í hann. Þetta
er náttúrlega bara handavinna og
það var spegilsléttur sjór,“ segir
Óskar. Hann kveðst ekki hafa hug-
mynd um hvað olli því að Bensi fór
á hliðina en hugsanlegt sé að sjór
hafi komist í lestina án þess að
menn hafi orðið þess varir.
Skipverjamir fjórir á öðrum báti
frá Patreksfirði, Þorsteini BA,
urðu varir við það að Bensi hallað-
ist, skildu eftir veiðarfæri sín og
héldu á vettvang. Fleiri skip voru
að veiðum á þessum slóðum þegar
þetta gerðist.
Skömmu síðar létu þeir Tilkynn-
ingaskylduna vita að áhöfnin á
Bensa væri heil á húfi og verið
væri að taka hana um borð úr
gúmbátnum. „Við snemm síðan við
og sóttum veiðarfærin okkar áður
en við reyndum að koma taug í
Bensa," segir Sigurður Thorodd-
sen, vélstjóri á Þorsteini.
Bensi maraði í kafi þegar Þor-
steinn BA kom að og tókst skip-
verjum að koma taug í hann. Um
miðnætti í gær dró hann Bensa
áleiðis til Patreksfjarðar og áætlaði
Sigurður að þeir yrðu komnir
þangað um klukkan 1.30 í nótt.