Morgunblaðið - 03.06.1999, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verðlauna-
tjaldvagn
betrumbættur
VÍKURVAGNAR bjóða nú nýja út-
færslu á tjaldvögnum sem þeir hafa
áður verið með. Þeir eru smíðaðir
hjá fyrirtækinu Anesca sem hefur
aðsetur á Spáni, en alfarið eftir
teikningum og hugmyndum þeirra
hjá Víkurvögnum. Að sögn Þórar-
ins Kristinssonar forstjóra Víkur-
vagna er um að ræða hönnun sem
vann til verðlauna í tvígang á árun-
um 1993 og 1994, en nú hefur þessi
verðlaunasmíð verið endurbætt og
lagfærð til mikilla muna.
„Það er afar margt sem nú er
betur boðið en áður og segja má að
núna fyrst sé vagninn eins og við
viljum hafa hann. Ekki að hann hafi
ekki áður verið í góðu lagi, hann er
einfaldlega miklu betri núna. Hér
eftir verður hann klassískur við ís-
lenskar aðstæður. Þetta er fjögurra
manna fjölskylduvagn með sam-
byggðu fortjaldi, einfaldur í notkun.
Það er allt tvöfalt í honum og hann
er því hlýr og vel það. Það er hægt
að staga hann niður allan hringinn
þannig að vindur næðir ekkert und-
ir hann. Þá er ekkert plast þannig
að tjaldið saggar ekkert. Það er allt
tvöfalt í svefnplássunum og að auki
er tvöföld dýna í hjónaherberginu.
Þá vil ég nefna að nú er víðara for-
tjald en áður og aukahiminn," sagði
Þórarinn i samtali við Morgunblað-
ið.
TJALDVAGNINN, ótjaldaður og uppsettur.
Sem fyrr segir er saumavinnan
unnið á spænskri grundu, en öll
hönnun við körfuna og undirvagn-
inn er hjá Víkurvögnum. Þórarinn
nefnir, að tjaldvagninn sé 2,10
metrar á lengd og 1,45 metrar á
breidd ótjaldaður, en uppsettur er
hann 15 fermetrar Hann vegi nú
300 kg, sem sé ögn meira en áður,
en það stafi af því að vagninn er
nokkuð styrktur til að falla betur að
íslenskum aðstæðum. Krossviður sé
kominn undir grindina sem grjót-
vörn hans sé orðinn burðanneiri og
labúnaður allur sterkari. „Þá
r það mikill styrkur þessa
tjaldvagns hvað hann er fyr-
irferðarlítill í geymslu yfir
vetrartímann, enda auð-
velt að setja hann upp á
hlið. Tjaldvagn þessi er
auk þessa alls allur læst-
ur, þannig að honum
verður tæplega stolið,“
bætti Þórarinn við.
Margs konar auka-
hlutii' fást í tjald-
vagninn, t.d. yfir-
breiðsla, teppi í
fortjald, eldhús-
borð, matarbox,
sóltjald, svefnpok-
ar o.m.fl. Auk þess
þjónusta Víkurvagnar
flest alla tjaldvagna. Víkur-
vagnar hafa áratugareynslu af
smíði á kerrum, hvers kyns vögn-
um og dráttarbeislum. Reynslan
sýnir að þetta eru sterkustu og
vönduðustu vörur sinnar tegundar
á markaðnum, enda hannaðar hér á
landi með hliðsjón af þeim aðstæð-
um sem hér eru. Við höfum ekki
haft undan að framleiða þessa
hluti, en það stendur allt til bóta
því svigrúm okkar hefur aukist til
mikila muna með nýju húsnæði
sem við erum flutt í að Dvergs-
höfða 27,“ eins og Þórarinn komst
að orði.
__________Aciáopkiliis+ írá Futurekiotics
Framúrskarandi mjólkursýrugerlar
Einhver mikilvægasti hluti ónæmiskerfisins eru svonefndir góðir gerlar þ.e.
mjólkursýrugerlar. Færustu sérfræðingar hins virta heilsuvörufyrirtækis
Futurebiotics, hafa sett saman, frábæra blöndu Acidophilus+.
Ilún er sett saman úr hinum 6 mikilvægu mjólkursýrugerlum:
Acidophilus, Rhamonsus, Bulgaricus, Helveticus, Bifidum og Yoghurti í réttum hlutföllum.
Afraksturinn er framúrskarandi vara á alþjóðlegan mæhkvarða.
i
U)NGEST UVíV’
ACIDOPHIU^
'H
ÍOO Capsuie^
é
UNDIR-
FATALÍNA
Kringlunni
S. 553 7355
Grænar ólífur
MONIANIM
Hámarks gœði, einstakt hragð
Nýtt
Emmessís
KOMINN er á markað nýr íspinni,
Prispinni, frá Emmessís. Um er að
ræða vanilluíspinna með mjólk-
ursúkkulaðikjarna, hjúpaðan þykku
lagi af mjólkursúkkulaði með
hrísmulningi.
Príspinni er fáanlegur í flestum
söluturnum og matvöruverslunum
um allt land.
Nýlega setti Emmessís á markað-
inn nýjan skafís sem hlotið hefur
nafnið Hversdags-París. Isinn er
seldur í tveggja lítra öskjum; annar
helmingurinn er súkkulaðiskafis en
hinn vanilluskafís.
Notkunarsviá m.a:
Halda meltingunni eðlilegri *
Minnka líkur á andremmu *
Minnka lífsrými fyrir slæmar bakteríur
- Vinnur gegn óæskilegum sveppum
Hverjir ættu öárrnn fremur aá nota mjókarsýru^erla?
Bamshafandi konur og ungaböm. (Einkum Bifidum)
Fólk sem fer erlendis, sérstaklega þar sem hreinlæti er áfátt
Þeir sem notað hafa fúkkalyf
Eldra fólk
Fólk sem neytir örbylgjufæðis og gerilsneyddra mjólkurafurða
FÆST í ÖLLUM APÓTEKUM NEMA LYFJU
Ómissandi í salat!
Dreifing Heilsa ehf • sími 533 3232
^mb l.i is
ALLTAf= G!TTH\SA£> A ifn-i—
Heilsan bin
TTrtiöarnvorf
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og vísindin vinna saman
Fæst í flestum lyfjaverslunum