Morgunblaðið - 03.06.1999, Page 44

Morgunblaðið - 03.06.1999, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ * 44 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 I viðjum hugmyndar / „I lífinu haföi hann sigrast á því sem heftir frama og sjálfstraust, og þess vegna átti hann ekki lengur auðvelt með að læra eða skipta um skoðun. “ H vað felst í þeirri hugmynd, að snúa baki við hefðbund- inni skiptingu stjórnmálasviðsins í hægri og vinstri og leita í stað- inn nýs hugsunarháttar? Und- anfarið hefur hér á landi orðið dálítil umræða um tilraunahug- mynd sem er kölluð „þriðja leið- in“, í kjölfar heimsóknar Ant- honys Giddens, rektors The London School of Economics. En umræðan um þetta hefur þó í rauninni verið heldur dauf- leg og einkennst nokkuð af hægri/vinstri-skotgrafahernað- arhugsunar- VIDHORF hætti. Þeir Kristián~G. sem hafa jafn- Arngrímsson an kennt SIS við svonefndan vinstri væng stjórnmálasviðsins virðast eiga auðveldara með að sjá breytingar verða heldur en þeir sem telja sig á hægri vængnum. Ihaldsmenn (margir hægri- menn eru reyndar engir íhalds- menn) hafa sumir haldið því fram að hin svokallaða þriðja leið Giddens sé, þegar grannt er skoðað og af henni skafinn and- litsfarðinn, ekkert annað en hefðbundin markaðshyggja sem hægrimenn hafí alltaf haldið fram. Því sé fylgilag breskra og þýski-a jafnaðarmanna við hug- myndir á borð við þriðju leiðina einungis til marks um að hefð- bundin hægri viðhorf hafí orðið ofan á, og allt tal vinstrimanna um nýjungar sé ekkert annað en sjálfsblekkingarorðaleikur til að bjarga andlitinu eftir háðugleg- an ósigur. Þetta viðhorf er fyllilega skilj- anlegt ef maður leiðir hugann að því hvernig málin horfa við frá hefðbundnu íhaldsmannasjónar- horni. Rótin að þeirri hugsun, sem hefur jafnan verið kennd við vinstri, er tilfínningin fyrir því að breytinga sé þörf. Þessi til- finning er í rauninni það sem er yfirleitt kallað von, og er sprott- in af ósætti við ríkjandi ástand. Bandaríski heimspekingurinn Riehard Rorty hefur komist svo að orði, að vinstriflokkar hafi ætíð verið flokkar vonarinnar. Þeir urðu til einfaldlega vegna þess að sú afstaða, að ríkjandi ástand sé gott og ekki sé nauðsynlegt að gera breyt- ingar, það er að segja, hefð- bundið hægriviðhorf, kallaði há- stöfum á andstæðu sína. Þannig er breytingarþörfin í rauninni drifkraftur vinstraviðhorfsins. Ef maður hefur þetta í huga er ekki undarlegt að um íhalds- menn fari kjánahrollur fyrir hönd vinstrimanna, sem eru margir æstir í að skoða þessa þriðju leið, ef hún kynni að vera fær leið til raunverulegra breyt- inga. Ihaldsmenn, sem eru reknir áfram af þörfinni fyrir að kom- ast hjá þvi að breyta eigin hug- arheimi, setja sjálfa sig í spor vinstrimanna, og sjá þá ekki bet- ur en breytingar séu nauðsyn- legar. Og það finnst þeim vont. William Langewiesche: Inside the Sky. En þeir hafa gleymt því, að dómur þeirra um aðstæður er byggður á þeirra eigin gildis- mati (eðlilega), en gildismat vinstrisinnanna er einfaldlega ekki eins og gildismat íhalds- manna. Þess vegna er sú niður- staða íhaldsmanna, að vinstri- menn séu í óða önn að bjarga andlitinu, einfaldlega byggð á fordómum. Reyndar algengustu fordómum sem til eru: Að halda mig sig. Eftir því sem best verður séð fela þær breytingar, sem jafnað- armannaflokkar í Evrópu hafa gert að grundvallargildum sín- um, í sér viðurkenningu á gild- um sem hafa verið kenndar við hægri, til dæmis markaðsbú- skap. Þetta gripa íhaldsmenn á lofti sem merki um sannindi þeirrar fullyrðingar sinnar að hin „nýja leið“ sé bara venjuleg hægrileið. Þarna hafa þeir að hluta til rétt fyrir sér, en grípa líka til hentugleikagleymsku og stinga því undir stól að jafnaðarmenn hafa til dæmis ekki sagt skilið við eina af þeim hugmyndum sem var og er grundvöllur jafn- aðarhugsjónarinnar: að til sé það sem heitir samfélag, og í nafni þess skuli reka almanna- tryggingakerfi. Að „snúa baki við“ hefð- bundnum hugmyndum felur því ekki í sér að þeim sé „hafnað", í strangasta skilningi, heldur er viðurkennt, að „ný“ hugmynd eigi sér rætur í hinum hefð- bundnu, og feli þær því ævin- lega í sér um leið og þeim er vikið af sjónarsviðinu. Það er satt að segja dálítið dapurlegt að sjá andstöðu íhaldsmanna við þá hugmynd að ef til vill sé hægt að breyta og bæta. En það er þó skiljanlegt í ljósi þess, að það er undirstaða hugmyndaheims þeirra að breytingar geti aldrei verið ann- að en ill nauðsyn. Síst af öllu geta þeir skilið þann hugsunarhátt, að maður sé svo viljugur til að gera breytingar, að maður sé jafnvel til í að leggja sjálfan sig að hluta til niður í núverandi mynd, í því augnamiði að taka tillit til hugmynda þeirra sem hugsa öðruvísi en maður sjálf- ur. Hugmyndir á borð við hina svonefndu þriðju leið eru því ekki til marks um að vinstri- menn séu einfaldlega að breyt- ast í hægrimenn. Þær eru frem- ur til marks um vilja til breyt- inga og leit að nýjungum í þeirri von að finna eitthvað betra. Að því leyti eru þessar hugmyndir kannski ekki svo óskaplega mik- ill hugmyndajarðskjálfti, því þannig hefur sögunni jafnan undið áfram. En fróðleg eru óneitanlega viðbrögð manna við þessum hugmyndum, þvi þau sýna fram á, hvort þeir eru viljugir til að gera breytingar á eigin hugar- heimi. A því veltur, hvort hægt verður að losna úr viðjum hug- myndarinnar um skiptingu stjórnmálasviðsins í hægri og vinstri. MINNINGAR SIGURÐUR ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON + Sigurður Þor- steinn Guð- mundsson fæddist í Hrísey 13. desem- ber 1940. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 27. maí siðastliðinn. Foreldrar hans vom hjónin Guð- mundur Jörunds- son, útgerðarmað- ur, f. 3.11. 1912, d. 14.5.1990, og Marta Sveinsdóttir, f. 11.11. 1915. Systk- ini Sigurðar eru: Ævar, f. 6.1. 1945; Sveinn, f. 14.3. 1951; Mar- ía, f. 21.11.1954, og Jörundur, f. 17.10. 1957. Fyrri eiginkona Sigurðar var Inga Holdo, f. 12.12. 1942. Böm þeirra em: 1) Marta Rut, f. 14.9. 1963, eiginmaður hennar er Stefán Heiðar Vilbergsson. Þeirra börn em: Hlynur Logi, Vil- bergur Davíð og Andri Dagur. Marta Rut var í sambúð með Viðari Péturssyni og eiga þau tvo syni: Pétur og Sigurð Má. 2) Dagný María, f. 24.9. 1965, eiginmað- ur hennar er Jón Stefán Þórðarson. Þeirra böm em: Sigurður Berg- ur, Elín Inga og Marinó. 3) Guð- mundur, f. 20.5. 1972, sambýlis- kona hans er Helga Sigríður Ei- ríksdóttir. Þau eiga einn son: Júl- íus Inga. Seinni kona Sigurðar er Elsku pabbi minn, hvemig get ég kvatt þig? Þegar ég fékk fréttir um að þú væri kominn á gjörgæslu hvarflaði það ekki að mér að þú ættir einungis rúma tvo sólar- hringa ólifaða. Það var svo margt sem við áttum ógert saman og svo margt sem ég hefði viljað deila með þér. Nákvæmni, samviskusemi, stundvísi, heiðarleiki og mannleg samskipti em allt orð sem lýsa pabba best. Pabbi lagði alltaf mik- ið upp úr því að halda góðum sam- skiptum við alla í kringum sig. Yfirleitt ef hann átti að mæta eitt- hvert á ákveðnum tíma þótti hon- um hann vera of seinn ef hann var ekki kominn að minnsta kosti korteri fyrr á staðinn og oftast þá fyrstur allra. Mér þótti alltaf gam- an að skoða dagatalið hans pabba því á það var búið að skrifa alls konar hringi og krossa. Hann hafði það sem venju að skrifa inn alla af- mælisdaga og aðra merkisdaga allra í fjölskyldunni fljótlega í jan- úar svo hann gæti verið alveg viss um að gleyma engum. Eg dvaldist við nóm bæði í Bandaríkjunum og síðar í Svíþjóð um tíma og man ég ætíð hversu duglegur pabbi var að halda sambandi. Hann hringdi nánast í hverri viku og sendi dag- blöðin, íslenskt sælgæti og harð- fisk við hvert tækifæri. Það era ef- laust fáir sem hafa flutt jafn oft um ævina og pabbi og Ingibjörg en þau 19 ár sem þau bjuggu saman skiptu þau alls 10 sinnum um hús- næði. Þetta gerðu þau fyrst og fremst af áhuga og virðist þetta hafa verið áhugamál hjá þeim þótt skrýtið sé. Eg minnist þess mjög oft þegar ég var í heimsókn hjá þeim að fasteignablaðið hafi yfir- leitt verið nærri. Við áttum marg- ar góðar stundir saman þótt þær hefðu eflaust getað verið fleiri. Ég mun ætíð minnast þín, pabbi minn, og reyna að halda í það sem við áttum saman og það sem þú hefur kennt mér um ævina. Það er sárt til þess að hugsa að Júlíus Ingi, sonur minn, mun ekki fá að kynn- ast afa sínum betur en raunin varð. Nú er tíma þínum hér á jörð- inni lokið og vona ég að þú getir hvílt þig þar sem þú ert núna. Ég veit að vel verður tekið á móti þér þangað sem ferðinni er heitið. Ég þakka þér fyrir allt það sem við áttum saman, allt það sem þú ráð- lagðir og hughreystir mig með og ekki síst alla ástúðina sem þú veittir mér. Það verður erfitt að fylla það skarð sem þú skilur eftir í lífi okkar allra og sárin verða lengi að gróa. Takk fyrir allt saman, pabbi minn, og vona ég að þú finn- ir frið og ró þar sem þú ert stadd- ur núna. Að lokum vil ég kveðja með því að fara með bænina sem við fóram með saman þegar ég var GUÐRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR + Guðrún Hjálm- týsdóttir fæddist á Saurstöðum í Haukadal 1. septem- ber 1915. Hún and- aðist á Landspítalan- um 25. maí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Hjálmtýr Jó- hannsson, bóndi á Saurstöðum, f. 28. mars 1885, d. 28. júní 1961, og Sigur- fljóð Jónsdóttir, f. 8. október 1887, d. 23. febrúar 1935. Sigur- fljóð var áður gift Kristjáni Arngrímssyni frá Smyrlhóli. Þau eignuðust einn son, Valdimar, f. 1909, d. 1948. Alsystkin Guðrúnar eru: Jón, f. 1918; Þuríður, f. 1920; Jóhann, f. 1924, d. 1992; og Ragnheiður, f. 1925. Eiginmaður Guðrúnar var Sig- urbjörn Árnason, vélsfjóri frá Ó, góða sál, til friðar fegins heima, far þú nú vel á guðs þíns náðar fund, en minning þína veit og vinir geyma, þótt vegir skiljist hér um litla stund. (Guðlaugur Guðlaugsson.) Elsku hjartans amma mín. Flankastöðum í Mið- nesi, f. 25. júlí 1914, d. 17. apríl 1986. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Sigrún Magnea, f. 29. desember 1953, gift Vilhjálmi Þor- geirssyni, f. 16. sept- ember 1955. Börn þeirra eru: María Vilborg, f. 16. janúar 1978, og Eyrún Erla, f. 17. júli' 1983. Fyrir átti hún dótturina Guðrúnu Sigur- björgu, f. 14. nóvem- ber 1971, með Guðmundi Sig- urðssyni. 2) Valdimar Hreinn, f. 27. janúar 1961, kvæntur Gitte R.C. Sigurbjömsson, f. 8. júlí 1961. Þau eru búsett í Dan- mörku. títför Guðrúnar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hve sárt ég sakna þín. Þú varst mér og mínum svo dýrmæt. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að alast upp á heimili þínu frá fæð- ingu. Þú varst mér alla tíð sem móðir. Aldrei gat ég þakkað þér Ingibjörg Aradóttir, f. 23.8. 1935. Hennar sonur er Ari Haf- steinn Richardsson, f. 29.6. 1957. Eiginkona hans er Elín Gunnarsdóttir. Þau eiga tvær dætur: Ragnhildi og Ingihjörgu. Sigurður lauk Fiskimanna- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1964. Hann var stýrimaður og skipsljóri á ár- unum 1964-1967. Hann starfaði síðan um nokkurra ára skeið við útgerð föður síns í Reykja- vík sem gerði þá út sfldarskip- in Jömnd II og III og togarann Narfa. Hann rak eigin heild- verslun á árunum 1972-1974 þar til hann gerðist útgerðar- stjóri fyrir Hvalbak hf. á Breið- dalsvík og Stöðvarfirði 1974- 1976. Hann var einnig útgerð- arsljóri fyrir Árborg hf. á Sel- fossi á ámnum 1976-1979. Þá var hann sölustjóri hjá Marco hf. 1979-1987 og einnig hjá Vélsmiðjunni Nonna hf. frá 1987 til dauðadags. títför Sigurðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. lítill. Ég vona að hún hjálpi þér að sofa væram svefni eins og hún hjálpaði mér: Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú þer ég sendi. Bæn frá mínu bijósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. Vertu nú yfir allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir þinni. < Þinn sonur, Guðmundur. Sól rís, sól sest; ár eftir ár og ár- in eru eins og lítið hjól í aldar- vagni. Þetta er gangur lífsins. Maðurinn fæðist og deyr, það er ljóst með upphaf og endi, en það er síðan á valdi hvers og eins hvernig hann prjónar þar á milli. Okkur gengur það misvel. Það fellur nið- ur lykkja og lykkja, stundum þarf jafnvel að rekja upp og byrja upp á nýtt reynslunni ríkari. Stundum læram við ekkert af reynslunni og lendum í sömu villunni aftur og aftur. Þetta er gangur lífsins, sem við getum haft áhrif á, en ráðum þó litlu þegar á hólminn er komið. sem við getum haft áhrif á. Vinir kveðja, oft án fyrirvara, en þeir sem eftir standa skilja ekki til- nóg allt sem þú gerðir og fyrir alla þína ást og umhyggju. Þú varst orðin mjög fullorðin þegar þú eign- aðist og ólst upp mömmu og Valda frænda. Ennþá eldri þegar ég bættist við. En ekki léstu þar við sitja þótt þú værir búin að skila þínu og gott betur en það. Árið 1992 kom svo fyrsta og eina langömmubamið þitt, hann Snorri Bergmann, og enn hélstu uppeldis- hlutverkinu áfram og gættir hans fyrir mig frá unga aldri. Oft varstu nú þreytt eftir að hafa haft litla manninn í heimsókn en þú varst alltaf jafn glöð að sjá og fá að hafa hann hjá þér aftur. Það fyrsta sem Snorri sagði þegar hann fékk frétt- imar var að nú væri sálin hennar „ömmu“ (eins og hann kallaði þig alltaf) farin upp til Guðs. Ég veit að hann minnist þín, elsku amma, með gleði og þakklæti í hjarta sem mun fylgja honum um ókomna tíð. Ekki átti ég von á því, elsku amma mín, að nú væri stundin þín runnin upp og tíminn kominn, þó svo að þú værir orðin 83 ára göm- ul, því þú varst alltaf svo hraust og ég trúði því að þú myndir lifa marga af til viðbótar. Mér finnst nú að ég hafi átt eftir að segja þér svo margt en svo veiktist þú skyndilega og fórst fljótlega að hafa þá trú að þú myndir ekki snúa aftur heim í þetta sinn. Ekki gerð- um við okkur fyllilega grein fyrir því hversu alvarlega veik þú varst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.