Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 331 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÍSLENZKUNÁM FYRIR ÚTLENDINGA MIKILL áhugi virðist vera meðal erlendra stúdenta við Háskóla íslands á að læra íslenzku. Er eftirspurn eft- ir námi í íslenzku mun meiri en skólinn getur annað og því hefur á hverju ári þurft að vísa fjölda nemenda frá. Er það aðallega vegna þess að kennslurými er ekki nægjanlegt fyrir allan fjöldann sem sækir um. Að þessu sinni sóttu 237 um að fá að hefja nám að hausti, sem er nokkur fjölgun miðað við síðustu ár, en hins vegar gat Háskólinn aðeins veitt 72 umsækjendum inngöngu og þurfti því að vísa 165 frá. Það er gleðilegt hve margir hafa áhuga á að læra ís- lenzku. Það er jafnframt mjög dapurt að geta ekki mætt þeim mikla áhuga sem erlendir stúdentar sýna íslenzku- námi. Grunnur áhugans er áreiðanlega oft sá að erlendum stúdentum er nauðsynlegt að kunna skil á íslenzku til þess að þeir geti fært sér í nyt aðra kennslu við háskólann og er sá áhugi þá auðvitað af hagnýtum rótum. En jafnframt er það augljóslega hagsmunamál fyrir okkur Islendinga, að útlendingar kynnist tungumáli okkar og læri það. Slík þekking skilar sér með margvíslegum hætti síðar og þá ekki bara fyrir hina erlendu námsmenn heldur fyrir okkur Islendinga sjálfa. A meðan á heimsókn japanska forsætis- ráðherrans stóð kom fram að nokkrir ungir íslendingar hafa lært japönsku, sem dugar okkur vel í viðskiptum við Japani. En það fer ekki á milli mála, að kunnátta Japana í íslenzku getur greitt fyrir viðskiptum og samskiptum af þeirra hálfu. Þetta er eitt dæmi um hagnýt áhrif þess, að útlendingar læri íslenzku. Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands og Náms- flokkar Reykjavíkur bjóða nám í íslenzku fyrir útlendinga. Þannig getur verið að í mörgum tilfellum geti þær stofnan- ir leyst úr brýnustu þörf þeirra, sem ekki komast að við Háskóla íslands. En hvað sem því líður ættu menn að kappkosta að virða þann áhuga sem útlendingar hafa á ís- lenzkunámi. BARATTAN GEGN TÓBAKSREYKINGUM Brezka ríkisstjórnin hefur ákveðið að bann við tóbaks- auglýsingum skuli taka gildi í Bretlandi í desember- mánuði nk. en samkvæmt ákvörðun Evrópusambandsins ber að leggja á slíkt bann á árinu 2001. Það segir töluverða sögu um það hvað við Islendingar höfum verið langt á und- an okkar samtíma, að tóbaksauglýsingabann hefur verið í gildi hér í áratugi. Ákvörðun brezku ríkisstjórnarinnar er engu að síður ánægjuleg og sýnir að baráttan gegn tóbaks- reykingum, sem Bandaríkjamenn hafa haft forystu um, er að ná til Evrópuríkjanna, sem lengi hafa farið sér hægt í þeim efnum. í Morgunblaðinu í gær var birt viðtal við Helga Guð- bergsson, sem sæti á í Tóbaksvarnarnefnd, um nýjar regl- ur um tóbaksreykingar á vinnustöðum. Samkvæmt þeim á enn að herða að reykingafólki, sem er sjálfsagt, enda ættu einstök fyrirtæki og starfsmenn þeirra að taka höndum saman um að gera vinnustaði sína algerlega reyklausa fyr- ir aldamót. Hins vegar er það áhyggjuefni, að ýmislegt bendir til þess að reykingar séu að aukast á meðal ungs fólks. Hvernig má það vera? Allar upplýsingar liggja nú fyrir um skaðsemi reykinga og þær upplýsingar eru óumdeildar. Hvernig stendur á því, að hin unga og vel menntaða ís- lenzka æska virðist fremur vera að auka reykingar í stað þess að draga úr þeim? Sú þróun má ekki verða til þess að menn láti undan síga heldur er þvert á móti tilefni til að herða mjög róðurinn gegn sígarettureykingum. íslenzka ríkið hagnast mikið á sígarettureykingum en hefur reyndar líka af þeim mikinn kostnað vegna þess, að margt reykingafólk þarf oft að leita eftir aðstoð heilbrigð- iskerfisins. Er ekki tímabært að eitthvað af þessum mikla hagnaði verði notað til þess að hjálpa fólki til að hætta að reykja? Nú eru til margvíslegar aðferðir til þess, en þær eru dýrar og hugsanlegt að reykingafólk sé ekki tilbúið að leggja í þann kostnað sem fylgir. Mikil gerjun á Höfn í Hornafírði og stórframkvæmdir á döfinni Áætlun G-7-ríkjanna um að létta skuldum af fátækustu ríkjum heims Markvisst stefnt að fj ölgnn íbúanna EG hef fylgst lengi með störf- um sveitarstjórnarmanna um land allt og átt samskipti við þá. Mig var farið að langa út á vígvöllinn, til að takast á við mál- efnin sem þar koma upp. Eg var í af- skaplega skemmtilegri og gefandi vinnu en langaði að breyta til innan þessa geira,“ segir Garðar Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar. Hann er 34 ára viðskiptafræðingur og vann í tíu ár í hagdeild Sambands íslenskra sveitar- félaga, síðustu árin sem deildarstjóri, þar tii hann tók við starfi bæjarstjóra sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. apríl síðastiiðinn. „Eg hef orðið þeirrar gæfu aðnjóL andi að fá að kynnast Hornafirði og þeim sem hér hafa stýrt málum, bæði í gegnum starf mitt hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga og sem ferðamaður. I ferð um svæðið fyrir tveimur árum heillaðist ég af nátt- úrufegurðinni og veðrinu og því sem svæðið hefur upp á að bjóða. Þegar staða bæjarstjóra var auglýst laus til umsóknar var enginn efi í mínum huga, mig langaði hingað og sótti um,“ segir Garðar um tildrög þess að hann sóttist eftir starfi bæjar- stjóra eftir að Sturlaugur Þorsteinsson bæjarstjóri ákvað á breyta um starfs- vettvang. Garðar hefur verið að setja sig inn í starfið og kynnast íbúunum og seg- ir að það gangi vel. Hann segir greinilegt að menn vilji allt gera sem hægt er til að halda íbúunum og helst að fjölga í sveit- arfélaginu. Stöðugt séu settar fram nýjar hug- myndir til þess. Einkunn- arorð Hornafjarðar eru „bjartsýni, framsækni, stórhugur“ og segist Garðar vilja tileinka sér þau í starfi. Leikskóli og slökkvistöð Um síðustu áramót voru íbúar sveit- arfélagsins Hornafjarðar 2.446 og eftir sameiningu sveitarfélaganna nær það yfir alla Austur-Skaftafellssýslu. Nokk- ur fækkun varð á síðasta ári eftir stöðuga íjölgun í mörg ár. I langtímaá- ætlun gera bæjaryfirvöld ráð fyrir 1% fjöigun íbúa á ári og Garðar bæjarstjóri er fullviss um að það markmið náist og gerir sér raunar vonir um mun örari fjölgun. Dæmi um einbeittan vilja stjómenda bæjarfélagsins til að fjölga íbúunum eru stórhuga hugmyndir um stórskipahöfn á Faxeyri og uppbygg- ingu Nýheima þar sem gert er ráð fyrir nýjum fi-amhaldsskóla, útibúi Háskóla íslands, nýsköpunarfyrirtækjum og upplýsingamiðstöð undir sama þaki. Við ákvarðanir um uppbyggingu leik- skóla er einnig tekið mið af væntanlegri fólksíjölgun. Eru þetta -------------- helstu framkvæmdir á veg- um bæjarins á næstu árum, ásamt byggingu nýrrar slökkvistöðvar og holræsa- framkvæmdum. Biðlisti er eftir ieikskóla- plássi á Höfn og ákvað bæj- arstjórn eftir talsverðar vangaveltur að byggja nýjan tveggja deilda leik- skóla í stað þess að bæta fjórðu deild- inni við leikskólann sem fyrir er á staðnum. Garðar telur að við þá ákvörðun hafi ráðið úrslitum að menn vildu vera viðbúnir fjölgun íbúa. Svig- rúmið sem myndast vegna þess hversu myndarlega er byggt verður notað til að bjóða börnun yngri en tveggja ára pláss á leikskólanum. Einnig hefur verið samþykkt að koma slökkvistöðinni á Höfn í betra Hornfírðingar vinna markvisst að því að fjölga íbúum bæjarfélagsins og nýr bæjar- stjóri vill leggja sitt af mörkum í því efni. Telur hann að sveitarfélagið hafi fjárhags- lega burði til að ráðast í framkvæmdir sem nauðsynlegar eru taldar til að ná settu marki. Helgi Bjarnason ræddi við Garðar Jónsson bæjarstjóra sem kemur út á vígvöll- inn eftir tíu ár í starfi hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason GARÐAR Jónsson, nýr bæjarstjóri Hornafjarðar, við ráðhúsið á Höfn. Bæjarsjóður stendur vel fjár- hagslega húsnæði en nú eru bflarnir í tengi- byggingu við ráðshúsið og leiguhús- næði úti í bæ. Nýja slökkvistöðin þarf að hýsa fjóra slökkvibíla og sjúkrabíla. Dómsmálaráðuneytið hefur óskað eftir að fá húsnæðið sem losnar í ráðhúsinu til að bæta úr brýnni húsnæðisþörf lögreglunnar en hún hefur aðstöðu í ráðhúsinu. í vetur urðu miklar um- ræður um löggæslumái í Hornafirði vegna atvika sem þar komu upp og óskaði bæjarstjórnin eftir fjölgun lög- reglumanna af því tilefni. Dómsmála- ráðherra taldi hins vegar stöðina ekki illa mannaða, miðað við mörg önnur umdæmi. Til greina kemur, að mati Garðars, að reyna einkaframkvæmd við nýja slökkvistöð. Bendir hann í því sambandi á að vegna mikilla bygginga- framkvæmda á staðnum kunni að verða framboð af eldra atvinnuhús- ________ næði. Hugsanlegt sé að eig- endur þess sæu sér hag í því að breyta því miðað við þarfir slökkviliðsins. Á fyrir framkvæmdunum Stofnkostnaður við þær framkvæmdir sem bærinn og fyrir- tæki hans áforma á næstu árum nem- ur hátt í milljarð kr. Garðar segir að miðað við þá áætlun til tíu ára sem lögð hefur verið fram í bæjarstjórn sé ijóst að bæjarsjóður eigi fyrir þeim framkvæmdum sem stefnt sé að á hans vegum. Gert sé gert ráð fyrir því að hafnarsjóður fjármagni fram- kvæmdir við Faxeyrarhöfn. Nýi bæjarstjórinn vann meðal ann- ars við úttektir á fjárhag sveitarfélaga, bæði einstakra sveitarfélaga og ai- mennt, og gerir sér því grein fyrir mikilvægi þess að missa ekki tökin á fjármálunum. „En ég sé líka vaxtar- broddana sem hér eru fyrir hendi og hvað sveitarfélagið þarf að gera til að halda íbúunum og fá nýja. Það kostar auðvitað mikið. Takmark mitt er að gera það með skynsamlegum hætti og tryggja að við reisum okkur ekki hurðarás um öxl.“ Garðar segir að sveitarfélagið Hornafjörður sé ágætlega statt fjár- hagslega og skuldir á íbúa undir með- altali. Hann segir að sala á hlut bæjar- ins í sjávarútvegsfélaginu Borgey fyrir 95 milljónir kr. hafi hjálpað upp á sak- imar en það er svipuð fjárhæð og bær- inn hefur lagt í fyrirtækið. „Sveitarfé- lagið hefur sloppið vel út úr þátttöku sinni í atvinnulífinu og betur en mörg önnur sveitarfélög. Það var einnig mikilvægt að salan stuðlaði __________ að sameiningu Borgeyjar, Skinneyjar og Þinganess og það hafði mjög góð áhrif á fbúana hér. Fólk hafði fylgst með taprekstri og erfiðleikum þessa stærsta atvinnufyrirtækis staðarins og margir voru orðnir svartsýnir á framtíðina. Sameiningin var því himnasending fyrir okkur enda hefur fólkið trú á eigendum og stjórnendum í hinu sameinaða fyrirtæki,“ segir Garðar. Töluvert hefur verið byggt af at- vinnuhúsnæði á Höfn að undanförnu og framundan enn stærri áfangar. Þannig er Kaupfélag Austur-Skaftfell- inga að byrja á byggingu nýs verslun- ar- og skrifstofuhúsnæðis í miðbæn- um. Aform em um byggingu Nýheima þar við hliðina og TOP hf. mun byggja þriggja hæða skrifstofu- og þjónustu- hús við hlið ráðhússins. Með þessum byggingum og tilheyi'andi fram- kvæmdum bæjarfélagsins við torg og gangstéttir verður þetta svæði gert að raunverulegum miðbæ sveitarfélags- ins. Hagræðing hjá höfn og áhaldahúsi Mikilvægur þáttur í starfi bæjar- stjóra er að sjá til þess að sveitarfélagið og fyrirtæki þess sé rekið á sem hag- kvæmastan hátt. Garðar segir að minnkandi tekjur hafnarinnar hafi skapað ákveðin vandamál vegna þess að erfitt sé að minnka kostnað á móti. I framhaldi af samningi á Djúpavogi þar sem fiskmarkaður tók að sér rekstur hafnai'innar kom ósk frá Fiskmarkaði Hornafjarðar um viðræður um svipað fyrirkomulag. Garðar vill ekki útiioka samninga um þetta en segir að sam- kvæmt lögum verði ákveð- in störf, svo sem viktun sjávarafla, að vera í hönd- um opinberra aðila. Jafnhliða er verið að skoða þann möguleika að sameina rekstur áhalda- húss og hafnar og minnka kostnaðinn. Telm- hann hugsanlegt að fela mætti einkaaðilum hluta af verk- efnum áhaldahússins, til dæmis með því að selja ol- íumalarstöð sem bæjarfé- lagið rekur. Nefnd emb- ættismanna er að vinna að úttekt á þessum málum og vill Garðar sjá útfærslu á báðum kostum. Rekstur heilbrigðis- mála gengið vel Hornafjörður er reynslusveitarfélag á sviði heilbrigðismála og mál- efna fatlaðra og hefur haft vissa forystu meðal sveit- arfélaga um að taka að sér verkefni frá ríkinu. Sveit- arfélagið rekur því að fullu og á eigin ábyrgð dvalarheimili, hjúkr- unarheimili og heilsugæslustöð en rekstur þessara stofnana er annars sameiginlegt verkefni ríkis og sveitar- félaga. „í þessum málaflokki fer nú saman frumkvæði, framkvæmd og fjárhagsleg ábyrgð. Og starfsemin hefur gengið vel, við rekum þessar stofnanir undir sama þaki og undir einni stjórn og höfum náð fram sparn- aði á ýmsum sviðum, svo sem með til- raunasamningi við einkaaðila um þvottaþjónustu.“ Sveitarfélagið fær vissar fjárveit- ingar á fjárlögum til að standa straum af hlut ríkisins í rekstrinum. „Hingað til höfum við ekki alltaf verið ánægð með samskiptin við heilbrigðisráðu- neytið, fundist það ekki sýna okkur mikinn áhuga. Starfsemin hefur auk- ist án þess að nægilega mikið fjár- _________ magn hafi komið á móti.“ Samningar um reynslu- verkefnin renna út um næstu áramót og bæjaryf- irvöld vilja viðræður um framlengingu þeirra til ———1 tveggja ára, eins og lög nú heimila, og segir Garðar að ráðuneytið hafi nýlega sýnt áhuga á að hefja þá vinnu. „Við teljum að þetta fyrirkomuiag hafi gefist það vel að við ættum að taka heilbrigðismálin að okkur til frambúðar, að næsta tveggja ára reynslutíma liðnum. Það er miklu eðlilegra að ákvarðanir um breytingar á þjónustu séu teknar sem næst fólkinu sem þjónustunnar nýtur. Við viljum hins vegar ekki taka þetta að okkur nema nauðsynlegt fjármagn fáist með verkefnunum,“ segir bæjar- stjórinn. Mikið verður byggt af atvinnu- húsnæði _ Reuters FULLTRUAR kirkjusamtaka efndu til mótmæla í Köln á meðan á fundi leiðtoganna stóð og kröfðust þess að öllum skuldum yrði aflétt af þróunarríkjum. Yfir 30 þróun- arlönd munu njóta góðs af Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims sam- þykktu á fundi sínum í Köln um síðustu helgi að gefa eftir verulegan hluta af skuldum fátækustu ríkja heims. Aðalheiður Inga Þorsteinsdottir kynnti sér áætlunina og umræður um hana. AKVÖRÐUN leiðtoga sjö helstu iðnrflqa heims í Köln sl. föstudag um að afskrifa allt að þriðjung af lánum fá- tækustu íákja heims hefur almennt mælst vel fyrir, þótt efasemdaraddir hafi einnig heyrst um að aðstoðin muni skila tilætluðum árangri. Þá telja ýmsir að ekki sé gengið nógu langt. G-7-ríkin - Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Italía, Japan, Kanada og Þýskaland - auk Alþjóðabankans munu afskrifa lán sem nema samtals 70 millj- örðum dollai'a (5.000 milljörðum ísl. kr.), og er þetta yfirgripsmesta áætlun G-7-ríkjanna til þessa um að létta skuldum af þróunarlöndum. Haft var eftir Gene Sperling, ráðgjafa Bills Clintons Bandaríkjaforseta um efna- hagsmál, að tækju fleiri ríki þátt í áætl- uninni gæti upphæðin numið allt að 90 milljörðum dollai'a (6.500 milljörðum ísl. kr.). Sagði hann að ef svo færi væri mögulegt að afskrifa 70% af skuldum 33 fátækustu ríkja heims, en þær nema samtals 127 milljörðum dollai'a (9.400 milljörðum ísl. kr.). Þar af eiga einstök ríki, fyrst og fremst í G-7-hópnum, 79 milljarða dollai-a, en alþjóðlegar fjár- málastofnanir 48 milljarða dollara. Ágóðinn renni til heilbrigðis- og menntamála Enn er ekki ljóst hvaða lönd munu njóta aðstoðarinnar, en Alþjóðabank- inn, sem er stærsti skuldunautur þró- unarríkja, mun skera úr um það innan skamms. The New York Times hefur eftir Sperling að flest séu löndin í Af- ríku og Suður-Ameríku, og þar á með- al komi Eþíópía, Níger, Níkaragúa, Tansanía, Uganda, Ghana, Rúanda og Mósambík til greina. Sérfræðingar hafa einnig nefnt fleiri ríki, til dæmis Bólivíu, Burma, Gvæana og Hondúras. Leiðtogar G-7-ríkjanna hafa látið svo um mælt að ráðstöfunarfé það sem skapast í þessum i'íkjum vegna af- skrifta lána skuli renna til heilbrigðis- og menntamála, einkum og sér í lagi til verkefna sem miða að því að stemma stigu við útbreiðslu alnæmis í Afi-íku. í yfirlýsingu leiðtoganna segir að án að- stoðarinnar myndu ungbamadauði, ólæsi og alnæmissmit enn fara vaxandi í þessum löndum. Þá sagði Bandaríkja- forseti í yfirlýsingu sinni að samkomu- iagið væri „sögulegt skref til að hjálpa fátækustu ríkjum heims að bæta hag sinn og öðlast efnahagslegt sjálfstæði, jafnframt því að nýtt fjármagn verður veitt í báráttuna gegn fátækt, mennt- unarskorti og útbreiðslu alnæmis“. Gene Sperling nefndi Mósambík sem dæmi um land sem myndi njóta góðs af nýju áætluninni, en þar er ung- barnadauði afar mikill. Um 30% rflds- útgjalda er þar varið til endurgreiðslu lána, en upphæðin gæti nú lækkað nið- ur í 15%. Ráðstöfunartekjur stjórn- valda myndu því hækka um sem svar- ar tvo milljarða íslenskra króna, og því myndi skapast svigrúm til að auka framlög til heilbrigðismála um 50%. Efasemdir um að aðstoðin skili árangri Umræðan um eftirgjöf skulda þró- unarríkja hefur farið vaxandi undan- farin ár og mánuði, og meðal þeirra sem lagt hafa málinu lið eru Jóhannes Páll páfi, Dalai Lama, erkibiskupinn af Kantaraborg og hljómsveitin U2. Það er ekki að undra, því mörg þessara ríkja eyða meiri peningum í að greiða afborganir af lánum en þau verja til heilbrigðis- og menntamála og annarra grunnþarfa almennings. Afleiðingarnar eru þær að í þessum löndum, þar sem búa um 700 milljónir manna, er meðalaldur aðeins um 50 ár, þriðjungur barna þjáist af næringar- skorti og margir hafa ekki efni á að sækja skóla. Sú neyðaraðstoð sem löndunum berst fer gjarnan að miklu leyti í vaxtagreiðslur til Alþjóðabank- ans, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða annarra skuldunauta, en höfuðstóll lánanna lækkar gjarnan lítið og hægt. Þessi vítahringur gerir jafnvel um- bótasinnuðustu ríkisstjórnum erfitt fyrir að bæta efnahagsástandið. Á hinn bóginn hafa þær efasemd- araddir heyrst að fyrri áætlanir um að létta skuldum af fátækum ríkjum hafi ekki bætt kjör almennra borgara, þar sem ágóðanum hafi oft verið varið óskynsamlega eða jafnvel verið skotið undan af spilltum valdhöfum. Þá komi slíkar aðgerðir að litlum notum þegar hagstjórn er í molum. Iðnríkin vonast þó til að komast hjá þessu nú, með því að gera kröfu til viðkomandi landa um að sýna ótvírætt fram á að ágóðinn renni fyrst og fremst til heilbrigðis- og menntamála, auk þess sem ríkin verða að fylgja skynsamlegri efnahagsstefnu í þrjú ár áður en þau njóta aðstoðar- innar að fullu. G-7-ríkin hleyptu fyrstu áætluninni um afléttingu skulda af stokkunum ár- ið 1996. Aðeins tvær þjóðir, Bólivía og Úganda, hafa þó enn uppfyllt skilyrði til að hljóta þessa aðstoð, því í áætlun- inni var gert ráð fyrir að ríkin verðu 20% ríkisútgjalda til að greiða skuldir, en það hefur reynst flestum þróunar- löndum ofraun. Það er því ljóst að öðruvísi verður að fara að nú. Sérfræð- ingar virðast vera á einu máli um að spurningin sé ekki hvort létta eigi skuldum af þróunarríkjum, heldur hvernig það skuli gert. James Wolfensohn, aðalbankastjóri Alþjóðabankans, sagði á mánudag að slíkar aðgerðir yi'ðu að haldást í hendur við áætlanir um að styrkja grundvallarstofnanir ríkjanna. Tryggja þyrfti að þar væri virkt og óspillt réttarkerfi, velferðarkerfi og seðlabanki. Stuðningsmenn hjálparstofnana og ýmsir frægir tónlistarmenn mynduðu 10 kílómetra langa keðju í kringum fundarstað leiðtoga G-7-ríkjanna í Kölru um síðustu helgi, og kröfðust þess að allar skuldir fátækustu ríkja heims yrðu látnai’ niður falla. Aðgerðimar voru skipulagðar af regnhlífarsamtök- unum Jubilee 2000, sem telja við hæfi að árþúsundaskiptin verði notuð sem tilefni til að gefa eftir allar skuldir þró- unarríkja, og meðal þátttakenda voru Bono, söngvari U2, tónlistarmaðurinn Bob Geldof og Thom Yorke, söngvari hljómsveitarinnar Radiohead. Þrátt fyrir að G-7-ríkin hafi ekki verið reiðubúin að ganga svo langt tóku flestar hjálpai'stofnanir tilkynn- ingunni fagnandi, meðal annars vegna þess að í áætluninni er lögð meiri áhersla á heilbrigðis- og menntamál en áður. Seth Amgott, talsmaður alþjóð- legu Oxfam-hjálparstofnunarinnar,' sem aðsetur hefur í Washington, sagði við The Washington Post að um væri að ræða stórt skref í rétta átt. Bono fagnaði því að leiðtogarnir gengju lengra en áður, en líkti málinu við göngu á Everest-tind: „Það er enginn heiður að klífa aðeins hálfa leið upp.“ Á hinn bóginn er ljóst að ýmis rök má færa fyrir því að ekki verði felldar niður aliar skuldir ákveðinna ríkja. Það gæti latt lánardrottna til að veita frek- ai-i lán, auk þess sem ósanngjarnt væri að mismuna þeim þróunai-ríkjum sem fylgja skynsamlegri efnahagsstefnu, og eru af þeim sökum aðeins betur stæð en önnur þróunariönd, og geta því lagt sig fi-am um að borga af lánum sínum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) mun standa straum af sínum hluta kostnaðarins við áætiunina með því að selja allt að 10% af gullforða sínum, um tíu milljón únsur. Verða tekjurnar af sölunni ávaxtaðar, og munu vextimii' renna í sérstakan sjóð til styrktai' fá- tækum ríkjum sem eru mjög skuldsett. Samtök gullvinnslufyrirtækja hafa varað við þessum áformum, og segja þau geta skaðað Afrikuríki meira en þau hagnast af aðstoðinni. Nokkur fá- tæk lönd Afríku, eins og Burkína Fa- só, Ghana, Mali og Tansanía, byggi af- komu sína að verulegu leyti á útflutn- ingi gulls, en gulliðnaðurinn þar sé þó frumstæður og því viðkvæmur fyrir verðsveiflum. I yfirlýsingu samtak- anna segir að salan á gulli IMF muni sennilega leiða til 30% verðfalls á gulli, sem hafi það í för með sér að 100 þús- und manns í sunnanverðri Afríku missi vinnuna og milljónir manna, sem byggja afkomu sína á þeim, verði ofur- seldar fátækt og hungri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.