Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUG
SINGA
Wnovair
VÍ
Nova Airlines AB er dótturfyrirtœki Apollo
sem er einn stœrsti flug- og ferðaaðilinn í Svíþjóð. Fyrirtœkið er
einnig með traustan rekstur í Danmörku og síðan í vor 1999 í
Noregi. Á síðasta ári fluttum við um 325.000 farþega til áfanga-
staða ( Asíu, Evrópu og Ameríku. Meðal fjarlœgari áfangastaða
okkar eru Bali, Phuket og Bangkok í Asíu og hinum megin við
Atlantshafið; Barbados, Cancun, Vardero, Porto-Plata og
Miami. I Evrópu fljúgum við til vinsælla ferðamannastaða við
Miðjarðarhafið og til Kanarí-eyja.
Flugfloti Novair samanstendur af þremur „wide body“
Lockheed LlOl 1 sem taka 310 farþega og þremur glænýj-
um B737-800 fyrir 189 farþega.
Yfirflugliði/Flugfreyjur/Flugþjónar
Við leitum að yfirflugliðum, flugfreyjum- og þjónum á
stöðvar okkar á Stockholm Arlanda og Oslo Gardemoen.
Við getum einnig boðið tímabundna stöðu í Túnis til 3ja
mánaða.
Ert þú jákvæð og glaðlynd persóna, gædd þjónustulund og
þolinmæði, ábyrgðartilfinningu og átt auðvelt með að
vinna með öðrum? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig!
Þú þarft að vera 21 til 45 ára, heilsuhraust/ur og hafa mjög
gott vald á enskri tungu. Kunnátta í öðrum tungumálum er
kostur. Gerðar eru kröfur um góða almenna menntun. Bíl-
próf er skilyrði fyrir ráðningu hjá okkur. Æskileg er
reynsla af flugstörfum. Starfsreynsla úr þjónustu- eða heil-
brigðisgeiranum getur einnig verið tekin til greina.
Ef þér fínnst þetta áhugavert, sendu S.A.E (alþjóðlegt svar-
merki) fyrir umsóknareyðublað, til:
Cabincrew Department
Nova Airlines AB
P.O. Box 94
SE-19045 Stockholm - Arlanda,
Svíþjóð.
Hvernig myndi 1/2
milljón á mán. breyta
þínu lífi?
Um er að ræða 9 mánaða vinnuprógramm
með áframhaldandi möguleikum. Vantar 5
einstaklinga eða pör.
Upplýsingar í síma 881 6245.
Vesturbyggð
Skólastjórastaða
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við
Grunnskóla Vesturbyggðar.
Undir skólann heyrir skólahald á Birkimel, í
Örlygshöfn, á Bíldudal og Patreksfirði —
samtals 220 nemendur.
Um nýja stöðu er að ræða og því spennandi
mótunarstarf framundan.
í Vesturbyggð búa nú um 1.250 manns.
Þjónusta öll er með ágætum, samgöngur
góðar og gott mannlíf.
Bæjarstjóri gefur upplýsingar um starfið, kjör
og aðbúnað.
Áðurauglýsturumsóknarfresturtil 20. þ.m.
er framlengdur til 3. júlí nk.
Vesturbyggð, 16. júní 1999.
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð,
Jón Gunnar Stefánsson.
Funi ehf. blikksmiðja
óskar eftir að ráða blikksmiði eða
laghenta menn til uppsetninga á lagna-
kerfum. Upplýsingar í síma 564 1633.
(SPORT KAFFl)
Starfsfólk óskast
Vegna mikilla vinsælda þarf ísafold Sportkaffi
að bæta við sig starfsfólki. Auglýst er eftir vön-
um barþjónum, starfsfólki í sal, dyravörðum
og starfskrafti í þrif. Tekið er á móti umsóknum
í dag milli kl. 17 og 19.
ísafold Sportkaffi, Þingholtsstræti 5.
Innheimtustjóri
Lögmannsstofa
Traust lögmannsstofa óskar að ráða
innheimtustjóra sem hefur reynslu af
innheimtustörfum og þekkingu
á innheimtukerfi lögmanna.
Viðkomandi þarf að vera ákveðinn, hafa
frumkvæði og vera hæfur í mannlegum
samskiptum. Boðið er upp á gott starfsumhverfi
sem er vel búið nýjum tölvubúnaði.
Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers merktar
„Innheimtustjóri" fyrir 2. júlí nk.
Upplýsingar veita Jóney H. Gylfadóttir og
Þórir Þorvarðarson hjá Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300.
Netföng: joney.h.gylfadottir@is.pwcglobal.com
thorir.thorvardarson@is.pwcglobal.com
PRICR/VATeRHOUsE(COPERS 0
Q
Höfðabakka 9
Rétt þekking 112 Reykjavík
á réttum tíma Sími 550 5300
Bréfasími 550 5302 www.pwcglobal.com/is
Trésmiðir
Óskum eftir trésmiðum til starfa sem fyrst.
Framtíðarvinna.
Upplýsingar í símum 511 1522 og 892 5606.
IH
Eykt ehf
Byggingaverktakar
Taktu þér tak
Nýtt— Nýtt
Komdu línunum í lag fyrir 300 kr. á dag.
Stuðningshópar í boði. Uppl. gefur
Margrét í síma 562 1601.
AQAUGLVBIMGA
YMISLEGT
Kínversk læknisfræði
Tek í einkatíma dagana 28. júní til 5. júlí.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 697 4535
og 568 5501.
íris Erlingsdóttir,
sérfræðingur í jurta-
og nálastungulækningum.
TILKYIMrsUISIGAR
Tilkynning
frá utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býðurfyrirtækjum, sam-
tökum, stofnunum og einstaklingum viðtals-
tíma við sendiherra íslands, þegar þeir eru
staddir hérlendis, til þess að ræða hagsmuna-
4 mál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur
málefni, þar sem utanríkisþjónustan getur
orðið að liði.
Svavar Gestsson, aðalræðismaður íslands í
Kanada, verðurtil viðtals í utanríkisráðuneyt-
inu þriðjudaginn 29. júní nk. kl. 9 til 12 eða eftir
nánara samkomulagi.
_ Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar
í síma 560 9900.
Tillaga að breytingu á
Svæðisskipulagi
sveitarfélaganna sunnan
Skarðsheiðar 1992—2012
Stóri Lambhagi II
Skilmannahreppi
Hreppsnefnd Skilmannahrepps auglýsir skv.
2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 tillögu að breytingu á svæðisskipu-
lagi sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar
1992—2012. Gerð er tillaga um breytingu 5
ha lands úr hefðbundinni landbúnaðarnotkun,
í skógræktarsvæði og sumarhúsabyggð í Stóra
Lambhaga II. Skilmannahreppur bætir það tjón
sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við
breytinguna.
Tillagan hefurverið send aðildarsveitarfélög-
unum til kynningar og umsagnar.
Tillagan verður send Skipulagsstofnun sem
gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaaf-
greiðslu.
Þeirsem óska nánari upplýsinga umtillöguna
geta snúið sértil undirritaðs í Galtarholti eða
í síma 433 8904.
Oddviti Skilmannahrepps.
HÚSIMÆQI í BQQI
íbúð til leigu í Flórída
Rúml. 100fm íbúð íTampa til leigu í júlí og
ágúst. Vel staðsett, sundlaug, stutt frá strönd,
um klukkustundar aksturfrá Orlando.
Upplýsingar í síma 897 0191 eða 565 0813.
TIL SOLU
Garðplöntusala ísleifs
Sumarliðasonar
Bjarkarholti 2, Mosfellsbæ auglýsir:
Birki-, garða-, bjarkeyjar- og dögglingskvistir
kr. 290. Skriðmispill frá kr. 380. Gljámispill kr.
150. Dornrós kr. 480. Sími 566 7315.
ATVINNUHUSNÆÐI
Iðnaðarhúsnæði
í Vík í Mýrdal til sölu
Til sölu er iðnaðarhúsnæði á Sunnubraut 21,
Vík í Mýrdal, ásamt tækjum til bifreiða- og véla-
viðgerða.
Um er að ræða 257 m2 iðnaðarhúsnæði sem
stendur á 3.000 m2 viðskipta- og þjónustulóð
á góðum stað. Húsið lítur vel út, járnklætt að
utan, gler og gluggar í góðu ástandi. Rekið
var bifreiðaverkstæði í húsinu. Góðar inn-
keyrsludyr eru á húsinu. Að innan skiptist það
í verkstæðissal, skrifstofuaðstöðu, salerni og
geymslu. Milliloft er yfir hluta af húsinu. Bíla-
gryfja er í gólfi. Ýmislegt lausaféfylgireigninni
s.s. dekkjavélar, rennibekkur, rafsuðuvélar,
hleðslutæki, súluborvél og vökvapressa.
Tilboð í húseignina óskast send til At-
vinnuþróunarsjóðs Suðurlands, Austurvegi
56, 800 Selfossi, fyrir 29. júní nk.
Nánari upplýsingarfást hjá Atvinnuþróun-
arsjóði Suðurlands í síma 482 2419 á skrifstofu-
tíma.