Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 1
140. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Solana fagnað JAVIER Solana, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, fékk hlýlegar móttökur hjá Kosovo-Albönum er hann kom til Pristína, höfuðborgar Kosovo, í gær, ásamt Wesley Clark, yfir- manni herafla bandalagsins, og Jamie Shea, talsmanni þess. Sterk undiralda á N-Irlandi í aðdraganda Drumeree-göngunnar Svartsýni á að lausn finnist í tæka tíð London, Belfast. Reuters, AFP. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsæt- isráðherra Irlands, fara til Belfast á Norður-írlandi í dag í því skyni að eiga viðræður við leiðtoga stríðandi fylkinga um lausn deilna sem ógna framtíð friðarumleitana í héraðinu. Mikil svartsýni ríkir á N-írlandi um að takist að leysa deOurnar farsæl- lega og við bætist að nú styttist óð- um í hápunkt „göngutíðar" Óraníu- reglunnar. Tony Blair hitti David Trimble í gær í London, en Trimble er leið- togi stærsta flokks sambandssinna (UUP) og tilvonandi forsætisráð- herra takist að setja heimastjórn á laggimar. Blair mun á fundinum hafa þrýst á Trimble að taka skref í samkomulagsátt en sambandssinn- ar neita að setjast í heimastjóm með fulltrúum Sinn Féin, stjórn- málaarms Irska lýðveldishersins (IRA), nema IRA byrji afvopnun fyrst. Engin teikn voru hins vegar á lofti í gær um að Blair hefði tekist að sannfæra Trimble að taka áhætt- una, og samþyklga að heimastjóm- in verði mynduð fyrir miðvikudag, en þá rennur út „endanlegur" frest- ur sem Blair hefur sett. Því er nú spáð að John de Chastelain, sem situr í forsæti nefndar sem farið hefur ofan í kjöl- inn á vopnamálum öfgahópa, muni leika lykilhlutverk í neyðarviðræð- um, sem efnt verður til strax eftir helgi í því skyni að finna lausn á ell- eftu stundu. Hafa bresk stjómvöld beðið de Chastelain að leggja fram skýi’slu á mánudag þar sem mat verður lagt á hvort öfgahópar eins og IRA hyggist í raun og vera af- vopnast að fullu fyrir maí á næsta ári, eins og ákvæði friðarsamkomu- lagsins frá því í fyrra kveða á um. Gæti skýrsla de Chastelains skor- ið úr um hvort líkur séu á að Blair og Ahem takist að fá Trimble og Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin, til að taka skrefið fram á við í sam- stiga stökki - en vonir eru helst bundnar við að Trimble samþykki stofnun heimastjórnarinnar án þess að IRA hafi í raun byrjað afvopnun, gegn loforði um að IRA byrji þegar afvopnun að því loknu. Banna fósturein- ræktun MÓTMÆLENDUR hófu í gær kriifugöngu í borginni Derry á Norður-frlandi sem gert er ráð fyrir að taki tíu daga og gera göngumenn ráð fyrir að koma til Portadown kvöldið fyrir hina árlegu Drumcree-göngu þar í bæ. Hún hefur orðið tilefni harðra átaka undanfarin sumur. London. AP. BRESK stjórnvöld virtu í gær að vettugi ráð sérfræðinga og bönnuðu alla einræktun fóstra, eða fóstur- vísa, í rannsóknarskyni, á þeim for- sendum að meiri tíma þyrfti til að kanna hugsanlegar afleiðingar slíkr- ar einræktunar. Samkvæmt ákvörðun stjórnarinn- ar er ekki lengur heimilt að ein- rækta fóstur til að nota við rann- sóknir á meðferð við sjúkdómum. Fulltrúar Roslin-stofnunarinnar í Skotlandi, þar sem kindin Dolly var einræktuð, sögðu að ákvörðun þingsins yrði til þess að Bretar drægjust aftur úr á mikilvægu sviði. „Þessar [rannsóknir] gætu leitt til algerlega nýrra meðferða við fjölda sjúkdóma sem engin lækning er til við núna.“ ■ Ræða þarf hættuna/25 Fétil höfuðs Milosevic Washington, London, Belgrad. AP, Reuters. BANDARÍSK stjórnvöld hétu í gær allt að fimm milljón dollara verðlaun- um hverjum þeim sem gæti' veitt upplýsingar er leiddu til handtöku meintra stríðsglæpamanna í Jú- góslavíu, þeirra á meðal Slobodan Milosevic forseta. Glæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur þegar birt ákæru um stríðsglæpi á hendur fimm mönnum. Sagði talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, James Rubin, að verðlaunin, sem svara til rúmlega 360 milljóna íslenskra króna, verði veitt fyrir upplýsingar er leiði til þess að glæpadómstóllinn komi höndum yfir mennina, eða að þeir verði sakfelldir „í hvaða landi sem er“. Þetta eigi einnig við um þá sem kunni að verða ákærðir af glæpadómstólnum fyrir stríðsglæpi í Júgóslavíu. Hæfðu aðeins 13 skriðdreka Þrátt fyrir þúsundir árásarferða og beitingu fullkomnustu vopna þá 79 daga sem hernaðaraðgerðir Atl- antshafsbandalagsins (NATO) gegn Júgóslavíu stóðu tókst bandalaginu einungis að eyðileggja þrettán af þrjú hundmð skriðdrekum júgóslav- neska hersins. Breska blaðið The Times greindi frá þessu í gær. Blaðamaður The Times í Kosovo segir að friðargæsluliðarnir, sem nú eru komnir til héraðsins, hafi ein- ungis fundið þrjá ónýta, júgóslav- neska skriðdreka. Bandaríska varn- armálaráðuneytið sagði hins vegar fyrir rúmri viku að alls hefðu rúm- lega 120 skriðdrekar verið eyðilagðir og yfir 220 brynvagnar. Júgóslavneska þingið samþykkti í gær að aflýsa stríðsástandi, sem lýst var yfir þegar NATO hóf árásir sín- ar 24. mars, en samþykkti um leið aðrar ráðstafanir sem gera yfirvöld- um kleift að hafa hemil á andófs- mönnum. Meðal þeirra ráðstafana sem þing- ið felldi úr gildi í gær vora takmark- anir á starfsemi fjölmiðla, bann við að menn á herskyldualdri fari úr landi og bann við opinberum sam- komum. Ottast auknar hamfarir Genf, Nýju-Delhí. AP, Reuters. RAUÐI krossinn sagði í gær að þær náttúrahamfarir, sem á íbúum ver- aldarinnar dundu á síðasta ári, væra þær verstu sem sögu fara af. Spáðu talsmenn samtakanna því jafnframt, að þegar áhrifa loftslagsbreytinga taki að gæta í æ ríkari mæli megi bú- ast við að náttúruhamförum fjölgi og að þær muni valda sífellt meiri skaða. I skýrslu um náttúruhamfarir í heiminum, sem Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn gáfu út í gær, kemur m.a. fram, að á síðasta ári varð fellibylurinn Mitch tíu þúsund manns að bana í Mið-Ameríku; í Indónesíu urðu verstu þurrkar í hálfa öld og 180 milljónir urðu fyrir skakkaföllum af völdum flóða í Kína. Einnig er bent á í skýrslunni að um einn milljarður manna búi í óskipulögðum örbirgðarhýsum, og að 40 af þeim 50 borgum sem séu í örastum vexti séu á jarðskjálfta- svæðum. Níutíu og sex af hundraði allra dauðsfalla af völdum náttúra- hamfara verða í þróunarlöndum. „Frainlagsþreyta" I viðtali við fulltrúa Rauða kross- ins kom fram að svonefnd „framlags- þreyta" sé einnig orðin áhyggjuefni. Svo lengi sem alþjóðlegir fjölmiðlar sýni myndir af og fjalli um fórnar- lömb náttúruhamfara streymi fjár- framlög til samtakanna, en þegar dragi úr umfjöllun dragi að sama skapi úr framlögum. „Vandinn er, að þegar vika eða mánuður er liðinn, og [fórnarlömbin] era enn heimilislaus og enn að reyna að komast á réttan kjöl, þá hefur eng- inn áhuga lengur," sagði fulltrúinn. Vilja barnsfeður með karlmannlegt andlit Lundúnum. The Daily Telegraph. KONUR hneigjast yfirleitt í átt að körlum með „kvenlega ásjónu," eins og Leonardo DiCaprio, þegar þær hafa langtíma samband í huga. Hins vegar virðast þær al- mennt hallast að mönnum með „grófari andlitsdrætti" á borð við Clint Eastwood til að feðra börn sín. Þetta er meðal niðurstaðna ný- legrar rannsóknar sem birt var í fræðiritinu Nature í gær. í niður- stöðunum segir að svo virðjst sem kvenforfeður okkar hafi aðhyllst þessa „blönduðu getnaðaraðferð“. Nútímakonan hrífist einnig meira af grófgerðum karlmönnum er hún er hvað frjósömust, en kjósi heldur að eyða lífinu með karlmönnum sem hafa kvenlegri andlitsdrætti. Með þessari „getnaðaraðferð“ hafa konur í gegnum söguna eign- ast böm með „góð gen“, sterk og hraust, en á sama tíma hafa þær notið langtíma samvista við snoppufríða karla. í Ijósi þessarar líffræðilegu þróunar gæti það ver- ið konum eðlislægt að halda fram- hjá mökum sínum með öðrum körlum til að auka líkurnar á því að þær eignist sterk og heilsu- hraust börn. Tony Little, prófessor við St. Andrews-háskólann, framkvæmdi rannsóknina ásamt Ian Penton- Voak, David Pemett og öðrum samstarfsbræðram í Lundúnum og Japan. Draga þeir ekki úr því að niðurstöðurnar kunni að þykja óviðeigandi. „Það er eiginlega ekki hægt að setja þetta fram á snyrti- legan hátt,“ segir Little. Hann segir að engin tilraun hafi verið gerð til að leggja siðferðilegan mælikvarða á niðurstöðurnar og ljóst sé að þótt þróunarsagan kunni að hafa þróað ákveðnar hvatir geti félagslegur þrýstingur auðveldlega orðið þeim yflrsterk- ari. í rannsókninni vora konur m.a. beðnar um að benda á þá karl- menn af myndum sem þær vildu helst eiga í skammvinnu ástarsam- bandi við. I ljós kom að konur höfðu meiri áhuga á körlum með gróft og karimannlegt andlit er þær voru í miðjum tíðahring og mestu líkurnar voru á að þær gætu orðið barnshafandi. Hins vegar sögðust þær sem höfðu á klæðum hallast meir að snoppu- fríðu körlunum á myndunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.