Morgunblaðið - 25.06.1999, Side 1
140. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Solana fagnað
JAVIER Solana, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins,
fékk hlýlegar móttökur hjá
Kosovo-Albönum er hann kom til
Pristína, höfuðborgar Kosovo, í
gær, ásamt Wesley Clark, yfir-
manni herafla bandalagsins, og
Jamie Shea, talsmanni þess.
Sterk undiralda á N-Irlandi í aðdraganda Drumeree-göngunnar
Svartsýni á að lausn
finnist í tæka tíð
London, Belfast. Reuters, AFP.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Bertie Ahern, forsæt-
isráðherra Irlands, fara til Belfast á
Norður-írlandi í dag í því skyni að
eiga viðræður við leiðtoga stríðandi
fylkinga um lausn deilna sem ógna
framtíð friðarumleitana í héraðinu.
Mikil svartsýni ríkir á N-írlandi um
að takist að leysa deOurnar farsæl-
lega og við bætist að nú styttist óð-
um í hápunkt „göngutíðar" Óraníu-
reglunnar.
Tony Blair hitti David Trimble í
gær í London, en Trimble er leið-
togi stærsta flokks sambandssinna
(UUP) og tilvonandi forsætisráð-
herra takist að setja heimastjórn á
laggimar. Blair mun á fundinum
hafa þrýst á Trimble að taka skref í
samkomulagsátt en sambandssinn-
ar neita að setjast í heimastjóm
með fulltrúum Sinn Féin, stjórn-
málaarms Irska lýðveldishersins
(IRA), nema IRA byrji afvopnun
fyrst. Engin teikn voru hins vegar á
lofti í gær um að Blair hefði tekist
að sannfæra Trimble að taka áhætt-
una, og samþyklga að heimastjóm-
in verði mynduð fyrir miðvikudag,
en þá rennur út „endanlegur" frest-
ur sem Blair hefur sett.
Því er nú spáð að John de
Chastelain, sem situr í forsæti
nefndar sem farið hefur ofan í kjöl-
inn á vopnamálum öfgahópa, muni
leika lykilhlutverk í neyðarviðræð-
um, sem efnt verður til strax eftir
helgi í því skyni að finna lausn á ell-
eftu stundu. Hafa bresk stjómvöld
beðið de Chastelain að leggja fram
skýi’slu á mánudag þar sem mat
verður lagt á hvort öfgahópar eins
og IRA hyggist í raun og vera af-
vopnast að fullu fyrir maí á næsta
ári, eins og ákvæði friðarsamkomu-
lagsins frá því í fyrra kveða á um.
Gæti skýrsla de Chastelains skor-
ið úr um hvort líkur séu á að Blair
og Ahem takist að fá Trimble og
Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin,
til að taka skrefið fram á við í sam-
stiga stökki - en vonir eru helst
bundnar við að Trimble samþykki
stofnun heimastjórnarinnar án þess
að IRA hafi í raun byrjað afvopnun,
gegn loforði um að IRA byrji þegar
afvopnun að því loknu.
Banna
fósturein-
ræktun
MÓTMÆLENDUR hófu í gær kriifugöngu í borginni Derry á Norður-frlandi sem gert er ráð fyrir að taki tíu
daga og gera göngumenn ráð fyrir að koma til Portadown kvöldið fyrir hina árlegu Drumcree-göngu þar í
bæ. Hún hefur orðið tilefni harðra átaka undanfarin sumur.
London. AP.
BRESK stjórnvöld virtu í gær að
vettugi ráð sérfræðinga og bönnuðu
alla einræktun fóstra, eða fóstur-
vísa, í rannsóknarskyni, á þeim for-
sendum að meiri tíma þyrfti til að
kanna hugsanlegar afleiðingar slíkr-
ar einræktunar.
Samkvæmt ákvörðun stjórnarinn-
ar er ekki lengur heimilt að ein-
rækta fóstur til að nota við rann-
sóknir á meðferð við sjúkdómum.
Fulltrúar Roslin-stofnunarinnar í
Skotlandi, þar sem kindin Dolly var
einræktuð, sögðu að ákvörðun
þingsins yrði til þess að Bretar
drægjust aftur úr á mikilvægu sviði.
„Þessar [rannsóknir] gætu leitt til
algerlega nýrra meðferða við fjölda
sjúkdóma sem engin lækning er til
við núna.“
■ Ræða þarf hættuna/25
Fétil
höfuðs
Milosevic
Washington, London, Belgrad. AP, Reuters.
BANDARÍSK stjórnvöld hétu í gær
allt að fimm milljón dollara verðlaun-
um hverjum þeim sem gæti' veitt
upplýsingar er leiddu til handtöku
meintra stríðsglæpamanna í Jú-
góslavíu, þeirra á meðal Slobodan
Milosevic forseta. Glæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna hefur þegar
birt ákæru um stríðsglæpi á hendur
fimm mönnum.
Sagði talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, James Rubin, að
verðlaunin, sem svara til rúmlega 360
milljóna íslenskra króna, verði veitt
fyrir upplýsingar er leiði til þess að
glæpadómstóllinn komi höndum yfir
mennina, eða að þeir verði sakfelldir
„í hvaða landi sem er“. Þetta eigi
einnig við um þá sem kunni að verða
ákærðir af glæpadómstólnum fyrir
stríðsglæpi í Júgóslavíu.
Hæfðu aðeins 13 skriðdreka
Þrátt fyrir þúsundir árásarferða
og beitingu fullkomnustu vopna þá
79 daga sem hernaðaraðgerðir Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) gegn
Júgóslavíu stóðu tókst bandalaginu
einungis að eyðileggja þrettán af
þrjú hundmð skriðdrekum júgóslav-
neska hersins. Breska blaðið The
Times greindi frá þessu í gær.
Blaðamaður The Times í Kosovo
segir að friðargæsluliðarnir, sem nú
eru komnir til héraðsins, hafi ein-
ungis fundið þrjá ónýta, júgóslav-
neska skriðdreka. Bandaríska varn-
armálaráðuneytið sagði hins vegar
fyrir rúmri viku að alls hefðu rúm-
lega 120 skriðdrekar verið eyðilagðir
og yfir 220 brynvagnar.
Júgóslavneska þingið samþykkti í
gær að aflýsa stríðsástandi, sem lýst
var yfir þegar NATO hóf árásir sín-
ar 24. mars, en samþykkti um leið
aðrar ráðstafanir sem gera yfirvöld-
um kleift að hafa hemil á andófs-
mönnum.
Meðal þeirra ráðstafana sem þing-
ið felldi úr gildi í gær vora takmark-
anir á starfsemi fjölmiðla, bann við
að menn á herskyldualdri fari úr
landi og bann við opinberum sam-
komum.
Ottast auknar
hamfarir
Genf, Nýju-Delhí. AP, Reuters.
RAUÐI krossinn sagði í gær að þær
náttúrahamfarir, sem á íbúum ver-
aldarinnar dundu á síðasta ári, væra
þær verstu sem sögu fara af. Spáðu
talsmenn samtakanna því jafnframt,
að þegar áhrifa loftslagsbreytinga
taki að gæta í æ ríkari mæli megi bú-
ast við að náttúruhamförum fjölgi og
að þær muni valda sífellt meiri skaða.
I skýrslu um náttúruhamfarir í
heiminum, sem Rauði krossinn og
Rauði hálfmáninn gáfu út í gær,
kemur m.a. fram, að á síðasta ári
varð fellibylurinn Mitch tíu þúsund
manns að bana í Mið-Ameríku; í
Indónesíu urðu verstu þurrkar í
hálfa öld og 180 milljónir urðu fyrir
skakkaföllum af völdum flóða í Kína.
Einnig er bent á í skýrslunni að
um einn milljarður manna búi í
óskipulögðum örbirgðarhýsum, og
að 40 af þeim 50 borgum sem séu í
örastum vexti séu á jarðskjálfta-
svæðum. Níutíu og sex af hundraði
allra dauðsfalla af völdum náttúra-
hamfara verða í þróunarlöndum.
„Frainlagsþreyta"
I viðtali við fulltrúa Rauða kross-
ins kom fram að svonefnd „framlags-
þreyta" sé einnig orðin áhyggjuefni.
Svo lengi sem alþjóðlegir fjölmiðlar
sýni myndir af og fjalli um fórnar-
lömb náttúruhamfara streymi fjár-
framlög til samtakanna, en þegar
dragi úr umfjöllun dragi að sama
skapi úr framlögum.
„Vandinn er, að þegar vika eða
mánuður er liðinn, og [fórnarlömbin]
era enn heimilislaus og enn að reyna
að komast á réttan kjöl, þá hefur eng-
inn áhuga lengur," sagði fulltrúinn.
Vilja barnsfeður með
karlmannlegt andlit
Lundúnum. The Daily Telegraph.
KONUR hneigjast yfirleitt í átt að
körlum með „kvenlega ásjónu,"
eins og Leonardo DiCaprio, þegar
þær hafa langtíma samband í
huga. Hins vegar virðast þær al-
mennt hallast að mönnum með
„grófari andlitsdrætti" á borð við
Clint Eastwood til að feðra börn
sín.
Þetta er meðal niðurstaðna ný-
legrar rannsóknar sem birt var í
fræðiritinu Nature í gær. í niður-
stöðunum segir að svo virðjst sem
kvenforfeður okkar hafi aðhyllst
þessa „blönduðu getnaðaraðferð“.
Nútímakonan hrífist einnig meira
af grófgerðum karlmönnum er hún
er hvað frjósömust, en kjósi heldur
að eyða lífinu með karlmönnum
sem hafa kvenlegri andlitsdrætti.
Með þessari „getnaðaraðferð“
hafa konur í gegnum söguna eign-
ast böm með „góð gen“, sterk og
hraust, en á sama tíma hafa þær
notið langtíma samvista við
snoppufríða karla. í Ijósi þessarar
líffræðilegu þróunar gæti það ver-
ið konum eðlislægt að halda fram-
hjá mökum sínum með öðrum
körlum til að auka líkurnar á því
að þær eignist sterk og heilsu-
hraust börn.
Tony Little, prófessor við St.
Andrews-háskólann, framkvæmdi
rannsóknina ásamt Ian Penton-
Voak, David Pemett og öðrum
samstarfsbræðram í Lundúnum
og Japan. Draga þeir ekki úr því
að niðurstöðurnar kunni að þykja
óviðeigandi. „Það er eiginlega ekki
hægt að setja þetta fram á snyrti-
legan hátt,“ segir Little. Hann
segir að engin tilraun hafi verið
gerð til að leggja siðferðilegan
mælikvarða á niðurstöðurnar og
ljóst sé að þótt þróunarsagan
kunni að hafa þróað ákveðnar
hvatir geti félagslegur þrýstingur
auðveldlega orðið þeim yflrsterk-
ari.
í rannsókninni vora konur m.a.
beðnar um að benda á þá karl-
menn af myndum sem þær vildu
helst eiga í skammvinnu ástarsam-
bandi við. I ljós kom að konur
höfðu meiri áhuga á körlum með
gróft og karimannlegt andlit er
þær voru í miðjum tíðahring og
mestu líkurnar voru á að þær
gætu orðið barnshafandi. Hins
vegar sögðust þær sem höfðu á
klæðum hallast meir að snoppu-
fríðu körlunum á myndunum.