Morgunblaðið - 26.06.1999, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
HALLÓ, ANbkÉS - JÁ, PAKKA PÉR FYRIR.
É6 ÁTTISÓÖAN LEIK Á LAUSARÖA6INN
5LÓ SNOTURLE6A INN Á FLÖTINM 06
PÚTTAÐI í FJÓRUM. Á NÆSTU
HOLU VAR ÉG.....
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Hvað er Ég er að skrifa Það var gott..hefur hún
þetta? ritgerð um afa.. einhveija fyrirsögn?
„Undur fornaldar"
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 108 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hálfdrættingar
og veggjatítlur
Frá Pétri Péturssyni:
RÍKISÚTVARPIÐ þrástagast á því
í sjónvarpsauglýsingum að áhorf-
endur eigi ekki að sætta sig við litla
sneið af „kök-
unni“, eins og
komist er að orði.
Síðan er brugðið
upp teikningu er
sýnir skiptingu
eftir sjónvarps-
stöðvum. Þá
kemur í ljós að
Ríkissjónvarpið
fær 52% „kök-
unnar“ í sinn
hlut. Með öðrum
orðum röskan helming. Það eru öll
ósköpin eftir nær sjö áratuga einok-
un á öldum ljósvakans. A máli sjó-
manna væri þetta sennilega kallað
að vera „hálfdrættingur". Nú viija
„hálfdrættingar" Ríkisútvarpsins fá
ríkisábyrgð fyrir hundruðum miilj-
óna til þess að innrétta Bláfjallasali
handa innkaupastjórum ofbeldis-
mynda og brennuvargaberserkja-
trylla að kenna íslenskum ung-
mennum klækina. Svo ekki sé talað
um uppáhaldshljómsveitir æsku-
lýðsþáttanna „Kolkrabbans" og
annarra ámóta þ.e. „Kókaín“, „Ópí-
um“, Skítamóral og Botnleðju. í
þeim þáttum er stöðugur og mark-
viss áróður fyrir knæpuheimsókn-
um og klámfengnum tilburðum.
Útvarpsráð samþykkti á sínum
tíma tillögu Haralds Blöndals um að
sneiða hjá engilsaxneskum söngv-
um í fréttatengdri dagskrá sjón-
varpsins. Núverandi menntamála-
ráðherra lætur eins og hann viti
ekki af þeirri samþykkt. Þó hafði
hann sjálfur undirritað áskorun til
Sjónvarpsins þess efnis.
Nýlega var íslensk málstöð
heiðruð fyrir starf að varðveislu ís-
lenskrar tungu. Sú stofnun á engan
slíkan heiður skilið. Nær væri að
einhver öldruð íslensk húsmóðir
drægi undan svuntu sinni Bessa
brumskegg eða Eirík á einum fæti
og léti ganga milli hæls og hnakka á
þeirri stofnun, sem skreytir sig með
fjöðrum, sem hún á ekki skilið.
Stofnun þessi hirðir ekki um það
þótt Ríkisútvarpið auglýsti starf-
semi sína með enskum söngvum.
Sama má segja um Flugleiðir, sem
auglýsa á ensku í næsta nágrenni,
rétt við nefið á Ömefnastofnun, og
eigi fjærri Amastofnun og Orðabók
Háskólans er nýrisin verslun á veg-
um olíufélags sem heitir „Select".
Sé gengið um Laugaveg, Banka-
stræti, Austurstræti og aðrar götur
í miðborginni er nær hvergi að
finna íslensk verslunarheiti. Sub-
way, MacDonalds, Blu di blu, Rex,
Oxford Street og önnur áþekk heiti
sjást hvarvetna.
Nú nýverið hefir Háskóli Islands
lagst á árina og rær lífróður frá
strönd íslenskrar tungu. Bítur höf-
uðið af skömminni og bregst hlut-
verki sínu. Eins og hálfdrættingar
Ríkisútvarpsins snúa baki við móð-
urmáli og þjóðtungu með því að
fella niður „Daglegt mál“ þannig
hættir Háskóli Islands að svai’a á ís-
lensku í símsvara þeim er gegnir að
lokum skrifstofutíma. Ég ætlaði
naumast að trúa eigin eyrum er
rödd símastúlku Háskólans glumdi í
eyrum mér í gærdag kl. 16.05: „Are
you still there?“ Og svo kom
orðaruna á ensku og upptalning rétt
eins og það væri í Oxford Street eða
Liverpool. Það var ekki um að vill-
ast. Háskólinn hafði tekið upp nýja
siði í valdatíð Bjöms Bjamasonar
menntamálaráðherra. Hann hlaut
að samræma og samrýma menning-
arsókn þá sem hann hefir stundað
svo ötullega með kynþokkafullum
hætti í dagskrá Ríkissjónvarps og
Útvarps.
Hálfdrættingar Ríkisútvarpsins
°g veggjatitlur Háskólans leika
lausum hala. Hvað standa stoðir ís-
lenskrar menningar lengi ef slíku
fer fram?
PÉTUR PÉTURSSON,
þulur.
--------------
Vestfirzk
menning
Steingrími St.Th. Sigurðssyni
JÓNSMESSA var liðin. Vestfirðir
eins og þeir hafa alltaf verið - óum-
breytanlegir eins og mannfólkið
sem gistir kjálk-
ann, en hann er
síðasti vonarpen-
ingur sjálfstæðr-
ar þjóðar af vík-
ingakyni. Pat-
reksfjörður er
ennþá höfuðstað-
ur Vestfjarða -
ber kaþólskt nafn
og er seintekinn
eins og allt gott,
öllu heldur heið-
arlegt, fólk. Undirskráður reif upp
sýningu með 40 verkum þar á Patró
í Gallerí Isafold í bugtinni við sjó-
inn, sem kona, mótuð af dönskum
og evrópskum áhrifum, stýrir. Hún
er listakona af guðs náð og sér-
kennileg úr hófi fram. Til að halda
upp á þessa sýningu var þrjá daga í
röð komið við í veitingahúsi hjón-
anna Kristjáns Skarphéðinssonar
og Kristínar konu hans til að neyta
ljúffengs matar sem þýzkur túristi
sagði að væri bezti matur sem hann
hefði smakkað. Patreksfjörður
verður alltaf mesti menningarstað-
ur Vestfjarða.
STEINGRÍMUR ST.TH.
SIGURÐSSON,
listamaður.
Pétur
Pétursson
Steingrímur St.Th.
Sigurðsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vib hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruS og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskaó er.
* Ntf0
i taékMÚhreimunín
f fnlfnirfimr^ 35 * 533.3(534 • q$Mi 397 3334