Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Staðan 1 lónum Landsvirkjunar
Ákall skipverjanna á Odincova bar árangur
Starfsmaður Skattstofu Reykjaness
úrskurðaður í gæsluvarðhald
Grunaður um
að hafa dregið
sér 11 millj.
SÉRFRÆÐINGUR á virðisauka-
skattsdeild Skattstofu Reykjaness
hefur verið úrskurðaður í viku
gæsluvarðhald vegna gruns um
stórfellt brot á virðisaukaskattslög-
um og brot í opinberu starfi. Mað-
urinn hefur játað að hafa dregið sér
rúmlega 10.869.000 krónur á 14
mánaða tímabili með því að færa
inn tölur um viðskipti fyrirtækis
sem var í hans eigu. Fyrirtækið var
í reynd ekki með neina starfsemi.
Starfsmenn skattstofunnar upp-
götvuðu svikin og vísuðu málinu til
skattrannsóknarstjóra sem kærði
manninn til efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra sl. miðvikudag.
Húsleit var gerð á heimili mannsins
og hann handtekinn í framhaldi af
því. Hann var síðan úrskurðaður í
gæsluvarðhald í eina viku.
Þóttist stunda viðskipti
með fisk
Maðurinn, sem starfað hefur á
Skattstofu Reykjaness frá árinu
1997, er sérfræðingur á virðisauka-
skattsdeild og vann m.a. við að slá
inn upplýsingar um virðisauka-
skattsskil fyrirtækja í fiskvinnslu.
Hann stofnaði í eigin nafni fyrir-
tæki, sem hann síðar tilkynnti að
hefði breytt um starfsemi og starf-
aði nú í fiskvinnslu. Síðan skráði
hann á fyrirtækið vikulegar upplýs-
ingar eins og það stæði í útflutningi
á fiski. Þegar virðisaukaskatts-
skýrslur voru komnar inn í kerfið
bánist upplýsingarnar til tollstjór-
ans í Reykjavík um að fyrirtækið
ætti ógreiddan innskatt sem var
sendur sjálfkrafa til mannsins.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar, yf-
irmanns í efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra, snýst rannsókn
málsins nú um ráðstöfun þeirra
fjármuna sem maðurinn er granað-
ur um að hafa svikið út úr skattin-
um. Jafnframt er verið að kanna
hvort mögulegt er að fá peningana
endurgreidda með einhverjum
hætti.
Manninum hefur verið vikið úr
starfi hjá skattstofunni.
Vatnsforðinn
undir meðallagi
Morgunblaðið/Jim Smart
Morgunblaðið/Jim Smart
SKIPVERJI á Odincova tekur við matargjöfínni frá unglingum í Vinnuskóla Reykjavíkur.
ÁKALL skipverja togarans Od-
incova um hjálp frá íslenskum al-
menningi virðist ætla að bera tilætl-
aðan árangur. I gær tóku unglingar
í Vinnuskóla Reykjavíkur sig saman
og notuðu útborgun sína til að
kaupa mat handa skipverjunum.
Innflytjendur matvæla brugðust
einnig vel við hjálparbeiðninni og
komu vamingi um borð í Odincova.
Þá segir Gennadiy Karmanov skip-
stjóri allnokkum fjölda fólks hafa
lagt leið sína að skipinu í þessum
sömu erindagjörðum. Kvað hann sig
og menn sína afar þakkláta fyrir
þennan stuðning.
Útgerðarmaðurinn segist
hafa greitt eina milljón
Sæmundur Arelíusson, útgerðar-
maður togarans Odincova, segist
aðspurður hafa greitt skipverjum
eina milljón króna um síðustu helgi
og því séu þeir ekki með öllu aura-
lausir. Sæmundur og kona hans
vilja hins vegar ekki tjá sig frekar
um ásakanir skipverjanna þeim á
hendur.
Aðspurður hver staðan í deilu
hans og skipverja væri sagði Sæ-
mundur henni best lýst utan á Od-
incova og átti þar við þær hjálpar-
beiðnir og skilaboð um óréttlæti
sem skipverjar hafa málað á skipið.
Sagði hann enga lausn vera í sjón-
máli í augnablikinu en vonaðist þó
til að leysa mætti hnútinn sem
fyrst. Hann vildi ekkert tjá sig um
þau orð sem skipverjar hafa látið
falla í hans garð en sagðist þó hafa
látið þeim eina milljón króna í té um
síðustu helgi og þeir væru því ekki
algerlega auralausir.
Morgunblaðið náði tah af eigin-
konu Sæmundar en skipverjar hafa
sakað hana um að hafa komið um
borð í skipið og ausið yfir þá skömm-
um. Sagðist hún ekki vilja svara
þeim ásökunum á nokkum hátt og
vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir
enga hreyfingu vera á málum skip-
verjanna. Segir hann Sjómannafé-
lagið hafa unnið að því að tryggja
skipverjunum laun, m.a. í gegnum
stjómvöld í Riga, en þaðan hafi lítil
hjálp borist.
Matargjafír bárust
úr mörgum áttum
VATNSBÚSKAPUR í lónum
Landsvirkjunar er nokkra undir því
sem gerist í meðalári. Vatnsforði
lónanna er um 55% en Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, segir að í meðalári
sé hann yfirleitt kringum 70% á
þessum árstíma.
Fylgst er með vatnshæð og
vatnssöfnun í lónin en þau stærstu
era Þórisvatn, lónið við Blöndu og
Hágöngulónið. Þorsteinn sagði að
staðan í Blöndulóni væri í meðallagi
en undir meðallagi í Þórisvatni.
Hann segir að miðað við flokkun í
gott ár, meðalgott og slæmt sé stað-
an nú metin sem slæmt ár. Hann
sagði þó enga ástæðu til að hafa
áhyggjur enn þar sem jökulleysing-
ar ættu eftir að koma fram og að yf-
irleitt bættist í lónin fram eftir
hausti. Hlýindi eða rigningar á
næstu vikum myndu koma sér vel
fyrir vatnsforðann.
I TENGSLUM við kristnitökuhá-
tiðina á Þingvöllum á næsta ári
er nú verið að endurbyggja
Grafningsveg efri frá Nesjavöll-
um að Þingvallavegi. AIls eru
þetta tólf kílómetrar. Hæð vegar-
ins er breytt og hann breikkaður
á kafla en yfirleitt Iiggur hann á
sama stað og núverandi vegur.
Sú breyting sem vegfarendur
eiga eftir að verða mest varir við
er að vegurinn verður klæddur
Grafningsvegur
endurbyggður
bundnu slitlagi á 12 kílómetra
kafla.
Vegurinn verður áfram ein
akrein í hvora átt. Verktaki er
Völur hf. Verkið var boðið út í
september á síðasta ári og hófust,
framkvæmdir á síðasta ári. Ráð-
gert er að verkinu ljúki 1. októ-
ber næstkomandi. Verkinu miðar
samkvæmt áætlun.
55.000 rúmmetrar efnis fara í
burðarlög vegarins. Klæðningin
er alls 81.000 fermetrar að
stærð. Tilboð verktakans hljóð-
aði upp á tæpar 70 milljónir
króna en heildarkostnaður við
verkið, með öllum efniskostnaði
og fleiru, er áætlaður um 105
milljónir króna.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
íiltlMffillliÍyLE
Shevchenko dýrastur í
sögu Laugardalsvallar/B1
Eyjamenn ótrúlegir
heim að sækja/B4
m síbur
¥ 17dÐl^*^
UjkjDl>l\
► Málþing um stöðu ljóðlistarinnar. Þrælasalar í norð-
urhöfum. Turnar á staurum í Hollandi. Sumartónleikar í
Skálholtskirkju.