Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nýr tvívirkur sími frá Ericsson
Úthlutað úr Pokasjóði verslunarinnar í fjórða sinn
Bæði GSM- og
gervihnattasími
ERICSSON, fjarskiptarisinn í Sví-
þjóð, hefur kynnt nýjan farsíma
sem bæði er ætlaður til símtala
gegnum GSM-símkerfi og gegnum
hið væntanlega Globalstar gervi-
hnattasímkerfi sem ná mun um
mestallan hnöttinn, og byrjað verð-
ur að gangsetja í október næstkom-
andi. Síminn ber tegundarheitið
R290, og er af fyrstu kynslóð fjöl-
virknisíma, sem nota svokallaða
CDMA-tækni sem er grunnur-
inn að arftaka GSM-kerfanna
á næstu 2-5 árum, segir í
fréttatilkynningu frá
Martel á Húsavík, sem
er uppbyggingar- og
þjónustuaðiii
Globalstar gervi-
hnattasímkerfisins á
íslandi.
Jóhann F. Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Mar-
tel, segir að síminn muni koma til
með að kosta kringum 130-140 þús-
und krónur með virðisaukaskatti á
Islandi, en þegar Globalstar-kerfið
fer af stað muni fleiri tegundir
einnig verða komnar á markað.
Þessi sími sé tæknilega fullkominn,
en ódýrari gerðir tvívirkra síma
muni kosta kringum 100 þúsund
krónur.
Jóhann segist búast við að not-
endur á hafi úti verði fyrirferðar-
mestu notendur þjónustunnar hér-
lendis, en einnig verði það þeir sem
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
öðumv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Ericsson R290
GSM- og gervi-
hnattasími.
hingað til
hafa
þurft, ör-
yggis
vegna, að
vera í sam-
bandi utan al-
faraleiða með
talstöðvum, NMT-
símum eða dýrum
gervihnattabúnaði á
borð við Inmarsat.
„Þetta kemur einnig sem
þjónustuviðbót fyrir GSM-
______ notendur, en allir þekkja
hverjar eru takmarkanir
GSM-kerfisins,“ segir Jóhann.
Að sögn Jóhanns mun gjaldskrá
verða með þeim hætti að þegar
hringt er úr Globalstar-síma í síma í
almenna kerfinu muni mínútan
kosta kringum 140 krónur. Verðið
milli tveggja Globalstar-síma verð-
ur hins vegar talsvert lægra.
„Farsímabyitingin hefur ekki náð
almennilega út á sjó. Nánast allir
sem vettlingi geta valdið í landi
ganga með GSM-síma í vasanum,
meðan þeir sem eru í mestri þörf
fyrir samskipti hafa verið sam-
bandslausir," segir Jóhann. „Byrjað
verður að opna fyrir almenna notk-
un kerfisins í október, svæði fyrir
svæði. Það verður ekki opnað fyrir
allan heiminn með því að ýta á einn
hnapp. Við búumst við að Globalst-
ar-símkerfið verði tekið í notkun
hér á Islandi í byrjun desember,"
segir Jóhann F. Kristjánsson.
I fréttatilkynningunni kemur
fram að kostnaður við að byggja
upp fullkomið GSM-kerfi í löndum á
borð við Brasilíu, Ástralíu, Rúss-
land eða Kína yrði óyfirstíganlegur,
en með uppsetningu Globalstar-
kerfisins verði komið á GSM-sam-
band við öll þessi lönd á einu augna-
bliki í lok þessa árs.
100 milljónir veittar
í styrki frá upphafí
Morgunblaöiö/Jim Smart
ÚTHLUTAÐ var úr Pokasjóði
verslunarinnar í fjórða sinn í gær.
Af þeim ríflega 100 umsóknum sem
bárust voru 27 verkefni einstak-
linga og fyrirtækja styrkt með 30
milljónum króna samtals. Með
þessu hefur verið úthlutað 100 millj-
ónum króna úr sjóðnum og var
áfanginn markaður með því að
skreyta grenitré á Miklatúni með
pokum frá verslunum og fyrirtækj-
um sem aðild eiga að sjóðnum.
Hæsta styrknum var úthlutað til
verkefnisins Hafnarskógur eða 6,5
milljónum króna. Þetta er jafnframt
hæsti styrkur sem sjóðurinn hefur
veitt. Verkefnið er samstarfsverk-
efni Pokasjóðs og bænda undir
Hafnarfjalli en undir stjóm Land-
græðslu ríkisins. Takmarkið er að
landsvæðið undir Hafnarfjalli verði
skógi vaxið frá fjöru til fjalls, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
sjóðnum.
Að sögn Bjarna Finnssonar,
stjómarformanns Pokasjóðs, er
stefna sjóðsins að vera með eitt
stórt verkefni í gangi hveiju sinni.
Þar sem uppgræðslunni á Hóla-
sandi, um þrettán þúsund hektara
eyðimörk norðan Mývatns, miðar
mjög vel þótti verkefnið undir
Hafnarfjalli mjög fysilegt, sagði
Bjami enn fremur, því búið væri að
vinna mikla undirbúningsvinnu,
kanna umhverfisþætti, gera upp-
drætti, rannsaka landið og ásig-
komulag þess.
Fjórar milljónir
til skógræktar
Skógræktarfélagi íslands var
jafnframt veittur styrkur til verk-
efnis meðal skógræktarfélaga og
var upphæðin fjórar milljónir. Þá
hlaut Húsgull einnig fjögurra millj-
óna króna styrk vegna uppgræðslu
Hólasands. Þá var tveimur milljón-
um veitt til framleiðslu kvikmyndar
um umhverfismál. Umhverfisvemd-
arsamtök Islands hlutu eina og
hálfa milljón króna til að standa að
ráðstefnum, skoðunarferðum og
rannsóknum.
Grenitréð á Miklatúni er kallað 100 milljón króna pokatré í fréttatilkynn-
ingu frá Pokasjóði. Frá vinstri: Eggert Jóhannesson, forstöðumaður
Husls, Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, Óskar
Magnússon, Bjarni Finnsson og Sigurður Á. Sigurðsson, allir þrír í stjórn
Pokasjóðs, Gísli Jónsson, bóndi á Nýhöfn undir Hafnarfjalli, Jónatan
Garðarsson, formaður Umhverfis- og útivistarfélags Hafnarfjarðar, og
Bjöm Jóhannsson, framkvæmdastjóri Pokasjóðs.
Einnig hlaut Husl, verndaður
vinnustaður á Selfossi, einnar millj-
ónar króna styrk til endurvinnslu á
umbúðapappír til nota við upp-
græðslu og jarðvegsbætur.
Hálfri milljón króna var veitt til
Umhverfis- og útivistarfélags Hafn-
arfjarðar til uppbyggingar útivist-
arsvæðis í Hraunum.
Pokasjóður verslunarinnar var
stofnaður 1995. Ríflega 1/3 af and-
virði plastpoka, kr. 3,50, rennur til
Pokasjóðs. Pokarnir era seldir í um
60% verslana, eða 160 verslunum.
Með blaðinu
á morgun
52 síðna ferðahandbók,
Sumarferðir ‘99,
fylgir Morgunblaðinu
sunnudaginn 4. júlí.
SKttgtutHafrifr
Morgunblaöiö/Jim Smart
Landsbankinn
greiðir 338 milljónir
í arð til ríkissjóðs
LANDSBANKI íslands hf. hef-
ur greitt hluthöfum sínum arð
að fjárhæð 400 milljónir króna
eða sem samsvarar um 6,2% af
hlutafé. Eignarhlutur ríkis-
sjóðs í bankanum nemur um
85% og nemur arðgreiðsla rík-
issjóðs því um 338 milljónum
króna.
Arðgreiðslan til ríkissjóðs
var lögð inn á Kjörbók í Lands-
bankanum sem Geir Haarde,
fjármálaráðherra, veitti viðtöku
í gær frá Halldóri J. Kristjáns-
syni, bankasfjóra Landsbank-
ans. Arður til annarra hluthafa
hefur einnig verið lagður inn á
innlánsreikninga í bankanum.
fg'mbl.is
Dilbert á Netinu