Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 21
ÚR VERINU
Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fískvinnslustöðva, um afkomu í landvinnslu
Engin ákveðin lína
AFKOMA í landvinnslu er ákaf-
lega misjöfn, að sögn Amars Sig-
urmundssonar, formanns Samtaka
fiskvinnslustöðva. „Nokkur íyrir-
tæki, Útgerðarfélag Akureyringa
og fleiri, eru með tiltölulega tryggt
hráefni, kaupa lítið á mörkuðum,
eru með samfellda vinnslu í fryst-
ingu og hafa verið að ná þokkaleg-
um árangri,“ segir hann. „Hins
vegar er mjög erfítt hjá fyrirtækj-
um sem þurfa að byggja mikið á
mörkuðum og búa við hráefnis-
leysi, að ég tali ekki um erfíða
skuldastöðu á sama tíma. Því er af-
koman í frystingu í landi mjög mis-
jöfn.
Gott í saltfiskinum
Arnar segir að öðru máli gegni í
saltfiskvinnslu. Þar hafi margir
hverjir verið að gera það ágætt
vegna þess að saman hafi farið
hátt hráefnisverð og mjög hátt af-
urðaverð. „Varðandi frystingu í
landi þá hækkaði afurðaverðið og
hráefnisverðið og því þurfum við
hvorki að kvarta yfír verði afurða í
frystingu í landi né saltfiski. Það
hefur verið gott í nokkurn tíma en
afkoman hefur verið mjög mis-
jöfn.“
Afkoma háð
tveimur atriðum
Staða sjávarútvegsmála á Vest-
fjörðum hefur verið í brennidepli
að undanförnu. „Þar er það að ger-
ast að stærsta fyrirtækið hefur
nær eingöngu byggt á innfluttu
hráefni, Rússafiski. Hann hækkaði
mjög í fyrra vegna þess að dollar-
inn styrktist og skortur var á hrá-
efni. Það er sjálfsagt ein aðalá-
stæðan fyrir því hvernig komið er
fyrir Rauðsíðufyrirtækjunum. Á
Isafirði hefur ákveðið hráefnisleysi
hrjáð sum fyrirtækin en Básafeli
ætlar að snúa sér öðruvísi að mál-
unum, draga saman vinnslu á sjó,
selja eignir og reyna að efla vinnsl-
una í landi. Það er frekar ný nálg-
un.“
Að sögn Arnars er sífellt erfið-
ara að reikna út heildarafkomuna
þó það sé hægt þegar allar upplýs-
ingar liggi fyrir. „Þeir sem eru í
þessum rekstri fylgjast mjög vel
með öllu, til dæmis hvert er hlutfall
launakostnaðar, hlutfall hráefnis
og svo framvegis en það er engin
ein lína eftir að fiskverð varð
frjálst. Afkoman er ákaflega mis-
jöfn og háð tveimur atriðum, hrá-
efnisaðstreymi og að hráefnið sé
ekki of dýrt og í öðru lagi skulda-
stöðunni, hvaða tökum menn hafa
verið að ná á tækninni og ná niður
kostnaðarliðum. Þeir sem hafa
stöðugt hráefni og ekki of dýrt,
hafa náð tökum á vinnulaunaliðn-
um, hafa aukið afköst með bættri
vinnutímanýtingu og skulda ekki of
mikið kvarta ekki.“
Misjöfn afkoma
Arnar segir að hins vegar séu
sérvandamál eins og í rækjunni.
„Þar hefur verið mikill aflasam-
dráttur sem hefur þýtt að fjölmarg-
ar rækjuverksmiðjur hafa dregið
verulega úr starfsemi sinni og jafn-
vel orðið að loka. Vonandi er það
tímabundið ástand en engu að síður
er þetta staðan. Góðæri hefur verið
í mjöli og lýsi til nokkuð langs tíma
en í íyrrasumar og sérstaklega
fyrrahaust kom afturkippur með
lækkandi afurðaverði sem þýddi
lækkun á hráefnisverði. Því hefur
afkoman ekki verið eins góð og hún
var en menn hafa reynt að mæta
þessu og vonandi er botninum náð.
Með öðrum orðum er afkoman mis-
jöfn eftir vinnslugreinum og mjög
misjöfn eftir fyrirtækjum."
Samræmd sumarleyfí
Algengt er að frystihús loki um
lengri eða skemmri tíma á sumrin.
„Hætt er að tala um sumarlokanir
heldur er rætt um samræmd sum-
arleyfi hjá starfsfólki," segir Arn-
ar. „Yfirleitt er þetta í 11. eða 12.
mánuði kvótaársins þegar sáralítill
kvóti er eftir og með nýjum vinnu-
tímatilskipunum þurfa allir að taka
fjögurra vikna frí. Því lítur fólk á
það sem eðlilegan hluta af tilver-
unni að gert sé ráð fyrir því að fyr-
irtæki dragi verulega úr starfsemi
sinni og hafi lokað í þrjár til fjórar
vikur á ári, helst á tímabilinu frá
15. júlí til 15. ágúst. Þetta er hluti
af breyttum tíðaranda og veldur
ekki töluverðum titringi í sveitarfé-
lögunum eins og áður. Nú skilja
þetta allir öðruvísi og þetta verður
að vera svona en óneitanlega hefur
það áhrif á sumaratvinnu hjá ung-
lingum sem hafa unnið mjög
skamman tíma.“
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
STRÁKARNIR gáfu sér varla tíma til að líta upp frá uppskipuninni.
Leikmenn KVA í uppskipun
MIKILL kostnaður fylgir rekstri
knattspymudeilda og félög vinna
að tekjuöflun með ýmsum hætti.
Um liðna helgi kom erlent skip
með 10.000 síldartunnur frá Sví-
þjóð til Eskifjarðar á vegum Sam-
herja. Meistaraflokkur KVA tók að
sér uppskipunina og eftir að hafa
unnið Þrótt 1:0 í 1. deildinni á laug-
ardag voru um fimmtán strákar að
við höfnina daginn eftir frá klukk-
an átta um morguninn til klukkan
tíu um kvöldið. Þar með sáu þeir til
þess að tunnurnar verða til taks
þegar söltun hefst í haust og fengu
jafnframt óhefðbundna æf-
ingu.Ekki er annað að sjá en hún
hafi komið sér vel því í fyrrakvöld
tók KVA á móti Skallagrími frá
Borgarnesi, vann 3:2 og stendur
vel að vígi í deildinni.
Búmenn sem
kvarta ekki
Landvinnslan hjá
IJA hefur gengið
mjög vel
LANDVINNSLAN hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf. hefur
gengið mjög vel á árinu og bet-
ur en undanfarin ár. „Það er
margt sem kemur til,“ sagði
Guðbrandur Sigurðsson, for-
stjóri ÚA, við Morgunblaðið
spurður um ástæður velgengn-
innar. „Ytri aðstæður hafa
batnað verulega. Verð á þorski
og karfa hækkaði mikið á sið-
asta ári, þd verð á karfaflökum
hafi að vísu lækkað aftur á
þessu ári, og hagræðingaað-
gerðir, sem hafa átt sér stað
víða, eiga eftir að skila sér vel í
mikiili framleiðniaukningu,
auknum afköstum og nýtingu.
Skipin eru keyrð af meira afli
með meiri kvóta á hvert skip en
áður var. Þetta er því sitt lítið
af hverju.“
ÚA er með þrjá íshústogara
og tvo frystitogara og fyrir-
tækið hefur keypt minna á
mörkuðum í ár en áður. „Verð-
ið á hráefninu skiptir lang-
mestu máli í landvinnslunni og
það að vera með skynsama
samninga við sjómennina, en
við höfum náð mjög góðu sam-
starfi við Verkalýðsfélagið Ein-
ingu á Akureyri sem hefur
hjálpað," sagði Guðbrandur.
„Við kaupum töluvert á mörk-
uðum en það hefur minnkað
verulega á þessu ári frá síðasta
ári einfaldlega vegna þess að
verðið hefur hækkað mikið auk
þess sem bein viðskipti hafa
verið minni í ár en í fyrra
vegna þess að reglunum var
breytt."
Guðbrandur sagði að góð af-
koma í landvinnslu ÚA væri
ekki einsdæmi. Hann nefndi í
því sambandi landvinnsluein-
inguna hjá Snæfelli hf. á Dal-
vík, Fiskiðjuna Skagfirðing hf.,
Fisk, á Sauðárkróki og salfisk-
vinnslu almennt. „ÚA er með
mjög sterka stöðu í afiaheim-
ildum, tæp 19 þúsund
þorskígildistonn, sem tryggir
okkur jafnt flæði af hráefni í
vinnslu. „Það er ekki búmaður,
sem ekki kann að berja sér“
segir máltækið, en við kvörtum
ekki.“
Enur 'jy BIIiiaiiiiurSSs3ía^©,í^W