Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 25

Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 25 Nýkjörinn forsætisráðherra ísraels ósáttur við orð Clintons Ehud Barak og Arafat ræðast við Jerúsalem. AP. NÝKJÖRINN forsætisráðherra ísraels, Ehud Barak, átti í gær símafund með forseta heimastjórnar Palestínumanna, Yasser Arafat, og var það í fyrsta sinn sem leiðtogam- ir ræddust við síðan Barak náði kjöri í kosningunum fyrir einum og hálfum mánuði. Barak er lentur upp á kant við Bandaríkjastjóm vegna orða sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét falla um palestínska flóttamenn. Tók Barak óstinnt upp það sem hann skildi sem tillögu CUntons um að palestínskir flóttamenn ættu að fá að snúa aftur til heimila sinna, sem þeir yfirgáfu þegar ísraelsríki var stofnað 1948. Clinton hafði sagt á fréttamanna- fundi í Washington, þar sem Hosni Mubarak Egyptalandsforseti var í heimsókn, að palestínsku flóttafólki ætti að vera fijálst að búa „hvar sem það vill“. Barak lítur á þetta sem stuðningsyfirlýsingu við kröfu Pa- lestínumanna um að endurheimta lönd sín í Israel, og sagði í yfirlýs- ingu frá honum að „nýkjörinn for- sætisráðherra [sé] ekki sáttur við“ þessi orð forsetans. Talsmaður ísraelska sendiráðsins í Washington sagði seinna að banda- rískir ráðamenn hefðu fullvissað sig um að það væri ennþá stefna þeirra að deilan um palestínsku flótta- mennina skuli leyst með samninga- viðræðum ísraela og Palestínu- manna. í fótspor Rabins Barak tjáði Arafat í gær að hann myndi feta í fótspor fyrrverandi for- sætisráðherra Israels, Yitzhaks Ra- bins, og stuðla að því að leggja niður deilur Israela og Palestínumanna, að því er sagði í yfirlýsingu frá skrif- stofu Baraks. Leiðtogamir urðu ásáttir um að hittast fljótlega eftir að ríkisstjóm Baraks tekur við í næstu viku. Aðstoðarmaður Arafats tjáði AP að þeir hefðu ákveðið „að halda frið- ammleitunum áfram“. Arafat hafði gagnrýnt Barak fyrir að hafa ekki haft samband við sig frá því hann bar sigurorð af Benjamin Netanya- hu, fráfarandi forsætisráðherra, í kosningunum 17. maí. Aðstoðar- menn Baraks sögðu að það væri óviðeigandi að nýkjörinn forsætis- ráðherra héldi fundi um stefnu- mörkun áður en hann tæki formlega við embætti. I samtalinu í gær fullvissaði Barak Arafat um að hann myndi ganga til friðarviðræðna við Palest- ínumenn um leið og Sýrlendinga og Líbani, en Palestínumenn munu hafa óttast að Barak héldi áfram að ræða við Sýrlendinga, en skildi Pa- lestínumenn eftir. íþróttir á Netinu úi> mbl.is /\LL.TyKf= eiTTH\SA£> ASÝT7 Vilja sumartíma KLUKKUR á útsölu í Tókýó í Japan í gær. Hópur þarlendra þingmanna reynir nú að fá sam- þykkt frumvarp sem myndi leiða i lög sumarti'ma í landi hinnar rísandi sólar. Segja þingmennirn- ir þetta leið til að spara orku, en margir Japanar hafa áhyggjur af því, að ef klukkunni verði flýtt á vorin muni það leiða til lengri vinnudags fremur en aukinna frí- stunda. Kóreurfkin slíta viðræðum Peking, Seoul. Reuters. FULLTRÚAR Suður-Kóreu slitu í gær viðræðum við sendinefnd Norð- ur-Kóreu sem fram hafa farið í Pek- ing undanfarna daga. Sökuðu þeir N-Kóreumenn um að hafa brotið gefin loforð um viðræður um mál- efni fjölskyldna sem sundruðust í Kóreustríðinu 1953. Þá hefur rílds- stjórn S-Kóreu ákveðið að hætta við landbúnaðaraðstoð sína við N-Kóreu uns viðræðum verði fram haldið. Samdægurs lýstu n-kóresk hermála- yfirvöld því yfir að átök blöstu við ef s-kóreski flotinn hætti ekki að sigla inn fyrir lögsögu N-Kóreu í Gula- hafL „Á meðan N-Kórea heldur við- horfum sínum til streitu er tilgangs- laust að halda viðræðum áfram, þannig að sú ákvörðun var tekin að halda heim á leið,“ sagði Yang Yong- sik, yfirmaður s-kóresku sendi- nefndarinar, í Peking í gær. Sagði hann við blaðamenn að S-Kóreu- menn hefðu betra við tímann að gera en að funda eingöngu fundanna vegna. Park Yong-soo, yfirmaður n- kóresku sendinefndarinnar, hafði lýst því yfir á fimmtudag að hann myndi fara fram á það við S-Kóreu- menn að þeir héldu viðræðum áfram, en talið er að ekkert hafi orð- ið af því. Meðal þeirra mála sem eftir standa eru mál fjölskyldna sem sundruðust er landamæri voru dreg- in upp í lok stríðsins árið 1953. U.þ.b. 10 milljónir manns urðu við- skila í átökum stríðandi aðila og búa nú beggja vegna markalínunnar, er dregin var um Kóreuskagann miðj- an. Hafa s-kóresk stjórnvöld lengi leitað leiða til að fá stjórnvöld í Pyongyang til að fallast á samein- ingu fjölskyldnanna, sérstaklega í Ijósi þess að flestir fjölskyldumeð- limir eru nú orðnir aldurhnignir. Yang sagði í gær að frestun fundahaldanna merkti ekki að þeim væri lokið. Reynt yrði að beita áhrif- um til að halda þeim senn áfram í þorpinu Panmunjom, á landamær- um ríkjanna. N-Kóreumenn hóta grönnum sínum N-kóresk hermálayfirvöld vöruðu S-Kóreu við því í gær að aukin átök kynnu að vera yfirvofandi á næst- unni ef herskip s-kóreska flotans hættu ekki að sigla inn fyrir lögsögu N-Kóreu, sem hefur verið bitbein ríkjanna allt síðan á dögum kalda stríðsins. Lýsti Ri Chan Bok, flota- loringi í n-kóreska flotanum, þessu yfir á fundi með yfirmanni gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna á Kóreuskaga. Hinn 15. júní sl. sökkti s-kóreskt herskip n-kóreskri freigátu eftir skammvinna sjóorrustu í Gulahafinu og lýstu N-Kóreumenn því yfir í kjölfarið að þeir hefðu sökkt tíu s- kóreskum skipum. Telja n-kóresk stjórnvöld að grannar þein-a hafi farið alls 63 sinnum inn fyrir lög- sögu sína á þeim rúmu tveimur vik- um sem liðnar eru frá því atburður- inp ^tti.sér stað. . í HÁSKÓLABÍÓI . POLYGRAM FILMÍD ENTFRTAINMENT WOBKINE TITII WOODY BiLLY „„ PATRICIA HARRELSON CRUDUP 00 ARQUETTE HLAUT SILFURBJÖRNINN FYRIR BESTU LEIKSTjÓRN Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI í BERLlN STEPHEN FREARS (THE GRIFTERS OG DANCEROUS UASONS) -------^the^------- HHLO COUNTRY HÁSLÉTTAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.