Morgunblaðið - 03.07.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 2 7
Minnisleysi
tengt E-
vítamínskorti
VÍSINDAMENN hafa dregið
fram í dagsljósið marktæka
fylgni á milii E-vítamínmagns í
blóði og minnisleysis hjá eldri
borgurum. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að eldra fólk sem
sleppti iðulega máltíðum eða
neytti matar með óreglulegum
hætti átti frekar við minnsleysi
að stríða en þeir sem snæddu á
fyrirfram ákveðnum tímum.
Frá þessari rannsókn er
greint í nýjasta hefti American
Jouvnal of Epidemiology en hún
fór fram við Rannsóknarmið-
stöð í öldrunarfræðum sem
starfrækt er við Indiana-há-
skóla í Bandaríkjunum. Fyrir
hópnum fór Dr. Anthony J.
Perkins.
Rannsóknin miðaði að því að
leiða í ljós fylgni vítamínskorts
og minnisleysis hjá eldra fólki
og voru tilraunirnar gerðar
með A, C og E-vítamín auk
fleiri efna.
AIls tóku 4.809 manns þátt í
rannsókninni og voru þeir allir
komnir yfir sextugt en fylgst
var með fólkinu í sex ár. Minni
viðkomandi var kannað með
tveimur prófum, auk þess sem
blóðprufur voru teknar og
„bakgrunnur“ fólksins var
kannaður.
Alls áttu um 7% þeirra sem
þátt tóku í tilrauninni við alvar-
legt minnisleysi að stríða. Þetta
fólk átti m.a. í erfiðleikum með
að halda utan um fjármál sín og
að laga mat. í ljós kom að
greinileg fylgni var á milli E-
vítamínmagns í blóði og minnis-
leysis. „Aukið magn E-vítamíns
reyndist tengt betra minni í
þessum hópi,“ segja höfundar
skýrslunnar. Ekki kom fram
sams konar tenging minnisleys-
ELDRA fólki virðist hollt að gleyma ekki E-vítamíninu.
Reuters
is og magns annarra vítamína í
blóði. Að auki sýndist E-vítamín
úr fæðu frekar tengjast góðu
minni en slíkt vítamín í tilbúnu
formi.
Flestar þær rannsóknir sem
gerðar hafa verið á þessu sviði
hafa leitt í ljós að vítamínskort-
ur tengist ekki minnisleysi.
Höfundar greinarinnar benda
hins vegar á að þær rannsóknir
hafí gjarnan verið gerðar á af-
mörkuðum hópum, oft vel
menntuðu, hvítu millistéttar-
fólki. Könnun þeirra hafi hins
vegar tekið til fólks í ólíkum
samfélagshópum og af mismun-
andi kynþáttum.
t
Gangráður
hlaðinn með
leysigeilsa
The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN í Japan
hafa hannað nýjan hjarta-
gangráð, sem hægt er að
endurhlaða án skurðaðgerð-
ar með því að beita sömu
leysitækni og geislaspilarar
byggjast á.
Gangráðarnir sem nú eru
notaðir endast aðeins í flög-
ur til tíu ár og þeir sem nota
þá þurfa að gangast undir
minniháttar aðgerð til að
hægt sé að skipta um raf-
hlöður. Nú hafa hins vegar
vísindamenn við verkfræði-
skóla Osaka-háskóla hannað
þráðlausan gangráð, sem
þeir segja endast í nánast
ótakmarkaðan túna.
Osamu Nakamura, pró-
fessor í nytjaeðlisfræði,
sagði endurhleðslu nýja tæk-
isins byggjast á geislun í
gegnum líkamann. „Geisl-
inn, sem er næstum innrauð-
ur, kemst auðveldlega í
gegnum líkamann án þess að
hafa áhrif á húðina eða aðra
vefi.“
Enn á frumstigi
Tækið er enn á algjöru
frumstigi lflrt og sést á því að
eftir að því hefúr verið kom-
ið fyrir í sjúklingnum geng-
ur það í sólarhríng eftir að
hafa verið meðhöndlað með
leysigeislum í tvær klukku-
stundir. Vísindamennirnir
vinna nú að því að stytta
endurhleðslutúnann.
Nýja tækið er minna en
venjuleg ir gangráðar, er
fjögurra sm langt, þriggja
sm breitt og 0,5 sm þykkt,
og búið tveggja fersenti-
metra sólrafhlöðu.
Talsmaður Bresku
hjartaverndarstofniHiarinn-
ar (BHF) hefur fagnað
þessari nýju uppfínningu.
„Ef þeir sanna að þetta
tæki sé hættulaust og ár-
angursríkt þá gæti það
hugsanlega reynst mjög
gagnlegt fyrir marga sjúk-
linga.“
ENN fjölgar visbendingum um skaðsemi reykinga á meðgöngu.
Auknar líkur á
hegðunarvanda
Bylting í
hj artalækningum?
Reuters.
NÝ tækni kann að gera læknum
fært að framkvæma ákveðnar teg-
undir hjartaaðgerða án þess að
opna brjóst sjúklingsins. Hér er um
að ræða nýja tegund kanna sem
sendir frá sér hátíðnihljóðbylgjur er
aftur framkalla myndir af hjarta og
æðum.
Tæknin nýja er enn á frumstigi
en það var Dr. James B. Seward
sem starfar við Mayo-sjúkrahúsið í
Minnesota-ríki í Bandaríkjunum
sem gerði grein fyrir henni á fundi
hjartalækna í Washington D.C. á
dögunum.
Að sögn James B. Seward er
unnt að stýra kannanum um æðar
sjúklingsins og afla um leið upplýs-
inga um starfsemi hjarta viðkom-
andi með því m.a. að mæla þrýsting
í æðum og blóðstreymi.
Tækið nýja gerir læknum einnig
kleift að framkvæma ákveðnar
skurðaðgerðir m.a. að skipta um
hjartalokur auk þess sem unnt er
að gera aðgerðir á ófæddum böm-
um sem greinst hafa með hjarta-
galla. „Við getum nú framkvæmt
Reuters
NÝ tækni ryður sér nú til rúms
í hjartalækningum.
aðgerðir inni í sjálfu hjartanu án
þess að gera opna hjartaaðgerð á
sjúklingnum,“ segir James B.
Seward.
Að hans sögn vísar þessi nýja
tækni til „næstu kynslóðar" búnað-
ar er gerir kleift að framkvæma að-
gerðir á hjarta og æðum með könn-
um sem þræddir eru inn í æðakerfi
sjúklingsins. Er almennt talið að sú
tækni geti í framtíðinni haft í för
með sér verulegan sparnað í heil-
brigðiskerfinu þar sem legudögum
vegna hjartaaðgerða muni fækka
stórlega.
Alnæmisfaraldur
í Moskvu
Medical 'Tribune News Service.
NIÐURSTÖÐUR bandarískrar
rannsóknar benda til þess að tengsl
kunni að vera á milli reykinga móð-
ur á meðgöngu og tiltekinna hegð-
unarvandamála hjá börnum þeirra.
Vitað hefur verið um tengsl á
milli reykinga móður og fæðingar-
þyngdar barna og aukinnar hættu á
fósturláti, en hingað til hafa vís-
bendingar um tengsl við geðrænan
vanda bamanna verið óljósar. I
rannsókninni tóku þátt 50 manns
sem áttu móður er hafði reykt
meira en tíu sígarettur á dag á með-
göngu, og 97 manns sem áttu móður
er hafði ekki reykt á meðgöngunni.
Fjórfaldar lfkur á
hegðunarvanda
I Ijós kom, að sonum mæðra er
reyktu var fjórum sinnum hættara
við hegðunarvanda, s.s. mikilli
óhlýðni, áreitni og andfélagslegri
framkomu. Dætrum mæðra er
reyktu á meðgöngu var fimm sinn-
um hættara, en dætrum mæðra er
ekki reyktu, á að verða háðar fíkni-
efnum á táningsárum.
Niðurstöðumar eru birtar í júlí-
hefti The Joumal of the American
Academy of Child Adolescent
Psychiatiy. Einn höfunda rannsókn-
arinnar, Myma M. Weissmann, pró-
fessor í faraldursfræði og geðlæknis-
fræði við Columbiaháskóla í New
York, segir þessar niðurstöður í sam-
ræmi við áður þekktar vísbendingar,
og séu því mjög athyglisverðar.
Við rannsóknina var tekið tillit til
annarra áhættuþátta, s.s. skilnaðar
foreldra og slæmra tengsla á milli
foreldra og bama, og hvort foreldr-
amir hefðu átt við geðræn vanda-
mál að stríða. __________
Reuters.
ALNÆMISTILFELLUM hefur
fjölgað svo stórlega í Moskvu á þessu
ári að líkja má útbreiðslunni við far-
aldur. Tilfellum fjölgar raunar ört um
allt Rússland en stjórnvöld þar eystra
segja erfitt að bregðast við sökum
fjárskorts.
Talsmaður Alnæmisvamastofnun-
ar Rússlands skýrði frá því að fjöldi
nýrra alnæmistilfella í Moskvu og ná-
grenni hefði tólffaldast á fyrstu sex
mánuðum þessa árs. „Hér er um að
ræða nýjan faraldur sem tók fyrst að
láta á sér kræla fyrir sex til átta mán-
uðum,“ sagði talsmaðurinn Dr. Vadím
Pokrovskíj. Kom fram í máli hans að
meginskýringin á þessari óheillaþró-
un væri sú að alnæmissýktum eitur-
lyfjaneytendum hefði fjölgað mjög í
höfuðborg Rússlands.
„Mjög takmörkuðum fjármunum
er varið til alnæmisvarna. Þróunin
verður sú að smitið verður ekki bund-
ið við eiturlyfjaneytendur og veúan
mun taka að herja á gagnkynhneigt
fólk,“ sagði Poki-ovskíj. „Yfirvöldum
ber að bregðast við strax og verja
þeim fjármunum sem nauðsynlegir
eru til að unnt reynist að berjast gegn
þessum faraldri," bætti hann við.
Skráð alnæmistilfelli í Rússlandi
eru alls 15,189 en í máli talsmannsins
kom fram að sú tala gæfí engan veg-
inn rétta mynd af ástandinu. Kvaðst
hann ætla að tilfellin væru tíu sinnum
fleiri, hið minnsta. Sagðist hann telja
að alnæmistilfellin yrðu um milljón að
tölu innan fárra ára, yrði ekki brugð-
ist við þegar í stað.
Þróunin í Rússlandi þykir sérlega
skuggaleg í ljósi þess að alnæmistil-
fellum hefur víða farið fækkandi á
síðustu árum, ekki síst í Norður-Am-
eríku og Evrópu.