Morgunblaðið - 03.07.1999, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Lífrænt og vistvænt er ekki það sama
Strangari kröfur í
lífrænni framleiðslu
í auknum mæli stendur neytendum nú til
boða að kaupa matvörur sem eru vistvænar
á vistvænt og lífrænt ræktuðum kartöflum?
Margir vita ekki hvað skilur á milli
nema verðið en vistvænar og lífræn-
ar vörur eru frá 10-20% dýrari en
vörur sem framleiddar eru með hefð-
bundnum hætti. Ólafur Dýrmunds-
son landsráðunautur í lífrænum bú-
skap og landnýtingu segir að munur-
inn á lífrænni og vistvænni fram-
leiðslu sé töluverður. „Það er grund-
vallarmunur á lífrænni og vistvænni
framleiðslu. Hann felst í því að í líf-
Þónmn býður
ímat
Lambalundir á
grænum nótum
Sighvatur og Þórunn slógu upp
veislu á dögunum og ekki var annað
til umræðu en að bjóða upp á lamba-
kjöt. Þórunn lumaði á uppskrift að
dýrindis lambalundum bomum frairi
með úrvab af grænmeti sem féll vel
í kramið hjá gestunum.
ÞórvnnogSighvatur
Snöggsteikið lundirnar í heilri otiu, bragðbœtið með salti og
pipar. Efiir eina mínútu er söxuðu og gróft skomu grœnmeti
bœtt á pönnuna og steikt áfram C tvœr mínúlur. Bœtið síðan
sojasósu og nautakraftinum á pönnuna ásamt heilum sénrí-
tómötum og kórianderlaufum eða kryddi lAtið suðuna komn
upp og þá er rétturinn til.
Hráefni Uppskriftin er fyrir 8 manns
1600 gr lambalundir
maiarolfa
salt og pipar
400 g spínat
1 stk. blaðlaukur
400 g spergilkál
200 g sérrí tómatar
2 dl sæt, sojasósa
6 dl nautakraftur (6 Honig súputeningar + vatn)
2 msk. kóríander lauf söxuð cða kórfander krydd
Meðlæti:
bökunarkartafla _____________;
ólífubrauð ____
Rauðvín: Torres Gran Coronas
Matargestimir: f.v. Þórunn, Guðmundur, Þórður, Guðríður, Sighvatur,
Birgir, Freyja, Berglind.
ÍSLENSKIR
SAUÐFJARBÆNDUR
grænmetis- og gróðurhúsafram-
leiðslu. Þá er vistvæn framleiðsla að
fara af stað í fiskeldi. „
eða lífrænar. En hver er til dæmis munurinn
7-8% bænda með
vistvæna framleiðslu
rænum búskap er tilbúinn áburður
ekki leyfður og ekki heldur hefð;
bundin notkun lyfja og varnarefna. í
vistvænum búskap er leyfð hófleg
notkun tilbúins áburðar og dregið úr
notkun lyfja- og varnarefna.“
Ólafur segir að vistvæn fram-
leiðsla sé fyrst og fremst í kinda-
kjötsframleiðslu en hún er einnig
farin að teygja sig í eggjafram-
leiðslu, graskögglaframleiðslu og í
Ólafur segir að alls séu nokkuð á
þriðja hundrað bændur búnir að fá
vistvæna viðurkenningu, sem er á
bilinu 7-8% íslenskra bænda, en yfír
4.000 bændur eru á landinu. „Vist-
væn framleiðsla fer vaxandi en það
er ekki nema ár síðan við fengum
reglugerð um vistvæna landbúnaðar-
framleiðslu. Ólafur segir að reglu-
gerðin sé aðlöguð íslenskum aðstæð-
um og hún standist fyllilega kröfurn-
ar sem séu gerðar erlendis til vist-
vænna búskaparhátta.
„Ég tel að meirihluti íslenskra
bænda gæti farið yfir í vistvæna
framleiðslu með lítilli fyrirhöfn. Við
erum með ómengaðan jarðveg og
eigum gott vatn. Verksmiðjubú eiga
á hinn bóginn litla möguleika á vist-
vænni framleiðslu. Þess má geta að
Búnaðarsamband Eyjafjarðar stefn-
ir að því að sem flest bú þar fái vist-
væna viðurkenningu og Landssam-
tök sauðfjárbænda hafa verið með
yfírlýsingar í þessa veru.“
Vistvænn
landbúnaður
Vistvæn landbúnaðarframleiðsla
skal samræmast góðum búskap-
arháttum og markmiðum sjálf-
bærrar þróunar í landbúnaði.
Allri lyfja- og efnanotkun skal
stillt í hóf. Notkun tilbúins
áburðar er leyfð, þó með tak-
mörkunum. Allt búfé skal vera
einstaklingsmerkt svo ávallt
megi rekja feril afurða
framleiðenda. í vistvænni
framleiðslu er notkun
hormóna og vaxtar-
hvetjandi efna bönnuð
líkt og gildir um fram-
leiðslu annarra land-
búnaðarvara hér á landi.
Lífrænn eða vistvænn búskapur
LÍFRÆNN VISTVÆNN
Mjög miklar kröfurtil umhverfis- og búfjárverndar. All miklar kröfur til umhverfis- og búfjárverndar.
Tilbúinn áburður ekki leyfður. Hófleg notkun tilbúins áburðar leyfð.
Ekki hefðbundin notkun lyfja og varnarefna. Dregið úr notkun lyfja og varnarefna.
Góð meðferð búfjár. ' , Góð meðferð búfjár.
Góð beitilönd Góð beitilönd. V J líi—iri
Einstaklingsmerking og skýrsluhald búfjár. 4) * l) Einstaklingsmerking og skýrsluhald búfjár.
Áhersla á hreinleika og hollustu afurða. Áhersla á hreinleika og hollustu afurða.
Gæðaeftirlit, vottun og vömmerki í umsjá vottunarstofa. Hæsta afurðaverð/ v Gæðaeftirlit, vottun og vörumerki í umsjá p búnaðarsambanda. l/' . /:r;v Næst hæsta afurðaverð.
Framleiðsluhættir byggðir á alþjóðlegum reglum. Ýmsar hliðstæður erlendis.
Engin notkun á erfðabreyttum lífverum.
Hvort tveggja er umhverfistengd gæðastýring.
Gæði íslensks landbúnaðar
Ólafur segir að ef bændur fái þessa
viðurkenningu á vöruna skapi það
henni sterkari markaðsstöðu á innan-
landsmarkaði og jafnvel í útflutningi.
„Þessi vandamál sem hafa komið upp
erlendis varðandi landbúnað á seinni
árum eins og kúariða, slæmar matar-
eitranir og nú síðast díoxínfárið hafa
eflt trú okkar á nauðsyn þess að fá
staðfestingu á gæðum íslenskra land-
búnaðarvara. Ailar rannsóknir á
jarðvegi, gróðri, búfjárafurðum og
grænmeti hérlendis sýna svo ekki
verður um villst að við erum með lítið
af mengunarefnum á borð við þung-
málma og eigum hreint land.“
Bflar eru ekki vistvænir
Morgunblaðið/RAX
f LÍFRÆNUM búskap er lögð áhersla á að viðhalda erfðafjölbreytni
og þar með gömlum búfjárkynjum og tegundum og stofnum jurta.
- Nú standa ýmsar vistvænar vörur
aðrar en matvörur til boða. Hvaða
almennu reglur gilda um vistvæna
framleiðslu?
„Vandinn er sá að mér vitanlega
eru engar reglur til um vistvænar af-
urðir nema í landbúnaði. Vistvænir
bílar hafa verið auglýstir og jafnvel
hefur prentsmiðja auglýst sig vist-
væna. Þetta hefur snúist upp í vit-
leysu því bílar verða ekki vistvænir
nema á þeim verði gerðar grundvall-
arbreytingar varðandi orkugjafa og
fleira. Menn eru famir að hengja hatt
sinn á umhverfisvernd á vafasömum
forsendum. Vistvænt er í dag notað á
sama hátt og umhverfísvænt."
Engar erfðabreyttar lífverur
- En er lífræni búskapurinn ekki
ákjósanlegastur?
„Lífræn framleiðsla er með hrein-
ustu afurðirnar, vistvæn framleiðsla
er þar fyrir neðan. Þar eru gerðar
strangar kröfur um meðferð á búfé
og til dæmis er algjörlega bannað að
hafa hænsni í búrum. Þá er mjög
mikilvægt fyrir neytendur að vita að
erfðabreyttar lífverur koma ekki til
greina í lífrænum búskap og það
kemur skýrt fram í okkar reglum
hér á landi, sem eru byggðar á
ströngum alþjóðlegum reglum. Ef
neytendur vilja ekki vörur með
erfðabreyttu efni geta lífrænu vör-
urnar einar tryggt þeim að svo sé.“
lendis hefur vöxturinn verið mjög
hraður. Sóknarfærin telur hann að
séu einkum í lífrænum búskap.
Skortur á lífrænum áburði
fleiri
30 bændur með lífrænan búskap
Ólafur segir að alls stundi nú um
30 bændur lífræna framleiðslu hér á
landi og nokkrar afurðastöðvar eins
og mjólkurbú, sláturhús og pökkun-
arstöðvar fyrir grænmeti. „Það eru
því um 40 aðilar sem hafa fengið vott-
un á lífræna framleiðslu og vinnslu."
Lífræn framleiðsla hófst fyrst á
ræktun grænmetis og þar er hún
mest í dag. Þá er einnig hægt að fá
lífrænt dilkakjöt, nautakjöt, mjólk og
mjólkurafurðir svo og lítið magn af
eggjum. Afurðir sem framleiddar eru
úr jurtum, eins og smyrsl og olíur,
hafa einnig fengið vottun á lífræna
framleiðslu. Þá segir Ólafur að rækt-
aður sé lífrænn rabarbari, tré og
garðplöntur og votta mætti æðardún,
fjallagrös, söl og fleira. „Nýlega fékk
Þörungaverkssmiðjan á Reykhólum
lífræna vottun fyrir þörungaafurðir.
Áhugi er einnig á að fá lífræna vottun
á fiskeldi, en það er á byrjunarstigi.
Þá er ræktað lífrænt bygg á Islandi."
Ólafur segir að eftirspurn aukist
sífellt eftir lífrænum vörum og er-
- Hvers vegna eru þá ekki
komnir í lífrænan búskap?
„Það er einfaldara að skipta yfír í
vistvænan búskap og því kjósa fleiri
að stíga það skref. Þá hafa ýmis
tæknileg vandamál staðið í veginum
og síðan hefur skortur á lífrænum
áburði háð lífrænni framleiðslu.“
Ólafur segir að í nágrannalöndum
okkar séu belgjurtir notaðar, eins og
smári, en hér sé loftslagið of kalt.
Hann segir þó að yfir standi rann-
sóknir á ræktun smára hér á landi og
ýmsir bændur séu einnig að fikra sig
áfram með smáraræktun. Þá hefur
fiskimjöl og þangmjöl verið notað, en
það er dýr áburður.
- Hafa verið brögð að því að vörur
sem ekki eru lífrænar séu auglýstar
þannig?
„Já, því miður, en það er ólöglegt
að auglýsa lífræna framleiðslu nema
hún sé vottuð og merkt þannig.
Neytendur eiga endilega að láta
landbúnaðarráðuneytið vita ef þeir
verða varir við slíkar vörur í sölu.“
LÍFRÆNT ræktað græn-
meti þykir bragðgott og
það hefur að jafnaði hærra
þurrefnishlutfall en
, annað grænmeti.
Lífrænn
landbúnaður
Lífræn landbúnaðarfram-
leiðsla byggist á lífrænni
ræktun jarðvegs, notkun líf-
ræns áburðar, safnhaugagerð,
sáðskiptum og lífrænum vörn-
um í stað hefðbundinna lyfja
og eiturefna. Notkun tilbúins
áburðar er ekki leyfð. Gerðar
eru miklar kröfur tU um-
hverfisvemdar, búfjár
og hreinleika af-
urða. Allt búfé á að
vera einstaklings-
merkt þannig að
rekja megi feril af-
urða til framleiðenda.