Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 32

Morgunblaðið - 03.07.1999, Side 32
32 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Nýtt leikrit í Brúðu- bílnum BRÚÐUBÍLLINN frumsýnir leikritið I útlegð mánudaginn 5. júlí kl. 14 niður við Tjörn við Tjarnarborg. KI. 10 þann dag verður forsýning á gæslu- vellinum í Barðavogi. Þriðju- daginn 6. júlí eru sýningar í Dalalandi kl. 10 og á Holtsvelli, Kópavogi, kl. 14. Leikritið er byggt upp á þremur litlum leikþáttum og ýmsai’ persónur koma fram. Trúðarnir Dúskur og Hnapp- ur segja frá Trénu í garðin- um. I öðrum þættinum hjálpa krakkamir litla Hvít að fá augu, eyru, höfuð, fætur, hendur og hjarta með því að syngja iyrir hann Guð gaf mér eyra. Þá verður sýnt leik- ritið um músina Magneu sem segir frá öllu því dularfyllsta sem leynist í náttúrunni. Stjórnandi leikhússins er Helga Steffensen. Asamt henni koma fram brúðuleikar- arnir Aðalbjörg Árnadóttir og Skarphéðinn Sverrisson sem stjóma brúðunum. Brúðubíllinn starfar á veg- um íþrótta- og tómstunda- ráðs. LISTIR Askell Másson undirritar útgáfusamning vestanhafs Bandaríkin langstærsti mark- aðurinn fyrir slagverkstónlist ÁSKELL Másson tónskáld hefur undirritað samning við banda- ríska útgáfufyrirtækið Ho- neyRock, sem sérhæfir sig í út- gáfu á slagverkstónlist, um út- gáfu á átta tónverkum. Verkin verða öll gefin út á prenti, auk þess sem út verður gefín sérstök tónverkaskrá yfir verk Áskels. „Þetta eru einleiksverk, kammer- verk og konsertar, þar sem slag- verk er í aðalhlutverki," segir hann. „Þeir hjá HoneyRock gefa út verk eftir marga helstu höfunda sem hafa verið að skrifa fyrir slagverk á undanfömum ámm. Þeir eru með mikla dreifingu um öll Bandaríkin og að auki em þeir með umboð fyrir marga sterka evrópska útgefendur; í Frakk- landi, Þýskalandi, Italíu, Sviss, Noregi og Belgíu, svo eitthvað sé nefnt,“ heldur Áskel) áfram. Slagverkið hljóðfæri 21. aldarinnar „Höfuðið á bak við útgáfuna er Richard K. LeVan, sem er í mjög góðu sambandi við slagverksleik- ara og tónlistarskólana í Banda- ríkjunum, sem skiptir ákafiega miklu máli. Eitt af því sem verður gefið út eft- ir mig er lítið lagasafn sem upphaflega var skrifað fyrir börn. Lög- in era hugsuð þannig að þau sé hægt að spila á nánast hvaða hljóð- færi sem er. Þetta þótti honum upplagt efni fyrir skólana og byij- endur í faginu,“ segir Áskell. Hann fagnar því mjög að hafa fengið út- gáfusamning vestan- hafs, þar sem Banda- ríkin séu langstærsti markaður í heimi fyrir slagverkstónlist. „Það era tugir ef ekki hundrað þúsunda manna og kvenna sem fást við slagverk í Bandaríkjunum. Svo er slagverkið náttúrulega hljóðfæri tuttugustu og fyrstu aldarinnar og nýjungar í faginu eru alveg gífur- lega fljótar að ryðja sér til rúms. Það er mikið í deiglunni og það koma fram á sjónarsviðið æ yngri hljóðfæraleikarar sem geta ótrú- legustu hluti og eru að koma fram með nýja tækni og nýja hugsun. Hljóðfærin breytast stöðugt, verða full- komnari, hljómmeiri og betri og sérhæfing- in er að aukast." „Sannkallað lista- verk“ Skoski slagverks- leikarinn Evelyn Glennie hefur leikið verk Áskels á allmörg- um tónleikum að und- anförau. Hann var sjálfur viðstaddur þeg- ar hún lék verk hans, Konsertþátt fyrir sneriltrommu og hljómsveit, ásamt bandarísku sinfóníu- hljómsveitinni National Symphony Orchestra undir sljórn hins heims- fræga hljómsveitarstjóra Leonards Slatkins á opnunartónleikum þriggja daga slagverkshátíðar í Kennedy Center í Washington 8. apríl sl. Um þá tónleika ritaði Tim Page, gagnrýnandi The Was- hington Post, m.a.: „Flutningur Evelyn Glennie var bestur í verki Áskels Mássonar, Konsertþætti fyrir sneriltrommu og hljómsveit. En hugmyndin að tónverki fyrir sneriltrommu og hljómsveit hljóm- ar eins og ávísun á örugg mistök fyrir hvert það tónskáld sem er nógu kjánalegt til að reyna. Engu að síður hefur Áskatli Mássyni tek- ist á yfirskilvitlegan máta að semja tíu mínútna verk sem er ekki ein- göngu frábær stúdía á eiginleikum hljóðfærisins heldur líka sannkall- að listaverk. Hvort sem Glennie . kallaði fram hljóðlátt fall sumar- regnsins eða miskunnarlausa hríð vélbyssuskota var flutningur henn- ar aldrei minna en seiðandi.“ Evelyn Glennie mun flytja verk- ið ásamt Cleveland Orchestra á Blossom-tónlistarhátiðinni i Cleveland í Ohio 16. júlí nk. Áskell er um þessar mundir að leggja síð- ustu hönd á slagverkskonsert, sem hann tileinkar Evelyn Glennie, og verður væntanlega frumfluttur vestanhafs á næstunni. Konsertinn er stór í sniðum, í fjórum þáttum, og þar spinnur hann út frá gömlu islensku sálmalagi, „Hvað mundi vera hjartað mitt?“. „Einleikarinn spilar á fjöldamörg hljóðfæri, það er heill frumskógur sem hún spilar á,“ segir tónskáldið. Áskell Másson Meistaraverk Ellingtons á sjötta áratugnum GEISLAPLÖTUR Djass ELLINGTON AT NEWPORT 56 Duke Ellington og hljómsveit 1956. Such sweet thunder. Duke Ellington og hljómsveit 1956-57. Blaek, brown and beige. Duke Ellington og hljómsveit ásamt Mahaliu Jackson 1958. Anatomy of a murder. Duke Ellington og hljóm- sveit 1959. First time. Duke Ellington og Count Basie ásamt hljómsveitum sínum. 1961. Sony/Skífan 1999. ENN heldur Ellington-veislan mikla áfram í tilefni af hundraðasta afmælisári meistarans. Sony hefur nú endurútgefið fimm frægar breiðskífur frá Columbia-árum hans með miklu aukaefni og einn diskurinn er tvöfaldur, og kannski sá merkasti því þar er einn frægasti konsert djasssögunnar loksins útgefmn heill og óskiptur og skemmdarverkum Columbiu- manna frá 1956 rutt úr vegi og blekkingar þeirra afhjúpaðar. Vinsældir hljómsveitar Duke Ellingtons dvínuðu mjög eftir 1950. Tími stórsveitanna var liðinn. Stundum var næstum tómt á klúbbtónleikum hans er þriðja settið hófst. EU- ington kallaði þá oft til sveitarinnar að leika Diminuendo and crescendo in blue, er hann hafði samið 1937, en í stað þess að leika sjálfur spunakaflann milli verkanna var tenórsaxófón- meistaranum Paul Gonsalves falið verkefnið. Og þá varð sveilfan heit og í huga Ellingtons varð til hernaðaráætlunin mikla um að endur- heimta vinsældir stórsveitar sinnar í breyttum heimi. Honum tókst ætlunarverkið og í kjölfar tónleikanna miklu í Newport fylgdi saután ára tónleikaferð um gjörvalla heimsbyggðina sem lauk ekki fyrr en Ellington lagðist banaleguna snemma árs 1974. Helsjúkur hélt hann tónleika fyrir sjúklinga og starfsmenn sjúkrahússins þar sem hann lá og þegar hann gat ekki lengur fylgt fötum sat Mercher sonur hans við bana- beðinn og skrifaði tónverkin eftir fyrirsögn meistarans uns yfir lauk. Hvað gerðist á Newport ‘56? Ellington-band- ið var kvatt á sviðið. Það hóf að leika Star spangled banner og lék svo Black and tan fantesy og Tea for two, sem sá ágæti Islands- fari, trompetleikarinn Willie Cook, blés. Síðan var bandið sett í þriggja tíma pásu. Paul Gonsalves taldi að það hefði verið einn af horn- steinum þess hversu grimmilega bandið lék upp úr miðnætti þetta kvöld. Biðin í tjaldræfl- inum að hurðarbaki var nær óbærileg - trúlega varla bar þar - og eitt er víst að þegar hljómsveit- in sté aftur á svið og lék Take the A train var bandið í stjörnustuði. Newport festival svítan fylgdi í kjölfarið, hin ágætasta EU- ington/Strayhorn svíta, svo komu nokkur lög þar til Duke kynnti tónvek sitt, nær tuttugu ára gam- alt, Diminuendo and crescendo in blue. í rúm fjörutíu ár höfum við verið með falsaða útgáfu af tónleikunum í eyrunum. Breiðskífa Columbiu, Ellington at Newport 56, var ekki Ellington at Newport nema að hluta. Columbia tók upp tónleik- ana, einnig bandaríska útvarps- stöðin Voice of a America. Ell- ington beindi blásurum sínum í Columbia- míkrafóninn - en hver gat stýrt meistara Paul Gonsalves? Hann gekk sínar götur, sem jafnan fyrr, og lenti á Vocie of America-hljóðneman- um og blés einn magnaðasta sóló djasssögunn- ar - 27 kórana í Diminuendo and crescendo in blue - í vitlausan hljóðnema. Columbia-pródúsentinn George Avakian heimtaði að Ellington endurtæki tónleikana í hljóðveri daginn eftir - upptakan hefði mis- heppnast. Meistarinn samþykkti það og lék Newport festíval svítuna aftur en þegar George heimtaði að Diminuendo and crescendo in blue væri endurtekið leit meistarinn kvikum augum á hljómsveit sína og mælti: „Við förum!“ Vissi sem var að slíkt meistaraverk augnabliksins yrði ekki endurgert í hljóðveri. Eftir Gonsalves-sólóinn mikla í Diminuendo and crescendo in blue voru áheyrendur allinn- blásnir af tónlistinni og vildi George Waine tón- leikahaldari slíta tónleikunum. Ellington var honum klókari og kallaði á ballöðusnillinginn mikla, Johnny Hodges, til að að róa liðið. Fyrst blés hann I got it bad and that ain’t good með eina feiltóninum sem ég hef heyrt hann blása. Skyldi nokkur listamaður eiga jafn fáa fleiltóna á þúsund og eitthvað upptökum og helmingur- inn hljóðritaður á tónleikum? Síðan blés hann Jeeps blues eins og sá sem valdið hefur. George Waine reyndi enn að slíta tónleikun- um en Ellington kallaði trommarann Sam Woodyard til einleiks í Skin deep og þegar bandið blés Mood indigo og Ellington kvaddi var allt í himnalagi hjá tónglöðum áheyrendun- um. Á þessum tvöfalda diski má heyra Newport-tónleikana í heild og allt það sem hljóðritað var dag- inn eftir og það í ekta stereói. Ástæðan er sú að upptökur Voice of America fundust - en þeir eyddu jafnan upptökum sem þeir útvörp- uðu - svo að Sony-menn höfðu tvær mónó-upptökur frá tónleik- unum. Tóngæðin eru margföld á við þau á plötunni og nú fáum við loksins að heyra sóló Gonsalves í sinni réttu mynd, tekinn upp gegn- um hljóðnemann sem hann blés í. Þessi diskur ætti að vera í hverju djasssafni og kostar ekki nema tvö þúsund kall og einföldu diskarnir fjórir helmingi minna. Svo Sony gerir vel við Ellington-aðdáendur á aldarafmælinu. Such sweet thunder er ein fremsta svítan er Duke Ellington samdi í samvinnu við Billy Strayhom. Hún sækir innblástur til ýmissa þeikrita Shakespeares og er titillinn fengin úr Óþelló. Kaflarnir tólf eru hver öðrum betri en kannski standa tveir upp úr, auk upphafskafl- ans Such sweet thunder: The star-crossed lovers, sem er óður til Rómeó og Júlíu þar sem Paul Gonsalves túlkar Rómeó og Johnny Hodges Júlíu og blæs einn af fegurri altósax- ófónsólóum sínum, og Up and down sem var tileinkaður Jónsmessunæturdraumi: „Til og frá, til og frá, teyma skal ég til og frá,“ segir Bokki álfur í túlkun Helga Hálfdanarsonar. Hlutverk Bokka er blásið af Clark Terry á trompet af miklum húmor og lokatónarnir þessir: „Bara menn og hvílík flón“. Á Such sweet thunder eru að auki tíu óút- gefnar tökur, u.þ.b. 25 mínútur að lengd. Eitt helsta meistaraverk Duke Ellingtons er KoKo frá 1940. Þessi blús átti að vera hluti af mikilli óperu er Ellington hugðist skrifa um sögu bandaríska negrans en af henni varð aldrei. Aftur á móti var svítan Black, brown and begie, sem byggist á sama efniviði, frum- flutt á tónleikum í Carnegie Hall 1943. Hún var því miður ekki hljóðrituð utan tónleika- halla í fullri lengd en 1958 breytti Duke svít- unni og notaði fyrsta kaflann, Black, í fimm fyrstu kaflana og spann svo þann sjötta með sálmasöngkonunni Mahaliu Jackson og hljómsveitinni. Rétti henni Biblíuna þar sem flett hafði verið upp á 23. Davíðssálmi. Þarna söng sálmasöngkonan Mahalia Jackson í fyi’sta skipti á ævinni með djasshljómsveit. Duke Ellington Hápunktur Black, brown and beige er sálm- urinn Come Sunday sem Johnny Hodges blés á Carnegie Hall-tónleikunum og æ síðan. Ein- hvern veginn fannst manni að Come Sunday væri óhugsandi án Johnny Hodges en þegar Ellington hljóðritaði Black, brown and beige 1958 var Hodges á tónleikaferðalagi með Billy Strayhorn. Annar hljóðfæraleikari hefði varla náð að gera verkinu skil en hinn frjói heili Ell- ingtons var sístarfandi og þótt helstu sam- verkamennina vantaði leysti snilldarandinn hverja þraut. Mahalia Jackson syngur Come Sunday heillandi og á þessari útgáfu eru auka- tökur af allri svítunni og þar er Come Sunday jafnvel enn magnaðra en á þeirri töku er út var gefin 1958 - aðeins einn hængur á: Mahalia hóstar á einum stað. Árið eftir samdi Duke Ellington tónlistina fyrir stórmynd Otto Premingers, Anatomy of a murder, með Jamps Stewart og Lee Remick í aðalhlutverkum. Á nýja diskinum er mikið af tónlist sem ekki hefur heyi’st fyrr og það firna- góðri, meira að segja dixílandlagið sem heyra mátti að hluta í myndinni: Happy anatomy. Tvö meginstef ríkja í kvikmyndinni, hið magnþrungna Anatomy of a murder (sem Mulligan hljóðritaði seinna með stórsveit sinni undir nafninu I’m gonna go fishin) og Midnight indigo, Ellington-ballaða af fínustu sort þar sem Ellington leikur á celestu, Strayhorn á pí- anó og Harry Carney á bassaklarinett. I öðram tilbrigðum hennar er Johnny Hodges jafnan á altóinn. Það er ekki mikið kvikmyndabragð að Anatomy of a murder. Þetta er heilsteypt Ell- ington-verk. Yngsti diskurinn í þessari útgáfuröð er disk- urinn þar sem Ellington- og Basie-bandið leika saman: First time frá 1971. Átta ópusar vora á breiðskífunni og hér era sjö til viðbótar. Ryþmaleikarar hljómsveitanna skiptast á um að leika, nema konungur ryþmagítarsins, Freddie Green, er allan tímann með. Hér má finna ýmis lög úr bókum þeirra félaga. Þekkt- ust: Take the A train og Jumpin at the Woodside. Meðal þeirra laga sem ekki hafa verið gefin út áður er Blues in Hoss’ flat sem höfundurinn, Frank Wess, lék með Stórsveit Reykjavíkur á RúRek 1997. Þessi skífa er kannski ekki í sama gæðaflokki og þær sem á undan era nefndar en það er óneitanlega gam- an að heyra tvær helstu stórsveitir tuttugustu aldarinnar leiða saman hesta síns - og þetta er enginn bardagi heldur ekta samspil og mikið eiga þeir Duke og Count betur saman í píanó- samleik sínum heldur en Count og Oscar Pet- erson. Svo er allt fullt af klassa sólistum: Paul Gonsalves, Frank Foster, Frank Wess, Budd Johnson, Willie Cook, Thad Jones og Butter Jackson svo nokkrfr séu nefndir. Að lokum er skylt að geta þess að tóngæði allra diskanna era frábær og ski-if og upplýs- ingar um hljóðfæraleikara og upptökur með slíkum ágætum að betra gerist það ekki. Vernharður Linnet

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.