Morgunblaðið - 03.07.1999, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ
^ 54 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
Dýraglens
Hundalíf
ER EKKICEANOTHUSINN
FALLEGUR í ÁR?
JU, HANN FER
VEL VIÐ HLIÐINA
Á LAVATERUNNI
POTENTTLLAN VTRÖIST
ÖAFNA VEL...
Engar áhyggjur, þetta lætur líkcr
e/ns og golfranska í mínum eyrum!
...06 EUPHORBIAN ER
STÓRKOSUE6
Ljóska
Smáfólk
Þú gerir þér kannski ekki
grein fyrir því en þú hefúr
mikil áhrif á mig„
Þú stendur fast á þínu Það er
og þú ferð einhvem veginn áhrifa
að því að gnæfa yfir öllu mikið
Hins vegar lítur þú einnig
út fyrir að vera fastur
í þinni spennitreyju..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ljósmynd Kristján E.
DRENGIR í 4. flokki fyrir framan hið nýja hús.
Stór dagur í
Vatnaskógi
Frá Ólafí Sverrissyni:
í VATNASKÓGI hefur KFUM í
Reykjavík starfrækt sumarbúðir
síðan árið 1923. Á hverju sumri
dvelja um 1.000 drengir í Vatna-
skógi, viku til tíu daga í senn. Ein
vika er fyrir
unglinga, pilta
og stúlkur, tvær
helgar fyrir
feðga, ein helgi
fyrir karla og
um verslunar-
mannahelgina er
staðurinn opinn
Ijölskyldum.
Þegar sumar-
starfi lýkur taka
við tveggja til þriggja daga ferm-
ingamámskeið sem um 1.600 ferm-
ingarbörn sóttu sl. haust. Á vorin
bjóðum við svo leikskólum til okkar
í dagsheimsóknir og þetta vor
komu um 350 böm í Vatnaskóg.
Markmið okkar eru að boða
kristna trú og stuðla að líkamleg-
um, andlegum og félagslegum
þroska þeirra sem í Vatnaskógi
dvelja.
Nýtt hús
Undanfarin ár hafa heilbrigðis-
og bmnamálayfirvöld gert athuga-
semdir við einn af svefnskálum
staðarins, vinnuskúra frá Búrfells-
virkjun. Því var ráðist í byggingu
nýs 380 fm svefnskála og hljóðaði
kostnaðaráætlun upp á 37 milljónir
kr. Fyrsta skólfustungan var tekin
haustið 1995 og í dag munum við
taka helming hússins í notkun.
Fjármögnun
Tekjur af starfseminni í Vatna-
skógi standa undir almennum
rekstri staðarins og eðlilegu við-
haldi. Allt stærra viðhald og ný-
framkvæmdir em hins vegar kost-
aðar með styrkjum og gjafafé. Svo
er því farið með umrætt hús. Við
fjármögnun þess hefur það sýnt sig
að Vatnaskógur á marga velunn-
ara. Fyrir framlög þeirra og
ómælda sjálfboðavinnu hefur þetta
hús risið.
Vígsla
í dag verður helmingur hússins
tekinn í notkun og þar með getum
við lokað vinnuskúrunum frá Búr-
felli. Þetta er langþráður dagur í
Vatnaskógi! Sérstök vígsluathöfn
verður við húsið í dag kl. 14:30 og
það helgað Guði af sr. Ólafi Jó-
hannssyni, formanni KFUM í
Reykjavík og sóknarpresti í Grens-
áskirkju. Þá verður nafn hússins
einnig gert opinbert. Þegar gestir
hafa skoðað húsið munu drengimir
sem nú dvelja í vinnuskúmnum frá
Búrfelli flytja inn í nýja húsið. Að
sjálfsögðu verður kaffi og með’í á
eftir.
Þakkir
Við þökkum öllum þeim sem
hafa styrkt byggingu nýja hússins
eða stutt við starfið í Vatnaskógi á
einn eða annan hátt gegnum árin.
Guð laun. Verið öll velkomin til
vígslunnar eða að koma og skoða
húsið seinna.
íbúar Hvalfjarðarstrandar-
hrepps hafa löngum reynst starf-
inu í Vatnaskógi vel og langar okk-
ur að þakka þeim stuðninginn með
því að nefna herbergin í húsinu
eftir bæjum í nágrenni Vatnaskóg-
ar. Herbergin í húsinu era reyndar
færri en bæirnir en kannski eigum
við eftir að byggja við húsið
seinna!
Framtíðin
Æskilegast væri að geta tekið
allt húsið í notkun hið fyrsta og við
áætlum að það kosti 6,5 milljónir
kr. að ljúka við byggingu þess. í
það mun þó ekki ráðist fyrr en fjár-
hagur leyfir.
Fullbúið mun húsið kosta um
80% af kostnaðaráætlun. Þennan
árangur má fyrst og fremst þakka
mikilli sjálfboðavinnu ásamt vel-
vilja margra aðila og augljóslega
hefur verið farið vel með fé og
styrki gefenda. Er þetta ekki frá-
bært?
ÓLAFUR SVERRISSON,
formaður stjórnar Vatnaskógar.
Ólafur
Svcrrisson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.