Morgunblaðið - 08.07.1999, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.07.1999, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 5 auglýsing Fréttir SÁÁ - Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann - Ármúla 18-108 Reykjavík - Sími: S81 2399 - Fax: 568 1552 - www.saa.is - 4. tbl. júlí 1999 - Ábm.: Theódór S. Halldórsson Ríkisstjórnin leqqur til aðqerðir í vímuvarnarmálum: SÁÁ fagnar átaki stjórnarinnar Þórarinn Tyrfingsson, formaöur SÁA, hitti Davíð Oddsson forsætisráðherra i stjórnarráðinu. Þar afhenti Þórarinn Davíð bréf stjórnar samtakanna þar sem lýst er yfir stuðningi við stefnu rlkisstjórnarinnar i vímuvarnarmálum. Bréfið má lesa i heild sinni á vefsetri SÁÁ; www.saa.is Framkvæmdastjórn SÁÁ fagnar áherslu núverandi ríkisstjórnar á aðgerðir til vímuefnavarna sem koma fram í stjórnarsáttmála frá 28. maí sl. Þórarinn Tyrfingsson, formaður samtakanna, gekk á fund Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í vikunni, afhenti honum bréf frá samtökunum og greindi honum við sama tækifæri frá stuðningi SÁÁ við hið breiða átak. Samvinna lausnin Þórarinn sagði Davíð frá því að frá upphafi hefði SÁÁ lagt á það áherslu að áfengis- og vímuefnafíkn sé sérstakur sjúkdómur sem þyrfti sérstakrar meðferðar við. Stærstur hluti af þjónustu SÁÁ er þvf heilbrigðisþjónusta og sá hluti stefnuyfirlýsingarinnar sem snýr að heilbrigðismálum er því mjög áhugaverður fyrir samtökin. Þórarinn lýsti yfir vilja SÁÁ til að vinna með ríkisstjórninni. Sagði hann samtökin geta lagt ýmislegt af mörkum svo vel mætti til takast. Sagði hann SÁÁ finna til mikillar ábyrgðar í þeirri umræðu sem fram fer í þjóðfélaginu og bauð fram þátttöku samtakanna við að móta Sumarskóli SAA Nýtur alþjóölegrar viöurkenningar Á fimmta tug Islendinga og útlendinga hefur skráð sig (sumarskóla SÁÁ. Skólinn hefst í dag. Þetta er í fjórða skiptið sem boðið er upp á nám af þessu tagi en til þessa hafa margar stéttir sem vinna með áfengis- sjúklingum sótt skólann. Má þar nefna lækna, hjúkrunarfólk, sálfræðinga, presta, og stjórnmálamenn. Að þessu sinni verður skólahaldið tvískipt. Fyrstu tvo dagana verður það í Reykjavík en á laugardag flyst það í Galtalæk þar sem útihátíðin Úlfaldinn veróur haldin. Námið er liður ( endurmenntun áfengisráðgjafa SÁÁ. Það er metið til eininga hjá stærstu amerísku samtökunum á meðferðarsviðinu. Nánari upplýsingar um skólahaldið má finna á vefsetri SÁÁ; www.saa.is heildstæða stefnu í vímuvarnarmálum til að ná þeim árangri sem allir vilja stefna að. Benti hann loks á að opinber framlög dyggðu hvergi nærri til að fjármagna starfsemi samtakanna. Því hefði SÁÁ á undanförnum sex árum lagt rúman hálfan milljarð króna af sjálfsaflafé sínu til forvarnar- og meðferðarstarfs. Umræða um úrræðaleysi í vímuvarnar- málum ungmenna hefur verið áberandi í fjölmiðlum upp á síðkastið. SÁÁ hefur haldið sig til hlés í þeirri umræðu en við það hefur gleymst að samtökin eru atkvæðamest allra meðferðaraðila á þessu sviði. Það skýtur einnig skökku við þegar sagt er að ekkert sé gert í þessum málum að bið eftir innritun fyrir ungmenni 17 ára og yngri er einungis frá tveimur dögum upp í eina til tvær vikur. Þó má gera betur og er því ekki úr vegi að minna á að SÁÁ mun taka I notkun nýja deild fyrir unglinga við Sjúkrahúsið Vog í haust. Gæðaeftirlit lykilorðið Á fundinum ræddi Þórarinn um mikilvægi þess að þeir sem veiti vímuefnasjúklingum meðferð fari að lögum um sjúkrarekstur, lyfjaeftirlit og greiðslu lyfjakostnaðar og að meðferðin sé undir stjórn fagmenntaðs fólks. Ennfremur að gerð verði sú krafa til allra þeirra sem stundi áfengis- og Aukið aðgengi, bættur efnahagur Faraldsfræðilegar kannanir sýna að fjöldi ungra vfmuefnaneytenda hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum. Flestir eru sammála um að aukið aðgengi að áfengi og auknir fjármunir í umferð ráða þar miklu. Á síðasta ári komu til dæmis 93 ungmenni, 17 ára og yngri, á Sjúkrahúsið Vog í 122 skipti. Gætum barnanna Sérfræðingar eru sammála um að þeim sem eru á þrítugsaldri og þurfa á áfengis- og vfmuefnameðferð að halda eigi eftir að fjölga á næstu árum. Þvf er nauðsynlegt að bregðast við með öflugu vímuefnameðferð að þeir hafi aðgengilegar upplýsingar um rekstrarkostnað og tölulegar upplýsingar um hversu margir einstaklingar njóti þjónustunnar og hversu miklu sé eytt á hvern einstakan sjúkling. í þvf væri fólgið mikið gæðaeftirlit sem SÁÁ leggur áherslu é í starfi sfnu. Bréf SÁÁ til forsætisráðherra má lesa í heild sinni á vefsetri samtakanna; www.saa.is. forvarnarstarfi en SÁÁ hefur átt náið samstarf við sveitarfélög á þvf sviði samkvæmt sérstöku samkomulagi við heilbrigðisráóuneytið. En betur má ef duga skal. Hjá SÁÁ er nú tækifæri til að sinna sérstöku verkefni sem hefur beðið allt of lengi vegna fjárskorts. Það er að bjóða börnum þeirra fjölmörgu sem leita meðferðar hjá SÁÁ upp á sérstaka greiningu og í framhaldi af þvf viðeigandi meðferð og þjónustu. Þessi fjölmörgu börn vímuefnaneytenda eru f sérstakri áhættu og slík forvarnarvinna með þeim væri miklu markvissari og skilaði mun betri árangri en flest það sem nú er gert í forvörnum. Ánetjast fyrr Vfðtækt net trúnaðar- manna starfar á vegum SÁÁ úti um allt land. Einn af þeim er Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða. Hann segir augljóst að aukin áfengisneysla í yngri aldurshópum hafi haft vandamál f för með sér. „Hér á árum áður byrjaði fólk mun sfðar að neyta áfengis og var kannski ekki orðið háð því fyrr en á þrítugs- eða fertugsaldri. Núna byrjar fólk mun yngra, þannig að ég held að fleiri ánetjist og það fyrr á ævinni. Þetta þýðir að vandinn er stærri, þrátt fyrir að SÁÁ og aðrir hafi unnið árangursríkt starf á undanförnum árum." Öflugt umhverfisstarf SÁÁ: Bjarni Finnsson, formaður stjórnar Umhverfissjóðs verslunarinnar, afhendir Sigurði Gunnsteinssyni, dagskrárstjóra á meðferðarheimilinu Vik, styrk til áframhaldandi skógræktar. Hálf milljón úr Umhverfissjóði SÁÁ hefur frá upphafi verið umhugað um umhverfið og staðið að uppgræðslu og skógrækt í landi Víkur og Staðarfells. Umhverfissjóður verslunarinnar hefur á undanförnum árum stutt myndarlega við bakið á samtökunum við þetta starf með fjárstyrkjum. Síðasta föstudag var úthlutað úr sjóðnum í fjórða sinn og fékk SÁÁ hálfa milljón króna í styrk til áframhaldandi skógræktar. Göngudeiidarþjónusta 5ÁÁ býður upp á fræðslu fyrir almenning Upplýsingar um meóferðarúrræði, fundi og ráðgjöf er að finna á vefsetri SÁÁ www.saa.is eða í síma 581 2399 SÁÁ atkvæðamest í meðferðarmálum unqmenna: Aðeins nokkurra daga bið eftir meðferðarplássi Pétur Sigur&sson Úlfaldinn 99 - útihátíð með fiölda skemmtikrafta: Fjörið er í Galtalækjarskógi um helgina Eins og sex undanfarin ár stendur SÁÁ fyrir fjölskylduskemmtun í Galtalækjar- skógi um næstu helgi. Hátíðin, sem kallast Úlfaldinn 99, verður sett annað kvöld og dagskráin hefst með stórdansleik, þar sem Stjórnin leikur fyrir dansi. Undirbúningur og skipulagning hátíðarinnar hefur verið I höndum Hjalta Þórs Björnssonar, dagskrárstjóra á Vogi, en alls taka um 40 manns þátt f framkvæmd Úlfaldans. Hjalti segir að aðsóknin hafi aukist með hverju árinu. „I fyrra komu rúmlega þúsund manns í Galtalækjarskóg og skemmtu sér konunglega. Við sjáum sama fólkið ár eftir ár og það er ekki óalgengt að sjá fjölskyldur, vini og vandamenn, sem koma frá öllum landshornum, þannig að úr verður lítið ættarmót á hátfðinni." Örugg skemmtun fyrir unglinga Að sögn Hjalta er stærstur hluti gestanna fólk sem tengist á einhvern Rúmlega þúsund börn, ungllngar og fullorönir komu á Úlfaldann f Galtarlækjarskógi f fyrra og skemmtu sér konunglega. hátt starfsemi SÁÁ. Hann segir hins vegar að hátíðin sé opin öllum sem vilji skemmta sér á heilbrigðan hátt án vfmuefna. „Unglingar hafa í auknum mæli komið á Úlfaldann vegna þess að þeir vilja sækja útihátfð þar sem áfengi er ekki haft um hönd." Fjölbreytt dagskrá Dagskrá Úlfaldans er byggð upp með það fyrir augum að þar finni allir eitthvað við sitt hæfi. Systkinin KK og Ellen Kristjánsdóttir munu halda tónleika, leikkonan vinsæla Helga Braga Jónsdóttir verður með skemmtun, Magnús Scheving kemur öllum í gott skap, listmálarinn Tolli verður með listasmiðju fyrir unga fólkið og börnum gefst kostur á hestaferðum. „Við bjóðum alla velkomna í Galtalækjarskóg og vonumst auðvitað til að sjá sem flesta velunnara SÁÁ um helgina," segir Hjalti Þór Björnsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.