Morgunblaðið - 08.07.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 5 7*
í DAG
KIRKJUSTARF
BBIBS
Umsjón (íuðmundur
Páll Arnarson
PÓLVERJINN Pszczola
fann ekki réttu vörnina
gegn fjórum hjörtum
Frakkans Mari í viðureign
þjóðanna á EM. Lesandan-
um er boðið að setjast í sæti
Pszczola í austur:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Vestur
*
V
♦
Norður
A D764
¥ ÁK54
♦ G3
♦ D95
Austur
A 5
¥ 107
♦ ÁK10854
* K842
Suður
A
¥
♦
*
Veslur Norður Austur Suður
Kwieden Multon Pszczola Mari
1 lauf 1 tígull 1 kjarta
2tíglar 2 työtUi 3tíglar 4kjörtu
Pass Pass Pass
Frakkarnir spila Stand-
ard og suður lofar aðeins
fjórlit í hjarta með fyrsta
svari sínu og gæti þess
vegna átt báða háliti. Útspil
makkers er tígultvistur,
sem sýnir fjórlit (Pólverjar
spila almennt út öðru og
fjórða hæsta). Lesandinn á
slaginn á tígulkóng og nú er
spurt: Hvað næst?
Óneitanlega er spaða-
fimman lokkandi, og líklega
er það spilið sem flestir
myndu velja við borðið. En
af því spilinu er stillt upp
sem þraut gæti lesandinn
íhugað aðra möguleika.
Svona var spilið í heild:
Norður
* D764 V ÁK54
♦ G3 * D95
Vestur Austur
♦ G832 * 5
VG93 V 107
♦ D762 ♦ ÁK10854
*Á3 * K842
Suður ♦ ÁK109 ¥ D862 ♦ 9 ♦ G1076
Pszczola skipti yfir í
spaðaeinspilið og Mari var
þá ekki lengi að vinna spilið.
Hann tók þrisvar tromp og
sótti laufið.
Augljóslega tapast spilið
ef vörnin tekur stunguna í
laufi, en það dugir líka að
halda áfram með tígul. Suð-
ur þarf að tvísækja laufið og
missir því vald á spilinu ef
hann tekur þrisvar tromp
áður en hann fer í laufið. Og
ef suður skilur eitt tromp
eftir úti áður en hann spilar
laufinu getur vörnin tekið
stunguna.
Þetta er ekki einfóld vörn,
en það mælir gegn spaðan-
um að ekki er vist að það
dugi vörninni í fjóra slagi að
makker eigi spaðaásinn. Þá
á sagnhafi örugglega laufás-
inn, sem gerir kóng austurs
verðminni og hugsanlega
gagnslausan. Því er kannski
betra að spila makker upp á
laufásinn.
Ast er...
... að klóra henni á bakinu
áður en hún sofnar.
TM Reg. U.S. Pat. Ofl. — all rights reserved
(c) 1999 Los Angeles Times Syndicate
Árnað heilla
n fT ÁRA afmæli. f dag,
I t) fimmtudaginn 8.
júlí, verður sjötíu og fimm
ára Rannveig Böðvarsson,
Vesturgötu 32 Akranesi.
Eiginmaður Rannveigar var
Sturlaugur H. Böðvarsson,
útgerðarmaður Akranesi.
Hann lést árið 1976. Rann-
veig tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 18 í
dag.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Lágafellskirkju 8.
maí sl. af sr. Jóni Þorsteins-
syni Þórdís Helgadóttir og
Birkir Halldórsson. Heimili
þeirra er í Hjallabrekku 47 í
Kópavogi.
Hlutavelta
ÞESSAR stúlkur héldu á dögunum tombólu og færðu
Rauða krossi fslands 920 kr. að gjöf af því tilefni.
Stúlkurnar eru systur og heita Snæbjört Pálsdóttir 6 ára
og Hugrún Pálsdóttir 2 ára, þær búa á Sauðárkróki. Á
myndina vantar Silju Rut Sigurfinnsdóttur úr Garðabæ og
Þórunni Ólafsdóttur, Hellulandi í Skagafirði.
COSPER
COSPER.
ÞARNA er konan sem ég lá með
á fæðingardeildinni.
ALSNJÓA
Eilífur snjór í augu mín
út og suður og vestur skín,
samur og samur út og austur;
einstaklingur! vertu nú hraustur.
Dauðinn er hreinn og hvítur snjór,
hjartavörðurinn gengur rór
og stendur sig á blæju breiðri,
býr þar nú undir jörð í heiðri.
Víst er þér, móðir, annt um oss;
aumingja jörð með þungan kross
ber sig það allt í ljósi lita,
lífið og dauðann, kulda og hita.
Ljóðið
Alsnjúa
Jónas Hall■
grímsson
(1807-1845)
STJÖRNUSPA
ef(ir Frances Drake
KRABBI
Þú ert traustur vinamargur
og þeir eru ófáir sem leita
skjóls hjá þér.
Hrútur (21. mars -19. apríl) Það væri ekki úr vegi að að skipuleggja samveru- stund meðal fjölskyldunn- ar og gefa ungum sem öldnum tækifæri til að bregða á leik saman.
Naut (20. apríl - 20. maí) Það skiptir miklu að hafa jafnvægi á milli starfs síns og einkalífs því þá geturðu rækt- að hvoru tveggja og notið þess um leið.
Tvíburar _ (21. maí - 20. júní) nA Þeir eru margir sem keppast um athygli þína og það reynir á þolinmæðina. Gefðu fólki þann tíma sem til þarf og sjálfum þér um leið.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) Það kemur upp ágreiningur milli ástvina sem þarf að leysa hið snarasta. Það gerist aðeins ef menn taka tillit til skoðana hvors annars.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú hefur unnið vel að undan- förnu og mátt vera ánægður með sjálfan þig. Taktu það ekki nærri þér þótt það fari framhjá öðrum.
Meyja (23. ágúst - 22. september) ©ÍL Þú verður beðinn um að taka þátt í að leggja góðu málefni lið svo leggðu þitt af mörkum því þú færð þín laun þegar árangurinn kemur í ljós.
(23. sept. - 22. október) Þú hefur mikla þörf fyrir það að hlúa að öðrum og skalt bara leyfa þér það. Leyfðu líka öðrum að umvefja þig þegar þú þarft á því að halda.
Sþorðdreki (23. okt. - 21, nóvember) Þú ert eitthvað viðkvæmur og þarft umfram allt að halda sjálfsstjórn innan um aðra. Leitaðu þér aðstoðar og komdu lagi á tilfmningalíf þitt.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ntSr Þú ert í góðu jafnvægi og allt virðist vera með kyrrum kjörum í kringum þig. Njóttu þess og efldu styrk þinn fyrir átakameiri tíma.
Steingeit (22. des. -19. janúar) Þú ert á góðri leið með að ná þvi takmarki sem þú settir þér fjárhagslega og munt ná því ef þú lærir að þekkja veikleika þinnog sigrast á honum.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) CSol Nú er kominn tími til þess að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni hvort sem er heima eða heiman. Láttu ekkert spilla því.
Fiskar m( (19. febrúar - 20. mars) >♦•«• Þín sérgrein er að skipu- leggja svo þú skalt vera órag- ur við að flagga þeim hæfi- leika þínum. Gefðu þér tíma til að hitta vini og félaga.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimOi eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam-
koma. Björg Pálsdóttir talar og
tónlistarfólk Kefas leiðir í lofgjörð.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 14.30 helgistund í sjúkrahúsinu
í setustofu á 2. hæð. Allir hjartan-
lega velkomnir. Kl. 20.30. opið hús í
KFUM&K húsinu fyrir unglinga.
Áskirkja
ÚTSALA
Jakkar og stuttkápur
úr leðurlíki, kr. 5.900.
Regnkápur, kr. 12.900.
Opið á iaugardögum
frá kl.10-16. Mörkinni 6, sími 588 5518
UTSALA
1
Gæðavörur úr góðum efnum
Allar stærðir
Opið á
laugardögum
frá kl. 10-16
Laugavegi 46
Sími 561 4465^11® IHJ
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni.
Skuldabréf Sparisjóðs Vestmannaeyja,
1. flokkur 1998,
á Verðbréfaþing íslands.
Verðbréfaþing hefur ákveðið að taka skuldabréf
Sparisjóðs Vestmannaeyja, 1. flokk 1998, á
skrá. Skuldabréfín eru eingreiðslubréf og vaxta-
laus. Skuldin er verðtryggð og bundin vísitölu
neysluverðs. Skuldin verður endurgreidd í einu
lagi 1. nóvember 2003. Bréfin verða skráð
föstudaginn 16. júlí nk. Skráningarlýsingu má
nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar,
Kaupþingi hf. Hjá Kaupþingi hf. er einnig
hægt að nálgast þau gögn sem vitnað er til í
skráningarlýsingunni.
KAUPÞING HF
Ármúla 13A, 108 Reykjavík
Sími 515-1500, fax 515-1509