Morgunblaðið - 08.07.1999, Page 60
• 150 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
FÓLK I FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG HEF aldrei lært neina iðn
nema af sjálfum mér,“ segir Karl.
„Ég var togarasjómaður og hef unn-
ið flest störf til sjós og lands eins og
Hðrir íslendingar. Á tímabili fítlaði
ég við myndlist sem vai- reyndar
mjög leikmyndakennd, þannig að
það er kannski ekki óeðlilegt að ég
hafí endað sem leikmyndahönnuður.
Ég var leðursmiður einn hluta
ævi minnar, og það ár, 1983, hringdi
Hrafn Gunnlaugsson í mig og bað
mig að gera búningana fyrir Hrafn-
inn flýgur. Þannig gerði ég búninga
í fyrstu fjórar kvikmyndirnar sem
ég vann við. Síðan æxlaðist það bara
smám saman að ég varð það sem ég
er í dag.“
Islenskar kvikmyndir
eru afbragð
Karl flutti til Noregs með fjöl-
skylduna 1992, þar sem honum buð-
ust áhugaverð verkefni. Hann hafði
þá séð um bæði búninga og leikmynd
í mörgum íslenskum kvikmyndum
s.s.; Stella í orlofi, í skugga hrafns-
ins, Kristnihald undirjökli, Ryð, Hin
helgu vé og Hvíta víkingnum. „Ég
fór til Noregs í tengslum við gerð
Hvíta víkingsins og var boðið eftir
það að gera búningana í Kvite Bjorn
Kong Valemon eftir Ola Solum og
leikmyndina í Second Lautnanten
eftir Hans Petter Moland. Þá þurfti
ég að dvelja við undirbúninginn í
Noregi í hálft ár og ákvað að flytja
^rþara. Mig langaði að vinna þar sem
markaðurinn er stærri, auk þess
sem ég gat ekki lifað af starfinu á Is-
landi. Þar vantaði t.d. tilfinnanlega
kvikmyndastúdíó, og það er ansi
snar þáttur í vinnu leikmyndahönn-
uðar að teikna í stúdíói. Hins vegar
eru Islendingar að gera afbragðs
kvikmyndir, það hefur ekkert með
það að gera.“
- Þyrfti margt að breytast hér til
þess að þig myndi langa að flytja til
baka?
, „Já, ég er náttúrulega með marg-
falt hærri laun hérna, og svo eru
myndinar stæi-ri. Ég hef verið svo
heppinn að vinna við flestar stærstu
myndirnar sem hafa verið gerðar á
Norðurlöndum. Myndir sem kosta
5-600 milljónir íslenskra króna.
Fyrir hönnuð er miklu meiri ögrun
að fást við stór verkefni."
- Það hefur verið upphefð fyrir
þig þegar Liv Ullman bað þig um að
teikna Kristínu Lavransdóttur?
„Nei, í sjálfu sér ekki. Nei, það
var annar leikstjóri að gera þá mynd
í upphafi og ég kom inn í pakkann
með honum. Nei, myndin þykir nú
ekki par vel heppnuð hérna í Nor-
egi, a.m.k. ekki meðal kvikmynda-
gerðarmanna. Hún er hrútleiðin-
Ve&“
Tilfinning fyrir stemmningu
- Hvaða kostum þarf góður leik-
myndateiknari að vera búinn?
„Hann þarf að hafa listrænt inn-
sæi og bera gott skynbragð á form
og liti. Það spillir ekki fyrir að vera
góður verkstjóri, því maður er með
40-50 manns í vinnu, og svo að hafa
aðeins nef fyrir peningum upp á
hagsýnu hliðina. Síðast og ekki síst
verður maður að hafa tilfinningu
fyrir stemmningu, því maður er
alltaf að skapa stemmningu; gera
heim persónanna trúverðugan."
- Þarf maður ekki að vera næmur
á fólk, hvernig umhverfí það velur
ysér og hefur í kringum sig?
„Ja, ég veit það nú ekki. Mér
finnst við vera ósköp einföld og lík,
ef út í það er farið. Þannig að ég er
ekki stöðugt að rannsaka djúpmið
mannssálarinnar. En ég hef mjög
gaman af stemmningu og finnst
KARL á upptökustað á Nýfundnalandi.
Ogrun að búa
til stóra heima
Karl Júlíusson leik-
myndahönnuður hefur
unnið við stærstu kvik-
myndir gerðar á Norð-
urlöndum og er núna
að við tökur á nýjustu
mynd Lars von Trier.
Hildur Loftsdóttir
hringdi í kappann.
gaman að búa til heima. Ég hef gert
mikið af „períódumyndum", allt frá
víkingaöld og fram alla söguna. Mér
finnst mannkynssagan mjög heill-
andi, sérstaklega fyrri miðaldir og
hámiðaldir, og les hana jöfnum
höndum meðfram starfinu."
I nærveru snillings
-Hvað ertu lengi að vinna eina
góða sviðsmynd?
„Það er svo óskaplega misjafnt.
Ef hún er af stærri gerðinni tekur
hún svona sex mánuði, og þar af fara
tveir til þrír í undirbúning. I
Hamsun hafði ég bara þriggja vikna
undirbúning, en var með einvala lið
með mér og það var mjög gaman að
vinna þá mynd. Annað hvort skapar
maður sinn eigin heim eða reynir að
endurskapa söguna. Hvort tveggja
getur verið skemmtilegt. Hamsun
var eins sögulega nákvæm og mögu-
legt var, þar sem við unnum eftir
Ijósmyndum. Á skrifborði Quislings
höfðum við allt sem raunverulega
var á skrifborði Quislings. Leik-
stjórinn Jan Troell vinnur eins og í
leynilögreglusögu og við komumst
að ótrúlegustu hlutum. Quisling var
t.d. með dellu fyrir Napóleon svo við
hengdum myndir af honum um alla
íbúð.“
-En hvemig fínnst þér þegar
þessi heimar eru rifnir?
„Mér finnst það fínt, þetta er bara
framhliðin sem grotnar niður á
tveimur til þremur árum. Heimarnir
eru hvort eð er varðveittir að eilífu í
kvikmyndinni, þar sem þeir eiga
heima.“
-Hvað er skemmtilegasta verk-
efnið sem þú hefur tekist á við hing-
að til?
„Það er erfitt að segja, en það var
TEIKNING af stúdídi eftir Karl fyrir Breaking the Waves.
alveg einstaklega gaman að gera
Hamsun því Jan Troell er svo aldeil-
is frábær maður. Og líka Breaking
the Waves með Lars von Trier, sem
er engum líkur. Hann er einn
flinkasti kvikmyndagerðai-maður
sem ég hef unnið með. Hann hefur
ekkert fyrir þessu, þetta leikur allt í
höndum hans.“
- Er það ekki þannig með snill-
ingana?
„ Jú, og ég vil bæta því við að hann
er einfaldlega eini maðurinn sem ég
hef hitt á lífsleiðinni þar sem mér
finnst ég hafa verið í nærveru snill-
ings.“
Stærri og stærri verkefni
- Nú hefurðu unnið við skemmti-
lega ólíkar myndir, velur þú þér
verkefnin?
„Verkefnin velja mig og ég vel
þau. Ég þarf að hafa tekjur og það
er ekki alltaf verið að gera skemmti-
legar myndir. Svo hef ég verið hepp-
inn að fólk hefur kosið að vinna með
mér.
Mig langar alltaf að takast á við
stærri og stærri hluti, því það er
eiginlega auðveldara að gera stórar
kvikmyndir en litlar. Þá er vitað að
hlutirnir kosta mikla peninga og
ákveðið gangverk sem fer af stað
sem hungrið stöðvar ekki, og þá er
bara að keyra hönnunina í gegnum
myndina.
I litlum myndum er maður alltaf
að spara. ÖIl leikmyndin í Junk Maii
kostaði 400 þúsund íslenskar krón-
ur, hún var með eindæmum ódýr.
En aftur á móti var það á margan
hátt styrkur þeirrar myndar, þar
sem takmarkanirnar unnu með
manni og það var mjög fínt að vinna
þá mynd og góð stemmning í gangi.
Leikstjórinn Pál Sletaune er svo
elskulegur, en hann á hins vegar við
það vandamál að stríða að hann get-
ur ekki tekið ákvarðanir, eins og að
velja milli tveggja hluta sem ég rétti
honum.“
- En nú hefur leikstjórinn alltaf
lokaorðið í allri ákvarðanatöku?
„Hann hefur neitunarvald. En
þegar leikstjórar eru sjálfsöruggir
gera þeir sér grein fyrir því að þeir
hafa keypt sér sérfræðing til að sjá
um hönnunina, og treysta manni
fullkomlega. Samstarfið hefst á
skapandi umræðu, þá fæðast hug-
myndir sem eru jafn mikið mínar
sem leikstjórans og ég vinn eftir
þeim. Mitt starf er svona, það
byggist á samvinnu. T.d. í Breaking
the Waves ræddi ég við Lars í ná-
kvæmlega 25 mínútur. Og þar við
sat.“
Að endurskapa
raunsæja Ameríku
- Og eftir alla þessa súpu af leik-
stjórum, með hverjum myndirðu
helst vilja vinna aftur?
„Ja, ég held bara flestum, nema
kannski Liv Ullman. Nei, nei, ég
væri alveg til í að vinna aftur með
henni þótt okkur hafi lent saman.
Menn eru afskaplega misjafnir, en
ég hef aldrei kynnst leikstjóra sem
hefur verið beinlínis hræðilegur.
Mér hefur þótt gaman að vinna með
þeim öllum, og alltaf lært eitthvað
nýtt.“
- Nú ertu í „Dancer in the Dark“
með Lars von Trier. Er það ekki
spennandi verkefni?
„Mjög svo, ég get bara ekki talað
um það við þig, því við skrifum undir
þagnareið á meðan á gerð myndar-
innar stendur."
- Er gaman að vinna al'tur með
Lars?
„Já, já. Þetta er spennandi verk-
efni og erfitt, því við erum að endur-
skapa Ameríku, myndin gerist
nefnilega í Washington fylki. Nei, nú
er ég byrjaður að kjafta frá ...“
- En þetta er í það minnsta fyrsta
söngva- og dansamyndin þín?
„Já, það er ekkert gert af þeim
lengur. A.m.k. ekki í Evrópu. Fólk
er orðið svo kaldhæðið, og hefur
ekki lengur þessa fölskvalausu upp-
lifunarhæfileika eins og á tímum
Tónaflóðs. Sú mynd hrærði svo upp
í mér að ég var gagntekinn og grét.“
- Nú eru þetta mjög sérstakir
heimar sem söng- og dansamyndir
gerastí...
„I þessari er allt unnið út frá full-
komlega nöpru raunsæinu, ná-
kvæmlega eins og í Breaking the
Waves.
- Þannig að þú eri ekki að skapa
neinn furðuheim?
„Nei... þó, á vissan hátt, því þetta
eru ákaflega óvenjulegir staðir til að
láta söngleik gerast á.“
- En þú sérð ekki um búningana í
þeirri mynd?
„Nei, þegar myndirnar eru orðnar
svona stórar eru ekki nokkur vegur
að sjá um hvort tveggja. Það er fínt
að vera bara í leikmyndinni, þótt ég
hefði ekkert á móti því að gera bún-
inga líka. Ég hef nú stundum áhrif á
þá upp á liti og annað. Sviðsmyndin
er miklu fjölbreyttara verkefni og
efnin til að kljást við eru miklu fleiri.
Ekki bara textíl, heldur allur fjand-
inn; timbur, járn og gler, mold, gras
og nefndu það.“
Gott að kunna á saltfiskinn
„Seinasta mynd sem ég vann við
var Misery Harbour eftir Nils Gaup,
en hann gerði Vejviseren á sínum
tíma sem Helgi Skúlason lék í. Hún
var að hluta til tekin á Nýfundna-
landi, sem var mjög gajnan því Jjað
var eins og að fara til Islands. Ibú-
ai-nir eru ákaflega líkir Islending-
um. Þeir ráðast á mann og krefja
mann sagna um hve landið sé frá-
bært og telja sig miðpunkt alheims-
ins. Þai' reisti ég saltfiskverksmiðju,
og þá kom sér vel að hafa unnið tvö
sumur í saltfiski. Við þurftum
óhemju mikinn saltfisk sem er mjög
dýr, en viku áður en við fórum í tök-
ur, vorum við svo heppin að saltfisk-
verksmiðja brann, við fengum heil
bílhlöss af saltfiski og spöruðum
okkur 250 þúsund dollara í salt-
fiski.“
- Heldurðu að þú endir á gamals
aldri inni ískúr sem myndlistarmað-
ur sem býr til hluti úr öllum þessum
ólíku efnum?
„Ég er nú ekki með þau plön, ég
hugsa ekki svo langt. Eg fékkst við
myndlist á árum áður, en nú hvarfl-
ar það ekki að mér. Það er kannski
eins gott. Þó, hver veit, auðvitað
langar mann að taka frí og gera eitt-
hvað fyrir sjálfan sig. En það kemur
að því þegar kemur að því,“ segir
Karl Júlíusson sem er með báða
fætur á jörðinni og hendurnar á öll-
um fjandanum.
UR norsku myndinni Junk Mail, sem hlaut
verðlaun víða á kvikmyndahátíðum.
HAMSUN gerist í seinni heimsstyrjöldinni.
Max von Sydow í titilhlutverkinu.
LARS von Trier, Stellan Skarsgárd og Emily Watson í
raunsærri leikmyndinni í Breaking the Waves, en Karl
hlaut dönsku kvikmyndaverðlaunin fyrir hana.