Morgunblaðið - 16.07.1999, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999 17
FRÉTTIR
BM-Vallá gefur út 116 síðna handbók um hús og garða
Allar fram-
leiðsluvörur
í einni bók
BM-VALLÁ hefur gefið út 116 blaðsíðna hand-
bók sem ber heitið Hús og garðar 1999-2000.
Öll framleiðsla og þjónusta sem fyrirtækið veit-
ir er þar kynnt í máli og myndum, ásamt yfirlit-
um og korti af sýningarsvæði fyrirtækisins í
Fornalundi. I handbókinni er einnig að fínna
upplýsingar um framleiðsluferli, gæðastaðla
sem vörur BM-Vallár uppfylla, álagsfiokkun,
viðskiptaskilmála og annað sem svarar spurn-
ingum kaupenda. Sjaldgæft er að fyrirtæki gefi
út svo ýtarlega handbók fyrir viðskiptavini; oft-
ar eru upplýsingar gefnar í bæklingum sem eru
smærri í sniðum.
Samkvæmt upplýsingum Guðmundar Bene-
diktssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra BM-
Vallár, kemur handbókin út í kjölfar mikillar
vöruþróunar, breytinga á aðstöðu fyrirtækisins
og aukinnar þjónustu. „Okkur fannst við hæfi
að steypa saman í eina handbók öllu því sem
fyrirtækið býður upp á,“ segir hann. „Áhersla á
vörunýjungar er mikil en einnig höldum við
DÆMI um síðu í handbók BM-Vallár sem sýnir mögu-
leika á uppröðun auk ýmissa upplýsinga um miðalda-
hleðslustein.
áfram að styrkja þann grunn sem
fyrirtækið byggir á, eins og
steypuframleiðslu. Það er því
nauðsynlegt að kaupendur geti
kynnt sér á aðgengilegan hátt
allt sem við bjóðum upp á.“ Hann
kveður fólk einnig hafa vaxandi
áhuga á að fegra garða sína og
hús og því geti ýtarleg handbók
sem þessi auðveldað undirbúning
og val á vörum.
Allir starfsmenn þátttakendur
Handbókin kom formlega út
föstudaginn 9. júlí en gerð henn-
ar hefur verið í farvatninu frá
áramótum. Guðmundur segir alia
starfsmenn fyrirtækisins auk Ijós-
myndara, prentara, og auglýs-
ingateiknara hafa lagst á eitt við
að gera handbókina sem best úr
garði. „Það var vandað af kost-
gæfni til allra hluta og handbókin
endurspeglar í raun áherslur BM-
Vallár í gæðamálum," útskýrir
Guðmundur. Magnús Þór Jónsson
á auglýsingastofunni Idea sá um
uppsetningu og útlit handbókar-
innar en hún var prentuð í prent-
smiðjunni Odda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐMUNDUR Bcncdiktsson, að-
stoðarframkvæmdastjöri BM-Vallár.
Handbókin er í fjórum köfl-
um. „Kaflaskiptingin endur-
speglar vöruflokka og áherslu-
atriði BM-Vallár," segir Guð-
mundur. í fyrsta kafla kemur
fram hvaða vörur eru í boði fyr-
ir hús og byggingaframkvæmd-
ir en annar kafli er um garða og
umhverfisframkvæmdir. Fjöldi
mynda, sem flestar eru teknar
af Grími Bjarnasyni ljósmynd-
ara, sýna uppröðunarmöguleika
á m.a. steinflísum, hellum og
þakskífum. Einnig fylgja upp-
lýsingar um stærð, þyngd, verð
og liti auk fjölbreytilegra fróð-
leiksmola um vöruna. I þriðja
kafla er farið nákvæmlega í
gæðaeftirlit, staðla og birtar
staðfestar niðurst öður rann-
sókna á öllum vörum fyrirtækis-
ins. I Ijórða kafla eru svo sýnd-
ar nýjungar í vöruframboði,
vöruyfirlit og pöntunarferlið út-
skýrt.
Guðmundur kveðst hafa fundið
fyrir mjög góðum viðbrögðum
frá fólki vegna handbókarinnar
en hún liggur frammi á söludeild
BM-Vallár þar sem allir geta
fengið ókeypis eintak. Þeir sem
ekki eiga heimangengt geta hins-
vegar óskað eftir að fá hana
senda í pósti. Hann segir að
stefnt verði að endurútgáfu
handbókarinnar á hverju ári
enda sé stöðugt verið að bæta
framleiðsluna og því þurfi að
miðla til kaupenda.
FRÁ neðsta hluta Langadalsár við Djúp. Þar hefur veiði verið undar-
Iega dauf það sem af er.
Bærileg
byrjun í
Yesturdalsá
VEIÐI fór þokkalega af stað í Vestur-
dalsá í Vopnafirði, en hollið sem opn-
aði ána var við veiðar dagana 5.—8.júlí.
Að sögn Lárusar Gunnsteinssonar
sem var ásamt öðrum við veiðar var
veiðin „róleg“, en samt þokkaleg mið-
að við það sem búast má við í ánni á
þessum tíma sumars. Áin er talin síð-
sumarsá.
Alls veiddust 5 laxar og næsta holl,
sem lauk veiðum 11. júlí, veiddi tvo til
viðbótar. „Það var einn 18 punda og
hinir voru 10-12 pund. Lítið var af
bleikju, en þegar við fórum voru
göngur beggja að glæðast," sagði
Lárus enn fremur.
Hafralónsá að vakna
Erfitt ástand hefur verið í stórám
Þistilfjarðar það sem af er sumri, mik-
ill snjór hefur verið að bráðna í hlý-
indunum og ámar illveiðanlegar. Það
á einkum við um eystri árnar tvær,
Hafralónsá og Hölkná, en skaplegra
ástand hefur verið í Svalbarðsá og
Sandá. Ai-ni Baldursson var að koma
úr Hafralónsá og sagði hann veiðina
„rétt að byrja“ um þessar mundir.
„Ain hefur verið nánast óveiðandi
vegna vatnsmagns, en þetta var að
byija að ganga upp þegar ég var fyrir
austan. Á miðvikudag voru komnir
milli 30 og 35 laxar á land og ég full-
yrði að það sé afburðagott miðað við
aðstæður. Þetta eru líka allt ár sem
taka seinna við sér heldur en ár í öðr-
um landshlutum," sagði Árni. Laxarn-
ir voru allir 10 til 19 pund.
Fyrir skömmu var enn beðið eftir
fyrsta laxinum úr Hölkná, en að sögn
Jóns Hólm, leigutaka árinnar, höfðu
menn þó orðið laxa varir, m.a. hefðu
menn misst þrjá einn daginn fyrir
nokkru. .Ástandið hefúr verið ferlegt,
en það er að batna," bætti Jón við.
Holl sem nýlega var í Sandá fékk 9
laxa og næsti hópur á undan var með
fjóra, þannig að það er ekki beint mok
í vestanverðum Þistilfirðinum frekar
en austar.
Árni fékk
Miðfjarðará
Ami Baldursson, eigandi fyrirtæk-
isins Lax-á ehf., staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gærdag, að Veiðifélag
Miðfjarðarár hefði gengist við tilboði
hans í veiðirétt í Miðfjarðará næstu
sumrin.
Lífleg Korpa
Vel hefúr aflast í Korpu að undan-
fómu og að sögn Lámsar Gunnsteins-
sonar, eins leigutaka árinnar, hefur
mikill iax verið að ganga að undan-
fómu. Lax kemst enn aðeins fram að
stíflu neðan Vesturlandsvegar. Á
þriðjudagskvöld vom komnir 60 laxar
á land. Láms sagðist hafa verið sjálf-
ur í ánni á sunnudaginn og fengið
fimm laxa og 72 golfkúlur. Stærstu
laxamir vora 12 og 10 punda, sem
þykja nánast hvalir í þessari litlu
sprænu.
Frábært úrval
2
Geisladiskur, mús,
músarmotta, diskabox
og diskalímmiðar.
Móðurborð 2.990,
Módem 490,
Skjákort 490,
Netkort 490,
Lyklaborð 990,
Músarmottur 99,
Hljómfl.tæki 9.990,
DVDspilarar 34.990,
Tónlist 390,
Tölvuleikir 490,
Kaffikönnur 990,
Tölvur 39.990,
Orbylgjuofn
Forðntæki
Tölvuleikir
Otrúlegt úrval á óborganlegu verdi!
ÚTSALAHI
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020