Morgunblaðið - 20.07.1999, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 17
VIÐSKIPTI
Samskip segja skilið við þýska flutningafyrirtækið Bruno Bischoff Reederei
Óskað eftir greiðslu-
stöðvun fyrir félagið
SAMSKIP hafa ákveðið að draga sig
út úr þýska flutningafyrirtækinu
Bruno Bischoff Reederei sem félagið
eignaðist meirihluta í fyrir rúmlega
ári síðan. Óskað verður eftir
greiðslustöðvun fyrir félagið. Hins
vegar hafa Samskip stofnað eigið
dótturfélag í Þýs'kalandi sem þjón-
ustar áfram viðskiptavini félagsins á
svæðinu.
Þörf fyrir aukið eigið fé
Að sögn Ólafs Ólafssonar, forstjóra
Samskipa, er sá mikli samdráttur sem
hefur orðið á helsta markaðssvæði
Bruno Bischoff Reederei, þ.e. í Rúss-
landi, helsta ástæðan fyrir að Samskip
er að draga sig út úr þessum rekstri.
„Þá liggur fyrir að fyrirtækið þarf
aukið eigið fé til að geta staðið við all-
ar skuldbindingar sínar eins og þær
eru núna. Við höfum ákveðið að setja
ekki aukið eigið fé í þetta.
Við eðlilegar aðstæður, ef ekki
hefðu hvílt þessar gömlu skuldbind-
ingar á félaginu, hefði þetta ekki ver-
ið neitt tiltökumál. En hér er um að
ræða mjög flókna samninga, skipa-
leigusamninga, starfsmannasamn-
inga og lífeyrissjóðsskuldbindingar
sem ná einhverja tugi ára aftur í tím-
ann og það er ógjörningur að semja
við alla einstaklingana sem koma þar
að.“
Ólafur segir miklar eignir vera til í
félaginu en að ferlið sé
allt mjög flókið:
„Það er svo mikið af
skuldbindingum sem
ekki eru fallnar á félag-
ið en munu falla i fram-
tíðinni. Þess vegna er
ekki hægt að gera
þetta nema í formleg-
um farvegi. Það er
kominn skiptastjóri að
félaginu sem skoðar öll
gögn þess og samþykk-
ir þann gjörning sem
við höfum gert. Hann
mun síðan taka afstöðu
til málsins, hvemig
hann vill spila það
áfram á næstu 60 dög-
um. Hann gerir lánardrottnum fé-
lagsins tilboð um greiðslu á skuldum
félagsins og ef að það er samþykkt
þá lýkur þar með greiðslustöðvun fé-
lagsins eða, ef tilboð hans verður
ekki samþykkt, þá fer fyrirtækið í
gjaldþrotameðferð," segir Ólafur.
„Bischoff Gruppe samanstendur
hins vegar af mörgum félögum. Það
eru sjálfstæð félög sem munu starfa
áfram óáreitt. Þau eru hins vegar í
eigu Bruno Bischoff að hluta til og
eitt þeirra alfarið. Við drögum okkur
út úr Brano Bisehoff Reederei en
bjóðumst til að taka yfír þjónustuna
á siglingaleiðunum og leigjum hafn-
araðstöðuna í Bremen.
Einnig tökum við yfír
alla leigusamninga
skipa, skuldbindingar
vegna þeirra, allan
rekstur á siglingaleiðun-
um og leigjum til okkar
mannskap.“
Óvíst með siglingar
til Rússlands
Nýja dótturfélagið,
Samskip GmbH, er
100% í eigu Samskipa.
Það hóf formlega starf-
semi í gær, mánudag, í
Bremen.
„Félagið verður um-
boðsaðili fyrir Samskip
og fyrir Samskip Scandinavia, sem
er eignarhaldsfélag um siglingaleið-
ina. Það mun leigja hafnaraðstöðuna
og reka hana. Við munum straum-
línulaga starfsemina til muna og
gera hana eins og við höfum gert
annars staðar. Við gerum okkur von-
ir um að halda mjög stórum hluta
viðskiptanna. 85% þessara viðskipta
eru nú þegar stunduð á skrifstofum
okkar á Norðurlöndunum og í Rott-
erdam.
Við munum sigla á Finnland en
höfum ákveðið að draga verulega úr
siglingum til Rússlands og munum
taka afstöðu til þess fljótlega hvort
við hættum því alfarið eða hvort við
höldum því áfram með breyttu sniði
og minni tilkostnaði,“ segir Ólafur.
Umtalsvert
fjárhagstjón
Þegar Samskip keyptu meirihluta
í Bruno Bischoff Reederei fyrir um
ári síðan tvöfaldaðist velta félagsins
og var rúmlega 12 milljarðar króna
árið 1998.
„Við teljum að heildarviðskipti
lækki um 2 milljarða á ársgrundvelli,
úr 12 í 10, og við verðum fyrir um-
talsverðu peningalegu tjóni.
Hins vegar er þetta grunnurinn að
þeirri þjónustu sem við höfum byggt
upp í Evrópu, þær siglingaleiðir sem
við höfum stundað í gegnum Bruno
Bischoff. Þannig að það er það sem
við byggjum á.“
Baldur Guðnason hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Samskipa
GmbH og verður jafnframt áfram
framkvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs erlendrar starfsemi Samskipa.
Skrifstofa Samskipa í Bremen
verður sú fyrsta á vegum félagsins í
Þýskalandi. Eigin skrifstofur Sam-
skipa eru þar með alls 24 í 10 lönd-
um. Samskip og dótturfélög verða
eftir breytinguna með 8 áætlunar-
skip í rekstri á milli áfangastaða í
Evrópu og fjögur skip að auki í áætl-
unarsiglingum tengdum Islandi
Ólafur Ólafsson
Korl hf.
ræður fram-
kvæmdastjóra
• Hörður Helgason hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Korts hf.
Hörður er viöskiptafræðingur frá
Háskóla íslands. Hörður hefur
meðal annars gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra markaðssviös OLÍS
og var síðar aðstoóarforstjóri fyrir-
tækisins. Hörður er fyrrum fram-
kvæmdastjóri Baugs (nú Aðföng).
Hann hefur undanfarið stýrt mark-
aðsmálum hjá
Borgarplasti hf.
Hörður er kvæntur
Dórótheu Jó-
hannsdóttur, mat-
væla- og hagfræð-
ingi. Þau eiga
þrjár dætur.
Kort hf. er nýtt
þjónustufyrirtæki
sem starfar á sviði rafrænnar
greiðslumiðlunar og fjármálaþjón-
ustu.
Hluthafar í Korti hf. eru eftirfar-
andi: Baugur hf., Blómaval hf.,
Fjarðarkaup hf., Húsasmiðjan hf.,
Kaupás hf., KEA, Kaupmannasam-
tök íslands, Landssimi íslands hf.,
NTC hf., Olíufélagið hf., Olíuversl-
un íslands hf., Opin kerfi hf.,
Rafha hf., Samkaup hf., Sjóvá-AI-
mennar tryggingar hf., Skeljungur
hf., Skýrr hf., Smartkort ehf.,
Tékk-Kristall hf. og Vátryggingafé-
lag íslands hf.
Stjórnarformaöur Korts hf. er Sig-
urjón Pétursson hjá Skýrr hf. Aðrir í
stjórn eru Ólafur B. Thors varafor-
maður, Sjóvá-Almennum tryggingum
hf., Jón Snorrason, Húsasmiðjunni
hf., Frosti Bergsson, Opnum kerf-
um hf., Þorsteinn Geirsson, Smart-
kortum ehf., og Samúel Guðmunds-
son frá OLÍS.
Flíspeysa og gönguskór saman
20% afsláttur NÚNA
af Karrimor Rona flíspeysu
og Scarpa Main gönguskóm
þegar hvort tveggja er keypt
Verð áður 14.870 kr.
Nú I 1.896 kr.
Veldu RETTA tímann
til að klæða þig vel.
Hclldsöludreifing
Fæst í helstu sportvöruverslunum um land ol/t