Morgunblaðið - 20.07.1999, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
Skessuhnoðri er með hæstu hnoðrum. Hér sést hann (fyrir
miðju) ásamt fleiri fjölæringnm.
SKESSUHNOÐRI
- Rhodiola
semenowii
HUNDADAGAR eru hafnir,
þannig að við verðum að viður-
kenna að komið er fram yfír mitt
sumar. Ari garðsins má skipta í 4
skeið líkt og almanakssárinu og
tala um vor-, sumar-, haust- og
vetrargarð, en aðrir vilja þó nota
skilgreiningamar snemmsumar-
og síðsumargarð. Hvaða orð sem
við tökum okkur i munn skiptir
ekki öllu, en garður-
inn hefur skipt mjög
um svip frá því í vor.
Þá voru laukjurtir
mjög áberandi,
krókusar og aðrir
smálaukar eru löngu
horfnir og ekkert
eftir af páskaliljum
eða túlipönum annað
en blöðin. Sjálfsagt
er að leyfa blöðum
smálaukanna og
páskaliija að sitja
sem lengst, eða
þangað til þau fara
verulega að gulna og
visna, til að tryggja
að góðir blómlaukar
nái að myndast, sem
geta glatt augað að ári, en skipt-
ar skoðanir eru á hvað gera skuli
við túlipanana. Flestir grafa upp
laukana að lokinni blómgun og
henda, en sumir brjóta af fræv-
una og leyfa lauknum að safna í
sig forða til næsta sumars, þótt á
mörkunum sé að hér sé nógu
hlýtt fyrir túlipana að mynda
góða blómlauka aftur, en það er
þó breytilegt eftir tegundum.
Mestu máli skiptir að haga svo
til í garðinum að ekki komi í
hann skellur, þótt einhver jurt
hafi lokið blómgun og jafnvel
visnað alveg niður. Því er gott að
láta jurtir með mikinn blaðvöxt
vaxa nálægt vorblómstrandi
laukum. Eins þarf að raða saman
jurtum með mismunandi blómg-
unartíma, þannig að alltaf sé
eitthvað sem gleður augað. En
það að raða saman blómum í beð
er nokkuð sem maður lærir
smám saman og ekki er alfarið
unnt að treysta bókum hvað
varðar upplýsingar um hæð eða
blómgunartíma. Skilyrði í görð-
um eru misjöfn og jafnvel er eins
og plöntum „Iyndi“ misvel. Það
er sjálfsagt ýmsum farið eins og
mér að margar af mínum plönt-
um eru nánast á „faraldsfæti"
fyrstu árin, þangað til þær fá
sinn fasta samanstað.
Þær plöntur sem setja hvað
mestan svip á steinbeð síðari
hluta sumars eru margar af
hnoðraættkvíslinni, Sedum. Svo
lítillega sé minnst á ættfræði
plantna, tilheyra hnoðrarnir
helluhnoðraættinni, sem er stór,
með meira en 1300 tegundir.
Þeir hnoðrar, sem fyrstir
blómstra í mínum garði, hafa þó
verið skomir frá hnoðrunum -
Sedum - og gefið nýtt nafn -
Rhodiola, eða svæfla. Þessa með-
ferð hafa hlotið a.m.k. 50 tegund-
ir, og er burnirótin okkar ís-
lenska ein þeirra. Þó eru alls
ekki allir sammála þessari ætt-
fræði og í mörgum garðyrkju-
bókum eru svæflurnar skráðar
sem hnoðrar.
En þama lenti ég dálítið út af
sporinu. Svæflurnar, sem ég ætl-
aði að minnast á, bera nöfnin
skessuhnoðri - R.
semenowirii - og
tröllahnoðri - R.
kirilowii. Þessi nöfn
eru lýsandi fyrir
stærð blómanna, því
þeir félagar era mun
hærri en flestir
hnoðrar, svo háir að
þeir eiga mun betur
heima í fjölæringa-
beði en steinhæð.
Tröllahnoðri, sem
getur orðið allt að
60-80 sm, blómgast
hjá mér í júní, en í
venjulegu sumri ætti
skessuhnoðrinn að
vera í blóma núna.
Minn verður þó dá-
lítið seinni til, ég flutti hann til í
vor, svo hann nyti betur birtu og
sólar, en síðan hefur rignt og
rignt, og nú horfum við Sunn-
lendingar fram á rigningu út
hundadagana eða hvað. Skessu-
hnoðrinn er 30-60 sm hár, a.m.k.
í mínum garði, en í bókum stend-
ur, að hann geti orðið allt að einn
metri, svo maður fer nú að skilja
nafngiftina íslensku. Þessi hái
blómstöngull vex upp af gildum
og kjötkenndum jarðstönglinum,
sem liggur alveg í yfirborði jarð-
vegsins, þannig að snemma vors
getur hann orðið fyrir hnjaski ef
hreinsunaráhuginn er að gera út
af við garðeigandann. Blóm-
stönglamir era alsettir ljós-
grænum laufblöðum, sem era
löng og mjó og heilrennd. Blöðin
era dálítið þykk og safamikil. Á
enda stöngulsins er svo blóm-
skipunin, langur klasi, 10-15 sm,
af hvítleitum, 5-skiptum blóm-
um, sem taka á sig bleikleitan lit
með aldrinum, þegar fræhnýðin
þroskast. Þessa stóra blóm-
stöngla er gaman að þurrka og
nota í skreytingar. Skessuhnoðri
er langt að kominn, hann er að
upprana Asíubúi, ættaður frá
Turkestan, sem var eitt af Sov-
étlýðveldunum, ef mig misminnir
ekki stórlega. Þrátt fyrir þessi
fjarlægu heimkynni hefur hann
reynst ágætlega harðgerður á
Islandi og hefur verið hér í rækt-
un í marga áratugi þótt hann
hafi aldrei orðið veralega algeng-
ur. Honum er auðvelt að fjölga
með skiptingu eða sáningu en
fræ af honum er pftast á frælista
Garðyrkjufélags Islands.
BLðM
VIKUMAR
413. þáttur
l)msjón Sigríður
lljartar
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-13
frá mánudeg'i til föstudags
Njála eða
Njálssaga
ÉG VAR ung þegar ég
heillaðist af Njálssögu.
Nú er búið að brengla svo
nafn hennar að mig sker í
hjartað og get því ekki
lengur orða bundist.
Brennu-Njálssaga, eins
og hún er nefnd nú til
dags. Var Njáll á Berg-
þórshvoli þá brennuvarg-
ur? Hvað hefur farið fram
hjá mér í æsku og enn
þann dag í dag? Brenndi
hann inni sjálfan sig,
konu sína, dótturson og
syni?
Eftir nafninu hlýtur það
að vera. Brennuvargur,
Brennu-Njáll, hver er
munurinn? Öðru máli
gegndi ef að Njáll væri
forskeytið og sagan hefði
hlotið nafnið Njáls-
brennusaga fyrst gamla
nafninu þurfti að breyta.
Ég hefði gjama viljað
eignast nýjustu útgáfu
bókarinnar, en Brennu-
Njálssaga verður aldrei í
mínu bókasafni.
Bestu kveðjur,
Jóna S. Gísladóttir,
Arnartanga 63.
SD-smyrslið
MIG langar að minna fólk
á SD-smyrslið. Ég var
með mikinn þurrk og
sprungur í húðinni þar
sem ég vinn við smíðar.
Ég keypti mér þennan
áburð og prófaði eftir að
vinur minn benti mér á
hann. Það leið ekki meira
en vika frá því ég byrjaði
að bera á mig, kvölds og
morgna, þar til húðin á
mér var orðin mjúk eins
og á ungbami.
Grétar Páll
Aðalsteinsson.
Þakkir
ÉG VIL senda starfsfólki
á kvennadeild Landspítal-
ans á deild 22b þakkir
mínar, og þá sérstaklega
ljósmæðranum Naseha,
Ásu og Helgu, fyrir frá-
bæra þjónustu og mikla
færni í starfi. Kærar
þakkir.
Helga Nína.
Baukar og símakort
óskast
GAMLIR kakóbaukar eða
annars konar box/baukar
óskast. Einnig er óskað
eftir notuðum símakort-
um. Vinsamlega hafið
samband við Rúnu í síma
452 2767.
Tapað/fundið
Gullhringur með glær-
um steini týndist
GULLHRINGUR,
munstraður með glærum
steini, týndist, líklega í
vesturbæ eða miðbæ, 25.
eða 26. júní. Hringurinn
hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eiganda. Fund-
arlaun. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
552 1640 eða 552 0064.
Snyrtitaska í óskilum
DRAPPLITUÐ Romella-
snyrtitaska með herr-
arakdóti og snyrtivörum
merkt GB gleymdist í far-
angursgeymslu leigubíls
fyrir hálfum mánuði. Eig-
andi getur haft samband í
síma 853 9218 og
893 9218.
Myndavél týndist
MYNDAVÉL, svört
Olympus, týndist á FM
tónleikunum í Laugar-
dalshöll inni á kvennakló-
settinu. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
567 6255 eða 697 6053.
Dýrahald
Kettlingur fæst gefins
2JA mánaðar kettlingur,
fress, fæst gefins. Upplýs-
ingar í síma 565 1443.
Fress týndist frá
Seljahverfi
BRÚNBRÖNDÓTT fress
týndist vegna flutnings
frá Seljahverfi. Hans er
sárt saknað. Hann gefur
hafa farið í hvaða átt sem
er svo ef einhver hefur
orðið var við hann vinsam-
lega látið vita í síma
557 8451 eða 863 8509.
Víkverji skrifar...
LANDSMÓTI skáta lýkur á
Úlfljótsvatni í dag en það hefur
staðið frá því á þriðjudaginn í síðustu
viku. Mörg þúsund skátar, bæði inn-
lendir og erlendir, hafa dvalið þar í
góðu yfirlæti og skemmt sér saman
enda landsmótið hápunkturinn í
skátastarfinu.
Sonur Víkverja er meðal þeirra
mörgu sem voru á mótinu og var
spenningurinn mikill fyrir mótið. Er
þetta fyrsta landsmótið sem hann fer
á og er fullvíst að þau eiga eftir að
verða fleiri í framtíðinni. Féllu utan-
landsferðir og önnur ferðalög algjör-
lega í skuggann af landsmótinu í huga
skátans unga dagana fyrir mótið.
Eitt vakti sérstaka athygli og
ánægju Víkverja varðandi mótið og
undirbúning þess en það var vefsvæði
skátahreyfingarinnar. Á www.scout.is
er hægt að fylgjast með því í máli og
myndum hvað skátamir eru að bralla
á mótinu. Er þetta frábær þjónusta
við þá sem heima sitja og þá ekki síst
þegar íslenskir skátar hafa verið að
fara á mót erlendis. Að foreldrar og
aðstandendur geti íylgst með gangi
mála og séð að allt fari vel fram. Á
skátahreyfingin þakkir skildar fyrir
þetta framtak.
Víkverji brá sér vestur á land um
síðustu helgi. Á föstudagsnóttina gisti
hann á Hótel Búðum og naut þar
góðrar þjónustu að flestu leyti. Aftur
á móti var eitt sem ekki var alveg að
hans skapi l£kt og hjá mörgum öðram
sem gistu á hótelinu þessa nótt en það
var hversu snemma morgunverðinum
lauk eða klukkan tíu um morguninn.
Það vora ekki bara morgunsvæfir
íslendingar sem vora ósáttir við að
geta ekki fengið brauðsneið eftir að
klukkan sló tíu heldur voru útlending-
ar sem dvöldu á hótelinu mjög ósáttir
við þessa þjónustu. Kvörtuðu þeir
sáran yfir að hafa staðið í biðröð eftir
því að komast í sturtu um morguninn,
þar sem herbergin eru ekki með baði,
og þar af leiðandi ekki náð í morgun-
verðinn fyrr en um tíuleytið.
Þeir sem náðu niður rétt áður en
morgunverðinum lauk náðu ekki einu
sinni að borða fylli sína þar sem
hreinsað var af borðinu á slaginu tíu.
Á laugardagsnóttina gisti Víkverji
á Hótel Flókalundi. Þar var annað
upp á teningnum á sunnudagsmorgn-
inum. Morgunverðurinn stóð til
klukkan 10:30 en ekki var tekið af
borðinu fyrr en allir þeir sem komu í
morgunverð höfðu yfirgefið veitinga-
salinn. Allt viðmót starfsfólks var til
íyrirmyndar og er öruggt að Víkveiji
á eftir að mæla með gistingu þar við
vini og kunningja.