Morgunblaðið - 07.08.1999, Qupperneq 14
H-
14 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
- 4^0' %
V % * * *
\ * - * * ••
■4 % 0
'
i* : *
<• * £
1 *
* * *
Kertafleyting við Minjasafnið
RÚM hálf öld er liðin frá því að atóm-
sprengjum var varpað í fyrsta sinn.
Til að minnast fórnarlamba kjarn-
orkuárása á Hírósíma og Nagasaki 6.
og 9. ágúst árið 1945 verður staðið
fyrir kertafleytingu við Minjasafnið á
Akureyri mánudaginn 9. ágúst nk.
í fréttatilkynningu frá Rósu Egg-
ertsdóttur, sem er í forsvari fyrir at-
höfninni, kemur fram að sprengjurn-
ar hafi skilið eftir sig örkuml, dauða
og sviðna jörð. Enn vofí hættan af
kjarnorkuvopnum yfír og að reglu-
lega séum við minnt á að víða um
heim búi fólk enn við hörmungar
stríðs. Nauðsynlegt sé að halda
merki friðar á lofti.
Safnast verður saman fyrir fram-
an Minjasafnið kl. 22.30 nk. mánu-
dagskvöld.
Festu kaup á fískvinnslufyrirtækinu Árnesi á Dalvík
Hef trú á fyrirtækinu
ÞÓRUNN Þórðardóttir á Dalvík og
Ivar Baldursson á Akureyri hafa fest
kaup á fiskvinnslufyrirtækinu Ár-
nesi á Dalvík, en það var áður í eigu
samnefnds fyrirtækis í Þorlákshöfn
og Granda. Þórunn sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að hún hefði
trú á þessu fyrirtæki. Hún sagðist
hafa starfað hjá fyrirtækinu í tvö ár
samhliða þvi að hún var í fiskvinnslu-
skólanum á Dalvík. Að sögn Þórunn-
ar hyggja nýju eigendurnir ekki á
breytingar að svo stöddu en þau hafa
fulla trú að þetta fyrirtæki hafi alla
burði til að standa sig í nútíma sjáv-
arútvegi. Nýja fyrirtækið mun bera
nafnið Dalmar ehf.
„Forsagan að því að ég ákveð að
kaupa þetta fyrirtæki er að ég vann
við þrif hér í tvö ár með skóla, en ég
var þá í Fiskvinnsluskólanum. Mér
leist vel á fyrirtækið og reiknaði
dæmið þannig að það væri hægt að
reka það með hagnaði þó að það
þurfi að kaupa allan fiskinn á mörk-
uðum,“ sagði Þórunn.
Aftur í heimabyggð
Þórunn segir að fyrirtækið sé aft-
ur komið heim í heimabyggð ef svo
megi segja. „Þetta er gamalgróið
íyrirtæki sem fyrrverandi tengda-
faðir minn rak einu sinni. Ég þekki
þetta fyrirtæki því frá fornu fari þó
að auðvitað hafi það nú breyst síð-
an,“ sagði Þórunn.
Mannauðurinn gildir
Þórunn segir að meðeigandi
hennar í fyrirtækinu, Ivar Baldurs-
son, hafi eitt sinn verið frystihús-
stjóri á Dalvík og hún sé honum
kunnug síðan þá. „Hann reif upp
frystihúsið á þeim tíma sem hann
starfaði hér og líkt og ég hefur hann
trú á fyrirtækinu. Þórunn segir að
þau séu heppin með starfsfólk. „Við
erum með mjög gott og hæft starfs-
fólk og án þess væri ekki hægt að
reka fyrirtækið, það er mannauður-
inn sem skiptir máli,“ sagði Þórunn.
Þórunn sagði að þau mundu
kaupa allan fisk af mörkuðum og
frystitogurum. „Við munum vinna
flatfisk, líkt og hefur verið gert en
bæta tindaskötunni inn í. Síðan
munum við selja nokkuð af fram-
leiðslu okkar milliliðalaust, sagði
Þórunn. Hún sagði að þau hygðust
ekki breyta rekstri fyrirtækisins
neitt að svo stöddu, en aldrei væri
hægt að spá langt fi-am í tímann í
sjávarútvegi.
Þétt þoka lá yfir Akureyri
GAMALT ævintýri segir að þokan sé
prinsessa í álögum og hún muni aldrei losna
úr þeim fyrr en allir menn hætta að bölva
þokunni. Enn virðist prinsessan vera í álög-
unura því undanfarna daga hafa íbúar á
Akureyri og við utanverðan Eyjafjörð vaknað
upp í þéttri þoku sem hefur ekki hopað fyrr
en líða tekur á daginn. í gær lá þokan sem
teppi yfir bænum en bjart veður var upp á
fjöllum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir
glögglega. Þokan hefur valdið seinkunum á
flugi og að sögn Árna Sigurðssonar hjá Veð-
urstofu íslands er einhver von til þess að þok-
an hætti að hrella Eyfirðinga um helgina, en
ekkert sé þó öruggt í þeim efnum.
Ástæðuna fyrir því hvernig þokan liggur
yfir bænum segir Árni vera að hlýtt loft yfir
landinu og kalt loft í neðri lögum ná ekki að
blandast og þess vegna geta menn labbað upp
úr þokunni í orðsins fyllstu merkinu. „Það er
hæðarhryggur yfir Iandinu og honum fylgir
hlýtt loft. Hins vegar er norðlægur vindur
sem hefur borið kalt og rakt loft, sem Iiggur
alveg við hafflötinn, upp að landinu og inn á
firðina fyrir norðan. Ut af þessu hlýja lofti
sem liggur yfir landinu á sér ekki stað nein
blöndun milli lofttegunda. Kalda Ioftið þarf
að hitna til að það geti stigið upp og blandast
hlýja Ioftinu. Þess vegna er það sem þokunni
Iéttir frekar seinni part dags þegar sólin hef-
ur skinið nógu lengi og hitað kalda loftið
upp,“ sagði Arni.
Árni segir að þokan hérna í Eyjafirði sé
króuð inni af fjöllunum og heita loftið pressi
hana svo niður og þannig liggur hún svo yfir
bænum eins og hún gerði í gærmorgun. Árni
segir að til þess að þokan hætti að hrella
Akureyringa verði vindáttin að snúast. „Það
getur verið að á morgun blási hlýr vindur út
Morgunblaðið/Kristján
ÞOKAN Iá sem teppi yfir bænum í gærmorgun en bjart var yfir á skiðasvæðinu f Hlíðarfjalli
þar sem þessi mynd var tekin.
Eyjafjörðinn og reki þá þokuna út á sjó. Aft-
ur á móti getur hafgolan alltaf snúist til varn-
ar, það verður bara koma í ljós,“ sagði Árni.
Flugsamgöngur voru nokkuð settar úr
skorðum í gærmorgun vegna þokunnar. Að
sögn Ingvars fvarssonar hjá Flugfélagi ís-
lands komst fyrsta vél ekki í loftið á Akureyri
fyrr en tuttugu mínútur yfir átta en á alla
jafna að fara hálf átta. Fyrsta vélin frá
Reykjavík tafðist einnig í nær tvo tíma. Að
sögn Ingvars er erfiðara að Ienda þegar þok-
an liggur svona lágt og þétt yfir bænum, en
flugvélar sem fari frá Akureyri fijúgi fljót-
lega upp úr þokunni. Ingvar sagði að flugið
væri á áætlun þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í hádeginu í gær.
Hjá íslandsflugi fengust einnig þær upplýs-
ingar að seinkun hefði orðið á flugi til og frá
Akureyri í morgun, en búið var að vinna upp
þá seinkun laust upp úr hádeginu.
Akurevrarbcer
Akurevrarbcer
W 30 km hverfi á Akureyri Kynningarfundur W Samþykkt deiliskipulag Deiliskipulag á reit 1 við Holtateig á Eyrarlandsholti
Skipulagsnefnd Akureyrar stendur frammi Bœjarstjórn Akureyrar samþykkti hinn
fyrir almennum kynningarfundi í Safnaðar- 20. júlí 1999 deiliskipulag á reit 1 við
heimili Akureyrarkirkju miðvikudaginn 11. Holtateig á Eyrarlandsholti.
ágúst kl. 20 þar sem kynnt verður áœtlun Deiliskipulagið ncer til reits sem af-
um lœkkun hámarkshraða í íbúðahverfum markast af Holtateig að sunnan, Mýr-
bœjarins í 30 km á klst. arvegi að austan og grœnu svœði
Á fundinum munu Vilborg Gunnarsdóttir sunnan Hörpulundar að norðan. Á
formaður skipulagsnefndar, Árni Ólafsson, svœðinu er gert ráð fyrir rað- og par-
skipulagsstjóri og Gunnar H. Jóhannesson, húsum á einni hœð. Á skipulags-
deildarverkfrœðingur greina frá áœtlun svœðinu verða samtals 27 íbúðir.
um 30 km hverfi á Akureyri. Deiliskipulagið var auglýst skv. gr. 6.2.3.
Sérstaklega verður fjallað um svœðið í skipulagsreglugerð 28. aprO-9. júní sl.
sunnan Þingvallastrœtis og austan Þór- Engar athugasemdir bárust. Deiliskipu-
unnarstrœtis auk innbœjar en þar eru fyrir- lagið tekur gildi við auglýsingu í B-deild
hugaðar framkvœmdir við gatnakerfið og Stjórnartíðinda 10. ágúst 1999.
umferðarhraðann og reynslu af samskonar
aðgerðum í öðrum sveitarfélögum hér- Frekari upplýsingar eru veittar á skipu-
lendis sem og erlendis. lagsdeild Akureyrar.
Fundurinn er öllum opinn.
Skipulagsstjóri Akureyrar Skipulagsstjóri Akureyrar
Frá bæjar-
ráði Ólafs-
fjarðar
BÆJARRÁÐ Ólafsfjarðar hefur
sent frá sér eftirfarandi ályktun:
„Bæjarráð Ólafsfjarðar bendir á að í
litlu sveitarfélagi eins og Ólafsfirði,
þar sem atvinnulíf er einhæft, er
hvert einasta starf dýrmætt. Það er
því mikið áfall fyrir bæjarfélagið
þegar fyrirtæki segir upp fólki og
fólkið hefur ekki að neinu öðru að
hverfa.
Bæjarráð Ólafsfjarðar lýsir yfír
áhyggjum sínum vegna uppsagna
starfsfólks í landvinnslunni í Ólafs-
firði og skorar á stjómvöld að leita
allra leiða til að leysa vanda land-
vinnslunnar og efla atvinnulíf og bú-
setuþróun á landsbyggðinni."
-----------------------------
Kaffísala á
Hólavatni
I
KFUM og K standa fyrir kaffisölu í
sumarbúðum sínum á Hólavatni á
morgun, sunnudag, og hefst hún kl.
14:30 og stendur til kl. 18. í sumar
hafa hópar drengja og stúlkna dvalið
á Hólavatni undir stjórn sr. Hildar
Sigurðardóttur, sr. Jóns Armanns
Gíslasonar og Fjalars Einarssonar.
Venja er að starfinu ljúki með kaffi-
sölu og er hún mikilvægur þáttur í
fjáröflun sumarbúðanna, segir i
fréttatilkynningu frá sumarbúðunum.
Kaffisalan hefur verið vel sótt
undanfarin ár, segir í fréttatilkynn-
ingu og gefur hún velunnurum
starfsins og öðrum tækifæri á að
koma að Hólavatni og skoða sumar-
búðirnir sem standa í fallegu um-
hverfi frammi í Eyjafirði.
--------♦-♦-♦--------
Suðurbyggð-
arhátíð
SUÐURBYGGÐARHÁTÍÐ verður
haldin á leikvellinum í Suðurbyggð í
dag. Þar koma saman fnimbyggjar,
fyrrverandi og núverandi íbúar, börn
og barnabörn og skemmta sér í fót-
bolta, landaparís, slábolta og fallinni
spýtu frá kl. 16.
Grillað verður kl. 18 og spilað
verður á harmonikkur en plötusnúð-
ur skemmtir börnum og unglingum.
------♦-♦-♦-----
Milljóna-
mæringarnir
í Sjallanum
MILLJÓNAMÆRINGARNIR
halda stórdansleik í Sjallanum á
Akureyri í kvöld, laugardaginn 7.
ágúst. Með í för verða stórsöngvar-
arnir Páll Óskar, Bjarni Ara og
Raggi Bjarna.
Þetta er í fyrsta skipti í tvö ár sem
Milljónamæringarnir koma fram á
Akureyri og einnig í fyrsta skipti
sem sveitin mætir með þrjá söngv-
ara á dansleik.
4