Morgunblaðið - 07.08.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 15
Morgunblaðið/Kristján
FÆREYSKA skipið Vitin hreinsar innsiglinguna í Sandgerðisbót.
Dýpkun Fiski-
hafnarinnar lokið
FÆREYSKA dýpkunarskipið Vitin
hefur lokið framkvæmdum í Fiski-
höfninni á Akureyri en er þessa
dagana að vinna við viðhaldsdýpkun
við ýmis hafnarmannvirki á Ákur-
eyri. Hörður Blöndal hafnarstjóri
Hafnasamlags Norðurlands sagði
að hreinsað hafi verið á svæðinu
framan við Útgerðarfélag Akureyr-
inga, framan við flotkvína hjá Slipp-
stöðinni, við smábátabryggjumar í
Sandgerðisbót og að síðustu yrði
hreinsað við löndunarbryggjuna í
Krossanesi.
Eins og komið hefur fram urðu
miklar skemmdir og mifljónatjón er
grófst undan þilinu við austurkant
Fiskihafnarinnar og þekjan félf nið-
ur á um 60 metra kafla. Óhappið
varð er Vitin vann þar við dýplöm
fyrr í sumar. Hörður sagði að beðið
væri skýrslu frá sérfræðingi Sigl-
ingastofnunar og að í kjölfarið yrði
farið í samningaviðræður við trygg-
ingafélag færeyska skipsins á
grundvelli hennar.
Nauðsynlegt að koma
kantinum í notkun
Hörður sagði ljóst að verkið
þyrfti að vinna í tvennu lagi, þar
sem varla verði hægt að steypa nýja
þekju fyrr enn næsta vor. „Miðjan
úr bryggjunni hefur verið ónothæf
frá því óhappið varð og það er því
nauðsynlegt að geta hafið viðgerð
sem fyrst, fylia upp með efni og
loka gatinu, þannig að hægt verði
að taka viðlegukantinn í notkun.
Hins vegar verður ekki hægt að
ljúka fullnaðarviðgerð fyrr en
næsta vor,“ sagði Hörður.
Opnun fímm
myndlistarsýninga
Á MORGUN, laugardag, verða opn-
aðar fimm myndlistarsýningar á
vegum Gilfélagsins á Akureyri.
Sýningamar fímm verða í Ketilhúsi,
Deiglunni, Café Karólínu og Sam-
laginu Listhúsi.
f Ketilhúsi, aðalsal, verður sýn-
ingin „Stælar" opnuð kl. 16. Það er
sýning átta myndlistarmanna,
þeirra Þórarins Blöndals, Hallgríms
Ingólfssonar, Gunnars Kr. Jónas-
sonar, Aðalsteins Svans, Hlyns
Helgasonar, Guðmundar Armanns
Sigurjónssonar, Völku og Guðnýju
Krjstmanns.
í Ketilhúsi, jarðhæð, sýnir lista-
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA:
Guðsþjónusta verður á morg-
un, sunnudag, kl. 11, sr.
Svavar A. Jónsson messar.
Morgunbæn á þriðjudaginn
kl. 9 og kyrrðar- og fyrir-
bænastund verður í hádeginu
á fimmtudag, kl. 12.
GLERÁRKIRKJA: Kvöld-
guðsþjónusta sunnudaginn 8.
ágúst kl. 21. Sr. Hannes Örn
Blandon prófastur þjónar fyr-
ir altari.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund í kvöld kl. 20.
„Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar“ á morgun kl. 11:30.
Kennsla fyrir afla aldurshópa,
Indriði Kristjánsson predikar.
Hann mun einnig predika á
vakningasamkomu kl. 20 um
kvöldið. Alla morgna kl. 6:30
em bænastundir.
HJÁLPRÆÐISHERINN,
Hvannavöllum 10: Á morgun,
sunnudag, verður almenn
samkoma kl. 20.
KAÞÓLSKA KIRKJAN,
Eyrarlandsvegi 26: Messa í
dag kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11.
smiðjan New Remote sýningu er
ber heitið „Endanlegar niðurstöð-
ur“. New Remote hefúr starfað í
Ketilhúsinu að undanfömu og verð-
ur afrakstur starfseminnar sýndur
á myndbandi sem til varð í smiðj-
unni.
í Deiglunni opnar Sibbajóa mál-
verkasýninguna ,Auga aðkomu-
mannsins" kl. 16.
Á Café Karólínu geta gestir kaffi-
hússins skoðað sýningu Freyju Ön-
undardóttur á opnunartíma kaffi-
hússins.
í Samlaginu Listhúsi opnar Ein-
ar Helgason sýningu kl. 14.
Gullöld íslenskrar
kirkjulistar
Fyrirlestur
í Zontasalnum
ÞÓRA Kristjánsdóttir listfræðingur
heldur fyrirlesturinn; Gullöld ís-
lenskrar kirkjulistar, sunnudaginn 8.
ágúst. Fyrirlesturinn er haldinn í
Zontasalnum, Aðalstræti 54 á Akur-
eyri og hefst kl. 14.
Tilefnið er sýning frá Þjóðminja-
safni íslands sem nú stendur yfir í
Minjasafninu á Akureyri en þar em
sýndir nokkrir dýrgripir úr eyfirsk-
um kirkjum. Þóra mun fjalla um
helstu dýrgripi úr kaþólskum sið sem
varðveist hafa úr norðlenskum kirkj-
um og um kirkjulistamenn fyrri alda.
Aðgangur að fyrirlestrinum er
ókeypis og em allir velkomnir.
-------»-M-----
Síðasta
sýningarhelgi
FRAMUNDAN er síðasta sýningar-
helgi Listasafnsins á Akureyri á
málverkum Þorvalds Skúlasonar og
skúlptúmm Aðalheiðar S. Eysteins-
dóttur. Sýningunum lýkur á sunnu-
daginn 8. ágúst kl. 18 en safnið er
opið frá kl. 14 til 18.
______________LANDIÐ_____________
Minnisvarði um Sigvalda Kalda-
lóns afhjúpaður við Kaldalón
Skjaldfönn - Minnisvarði um Sig-
valda Kaldalóns, tónskáld og
lækni, var afhjúpaður laugardag-
inn 31. ágúst á Seleyri í Kaida-
lóni við Isafjarðardjúp. Minnis-
varðinn er eftir Pál Guðmunds-
son á Húsafelli og sýnir hliðar-
mynd af Sigvalda við flygilinn
sem hann fékk að gjöf frá sveit-
ungum sfnum árið 1919.
Sigvaldi bjó á bænum Ármúla
rétt sunnan Kaldaións og starfaði
þar sem héraðslæknir á árunum
1910-1921. Fyrir nokkrum árum
kviknaði sú hugmynd hjá „Lell-
unum“ að reisa Sigvalda minnis-
varða. „Lellurnar" er samstilltur
hópur 25 kvenna sem hittast
reglulega í leikfimi, ferðalögum
og öðru skemmtilegu, en innan
þessa hóps er m.a. ein af mörg-
um núverandi eigendum Ármúla,
Birna Hreiðarsdóttir, og barna-
barn Kaldalóns, Ester Kaldalóns.
Með miklum stuðningi velvildar-
fólks, fyrirtækja, ættingja og eig-
enda Ármúla tókst þeim að koma
hugmynd sinni í framkvæmd.
Þar sem Sigvaldi Kaldalóns
starfaði sem læknir á Hólmavík
þótti sjálfsagt að hafa stutta at-
höfn í Hólmavíkurkirkju áður en
farið var að minnisvarðanum
sjálfúm. Afkomendur Sigvalda
höfðu veg og vanda af athöfninni
í kirkjunni. Þar spilaði sonarson-
ur hans, Sigvaldi Kaldalóns, á pí-
anó undir söng dóttur sinnar,
Önnu Margrétar Kaldalóns, er
hún söng nokkur af gullfallegum
lög^um langafa síns. Dóttursonur
Sigvalda, Gunnlaugur A. Jóns-
son, fór yfir ævi og störf afa síns
í stuttri en hnitmiðaðri ræðu.
Eftir athöfnina var haldið út í
Kaldalón þar sem Birna Hreið-
arsdóttir og Ester Kaldalóns af-
hjúpuðu minnisvarðann. Séra
Baldur Vilhelmsson, prófastur í
Vatnsfirði, hélt ræðu og flutti
bæn, en þetta reyndist vera síð-
asta embættisverk hans, þar sem
hann lét af störfiim daginn eftir,
þ.e. 1. ágúst.
Fyrrverandi samgönguráð-
herra, Halldór Blöndal, nú for-
seti Alþingis, var aðalræðumaður
dagsins. Minntist hann á feril
Kaldalóns og gat um nokkur laga
hans sem þekkt eru, svo sem Ég
lít í anda liðna tíð, Nóttin var sú
ágæt ein, Ríðum, ríðum og fleiri.
Gat hann einnig um samvinnu
tónskáldsins og sveitunga hans,
HöIIu Eyjólfsdóttur á Laugabóli,
sem orti ljóð sem hann samdi lög
við. Halldór kom því til leiðar í
tíð sinni sem samgönguráðherra
að Vegagerð ríkisins sá um lagn-
ingu bfiastæðis, göngustíga og
undirstöðu fyrir listaverkið, sem
er á allan hátt haganlega fyrir-
komið.
Að athöfn lokinni við minnis-
merkið var öllum boðið heim að
Ármúla þar sem „Lellurnar“
höfðu veg og vanda að rausnar-
legu kaffihlaðborði.
FYRSTA læknisverk Kaldalóns
vestra var að taka á móti Guð-
jóni Jóhannessyni á Skjaldfönn
vorið 1910. Guðjón býr nú í
Reykjavík en var viðstaddur at-
höfnina við Kaldalón.
Birna Hreiðarsdóttir vildi
koma á framfæri þakkæti til
allra þeirra fjölmörgu er lögðu
hönd á plóg svo þessi draumur
varð að veruleika, og ekki hvað
síst fannst henni mikilvægt hvað
núverandi sveitungar væru sáttir
við framtakið.
Morgunblaðið/Kristbjörg Lóa
MINNISVARÐANUM um Sigvalda Kaldalóns var valinn staður á Seleyri sem er utarlega í Kaldalóni.
LEIKHÓPURINN Ragnarock.
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
Danskir unglingar með
leiksýningu á Tálknafirði
Tálknafirði - Hópur danskra ung-
menna kom nýlega til Tálknafjarðar
og setti upp söngleikinn Völven.
Hópurinn kallar sig Ragnarock.
Sýning er 50 mínútur að lengd og
fjallar um danska menningu og
helstu einkenni Danmerkur. Verkið
byggist mikið á söng og látbragði,
þannig að flestir gátu notið hennar
hvort sem dönskukunnátta var fyrir
hendi eða ekki. Sýningargestir
kunnu vel að meta framlag dönsku
ungmennanna og fógnuðu þeim með
miklu lófataki í lok sýningarinnar.
Eftir sýninguna færðu leikaram-
ir Heiðari Jóhannssyni formanni
leiklistardeildar UMFT bol merkt-
an leikhópnum, en Heiðar var þeim
innan handar við undirbúning á
sýningunni og útvegum gistirýmis
o.fl.
Það kom fram hjá Joachim
Clausen aðstoðarleikstjóra sýning-
arinnar að þau eru mjög ánægð
með þær móttökur sem þau hafa
fengið á Islandi og þær undirtektir
sem sýningin hefur fengið. Frá
Tálknafirði átti að halda til Laugar-
vatns, Hafnar í Homafirði og Seyð-
isfjarðar.
HEIÐAR Jóhannsson formaður
leiklistardeildar UMFT með
bolinn sem honum var færður.