Morgunblaðið - 07.08.1999, Side 20
20 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Bjarni Gíslason
FEÐGARNIR Guðni og Ársæll við nýja bátinn, sem er Kleopatra Fisherman 28.
Nýr bátur á Stöðvarfjörð
NÝR bátur bættist í flota Stöð-
firðinga nú nýverið, Narfí SU 68.
Báturinn er smíðaður í Hafnar-
firði hjá fyrirtækinu Trefjum
ehf. Hann er um 10 metra langur
og um það bil 7 brúttólestir,
þetta er glæsilegt skip að sjá og
reyndist í alla staði vel á heim-
leiðinni. Báturinn sem er af gerð-
inni Cleopatra Fisherman 28 er
með 420 hestafla Yanmar vél. En
innflytjandi vélbúnaðar er
Merkúr hf. Ganghraði bátsins er
um 25 sjómflur. Það er fyrirtæk-
ið Lukka ehf., Stöðvafirði, sem
kaupir þennan bát en aðaleigend-
ur þess eru feðgarnir Ársæll
Guðnason á Stöðvarfirði og son-
ur hans Guðni Ársælsson en hann
er búsettur á Fáskrúðsfirði.
Þetta er sjötti báturinn sem Ár-
sæll kaupir en hann á orðið yfir
40 ára sjómannsferil. Narfi SU
68 er útbúinn til linu- og hand-
færaveiða. Kvótastaða útgerðar-
innar er góð og fer báturinn á
veiðar fljótlega.
Búðahreppur vill ekki
samnýtingii byggðakvóta
Þjóðverjinn, sem veiktist eftir dvöl
á Fflabeinsströndinni, látinn
Lést af völdum
gulu en ekki
ebóla-veiru
Berlín. Reuters. AFP.
BÚÐAHREPPUR hefur hafnað
ósk Breiðdalshrepps þess efnis að
úthlutaður byggðakvóti til Suður-
fjarða Austfjarða verði samnýttur
og unninn á Breiðdalsvík. Stöðvar-
hreppur hefur ekki tekið erindið
fyrir en sennilegt er að því verði
hafnað.
Breiðdalsvík fær 181 tonn úr
byggðakvótanum til ráðstöfunar á
næsta fiskveiðiári, Fáskrúðsfjörður
113 tonn og Stöðvarfjörður 94 tonn.
Lárus Sigurðsson, oddviti Breið-
dalshrepps, segir að ákveðið hafi
verið að senda bréf með fyrrnefndri
hugmynd til að fá á hreint hvort
samnýting kæmi til greina áður en
lengra yrði haldið. „Auðvitað vilja
allir nota sinn rétt,“ segir hann og
gerir ráð fyrir sömu niðurstöðu í
Stöðvarhreppi og raunin varð á í
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Sæunni
Axels vegna umfjöllunar um mál-
efni Sæunnar Axels ehf. á Ólafsfirði
og ummæli Róberts Guðfinnssonar,
stjómarformanns Þormóðs
Ramma-Sæbergs, í fréttum:
„Sæunn Axels ehf. áréttar að
ástæður uppsagnar alls starfsfólks
30. júlí síðastliðinn eru eingöngu
mótmæli við nýafstaðna úthlutun
Byggðastofnunar á svonefndum
byggðakvóta.
Vissulega eru erfiðleikar í rekstri
Sæunnar Axels ehf. eins og hjá öðr-
um kvótalausum landvinnslum, og
er líklegt að erfitt væri hjá þeim út-
gerðum sem hafa fengið úthlutuð-
um kvóta ef þær þyrftu að borga yf-
ir eitt hundrað krónur á kílóið í árs-
leigu fyrir hann. Þannig mundu til
dæmis 14.900 ígildin sem Þormóður
Rammi-Sæberg landar á Ólafsfirði
kosta fyrirtækið a.m.k. einn og hálf-
an milljarð króna á ársgrundvelli.
Búðahreppi. „Við reynum að gera
sem best úr úthlutuninni sem við
fengum. Það eru ekki svo margir
um þetta og því verður skiptingin
ekki erfið hér en erfiðast í okkar
dæmi er að áföllin hafa verið svo
mikil og því höfðum við vænst
meira en við fengum. Sagt er að
menn hafi gert þetta svo vísinda-
lega núna eftir reglum en ekki
handvirkt en reglurnar eru einfald-
lega svo vitlausar að niðurstaðan
verður vitlaus.“
Steinþór Pétursson, sveitarstjóri
Búðahrepps, segir að sveitarstjórn
hafi fjallað um málið, ósk Breið-
dalshrepps hafi verið hafnað og
næsta skref sé að kynna úthlutun-
ina fyrir mönnum á svæðinu og
kanna áhuga þeirra. Ljóst væri að
hætta væri á því að einhverjir yrðu
Leyfi ég mér að fullyrða að slík
aukaútgjöld myndu valda nefndu
fyrirtæki, sem og öðrum kvóta-“eig-
endum“ talsverðum rekstrarerfið-
leikum.
Ólafsfjörður kom
aldrei til álita
Umræða þessi snýst hinsvegar
ekki um kvótastöðu einstakra fyrir-
tækja, heldur alfarið um nefndan
byggðakvóta og orð Davíðs Odds-
sonar í bréfi til Byggðastofnunar
19. ágúst 1997: „Fjallað verði um
hvaða ráðstafanir ríkisvaldið geti
gert til að bregðast við búsetuvanda
á svokölluðum jaðarsvæðum."
Sæunn Axels ehf. mótmælir að-
ferðum Byggðastofnunar við þessa
úthlutun harðlega. Punktakerfi
stofnunarinnar gerði það að verkum
að Ólafsfjörður kom aldrei til álita
þar sem stofnunin setti sér þær
reglur að einungis staðir með færri
íbúa en 1000 á atvinnuþróunarsvæði
óánægðir þegar að skiptingu kvót-
ans kemur en á það ætti eftir að
reyna. „Við höfum ekkert út á
skiptinguna að setja,“ segir Stein-
þór. „Héðan hefur óhemju mikill
kvóti farið í burtu og fólksfækkun
verið mikil, tæplega 100 manns á
liðnum fimm árum, þannig að ekki
kemur á óvart að við fáum kvóta.“
Jósef Friðriksson, sveitarstjóri
Stöðvarhrepps, segir að ekkert hafi
gerst í málinu á staðnum. Menn séu
enn í sumarfríi en ætla megi að út-
hlutunin verði tekin fyrir um næstu
helgi og sennilega verði ósk Breið-
dalshrepps þá hafnað.
Byggðastofnun hefur óskað eftir
að tillögur um meðhöndlun kvótans
á hverjum stað liggi fyrir um miðj-
an mánuðinn en nýtt fiskveiðiár
hefst 1. september.
2 (skilgreining Byggðastofnunar)
kæmu til greina. Þannig tryggði
stofnunin að ekki þyrfti að taka tillit
til Ólafsfjarðar með sína 1050-1100
íbúa. Einnig mótmælir fyrirtækið
harðlega þeirri sýndarmennsku
stjómvalda og stofnana á vegum
ríkisins að þykjast ætla að koma
landsbyggðinni til hjálpar með svo
litlu magni sem nú var úthlutað. Úr
því var ákveðið að fara byggða-
kvótaleiðina, þá hefði þetta magn
átt að vera a.m.k. 15.000 tonn en
ekki 1500. í þá úthlutun hefði til
dæmis mátt nota þau 10.000 tonn
sem ekki voru til jöfnunar á útgerð-
ir sem nægan kvóta höfðu fyrir.
Ekki gert upp með tapi
Sæunn Axels ehf. var ekki gert
upp með tapi fyrstu sex mánuði
þessa árs, en telur rétt að staldra
við og endurskoða sína stöðu í því
rekstarumhverfi sem ríkisvaldið
skapar fyrirtækinu.
ÞJÓÐVERJI, sem óttast var að
hefði sýkst af ebóla-veirunni, lést í
gærmorgun á sjúkrahúsi í Berlín,
þar sem hann var í sóttkví. Að sögn
lækna var dánarmein hans gula, en
áður hafði rannsókn á blóðsýnum
leitt í ljós að ekki gat verið um
ebóla-sýkingu að ræða. Læknar
sem önnuðust manninn gagnrýndu
í gær þýska fjölmiðla fyrir að blása
málið upp í „gúrkutíð" sumarsins.
Sjúklingurinn, 39 ára gamall
kvikmyndatökumaður að nafni Olaf
Ullmann, veiktist á sunnudag eftir
heimkomu til Þýskalands frá Fíla-
beinsströndinni, þar sem hann
hafði dvalið í tvær vikur við gerð
dýralífsmyndar. Eiginkona Ullm-
ans, Kordula, sagði að hann hefði
verið þreyttur og slappur á sunnu-
dag en veikst skyndilega á mánu-
daginn. Hann var fluttur með þyrlu
á sjúkrahús á þriðjudag og settur í
sóttkví eftir að í ljós kom að hann
þjáðist af innvortis blæðingum og
hafði háan hita, en þau einkenni
þóttu benda til ebóla-sýkingar.
Ullmann hafði verið bólusettur
gegn gulu og töldu læknar því í
fyrstu ólíklegt að hann þjáðist af
þeim sjúkdómi. Þess eru þó dæmi
að fólk veikist af gulu þrátt fyrir
bólusetningu.
Læknarnir sem önnuðust Ull-
mann klæddust sérstökum hlífðar-
fötum tO að verjast sýkingu. Á
fimmtudag hafði ástand hans
versnað til muna og læknar gáfu
upp von um að tækist að bjarga lífi
hans eftir að ljóst var að nýru hans
IRSKI lýðveldisherinn (IRA) neit-
aði í gær að hafa staðið fyrir því að
vopnum yrði smyglað tO Irlands frá
Bandaríkjunum, sem og að herinn
hefði rofið vopnahlé sitt í Belfast í
síðustu viku þegar Charles Benn-
ett, 22 ára gamall kaþólskur maður,
var myrtur. Sagði í yfirlýsingu IRA
að vopnahlé hersins væri enn í fuOu
gOdi.
Haft var eftir öruggum heimOd-
armönnum í dagblaðinu The Irish
Times fyrr í þessari viku að IRA
hefði staðið fyrir morðinu á Benn-
ett, í því skyni að slá á óánægju-
raddir innan hreyfingarinnar, sem
telja lýðveldissinna hafa borið lítið
úr býtum í þeim friðarumleitunum,
sem staðið hafa yfii- undanfarin ár.
I yfirlýsingu frá IRA í gær, sem
barst írska ríkissjónvarpinu (RTE),
sagði hins vegar að eftir að rann-
og lifur hefðu orðið fyrir alvarleg-
um skaða. Hann var af og tO með
óráði og missti tímaskynið en hvort
tveggja eru einkenni sem benda tO
heOaskaða.
Ekki ástæða
til að ottast
Fertugur líffræðingur, vinur og
samstarfsmaður Ullmanns, var á
miðvikudagskvöld settur í sóttkví á
sjúkrahúsi í borginni Jena eftir að
hafa kennt flökurleika. í gær hafði
hann ekki sýnt nein alvarlegri ein-
kenni og líðan hans var góð. Eigin-
kona Ullmanns og þrír ferðafélagar
þeirra eru við góða heOsu.
Þýsk yfirvöld hafa fengið afhent-
an lista yfir farþega Swissair-vélar-
innar sem Ullman ferðaðist með frá
Fflabeinsströndinni, en 188 manns
voru um borð. Þýska heilbrigðis-
ráðuneytið hefur gefið út yfirlýs-
ingu um að engin ástæða væri fyrir
almenning að óttast. Vitað væri um
alla sem átt hefðu samskipti við
Ullman og enginn hefði kennt sér
meins.
Gula er útbreidd í hitabeltislönd-
um Afríku og Suður-Ameríku og
smitast með moskítóflugum. Ekki
er tfl lækning við gulu frekar en
öðrum veirusjúkdómum yfirleitt.
Læknar geta aðeins reynt að hlúa
eins vel að sjúklingum og kostur er
tO að auka möguleika ónæmiskerfis
þeirra tfl að vinna á veirunni.
Nokkrar tegundir gulu einkennast
af blæðingum í húð og sjúkdómur-
inn er banvænn í 15-20% tOvika.
sókn hefði farið fram innan hersins
væri hægt að fullyrða að stjóm IRA
hefði ekld heimOað vopnasmyglið,
sem upp komst um fyrir nokkru, né
rofið vopnahlé sitt með því að
myrða Bennett. Vakti nokkra at-
hygli að í raun neitaði IRA því ekki
beint að hafa myrt Bennett.
FuOyrt er í dagblaðinu The
Times í gær að þrír klofningshópar
úr IRA, sem andsnúnir eru vopna-
hléi hersins og friðarferlinu á N-ír-
landi, hefðu tekið höndum saman
og undirbyggju nú sprengjuherferð
í Bretlandi og á N-írlandi.
Er sagt í fréttinni að meðal þátt-
takenda séu þeir leiðtogar samtak-
anna „Hins sanna IRA“, sem stóðu
fyrir sprengjutilræðinu í Omagh
fyrir ári, sem er það mannskæðasta
í sögu átakanna á N-írlandi, en alls
létust 29 manns í sprengingunni.
Boðar bætta réttar-
stöðu vændiskvenna
CHRISTINE Bergmann,
kvenna- og fjölskyldumálai-áð-
herra Þýzkalands, vOl að vændi
verði gert að lögformlega viður-
kenndri atvinnugrein, í því skyni
að bæta réttarstöðu vændis-
kvenna. Boðaði hún í gær laga-
frumvarp þar að lútandi, sem
lagt skyldi fyrir þýzka þingið í
vetur.
Samkvæmt frumvarpinu á
vændi ekki lengur að teljast
„ósiðleg" starfsgrein. Með þess-
ari breytingu væri að sögn ráð-
herrans vændiskonum veittur
kostur á því að bæta félagslega
réttindastöðu sína. „Það væri al-
mennt tO hins betra, ef vændis-
konur gætu gert starfssamn-
inga,“ hefur Deutsche Welle eft-
ir Bergmann. Þær ættu í fram-
tíðinni t.d. að geta farið fyrir rétt
til að innheimta umsamda
greiðslu fyrir veitta þjónustu ef
viðskiptavinir þeirra reynast of
skuldseigir.
Uppsagnir Sæunnar Axels ehf. á Ólafsfirði
Eingöngu mótmæli við
úthlutun byggðakvóta
IRA neitar aðild
að vopnasmygli
Dublin. Reuters.