Morgunblaðið - 15.09.1999, Page 52
‘52 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
*
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Af kvikmyndahátíð: Tea with Mussoiini Sýnd kl. 5 og 7. Qentral Station icfck HL Mbl fcfcfcfc ÓHT Rás2 Sýnd kl. 5 og 7. §n ★★★dv ★★★mbl A jA A Rás2 95 af ÍOO Tvihoföi FUCKING 0 0 AMAL
Kl. 9 og 11. B.i. 12. Sýnd kl. 9 og 11. B.i. 12
wwfR* mtmM!b
NYTT OG BETRA'
YFIR 57.000;
iáhorfehðw:
ENGIN sýning í dag
FYRtR
990 PUNKTA
FERDU i BÍÓ
Álfabakka 8, simi SS7 8900 og 587 8905
hefur verid si
MUMMY
www.samfilm.is
-j-
%
Aldargam-
alt bílslys
Það var í þessum garði í Beverly Hills sem Rodriguez handtók George
Michael fyrir ósiðsamlegt athæfí.
Lögregluþj ónn
höfðar mál
Tískusýning árþúsundsins
BEVERLY Hills-lögregluþjónninn
sem handtók George Michael hefur
höfðað mál gegn söngvaranum upp
á um 700 milljónir króna og heldur
því fram að hann hafi verið rægður.
Marcelo Rodriquez handtók Mich-
ael í apríl árið 1998 fyrir ósiðlegt
athæfi á klósetti í almenningsgarði.
í málsókn sem lögð var fram á
mánudag heldur Rodriguez því
fram að hann hafi verið hæddur í
tónlistarmyndbandi Michaels og
segir að söngvarinn hafi haldið því
fram í viðtölum að hann hafi verið
leiddur í gildru. Rodriguez er
„mjög virtur lögregluþjónn sem
hefur þurft að þola rætið umtal,“
sagði lögfræðingur hans. „[Mich-
ael] hefur látið ýmislegt flakka í
mörgum viðtölum í tímaritum, sjón-
varpi, á Netinu og út um allt.
George Michael hefur hagnast stór-
lega á því sem gerðist á kostnað
skjólstæðings míns.“
ÞETTA er portrett-mynd frá
árinu 1873 tekin í París í
Frakkiandi af Henry Hale
Bliss sem var sá fyrsti í Norð-
ur-Ameríku sem lést í bflslysi
svo vitað sé. Bliss varð fyrir
bfl við Central Park West í
New York 13. september 1899.
Barnabarnabarn Bliss lagði
rósir á leiði hans á mánudag
þegar 100 ár voru liðin frá því
slysið átti sér stað.
Leikonan Lynn Whitfield sýnir
klæðnað eftir Anand Jon á tísku-
sýningu árþúsundsins í New
York. Hátt í níutíu af þekktustu
fatahönnuðum i heiminum lögðu
sitt af mörkum til sýningarinnar
sem fór fram á Times Square og
er þetta ein stærsta hóptískusýn-
ing sem nokkru sinni hefur verið
haldin í New York.
Könnun tímaritsins People á klæðaburði stjarnanna
Misjafn sauður í mörgu fé
STJÖRNURNAR sem birtast
mönnum á hvíta tjaldinu eða á
upplýstum sviðum vekja ætíð
umtal og eftirtekt og er útlit
þeirra iðulega undir smásjánni í
borg draumanna Hollywood. Ar-
lega fá þær stjörnur sem þykja
illa til fara skömm í hattinn með
því að vera valdar á lista yfir
verst klædda fræga fólkið og á
sama hátt fá þeir sem þykja
hafa næmt auga fyrir tískunnar
duttlungum rós í hnappagatið
fyrir að vera vænleg fyrirmynd
annarra á þröngum vegi tísk-
unnar.
Óttalega lúðalegir
A dögunum birti tímaritið
People úrslit ársins yfir hverjir
væru best og verst klæddir af
fræga fólkinu og komst einn
helsti grínleikari Bandaríkjanna
um þessar mundir, Adam
Sandler, í efsta sætið yfir verst
klæddu karla ársins. Einn dóm-
arinn hafði um Sandler að segja
að hann liti út eins og hann lægi
naslandi uppi í sófa alla daga að
horfa á sjónvarpið, þvílíkur væri
Paltrow þykir ailtaf
fín og fáguð.
útgangurinn á manninum. Það
var greinilegt að víðir bolir og
flækingslegar buxur áttu ekki
upp á pallborðið hjá tískufröm-
uðum blaðsins.
Aðrir karlar sem nutu þess
vafasama heiðurs að vera til-
nefndir verst klæddu menn árs-
ins voru m.a. Val Kilmer og
Nick Nolte sem þykir hafa mik-
ið dálæti á gamaldags náttfötum
að sögn blaðsins. David
Arquette þykir líka voðalega
lummulegur í fataburði, en dóm-
nefndin taldi þó að eiginkonan,
Courtney Cox, yrði ekki lengi að
koma karii í betri leppa.
Madonna á metið
Þegar litið er á lista yfir verst
klæddu konurnar sést að söng-
konan síbreytilega, Madonna, er
þar framarlega í flokki. Það
þykja lítil tíðindi vestanhafs, en
söngkonan hefur oftar komist á
listann en aðrar konur, eða í sex
skipti. Aðdáendur söngkonunn-
ar telja þessa kosningu náttúru-
lega helbera öfund og vanvirð-
ingu við drottningu ímyndanna,
en þeir fá engan aðgang að
nefndinni og ekkert atkvæði.
Aðrar söngkonur sem þykja
fáránlega klæddar eru Mariah
Carey, en dómnefndin kvað
hana glysgjarna úr hófí fram.
Shania Twain þykir helst líta til
dúkkunnar Barbie þegar kemur
að því að velja sér föt og söng-
konan Cher, sem tæknin heldur
síungri, er á listanum í fjórða
skipti, en hún hefur lengi verið á
milli tannanna á fólki sem telur
sig vita meira en aðra um dular-
mögn tískunnar.
Þau kunna klækina
Hin hófsama Gwyneth Pal-
trow þykir aldrei fara yfir strik-
ið þegar að tískunni kemur og
er hún efst á lista best klæddu
kvenna ársins. Um hana er sagt
að hún sé „Audrey Hepburn
ársins", en Hepburn þykir hafa
afar næmt auga fyrir tískunni
og er alltaf sæt og fín hvar sem
hún kemur. Leikkonan
Catherine-Zeta Jones sem ætlar
að fara að leiða kvennabósann
aldna Michael Douglas upp að
altarinu þykir mikil smekkkona
og er henni líkt við margar dísir
kvikmynda fyrri tíma að glæsi-
leik. Þrjár þroskaðar konur
komust á listann yfir best
klæddu konurnar og eru það
Sandler kollféll á tísku-
prófi People.
Sophia Loren, Diane Sawyer og
Candice Bergen.
Dómnefnd People talaði þó
um að enginn hefði hrifið dóm-
nefndina jafn mikið þetta árið
og söngvarinn Ricky Martin
sem ekki einungis er vel klædd-
ur heldur einstaklega kyn-
þokkafullur. Will Smith komst
einnig á listann yfir best klæddu
karlana og hjartaknúsarinn
Brad Pitt.