Morgunblaðið - 15.09.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999 19
LANDIÐ
Samgönguráðherra kynnir sér nýja veglínu frá Þingvöllum í Borgarfjörð
Mikill fjöldi
í Reykjarétt
Hrunamannahreppi - Hjá mikl-
um fjölda fólks er það árviss
venja að sækja réttir hvort
sem fólk á heima í sveit eða
þéttbýli. Þetta eru miklar og
fjölmennar samkomur og gleð-
skapur oft góður, bergjað er
af „bikurum“ og tekið lagið
með vinum og kunningjum
þegar sundurdrætti er lokið.
Reykjaréttir á Skeiðum eru
vafalaust með allra fjölsótt-
ustu réttum landsins enda eru
þær réttir Skeiða og Flóa-
hreppa auk Árborgarsvæðis-
ins. Þetta er mikið mannvirki
og vandað, trúlega vönduðustu
réttir landsins. Réttirnar
voru byggðar árið 1881 en
voru endurbyggðar hundrað
árum síðar eða 1981. Aðal-
veggir sem og safnagerðið eru
hlaðnir úr hraungrýti en
grindur nú á milli hverra
tveggja dilka.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Kostnaður áætlaður 735 milljónir
Grund, Skorradal - Áhugi hefur
vaknað á að gera heilsársveg milli
Suður- og Vesturlands um Skjald-
breiðarhraun. Nýlega skoðuðu sam-
gönguráðherra, þingmenn, fulltrúar
héraðsnefnda í Borgarfirði og Ár-
nessýslu og stjómendur Vegagerð-
arinnar vegstæði fyrir þennan veg,
en heildarkostnaður við gerð vegar
frá Götuás við Borgarfjarðarbraut á
Þingvöll, miðað við bundið slitlag á
öllum veginum, er áætlaður 735
milljónir króna.
Vegna fyrirhugaðrar kristnitöku-
hátíðar árið 2000 hefur verið skoð-
aður sá möguleiki að gera endur-
bætur á veginum yflr Uxahryggi.
Þorsteini Þorsteinssyni, bónda á
Skálpastöðum í Lundarreykjadal,
var falið að vinna að málinu með
samgöngunefndum héraðsnefndar
Borgarfjarðar og héraðsnefndar
Amessýslu.
Bein tengileið mOli Amessýslu og
Borgarfjarðar liggur frá Þingvöll-
um um Uxahryggi og Kaldadal.
Þetta er mddur vegarslóði, sem
fylgir gömlu þjóðleiðinni um Hofs-
mannaflöt, Sandkluftir, Tröllháls,
Víðiker, Draugabrekkur fram hjá
Biskupsbrekku og í Bmnna.
Búið að meta kostnað
I greinargerð um þennan veg
segir m.a.: „Leiðin teppist í fyrstu
snjóum og er yfirleitt ekki mokuð
fyrr en í júnflok. Vegurinn er fjöl-
farin ferðamannaleið að sumri til,
en hefur aldrei náð því að verða
raunveruleg samgönguleið á milli
landshlutanna. Tfl þess em þó góðir
möguleikar með því að færa vegar-
stæðið frá Armannsfelli austur fyrir
Mjóufell, meðfram þeim norður fyr-
ir Gatfell og þaðan í sjónhendingu
norður Brana í Brunna. Þetta veg-
arstæði er jafnlent, þurrt og snjó-
létt. Frá vegamótum við Bmnna
þarf að uppfylla veg vestur Uxa-
hryggi á svipuðum slóðum og nú-
verandi vegarstæði er, nema hvað
færa verður veginn frá Uxavatni
uppá hæðirnar norðan þess.“
I framhaldi af þessari umfjöllun
boðuðu samgöngunefndir héraðs-
nefndanna í Borgarfirði og Ames-
sýslu tfl fundar í Reykjavík. Á þeim
fundi var samgönguráðherra, þing-
menn Vesturlands og Suðurlands,
vegamálastjóri og fulltrúar frá
Vegagerðinni á Vesturlandi og í
Reykjavík. Niðurstaða þess fundar
varð sú að Vegagerðinni var falið að
gera framkostnaðaráætlun á fram-
lagðri veglínu um Skjaldbreiðar-
hraun. Þegar sú kostnaðaráætlun
lægi fyrir og vegagerðarmenn búnir
að kanna málin nánar yrði farin
vettvangsferð undir forystu sam-
gönguráðherra. Gert var ráð fyrir
að allir þingmenn beggja kjör-
dæmanna, ásamt fulltrúum héraðs-
nefndanna og Vegagerðarinnar
yrðu með í fór. Þessi ferð var farin
7. september sl.
Þingmenn skoða vegstæðið
Samgönguráðherra, ásamt full-
trúum Borgfirðinga og alþingis-
mönnunum Guðjóni Guðmundssyni
og Ingibjörgu Pálmadóttur af Vest-
urlandi, ráðuneytisstjóra sam-
gönguráðuneytisins og fulltrúum
frá Vegagerðinni hófu ferðina á
Fitjum í Skorradal. Ekið var um
línuveg upp úr Skorradal og um
Uxahryggjaveg. Við Branna mætti
hópurinn flokki vegagerðarmanna,
þ.m.t. Helga Hallgrímssyni, vega-
málastjóra, fulltrúum sveitai'félaga
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Myndin er tekin á Fitjum í Skorradal við upphaf vettvangsferðarinnar
og sýnir m.a. Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra, ásamt þingmönn-
um Vesturlands, fulltrúum Vegagerðar, samgöngunefndar, héraðs-
nefndar Borgarfjarðarsýslu og fleiri aðilum.
af Suðurlandi og alþingismönnunum
Ama Johnsen og Drífu Hjartar-
dóttur. Hið fyrirhugaða vegarstæði
var skoðað undir leiðsögn Þorsteins
Þorsteinssonar og í Biskupsbrekku
kynntu Helgi Hallgrímsson vega-
málastjóri og Birgir Guðmundsson
framkannanir Vegagerðarinnar á
framkvæmdinni.
Kostnaður við heildarappbygg-
ingu vegarins frá Götuás við Borg-
arfjarðarbraut á Þingvöll, miðað við
bundið slitlag á öllum veginum, er
áætlaður 735 mifljónir króna. Þessi
áætlun gerir ráð fyrir að leggja
verði nýjan veg 75 kílómetra leið.
Fram kom að síðar mætti halda
áfram með veginn frá Þingvöllum
um Uxahryggi og Tvídægra að Brú
í Hrútafirði.
Tilraun gerð með
almenningssam-
göngur í Arborg
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá undirritun samnings um almennings-
samgöngur á Arborgarsvæðinu. Frá vinstri
Ómar Oskarsson, framkvæmdastjóri Aust-
urleiðar/SBS, Karl Björnsson, bæjarstjóri
Árborgar, Sesselja Jónsdóttir, sveitarstjóri
Ölfuss, og Róbert Jónsson, framkvæmda-
sfjóri Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands.
Selfossi - Samningur um til-
raunaverkefnið ,Almenn-
ingssamgöngur á Árborgar-
svæðinu“ var undirrritaður
fimmtudaginn 10. september.
Aðilar að samningnum eru
Atvinnuþróunarsjóður Suð-
urlands, sveitarfélagið Ár-
borg, sveitarfélagið Olfus og
Austurleið/SBS. Samningur-
inn gerir ráð fyrir að verk-
efnið standi í 38 vikur en með
honum er stigið íyrsta skref-
ið að því að bæta almenn-
ingssamgöngur á Suðurlandi.
Markmiðið er að áætlunar-
ferðir þjóni enn betur at-
vinnulífi og skólum en verið
hefúr hingað tfl. Heildar-
kostnaður við verkefnið er
áætlaður 4,6 milljónir sem
skiptist á milli sveitarfélaganna eftir
íbúatölu og sérleyfishafans.
Skipulag ferða um svæðið og til
Reykjavíkur samkvæmt verkefninu
miðar að því að íbúar eigi auðveldara
með að sækja ýmiskonar þjónustu
innan svæðisins sem utan, án þess að
nota einkabíl. Þeir nemendur af svæð-
inu sem sækja framhaldsskóla á Sel-
fossi geta notað allar ferðir Austur-
leiðar/SBS sem skólaferðir. Einnig er
markmiðið með verkefninu að kanna
þörfina fyrir auknar almenningssam-
göngur. Þegar farið var af stað með
verkefnið var gert ráð fyrir að Hvera-
gerðisbær væri með en en svo varð
ekki raunin hvað svo sem síðar verð-
ur. Atvinnuþróunarsjóður mun vinna
áfram að útvíkkun samningsins og
ræða við Hveragerðisbæ og sveitarfé-
lög í Rangárvallasýslu um frekara
fyrirkomulag almenningssamgangna
á Suðurlandi.
Á að fela byggðina
„Við erum með í þessu átaki vegna
þess að fólk í Þorlákshöfn sækir
skóla á Selfossi og það vantar fólk í
vinnu hjá fyrirtækjum í Þorláks-
höfn,“ sagði Sesselja Jónsdóttir,
sveitarstjóri Ölfuss. Kai'l Björnsson,
bæjarstjóri Árborgar, sagði við und-
irritun samningsins að við tilurð
Sveitarfélagsins Árborgai' hefðu al-
menningssamgöngur verið mikið til
umræðu tiþað bæta og efla búsetu á
svæðinu. Ómar Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Austurleiðar/SBS,
sagði að þetta verkefni gæti orðið
öðrum vísbending um að almennings-
samgöngur væra nauðsynlegar og
þessi samningur gæti orðið öðram
svæðum vísbending. Róbert Jónsson,
framkvæmdastjóri Atvinnuþróunai'-
sjóðs Suðurlands, sagði samninginn
haí'a þýðingu í atvinnulegu tilliti.
„Góðar almenningssamgöngur þýða
að fólk getur ferðast á milli staða og
valið um vinnu við sitt hæfi án þess
að vera háð einkabíl og kröfur íbúa
um þjónustu ganga betur upp með
bættum samgöngum,“ sagði Róbert.
af ferskum hugmynd
Hápunktur ársins f húsgögnum. Nýi vörulistinn
frá Húsgagnahöllinni er kominn. Fylgstu með
nýjum straumum í húsgögnum, því nýjasta i
hönnun, samsetningum, litum og áklæðum.
Ert þú búinn að kikja á póstinn þinn.
L KynnstuvprökSraié
heknanírá
I igfcyt ■Æ1 1 ; M * S
WM\
| ÍYT 1 I m ■•-