Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sameiningarviðræður þriggja hreppa í Eyjafirði að hefjast Reykjafoss í sína síðustu ferð Arnarneshreppur með áheyrnarfulltrúa SVEITARSTJÓRNIR Skriðu- hrepps og Öxnadalshrepps hafa þegið boð sveitarstjórnar Glæsi- bæjarhrepps um sameiningarvið- ræður hreppanna þriggja og skip- að fulltrúa í viðræðunefnd. Þá mun Arnarneshreppur eiga áheyrnar- fulltrúa á fundum viðræðunefnda hreppanna en tekur að öðru leyti ekki þátt í sameiningarviðræðun- um. Oddur Gunnarsson oddviti Glæsibæjarhrepps sagði ráðgert að viðræðunefndin hittist á sínum fyrsta fundi í kringum 20. október nk. Hann sagðist ánægður með að þessar viðræður væru nú að fara í gang enda nauðsynlegt að fá úr því skorið sem fyrst hvort áhugi væri á sameiningu hreppanna. „Við erum með þessu að fylgja eftir vilja íbú- anna í þessum hreppum, sem reyndar vildu sameiningu hrepp- anna fjögurra í skoðanakönnun, þ.e. að Arnarneshreppur yrði með.“ Oddur sagði að Arnarneshrepp- ur hefði ekki viljað koma að málinu á annan hátt að svo stöddu, á með- an hugmyndir um enn stærri sam- einingu sveitarfélaga í Eyjafirði væru enn uppi á borðinu. Bæjaryf- irvöld á Akureyri hafa haft frum- kvæði að því að hafnar verði við- ræður um sameiningu allra sveit- arfélaga við Eyjafjörð. Ibúar yrðu um 400 talsins Nokkur sveitarfélög hafa til- nefnt fulltrúa sína í starfshóp um stóra sameiningu, þar á meðal Arn- arneshreppur. Skriðuhreppur, Glæsibæjarhreppur og Öxnadals- hreppur höfnuðu hins vegar Jjátt- töku í starfshópnum. Ibúar í Öxna- dal eru aðeins um 50, um 90 í Skriðuhreppi og 250 í Glæsibæjar- hreppi. Ef sameining hreppanna þriggja gengi eftir yrðu íbúar sam- eiginlegs sveitarfélags því um 400 talsins. Flytur borinn Jöt- un til Azor-eyja REYKJAFOSS, eitt af gámaskip- um Eimskips, fer í dag, fimmtu- dag, í sína síðustu ferð fyrir félag- ið en skipið hefur verið selt til Malasíu. Reykjafoss var smíðaður í Sietas Verft í Hamborg árið 1979 og hefur verið í þjónustu Eimskips frá árinu 1984, eða í 15 ár. Skipið hefur sinnt ýmsum verk- efnum fyrir félagið og undanfarið verið í innanlandssiglingum. Skip- ið var lestað á Akureyri í gær og í dag. í þessari síðustu ferð skipsins á vegum Eimskips mun það flytja jarðborinn Jötun fyrir Jarðboranir hf. frá Akureyri til Ponta Delgada á Azor-eyjum. Dótturfyrirtæki Jarðborana hf. Iceland Drilling (UK) Ltd. hefur fengið það verkefni á sviði háhita- borunar að bora eftir gufu fyrir raforkuver á eyjunni Sao Miguel á Azor-eyjum niður á allt að 1.700 metra dýpi. Þetta er fyrsta stóra verkefni Islendinga á sviði háhita- nýtingar erlendis. Áætlað er að verkið heijist síðar í þessum mán- uði og að því ljúki í febrúar á næsta ári. Þá er áætlað að flytja borinn aftur til Islands. Tæplega 20 starfsmenn Jarðbor- ana taka þátt í verkefninu á Azor- eyjum og munu þeir dvelja þar í tvo mánuði til að byrja með. Bor- inn Jötunn er lestaður um borð í 85 hlutum og vegur samtals 510 tonn með fylgibúnaði. Stærsti hlut- inn er rafstöð, sem er 16,8 metrar á lengd og vegur rúm 36 tonn. Á myndinni er verið að hífa rafstöð- ina um borð í Reykjafoss sem ligg- ur við Oddeyrarbryggju og þurfti að nota báða skipskranana við verkið. Þrjú tilboð bárust í byggingu skrifstofu- húss fyrir veitur Akureyrarbæjar Tilboðin öll yfír kostnaðaráætlun ÞRJÚ tilboð bárust í byggingu skrif- stofuhúss fyrir Hita- og vatnsveitu Akureyrar og Rafveitu Akureyrar á Rangárvöllum. SS Byggir ehf. átti lægsta tilboðið en það hljóðaði upp á 62,6 milljónir króna, sem er tæplega 106% af kostnaðaráætlun. Katla ehf. bauðst til að vinna verk- ið fyrir 68,2 milljónir króna, eða rúmlega 115% af kostnaðaráætlun og Páll Alfreðsson ehf. bauð 69,4 milljónir króna eða rúmlega 117% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 59,2 milljónir króna. Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við SS Byggi um byggingu hússins á grund- velli tilboðs fyrirtækisins. Samkvæmt útboði eru verklok í ágúst á næsta ári en húsið verður hringlaga á þremur hæðum, samtals rúmir 620 fermetrar. Uppsteypa hússins þarf að fara fram í haust og vetur og má því telja að það sé ein af ástæðum þess að tilboðin voru öll yf- ir kostnaðaráætlun, auk þess sem nokkur þensla er á byggingamark- aðnum á Akureyri. Akoplastos í húsnæði Rafveitunnar Akoplastos hefur keypt húsnæði Rafveitu Akureyrar við Þórsstíg og hefur hluti starfseminnar þegar verið fluttur að Rangárvöllum. Skrifstofur Rafveitunnar flytja svo að Rangár- völlum þegar hin nýja skrifstofu- bygging verður risin. Einnig verður núverandi skrifstofuhúsnæði Hita- og vatnsveitu jafnframt tekið undir aðra starfsemi veitnanna. Þá er verið að reisa 925 fermetra viðbyggingu norðan við núverandi húsnæði HVA, sem hýsa mun lager og verkstæði HVA og Rafveitu Akureyrar. Morgunblaðið/Kristján Nýr valkostur í sjoflutningum Danmörk - Island - Danmörk ________a 3ja vikna fresti________________ M.v. Florinda hefur fastar viðkomur í Esbjerg. Fyrsti lestunardagur 22. okt. 1999. Almenn vara - frystivara - gámar - búslóðir Gott verð • Dæmi: Sjófrakt 20 ft. Aliir með bestu kjör A ? Gunnar Guðjónsson sf. \ ____2 ■__Rími 0900 . Fnv F»R! X—& cirinomiðlim s,ml 562 9200 *Fax 562 3116 ðlVI|J<IIIIIUIUII Netfang ggshlp@vortex.is Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Lyklaveski seld um helgina LYKLAVESKI til ágóða fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis verða seld nú um helg- ina, eða dagana 8. til 10. október. Selt verður á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði, Grenivík, í Hrísey, Grímsey og nágrannasveitum. Þessi fjáröflun er ein mikilvægasta fjáröflun félagsins, en að öðru leyti aflar félagið tekna með sölu minn- ingarkorta og að sjálfsögðu með fé- lagsgjöldum. Félagið veitir mikinn stuðning Félagið veitir krabbameinssjúk- um og aðstandendendum þeirra margvíslegan stuðning í formi við- tala, námskeiða og fyrirlestra. Skrifstofa félagsins er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9 til 13 og þar starfar hjúkrunar- fræðingur í 30% starfi auk fram- kvæmdastjóra í 50% starfi. Á skrif- stofunni eru til ýmsar gagnlegar bækur og rit sem hægt er að fá að láni auk þes sem mikið efni er til er varðar reykingar og tóbaks- fræðslu. Listasafnið á Akureyri Síðasta sýn- ingarhelgi SÍÐASTA sýningarhelgi á verkum Hlyns Hallssonar og japanans Makoto Aida verður á Listasafninu á Akureyi-i um helgina. Á sýningunni eru ljósmynd- ir, málverk og vídeóverk sem gefa áhorfendum innsýn í ólíka menningarheima sem byggja á eða vísa til nýrra og fornra hefða heimalands listamann- anna. Sýningin er styrkt af Sa- sakawa-sjóðnum en frá og með þessari sýningu og til ársloka 2000 mun Flugfélag íslands styrkja sýningar á Listasafn- inu á Akureyri. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Kii-kjuskóli í Svalbarðskirkju á morgun, laugardaginn 9. októ- þer, kl. 11. Kyrrðarstund í Grenivíkurkh-kju í kvöld, föstu- dagskvöldið 8. október, kl. 21. Kirlguskóli á laugardag kl. 13.30 og guðsþjónusta verður í kirkjunni á sunnudag, 10. októ- ber, kl. 11. Ræðuefni er: Skól- inn og kristindómsfræðslan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.