Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999
LANDIÐ
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
„ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hanna Carla Jóhannsdóttir, Elvar Orn Jóhannsson og Þorsteinn Þorsteinsson ánægð með hluta af afla sfnum.
Líf og fjör á bryggjumóti í Eyjum
Vestmannaejrjum - Sjóstanga-
veiðifélag Vestmannaejja,
SJÓVE, hélt árlegt bryggjumót
félagsins fyrir skömmu.
Bryggjumótið er dorgveiði-
keppni barna og fer fram á
bryggjunum en krakkar í Eyjum
stunda margir bryggjudorg.
Fjöldi barna tók þátt í mótinu og
margir foreldrar mættu með
börnum sínum, aðstoðuðu þau og
gáfu góð ráð við dorgið.
Að loknu mótinu var efnt til
grillveislu og þar voru afhent
margskonar verðlaun fyrir
mótið. Sigurvegari mótsins
varð Daði Ólafsson sem fékk
bæði mestan afla og flesta
fiska. Daði fékk 11 fiska sem
alls vógu 2,1 kíló, en aflinn
samanstóð af sex ufsum, þrem-
ur kolum og tveimur marhnút-
um. Daði á ekki langt að sækja
físknina því pabbi hans, Ólafur
Einarsson, er skipstjóri á Faxa
RE, og afí hans, Einar Ólafs-
son, var í áratugi skipstjóri á
Kap VE. Verðlaun voru einnig
veitt fyrir stærsta fisk mótsins
og þau hlaut Þorsteinn Þor-
steinsson en hann veiddi mar-
hnút sem vó tæplega 600
grömm.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Það var vinnuhelgi hjá eigendum Innri-Kóngsbakka um síðustu helgi.
Að þessu sinni fékk aðeins karlpeningurinn að fara í sveitina. Þeir eru
af fullum krafti að endurbyggja gamla íbúðarhúsið og höfðu þó túna til
að taka á móti gestum. Á myndinni eru Hrólfur Jónsson, Sæmundur
Runólfsson, Ólafur B. Andrésson, Rafn Guðmundsson, Ámi Helgason og
Jafet Ólafsson. Það kom fram að aðrir eigendur höfðu löglegar afsakan-
ir fyrir fjarveru sinni en þeir eru Hrólfur Olversson, Krisfján Skarphéð-
insson, Finnur Ingólfsson og bræðumir Tryggvi og Ásgeir Pálssynir.
Ibúar að Innri-Kóngsbakka
„Gott er að kom-
ast í sveitasæl-
una um helgar“
Stykkishólmi - Það nýtur alltaf meiri
og meiri vinsælda hjá íbúum höfuð-
borgarsvæðisins að eignast afdrep
úti á landi til að komast frá skarkala
stórborgarinnar og njóta hvíldar og
útivistar. Margar jarðir á lands-
byggðinni hafa fengið nýtt hlutverk.
Ein af þeim jörðum er Innri-
Kóngsbakki í Helgafellssveit. Fyrir
nokkrum árum tóku níu fjölskyldur
úr Reykjavík sig saman og keyptu
áðumefnda jörð. Fjölskyldurnar
hafa komið sér vel fyrir á jörðinni
og eru nú að endurbyggja gamla
húsið á Innri-Kóngsbakka og fjósið
og hlöðuna sem eru áföst íbúðar-
húsinu. Þetta er hlunnindajörð. Á
þessu ári fannst mikill jarðhiti á
landareigninni og hafa eigendur
áhuga á að kanna nánar hvort heitt
vatn er þar undir sem hægt er að
nýta. Til jarðarinnar teljast nokkr-
ar eyjar þar sem stundað er æðar-
varp og lundaveiði. Þá eru íbúamir
að koma sér upp bústofni sem er
fyrir utan kvóta og hafa keypt
hesta til að geta farið reiðtúra um
nágrennið.
Húsvískt
leikhús til
fyrirmyndar
Húsavík - Það er orðinn fastur lið-
ur í starfsemi Safnahússins á
Húsavík að bjóða öðra hverju upp
á erindaflutning fræðimanna um
hin ýmsu málefni.
Um síðustu helgi flutti dr. Jón
Viðar Jónsson leikhúsfræðingur
fyrirlestur sem hann nefndi
„Sambúð áhuga- og atvinnuleik-
húsa í íslensku leikhúsi". Hann
rakti í stuttu máli sögu leiklistar-
innar á Islandi. Benti á þau
straumhvörf sem hefðu almennt
orðið í íslenskri leiklist 1950 með
tilkomu Þjóðleikhúss. Hann taldi
áhugaleikhúsin fara þá leið að
velja sér svokölluð kassastykki
frekar en óþekkt verk og virðu-
leg.
Hann sagði að áhugaleikarar á
Húsavík ættu ánægjulega sögu og
þeir hefðu valið sér báðar leiðirnar
og það væri öðrum til fyrirmyndar.
Sérstaka áherslu lagði hann á það
að áhugaleikhúsin fengju fagmenn
til að stjórna sýningum sínum, það
bæði veitti leikurunum góða til-
sögn og gæfi betri sýningar. Hann
taldi að leikhúsaðsókn væri góð,
sem sýndi að fólkið kynni að meta
leiklistina. Hann lauk máli sínu
með því að telja að áhugaleikhús
ásamt atvinnuleikhúsunum ætti
sína framtíð.
Jón Viðar Jónsson
flytur erindi sitt.
Burðarás hf. kaupir 16% hlut í Haraldi
Böðvarssyni hf. fyrir 1,1 milljarð
Eignarhlutur
Burðaráss í
HB orðinn 27%
BURÐARÁS hf. hefur keypt 16%
hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf.
að nafnverði 176 milljónir króna á
genginu 6,45 og í tilkynningu til
Verðbréfaþings Islands kemur fram
að kaupverð bréfanna hafi því verið
1.135,2 milljónir króna. Fyrir átti
Burðarás hf. um 124,8 milljóna
króna hlut í félaginu, eða um 11%,
og er því eignarhlutur Burðaráss hf.
í Haraldi Böðvarssyni hf. orðinn
27%.
I gær námu viðskipti með hluta-
bréf í HB tæpum 13 milljónum
króna á Verðbréfaþingi íslands og
hækkaði gengi þeirra um 13,5%, úr
5,20 í 5,90.
Seljandi hlutabréfanna era bræð-
urnir Gunnar Þ. Ólafsson, Ólafur B.
Ólafsson, Jón Ægir Ólafsson og Ás-
geir B. Ólafsson, eigendur Miðness
hf., sem sameinaðist Haraldi
Böðvarssyni hf. árið 1997. Eftir söl-
una eiga þeir saman um 8% hlut í
félaginu.
I tilkjmningunni til VÞÍ segir að
Burðarás hf. hafi á nokkrum áram
fjárfest töluvert í sjávarútvegsfyrir-
tækjum hér á landi og kaup þessara
hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf.
séu liður í þeirri stefnu Burðaráss
hf. að fjárfesta í traustum íslensk-
um sjávarútvegsfyrirtækjum og
vera virkur þátttakandi í þeiiTÍ þró-
un og uppstokkun sem framundan
sé á þessu sviði. Á undanförnum
misserum og árum hafi orðið mikil
uppstokkun í rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja hér á landi, fyrirtæki
hafi stækkað og muni halda áfram
að stækka, sérhæfa sig og auka
samstarf á ákveðnum sviðum. Auk-
in hagræðing muni verða í greininni
sem geri þessa undirstöðuatvinnu-
grein þjóðarinnar að enn áhuga-
verðari fjárfestingarkosti.
Ánægðir með kaupin
Sturlaugur Sturlaugsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Haraldar
Böðvarssonar hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að kaup Burðaráss á
auknum hlut í fyrirtækinu væru
fagnaðarefni þar sem þau sýndu að
fjárfestar hefðu trú á sjávarútvegs-
fyrirtækjum.
„Það er ekkert nema gott um
þetta mál að segja og við erum mjög
ánægðir með þessi kaup,“ sagði
hann.
Morgunblaöiö/Ásdís
v'-\-
Hluti fasteigna Skinnaiðnaðar hf. á Gleráreyrum
sem ljárfestar hafa gert kauptilboð í.
Kauptilboði í fasteignir Skinnaiðnaðar
hf. tekið með nokkrum fyrirvörum
Aætlaður sölu-
hagnaður um
150 milljónir
NOKKURT tap varð á rekstri
Skinnaiðnaðar hf. á síðari hluta
rekstrarársins, sem lauk 31. ágúst
síðastliðinn, til viðbótar tapi að
upphæð 86,1 milljón króna sem
varð á fyrri hluta rekstrarársins. í
fréttatilkynningu frá Skinnaiðnaði
hf. kemur fram að vinna við gerð
uppgjörs fyrir nýafstaðið rekstrar-
ár standi nú yfir og gert sé ráð fyr-
ir að uppgjörið liggi fyrir um miðj-
an nóvember næstkomandi.
Fjárfestar með Rúmfatalager-
inn og KEA í fararbroddi hyggj-
ast koma upp nýrri verslunarmið-
stöð að Dalsbraut 1 á Akureyri og
hafa þeir sett fram tilboð um kaup
á hluta af fasteignum Skinnaiðn-
aðar hf. á Gleráreyrum, en meðal
annars er um að ræða aðalverk-
smiðjuhús félagsins. í fréttatil-
kynningu Skinnaiðnaðar hf. kem-
ur fram að kauptilboð fjárfestanna
hafi verið samþykkt en þó með
nokkrum fjrirvörum af hálfu
beggja aðila sem ganga þurfi frá
fyrir 20. október næstkomandi.
Þar á meðal sé sá fyrirvari af
hálfu Skinnaiðnaðar hf. að fá ann-
að húsnæði sem hægt verði að
fiytja starfsemina í á fyrstu mán-
uðum næsta árs, en þar hafi
stjórnendur Skinnaiðnaðar hf. í
huga svonefnd Folduhús.
Fram kemur að ef af framan-
greindri sölu fasteigna félagsins
verði innleysi það söluhagnað og
lækki skuldir, og það muni koma
fram í árshlutauppgjöri vegna fyrri
hluta rekstrarársins 1999-2000.
Áætlaður söluhagnaður sé um 150
milljónir króna og lækkun lang-
tímalána um 55 milljónir króna. Þá
kemur fram að kostnaður við flutn-
ing í nýtt húsnæði sé um 100 millj-
ónir króna.