Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 4' Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir) Guðrún, Sóley Halla, Einar Kári og fjölskyldur. Elsku Biggi frændi. Við frændsystkinin viljum kveðja frænda okkar með nokkrum orð- um. Biggi var alltaf svo hlýr og góður við okkur, og fínnst okkur svo skrýtið að Guð skuli taka hann svona fljótt frá okkur, og skiljum við ekki af hverju. En núna er Biggi kominn til Guðs, sem hugsar vel um hann. Við erum svo þakklát fyrir þann dýrmæta tíma sem við áttum með honum. Bless, elsku Biggi okkar. Guð veri með þér. Hvíl þú í friði. Leiddu mína litlu hendi ljúfi Jesú þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu blíði Jesú að mér gáðu. Aron Högni, Tristan Þór, Hadda Rakel og Magnea Rut. Biggi vinur minn er farinn. Ég vil með örfáum orðum og litlu ljóði þakka honum samfylgdina á allt of stuttri ævi hans. Við þökkum samfylgd á lífsins leið, þar lýsandi stjörnur skína, og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína. En alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að elífu minningu þína. Elsku Högni, Hadda, Þórunn, Esther og aðrir aðstandendur. Megi minningin um góðan dreng veita ykkur huggun í þessari miklu sorg. Bjarney Bjarnadóttir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þetta litla ljóð lýsir svo vel því sem okkur langar til að segja við þig, Biggi okkar. Við geymum ljúfar minningar um þig sem munu með tímanum hrekja burtu sorgina sem fyllir huga okkar þessa dimmu daga. Við biðjum algóðan Guð að vernda og styrkja mömmu þína, pabba, syst- ur og aðra ástvini. Guð geymi þig, elsku frændi. Elín, Hanna og Rúnar. Hvernig get ég skrifað minning- argrein um einn besta vin minn þegar ég get alls ekki náð því að hann sé farinn. Ég ætla ekki að kveðja þig, því að Biggi minn, þú verður alltaf hjá mér þegar mig langar til að tala við þig eða er ég horfi á enska boltann. Mjög stórt skarð er höggvið í vinahópinn, en ég veit að ég tala fyrir munn okkar allra þegar ég segi að þú verður alltaf á meðal okkar, sama hvar við verðum eða gerum. Elsku Högni, Hadda, Ester og Þórunn. Mínar innilegustu samúð- arkveðjur og þakka ykkur fyrir hvað ég hef alltaf verið velkominn á ykkar heimili. Guðmundur Ásgrímsson. Mig langar til að kveðja þig Biggi með örfáum orðum. Ég man þegar ég kynntist þér fyrir rúm- lega tveimur árum. Mér fannst þú strax alveg frábær strákur. Þú varst alltaf að gera grín að þér og okkur hinum. Eg gleymi því ekki þegar þú komst að skoða litla krílið og fórst strax að gera grín að Gumma, að þetta gæti hann, en svona varstu alltaf spaugandi. Ég bið Guð að hjálpa vinum þín- um og fjölskyldu í þessari miklu sorg, þín verður sárt saknað. Þín vinkona Þóra Perla. „Vinir okkar hurfu eins og gras- ið, sem fölnar á einni frostnótt. Eins og lauftré, sem felldu blöð sín í stormum og næðingum haustsins. í minningunni eru þeir sem sígræn tré, sem ekki fölna og ekki fella barr sitt. Þau ilma um sólheita daga og döggvast í svala næturinn- ar.“ (Óðurinn til lífsins, Gunnþór Guð- mundsson) Elsku Biggi okkar, þín verður sárt saknað. Kæra fjölskylda, guð styrki ykk- ur í þessari miklu sorg. Þínar vinkonur, Rúna Dögg, Bergþóra, Heiða, Björk, Anna, Soffía, Anna Lísa, Anna Pála og Arndís. INGIBJÖRG SOFFÍA PÁLSDÓTTIR HJALTALÍN + Ingibjörg Soffía Pálsdóttir Hjaltalín frá Brokey var fædd á Böðvarshóluin í Vestur-Hópi í Vest- ur-Húnavatnssýslu 20. ágúst 1918. Hún lést 25. september síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Páls Guðmundsson- ar, f. 29. mars 1885, d. 26. maí 1979, og konu hans Onnu Halldórsdóttur, f. 21. október 1886, d. 10. september 1987. Systkini Ingibjargar: Björn Jónas, f. 2.9. 1917, d. 7.7. 1921; Guðmundur, f. 8.7. 1919; Sigurbjörg, f. 22.7. 1920; Elínborg Sædís, f. 3.9. 1923; Snæbjörn, f. 12.8. 1924, Haustið er tími uppskerunnar, en einnig tími saknaðar eftir liðið sumar. Fegurð haustsins hefur líka sína töfra. Þeir sem upplifað hafa töfra haustsins við Breiða- fjörð munu aldrei gleyma því og vera bundnir honum órjúfandi böndum. Það er ólýsanleg fegurð að líta sólina setjast í hafflötinn og eyjarnar bera við gullroðinn him- in. Þessa fegurð leit Ingibjörg Pálsdóttir ung að árum og henni fór eins og fleirum að hún bast töfrunum og sneri ekki frá fírðin- um aftur. Hún giftist eldri synin- um í Brokey, Jóni V. Hjaltalín, og bjó þar með honum. Þau bjuggu í sambýli með Vilhjálmi V. Hjalta- lín, bróður Jóns, og Jóhönnu konu hans, frænku og vinkonu Ingi- bjargar. Jón og Ingibjörg eignuð- ust þrjá syni, þá Vigfús, Pál og Berg. A kveðjustundu koma margar minningar í hugann. Það var alltaf svo gaman þegar fjölskyldurnar í Brokey komu i heimsókn til okkar að Dröngum. Ég sé fyrir mér tvenn ung hjón með sjö hressa krakka, öll á líkum aldri, koma gangandi upp túnið frá sjónum. Móðir mín og ungu konurnar Kolfinna Gerður, f. 12.8. 1924; Halla Val- gerður, f. 2.2. 1929. Ingibjörg giftist 1941 Jóni B.V. Hjalta- lín, bónda í Brokey, f. 8. júlí 1895, d. 17. apr- íl 1994. Þeirra synir eru: 1) Vigfús, f. 10. maí 1942, k. Regína Axelsdóttir, f. 5. júlí 1945, d. 22. mars 1992. Þeirra börn: Anna Jóna, f. 26. ágúst 1966, hennar dætur: Regína Ósk, f. 12. júní 1985, Silvía Rún, f. 14. mars 1997, Ingibjörg Dís, f. 2. sept. 1998. Jónberg, f. 8. jan. 1968, hans synir: Vigfús f. 26. maí 1997, Valur f. 26. maí 1997. Vilberg Geir f. 13. sept. 1973, hans sonur Axel Már f. 11. ágúst höfðu um margt að ræða og hlátur þeirra fyllti húsið. Seinna dvaldist ég í Brokey um tíma við kennslu og kynntist þá fólkinu þar betur. í Brokey var búið fyrirmyndarbúi og mikið menningarheimili. Heim- ilisbragur stóð á fornum merg enda hafði verið höfuðból í eynni öldum saman. Húsið var stórt og heimilið fallegt og vel búið. Smekkur og hannyrðir ungu kvennanna naut sín vel við muni eldri kynslóða. Allt bar þess vott að þar fór bókelskt og fróðleiks- fúst fólk sem ekkert lét framhjá sér fara þótt ekki væri búið við þjóðbraut þvera. Nægt lestrarefni var og keypt bæði innlend og er- lend tímarit. Þarna blómstruðu þessar duglegu konur með börnin sín sjö sem voru hvert öðru skemmtilegra og ekki voru þessir hressu krakkar nú alltaf rólegir. Það var mér talsvert undrunarefni hvað þeir voru kaldir að sulla í sjónum við bátana. En hrædd er ég um að mæður þeirra hafi oft orðið áhyggjufullar þótt þær væru alltaf glaðar og hressar í bragði. I huga mínum er dvölin í Brokey og kynni mín af fólkinu þar með mín- um kærustu minningum. Notaleg- 1998. 2) Páll, f. 13. aprfl 1946, k. Ásta Jónsdóttir, f. 17. maí 1947, þeirra börn: Jón Ingi f. 7. mars 1968, hans börn: Arna Dögg, f. 13. júní 1991, Alfreð Már, f. 26. júní 1994, Ásta Kristný, f. 21. mars 1999. Guðjón, f. 2. mars 1969, hans börn: Rebekka Sóley, f. 27. mars 1989, Höskuldur Páll, f. 9. júní 1993. Sigursveinn, f. 6. ágúst 1970, hans sonur Haf- þór Sindri, f. 16. október 1993. Sóley, f. 23. jan. 1977, d. 24. jan- úar 1977. Egill Örn, f. 2. maí 1978. 3) Bergur, f. 5. aprfl 1951, k. Ásdís Herry, f. 7. desember 1952, þeirra synir: Símon, f. 10. júní 1975, Kári, f. 15. ágúst 1979. Útför Ingibjargar fór fram frá Stykkishólmskirkju 2. októ- ber. Jarðsett var í Narfeyri á Skógarströnd. ar voru stundirnar sem ég átti með Kristjönu, móður bræðranna, en hún bjó hjá þeim á loftinu, þá orðin háöldruð. Hún var óþreyt- andi að sýna mér myndir og segja mér sögur og fróðleik frá fyrri tímum þegar eyjabúskapurinn stóð í blóma í Breiðafjarðareyjum. Hratt flýgur stund og margt breytist í tímanna rás en minning- arnar eigum við og geymum með okkur. Þegar börnin voru flogin úr hreiðrinu, fluttu bræðurnir ásamt konum sínum úr Brokey og sett- ust að í Stykkishólmi. Ekki er búið lengur í Brokey en verið þar á sumrin og eyjarnar nytjaðar. Þeg- ar við kveðjum okkar kæru Ingi- björgu geymum við minningu um hlýja, glaðværa konu með rauð- leitt liðað hár og heyrum hlátur hennar óma frá liðnum árum. Blessuð veri minning hennar. Sonum Ingibjargar og fjöl- skyldum þeirra, Jóhönnu frænku hennar og öðrum ástvinum, send- um við hjónin og Valborg, móðir mín, innilegar samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Emilía Guðmundsdóttir, frá Dröngum. ALDARMINNING MAGNUS STEFAN SÍMONARSON í DAG, 8. október, er ein öld liðin frá fæð- ingu Magnúsar Stefáns Símonarsonar fyrrver- andi hreppstjóra í Grímsey. Magnús fæddist að Sauðakoti á Ufsa- strönd 8. október 1899. Foreldrar hans voru hjónin Jórunn Magn- úsdóttir, fædd í Sauða- koti og Símon Jónsson, ættaður úr Svarfaðar- dal. Magnús var elstur af 10 systkinum, þau eru Guðrún, Þorsteinn, Þóroddur, Ingi, Snjólaug, Jón, Jó- hann, Hilmar og Jónína, sem ein lif- ir af systkinunum og býr á Akur- eyri. Árið 1920 fluttu Jórunn og Símon til Grímseyjar. Ári seinna flutti Magnús þangað, hafði þá unnið ým- is störf til sjós og lands. 20. nóvem- ber 1922 kvæntist hann Siggerði Bjarnadóttur, sem fædd var á Hóli í Þorgeirsfirði, en ílutti 1917 til móð- ur sinnar, Ingu Jóhannesdóttur og stjúpföður, Ola Hjálmarssonar, sem þá bjuggu á Básum en höfðu flutt til eyjarinnar 1914. Fyrstu búskaparár Magnúsar og Siggerðar bjuggu þau í Syðri-Grenivík sem Magnús byggði 1923 ásamt föður sínum. Ár- ið 1939-1940 byggðu þau nýbýlið Sigtún, stórt og mikið steinhús. Þar bjuggu þau þar til Magnús lést 1. júní 1969. Siggerður bjó 2 ár í eyj- unni eftir það, en flutti svo til Akur- eyrar. Síðustu árin bjó hún á dval- arheimflinu Hlíð. Hún lést 26. októ- ber 1993. Magnús og Siggerður eignuðust 7 börn. Huldu Ingibjörgu, f. 15. sept. 1922, d. 10. ágúst 1937. Sigmund Óla, f. 4. des. 1923, kvæntur Guð- rúnu Kristjánsdóttur, þau eignuð- ust fjögur börn, búa á Ákureyri. Jó- hannes Höskuld, f. 20. maí 1925, kvæntur Guðrúnu Sigfúsdóttur, (látin), þau eignuðust átta böm, búa í Grímsey. Jón Stefán, f. 6. okt. 1926, kvæntur Rögnu Karlsdóttur, þau eiga sex börn, búa í Ólafsfirði. Bjarna, f. 13. des. 1928, d. 17. des. 1928. Bjarna Reykjalín, f. 30. júní 1930, kvæntur Vilborgu Sigurðar- 13iómabú3in öiarðshom v/ T-ossvogskirkjUcjatA St'mÍ ! 554 0500 dóttur, þau eiga fimm böm, búa í Grímsey. Jómnni Þóra, f. 21. júní 1932, gift Einari Þorgeirssyni, þau eiga þrjú böm, búa í Gríms- eyv Árið 1937 var byggð- ur viti í eyjunni og varð Magnús vitavörður til dauðadags. Árið 1941 var hann skipaður hreppstjóri og ári áður*— sýslunefndarmaður. Þeim störfum gegndi hann líka til dauða- dags. Jafnframt þessu var hann oddviti í 12 ár, formaður og gjaldkeri sjúkrasamlagsins frá stofnun þess 1946, umboðsmaður brunabótafélagsins, svo og annarra félaga og happdrætta. Ymis störf vann hann fyrii- söfnuð Miðgarða- kirkju, var formaður sóknarnefndar um skeið og síðari árin bæði reikn- ingshaldari og safnaðarfulltrúi. Hann stundaði búskap, tók þátt í fiskverkun og annarri vinnu við fisk ef á þurfti að halda og meðan sfldar- söltun var í eyjunni átti hann mik- inn þátt í þeirri útgerð. Hann lagði gjörva hönd á margt. Sat löngum stundum við skriftir og skýrslugerð á skrifstofu sinni. Mál- efni Grímseyjar og fólksins þar bar hann fyrir brjósti og var manna fróðastur um allt sem því viðkom. Hann var að mestu sjálfmenntaður og vel lesinn, víðsýnn og ljúfur í lund. Þannig minnist ég afa míns, sem ég og öll hin barnabömin feng- um alltof stuttan tíma með. Blessuð sé minning þeirra hjóna Magnúsar Stefáns Símonarsonar oc^ Siggerðar Bjarnadóttur. Siggerður H. Bjamadóttir. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ + Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ELÍSABETAR ÖLDU KRISTJÁNSDÓTTUR frá Brekku, Ingjaldssandi. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins og kvennakór Bolung- arvíkur. Oddbjörn Stefánsson, Árilía Jóhannesdóttir, íris Ósk Oddbjörnsdóttir, Ólafur Jakobsson, Harpa Oddbjörnsdóttir, Árelía Oddbjörnsdóttir, Jakob og Helgi Ólafssynir. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og móður, KRISTÍNAR SÓLBORGAR ÓLAFSDÓTTUR. Fyrir hönd aðstandenda, Ingi Arnar Pálsson, Ólafur Ragnar Ingason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.