Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ F UMRÆÐAN Óábyrg bankaumræða A SIÐUSTU vikum og mánuðum hefur átt sér stað mikil umræða um þróun á íslenskum fjármagnsmarkaði. Segja má að sala hlutabréfa í Fjárfest- ingarbanka atvinnu- lífsins (FBA) hafí ver- ið hvatinn að því að umræðan fór af stað með offorsi og því mið- ur ekki byggð á mál- efnalegum rökum. Sala ríkisins á hlut í fjármálastofnun er vissulega málefni sem vert er að taka til ítar- legrar umfjöllunar. Margrét Frímannsdóttir Ekki síst í ljósi þess að fjármála- markaðurinn hér er ungur og í öri'i þróun. Skýrar leikreglur eru því ekki til og allar breytingar, svo ekki sé talað um sölu á ráðandi hlut í öfl- ugri fjármálastofnun, geta haft mikil áhrif á þennan unga mai'kað. Það hefur sýnt sig að óábyrg og upphrópunarkennd umræða um fjármálastofnanir getur skaðað starfsemi þeirra sem og viðskipti viðkomandi stofnunar. Það er því með öllu óskiljanlegt þegar full- trúar ríkisstjómarinnar virðast beinlínis leggja sig fram og vera í fararbroddi óábyrgrar umræðu. En það hefur gerst æ ofaní æ. Leikur með Landsbankann Ósamstæð ríkissljórn Forsætisráðhema lýsti skoðun sinni í fjölmiðlum og virtist ekki hafa hvarflað að honum að viðskipt- aráðherra hefði eitthvað um málið að segja. Síðan þá höfum við orðið vitni að því hversu ósamstæð ríkis- stjórnin er hvað varðar fram- kvæmd einkavæðingar. Stór þáttur í þeirri sérkennilegu uppákomu virðist snúast um það hverjum verði gert kleift að kaupa, hver má Hef hafiö sölu á glæsilegum samkvæmisfatnaöi, pilsum, drögtum og toppum frá Ronald Joyce London. Iia, Garðatorgi, sími 565 6680 eignast hlut í hverju og hvað stóran. Þessi umræða verður varla til þess að auka traust eða trúverðugleika þeirra stofnana sem um er fjallað hverju sinni. Það er ekki og á ekki að vera hlutverk stjórnmálamanna að stýra því hver eignast hlut í stofnunum sem teknar era ákvarðanir um að setja á hluta- bréfamarkað. Okkar hlutverk hlýtur að vera að setja leikregl- ur sem koma í veg fyr- ir fákeppni og hringamyndun, koma í veg fyrir að of mikil valda- samþjöppun verði á okkar tiltölu- lega litla og þrönga markaði. Það er jafnframt hlutverk stjórnmála- manna að tryggja öflugt eftirlit með því að þessum leikreglum sé framfylgt, það á jafnt við um fjár- magnsmarkaðinn sem aðra at- vinnustarfsemi. Fimm framfaramál Skemmst er að minnast þegar viðskiptavinir Landsbankans heyrðu allt í einu að jafnvel stæði til að selja bankann erlendum aðilum, sem komu hingað til lands og fengu aðgang að gögnum bankans. Þess- ar fyrirætlanir urðu sem betur fer að engu, og nýr bankastjóri og starfsfólk fékk vinnufrið til þess að endurskapa traust á bankanum. Þá tók ríkisstjómin ákvörðun um að selja hlut ríkisins í Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins. Sú ákvörð- un hafði langan aðdraganda. Nógu langan til þess að hægt hefði verið að móta skýrar leikreglur um hvemig að sölunni yrði staðið. En því var ekki að heilsa. Forsætisráð- herra, sem farið hefur mikinn vegna sölu á hlut í bankanum til hóps sem honum er ekki þóknan- legur, ákvað nú, að því er virðist upp á sitt eindæmi, hvaða reglur ættu að gilda um sölu á ríkishlutan- um. BIODROGA snyrtivörur i n* Q-10 húðkremið CS/ tellci Fjármálamarkadur Hlutverk stjórnmála- manna er ekki að móta leikreglur, segir Mar- grét Frímannsdóttir, sem tryggja einhverjum útvöldum aðilum forræði yfír stofnunum og fyrirtækjum í eigu ríkisins. og verslun, sérstaklega matvöru- verslun. Heilbrigð samkeppni í fyrstu fímm þingmálum Sam- fylkingarinnar birtast þessi viðhorf okkar. í fyrsta lagi leggjum við til breytingar á samkeppnislöggjöf- inni þar sem hert er ákvæði um bann á samráði fyrirtækja sem hamla eðlilegri samkeppni. Settar era hömlur svo fyrirtæki geti ekki misnotað markaðsráðandi stöðu. Framvarpið felur í sér heimild til handa samkeppnisyfirvöldum til að ógilda samrana eða yfirtöku fyrir- tækja sem þegar hefur átt sér stað, leiði hann til markaðsyfirráða eða sé til þess fallinn að styrkja þá stöðu. Þá verði Samkeppnisstofnun skylt að halda skrá um stjórnunar- og eignatengsl í íslensku atvinnu- og viðskiptalífi og uppfæra hana reglulega. Slík skrá var unnin 1994 og kynnt af þáverandi ráðherra, Sig- hvati Björgvinssyni. Núverandi stjórnvöld hafa ekki hirt um að uppfæra hana þrátt fyrir þær gífur- legu breytingar og eignasamþjöpp- un sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi síðan 1994. Skrá um stjómunar- og eignatengsl hlýtur þó að vera mikilvægt tæki til þess að halda uppi virku eftirliti og koma í veg fyrir óeðlilega eignasam- þjöppun. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur farið fram á að hafist verði handa nú þegar við að endurskoða og uppfæra skrána frá 1994. Það verk mun taka einhvern tíma þann- ig að við leggjum áherslu á að fyrst fari fram skoðun á eigna- og stjórn- artengslum í þremur greinum at- vinnulífsins, þ.e. sjávarútvegi, verslun og fjármálaþjónustu. Breytingar og eignatilfærslur inn- an þessara þriggja atvinnugreina hafa verið gífurlegar á undanförn- um árum. Ekki síst í sjávarútvegi Of mikil samþjöppun og eigna- tengsl í matvöruverslun geta haft í för með sér hærra vöruverð til al- mennings eða óeðlilegt verðsam- ráð. Markaðurinn er lítill og því við- kvæmur fyrir þessari þróun. Með því að styrkja Samkeppnislöggjöf- ina og fylgjast náið með eigna- og stjórnartengslum í íslensku at- vinnulífí næst fram ákveðin trygg- ing fyrir dreifðri eignaraðild og heilbrigðri samkeppni sem skilar árangri fyrir almenning. Þá hefur Samfylkingin einnig lagt fram framvarp sem felur í sér öflugra eftirlit með starfsemi fjár- málastofnana. Framvarp um starf- semi fjármálaeftirlitsins felur í sér að fjármálaeftirlitið verði sjálfstæð stofnun með heimildir til upplýs- ingaöflunar og til þess að beita refsiákvæðum. Annað framvarp frá Samfylkingunni er frumvarp um kauphallir og skipulagða tilboðs- markaði, þar sem um er að ræða hert ákvæði um tilkynningaskyldu. Siðareglur í viðskiptum Síðasta málið í þessum pakka okkar er þingsályktun um siðaregl- ur í íslensku viðskiptalífi, sem varð- ar þróun á fjármagnsmarkaði og eðlilega samkeppni á íslenskum at- vinnumarkaði. Þar er lagt til að við- skiptaráðherra hlutist til um að all- ar fjármálastofnanir setji sér siðareglur og vísað til reglna sem settar hafa verið í Evrópusamband- inu. Það er trú okkar að verði þessi mál samþykkt á Alþingi séu hér komnar skýrari leikreglur fyrir ís- lenskt atvinnu- og viðskiptalíf og að eftirlit með framkvæmd þeirra reglna sem í gildi eru verði virkara. Reglumar verða að vera skýrar og gegnsæjar. Hlutverk stjórnmála- manna er að móta slíkar reglur og sjá til þess að virkt eftirlit sé með framkvæmd þeirra. Það er besta leiðin til að koma í veg fyrir fá- keppni og einokun sem almenning- ur yrði að gjalda fyrir með hærra vöraverði og lélegri þjónustu. Hlutverk stjórnmálamanna er ekki að móta leikreglur sem tryggja einhverjum útvöldum aðil- um forræði yfir stofnunum og íýi'ir- tækjum í eigu ríkisins. Slíkt er eng- um stjórnmálamanni sæmandi. Höfundur er alþingismaður og for- maður Alþýðubandalagsins. Listaháskóli í Hafnarfirði Jóhann Guðni Reynisson NOKKUR umræða hefur verið undanfarið um framtíð Listahá- skóla Islands, einkum staðsetningu hans. Tvö sveitarfélög hafa aðal- lega verið nefnd í því sambandi; Reykjavík og Hafn- arfjörður. Hér skal ekki fjölyrt um möguleika Reykja- víkurborgar til þess að fóstra Listahá- skólann heldur bent á þau tækifæri sem eru í Hafnarfirði fyr- ir slíka starfsemi. Ég lít ekki svo á að hatrömm samkeppni ríki um starfsemi og staðsetningu Lista- háskólans. Hins veg- ar er ljóst að staðar- valið fer ekki fram án kynningar og um- ræðu. Mig langar því að reyna að svara spurningunni: Hvers vegna Hafn- arfjörður? þannig að ljóst sé að sú staðsetning er alls ekki fjarlægur draumur heldur vel framkvæman- legur og raunhæfur möguleiki en einkum er litið til norðurbakka hafnarinnar varðandi staðarval, þar sem áður var Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hafnarfjörður hefur fengið á sig ýmis ímyndarheiti. Hann hefur ver- ið kallaður víkingabærinn, bærinn í hrauninu, álfabærinn og ekki síst menningarbærinn. Hvað sem líður slíkum nafngiftum er ljóst að í Hafnarfirði ríkir sú eining og sál sem prýðir sjálfstætt bæjarfélag sem er í öllu tilliti sjálfu sér nægt. Enda hef ég orðið var við, að það viðhorf ríki almennt meðal lands- manna að Hafnarfjörður sé á marg- an hátt sérstakur og aðlaðandi bær. Hafnarfjörðm- er fallega í sveit settur, í eins konar hraunskál í fjarðarbotni. Bærinn hefur þannig yfirbragð landsbyggðarinnar en nýtur ennfremur kosta þéttbýlis- ins. Enskur skipulagsarkitekt, Richard Abrams, hefur haft umsjón með þessari vinnu og hefur hann nú sett fram mai'gar athyglisverðar hug- myndir. Þar er gert ráð fyrir ákveðnum heildarsvip með samþættingu menningar-, lista- og þjónustustarfsemi sem nái allt frá norðurbakka hafnarinnar, þar sem nú er m.a. að finna Hafnar- fjarðarleikhúsið Her- móð og Háðvöru og Kvikmyndasafn Is- lands, nánast alla leið að slippnum að meðtalinni hönnunarsnilldinni við þjóðkirkjuna, Fjörukr- ánni og Byggðasafninu. Einnig megum við reikna með því, að minnsta kosti vona, að í framtíðinni muni strandlengjan við innri höfnina nýtast betur en nú er, tU útivistar og tómstundastarfs. Holuleysi og höggdeyfar Það er liðin tíð að mönnum þyki það langferð að skjótast milli Hafn- arfjarðar og Reykjavíkur og í raun Listnám hann Guðni Reynisson, er af mörgum ástæðum hagkvæmur valkostur fyrir Listaháskóla. Líf og list Menningarstraumar í Hafnar- firði eiga sér auðvitað langa sögu í fjölskrúðugu mannlífí um aldir, en til þess að búa til slíka ímynd á síð- ari áram hafa meðal annars átt sinn þátt glæsilegar listahátíðir, menn- ingarperlan Hafnarborg, glæsilegt útivistarsvæði með höggmynda- garði, nýr sérhannaður tónleikasal- ur í safnaðarheimili Hafnarfjarðar- kirkju, glæsilegur tónlistarskóli í rómaðri umgjörð, afar gott byggða- safn, öflugt atvinnulíf og einstök útivistarsvæði í ósnortinni náttúru í göngufæri frá íbúðarbyggðinni. Hér eru aðeins nokkrir kostir nefndir en ljóst er að listastúdentar í Hafnarfirði munu geta starfað í nánum tengslum við öflugt atvinnu- líf jafnt sem ósnortna náttúra í sveitarfélagi þar sem stjómvöld era og hafa verið óhrædd við að reyna nýjungar og fara ótroðnar leiðir. Þá er ótalið bókasafn bæjar- ins sem verður í miðbænum, rétt hjá norðurbakka hafnarinnar, í rúmgóðu húsnæði þar sem nýttir verða allir helstu kostir upplýs- inga- og samskiptatækni. Nú er markvisst unnið að hug- myndasköpun varðandi skipulag miðbæjarins sem miðar að því að kostir svæðisins birtist skýram dráttum. I miðbænum eru lausar byggingarlóðir sem þykja afar dýr- mætar, ekki aðeins á hafnfirskan mælikvarða heldur þegar litið er á höfuðborgarsvæðið í heild sinni. Opið kl. 9-16, lau. kl. 10-12 Bankastræti 3, sími 551 3635. Póstkröfusendum .• „tí- Eru rimlagardínurnnr óhreinar! Viö hreinsum: Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld. Setjum afrafmagnandi bónhúð. Sækjum og sendum ef óskað er. NvJa tækxúhremsunin Sóiheimar 35 • Sími: 533 3634 • GSM: 897 3634 Hafnarfjörður, segir Jó- Jj er að þróast samfelld byggð allt frá Hafnarfirði upp á Kjalarnes - hol- óttir malarvegir og höggdeyfalaus- ar sjálfrennireiðar heyra sögunni til. Svæðið er að verða eitt atvinnu- svæði - margir Hafnfirðingar vinna í Reykjavík og Reykvíkingar í Hafnarfirði. Hafnarfjörður mun hins vegar halda sérkennum sínum og verða áfram eftirsóknarverður staður til ýmiskonar lista- og menn- ingarstarfsemi. En við geram ekki aðeins ráð fyrir því að starfsmenn og nemend- ur Listaháskóla Islands muni ferð; ast milli svæða til náms og starfa. A því svæði, sem hugsanlegt er fyrir starfsemi háskólans á norðurbakka hafnarinnar, hlýtur einnig að verða möguleiki á stúdentagörðum - nýj- um íbúðum fyrir nemendur á besta stað í bænum, innan háskólasvæð- isins. Þannig gæti orðið til einstakt samfélag stúdenta sem félli afar vel inn í bæjarmyndina í Hafnarfirði, enda hafa fjölmargir listamenn tek- ið sér búsetu í Firðinum og styrkt þannig menningarlega ímynd og yfirbragð bæjarins. Af þessu má sjá að Hafnarfjörð- ur er af mörgum ástæðum hag- kvæmur kostur fyrir Listaháskóla og það sem hér hefur verið nefnt er auðvitað ekki tæmandi upptalning. Víst má telja að margir munu berj- ast um hituna sjái forráðamenn há- skólans sér ekki hag í þessari stað- setningu og alveg ljóst að Hafnfírðingar verða ekki á flæðis- keri staddir þegar kemur að nýframkvæmdum í hjarta bæjar- ins. Það er hins vegar mín skoðun að Listaháskóli Islands og Hafnar- fjarðarbær myndu tvímælalaust hafa gagnkvæman hag og stuðning af samstarfi um uppbyggingu há- skólanáms á sviðum menningar og lista og ég hvet stjórn Listaháskól- ans, yfírvöld mennta- og menning- armála í landinu og aðra sem unna menningu og listum að ígrunda vel þá kosti sem hér hafa verið reifaðir og gera Hafnarfjörð að raunhæfum valkosti fyrir Listaháskóla íslands. Höfundur upplýsingastjóri hjá Hafn- arfjarðarbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.