Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
PÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 17
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
A myndinni eru: Hallgrímur Bogason, formaður Heiibrigðisstofnun-
ar Suðurnesja, Arni Leifsson læknir, Konráð Lúðvíksson yfirlæknir
og Guðbjörg Vilhjálmsson, formaður Kvenfélagasambands Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, við tækið góða.
Ný sýsluskrif-
stofa í
Stykkishólmi
Stykkishólmi - f vor var hafin
bygging á nýrri sýsluskrifstofu í
Stykkishólmi. Byggingin er við
Aðalgötuna við hlið íþróttamið-
stöðvarinnar. Auk sýsluskrif-
stofu verður þarna til húsa
aðsetur lögreglunnar. Aætlað er
að húsið verði fokhelt fyrir
áramót og seinni hluti vetrar
verði notaður til að innrétta
bygginguna, en verktaki á að
skila henni tilbúinni 1. júní á
næsta ári. Verktaki er
Trésmiðja Pálmars í Grund-
arfirði, sem átti lægsta tilboð.
Morgunblaðið /Gunnlaugur Arnason
Framkvæmdir við nýju sýsluskrifstofúna í Stykkishólmi ei*u í fullum
gangi og er áætlað að taka bygginguna í notkun 1. júní á næsta ári.
Kvenfélagskonur
í Gullbringu- og
Kjósarsýslu
Gáfu maga-
speglunar-
tæki til
Suðurnesja
Keflavík - Kvenfélagasamband
Gullbringu- og Kjósarsýslu gáfu
nýlega Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja nýtt magaspeglunartæki að
gjöf. Nýja tækið sem, er af tegund-
inni Olympus og kostar um 1,6 mil-
ljónir króna, mun leysa af gamalt
og „þreytt“ tæki sem fyrir er að
sögn Arna Leifssonar læknis sem
kynnti tækið við þetta tilefni. Ámi
sagði að ekki væri hægt að reka nú-
tíma sjúkrahús svo vel færi án þess
að hafa slíkt tæki og því kæmi þessi
gjöf kvenfélagskvenna sér ákaflega
vel.
Kvenfélagasamband Gullbringu-
og Kjósarsýslu er samband kvenfé-
laga í Keflavík, Njarðvík, Grinda-
vík, Sandgerði, Garði, Vogum, Bes-
sastaðahreppi, Garðabæ,
Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og
Kjósarhreppi - og starfa um 1100
konur í kvenfélögunum sem standa
að sambandinu. Pað var Guðbjörg
Vilhjálmsson formaður sem afhenti
nýja tækið og sagði við það tilefni
að þær kvenfélagskonur vonuðust
til að nýi búnaðurinn kæmi að góð-
um notum við greiningar og rann-
sóknir á vandamálum í meltingar-
vegi skjólstæðinga Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning í dag
í Hagkaupi Skeifunni
ki. 15-19,
Apóteki Keflavíkur kl. 14-18,
Selfoss Apóteki, Kjarnanum,
kl. 14-18.
Þú verður bjargarlaus
án hennar
en hún hefur svo gaman af því að ferðast
Þú hefur vanist því að geta leitað til hennar
hvenær sem er þar sem hún er margfalt öflugri en
þær sem þú hefúr áður reynt. Með aðstoð hennar hefur
þú alltaf verið I öruggu og góðu sambandi bæði heima
og heiman. Einnig hefúr hið óbrigðula minni gert hana
að þinni hægri hönd og þar af leiðandi ómissandi.
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
y
Dell Latitude fartölvan er ein sú fúllkomnasta sinnar
tegundar á markaðnum I dag. Þótt smágerð sé stendur
hún stærri vélumjafnfætis eða framarað gæðum og styrk.
Hún er sú eina rétta.
EJS hf. + 563 3000 ♦ www.ejs.is ♦ Grensásvegi 10 + 108 Reykjavfk