Morgunblaðið - 08.10.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 29
• •
Orlögin kosta sitt - álög eru ókeypis
LEIKLIST
Morgunblaðið/Þorkell
Guðbjörg Thoroddsen, Bjarni Haukur Þórsson og Þórhallur Sigurðsson í hlutverkum sínum.
Leikhúsbfó í Bíóborg-
inni (Austurbæjarbfó)
KOSSINN
Hugmynd: Bjarni Haukur Þórsson.
Höfundur: Hallgrímur Helgason.
Leikstjórn: Jóhann Sigurðarson.
Leikmynd: Vignir Jóhannsson. Ljósa-
hönnun: Lárus Björnsson. Búningar:
Ásta Guðmundsdóttir. Leikgervi:
Kolfinna Knútsdóttir. Dansar: Jó-
hann Orn Olafsson. Leikarar: Bjarni
Haukur Þórsson, Davíð Þór Jónsson,
Guðbjörg Thoroddsen, Laufey Brá
Jónsdóttir, Nanna Kristín Magnús-
dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Steinn
Ármann Magnússon og Þórhallur
Sigurðsson. Dansarar: Berglind Pet-
ersen, Brynhildur Tinna Birgisdóttir,
Brynjar Orn Þorleifsson og Jóhann
Orn ólafsson. Fimmtudaginn
7. október.
BJARNI Haukur Þórsson er
leikari sem vantaði inn í íslenskt
leiklistar- og skemmtanalíf. Hann
er þessi ofurvenjulega manngerð,
sem hefur í augum landans engin
þau sérkenni sem koma í veg fyrir
að gervöll íslenska karlþjóðin geti
sett sig í hans spor. Hann átti hug-
myndina að þessu verki og aðalhlut-
verkið er spunnið fyrir grínpersónu
sem Bjarni Haukur hefur skapað
sjálfur. Persóna Ama höfðar til
móðurtilfinninga áhorfenda þar sem
hann vandræðast í gegnum líf sitt
sem hann líkir við misheppnaða bíó-
mynd. Buxurnar eru svo krumpaðar
að það er eins og hann hafi sofið í
þeim, hann er alltaf illa gyrtur og
með úfið hárið og svo veit hann ekki
hvers vegna hann hefur ekki getað
orðið sér úti um konu! Bjami Hauk-
ur gerir því meira en að smellpassa
í hlutverkið; persónan er eins og
skopmynd af honum sjálfum og
stórum hluta íslenskra karlmanna
um leið. Hann getur ekki barist
gegn örlögum sínum en kemst að
því að ef spákonur eru reittar til
reiði getur það flækt hlutina óþarf-
lega.
Steinn Armann Magnússon og
Davíð Þór Jónsson leika vini Arna.
Þeii- leika tvær aðrar staðlaðar
karlmannstýpur sem gegna því
hlutverki að vera á skjön við Arna
aumingjann. Steinn Armann náði að
byggja upp þrívíða persónu þrátt
fyrir að hún væri hvorki fugl né
fiskur úr hendi höfundar, auk þess
sem nákvæm tímasetning og öryggi
í framsögn gerði honum kleift að
koma gríninu mjög vel til skila. Da-
víð Þór hafði úr minna að spila og
var fyrir vikið full litlaus. Róni
Steins Ai-manns var nærri því of
aumkunarverður fyrir anda verks-
ins en dyravörður Davíðs Þórs var
algjörlega einhliða.
Þórhallur Sigurðsson leikur von-
biðla móður Ama. Hann leikur sér
að því að gefa hverri persónu skýr
sérkenni og hvert augnatillit og
svipbrigði er úthugsað jafnt í gríni
sem alvöru. Sem róninn rær hann á
örugg mið en slær í gegn sem Máni
Sverrisson. Það var greinilegt af
viðbrögðum áhorfenda að hann á
aðdáun þeirra vísa.
Nanna Kristín Magnúsdóttir skil-
ar mjög heilsteyptri mynd af Júlíu,
heimilishjálp ömmu Árna; jafnt sem
Sillu, gamalli kæi-ustu Arna. Hún
lifir sig mjög sterkt inn í hlutverkin
og leikur hennar er eðlilegur og
áhrifamikill. Laufeyju Brá Jóns-
dóttur, sem hér stígur í fyrsta sinn
á atvinnuleiksvið, tekst vel upp við
að leika fjölmargar kvenpersónur
þar sem mest áhersla er lögð á
kímnina.
Guðbjörg Thoroddsen leikur
móður Arna af glæsibrag og sveipar
spákonuna dulúð og ákveðni sem
mjög áberandi mótvægi við ráðleysi
Arna þegar hún leggur á hann áður
ókunnar kenndir. Sigurveig Jóns-
dóttir er hin kjaftfora amma sem
reynir sitt til að koma dóttursynin-
um út. Nokkurt óöryggi einkenndi
leik Sigurveigar sem hafði slæm
áhrif á framsögnina og setningar
misstu marks. Fjórir dansarar tóku
sporið og léku ýmis smáhlutverk af
smekkvísi og öryggi.
Þessi sýning var borin uppi af
leiknum. Leiktexti Hallgríms
Helgasonar er oft smellinn og
stundum launfyndinn en það er
ekki nóg að komast vel að orði. Hin
fjöldamörgu atriði voru svo sundur-
laus að hinn sáraeinfaldi og fyrir-
sjáanlegi þráður sögunnar týnist í
útúrdúrum. Fyrir vikið minnir
verkið á revíu, enda er tækifærið
notað og tæpt á ýmsum málum sem
hafa verið ofarlega á baugi. Grínið
ríkir hér grímulaust og persónu-
sköpun og form lúta í lægra haldi.
Þess vegna skiptir frammistaða
leikaranna, hæfileiki þeirra til að
finna á sér hvenær slá á botninn í
brandarana og hve langt má ganga
í skopstælingunni öllu máli. Þeir
skiluðu sínu verki vel og uppskáru
hlátrasköll áhorfenda. Hins vegar
vantar nokkuð upp á að sýningin
renni nógu vel og hún er óþarflega
löng, enda mætti víða þétta atriðin
og skera niður.
Leikmyndin er stílhrein og þjál
og aðdáunarvert hve fjölbreytilega
er hægt að nýta hana. Nokkuð bar
á því að leikarar stæðu utan
ljósanna, sem benti til þess að stöð-
ur hefðu ekki verið nógu vel æfðar.
Búningar voru fjölbreyttir en ein-
faldir, á stundum nokkuð samtín-
ingslegh', sem átti enn betur við
sviðsmunina. Sérstaklega ber að
nefna fjölbreyttar hárkollur sem
greinilega hjálpuðu leikurunum
mikið við persónusköpun sína og
mikið var í lagt. Dansinn vai' lítið
meira en krydd í einstaka atriðum
en vel útfærður.
Hér er á fjölunum skemmtilegt
safn af smellnum bröndurum, kími-
legum persónum og skemmtiiegum
tilsvörum. Sýningunni er haldið
uppi af margreyndri sveit gaman-
leikara auk nokkurra ungra og upp-
rennandi. Snjall textinn er í fyrir-
rúmi en losaraleg uppbygging
verksins og ónóg æfing koma í veg
fyrir að úr verði heilsteypt sýning.
Sveinn Haraldsson
Gerðarsafn
Leiðsögn
listamanns
BENEDIKT Gunnarsson listmálari
mun veita gestum leiðsögn um sýn-
ingu sína í Listasafni Kópavogs -
Gerðarsafni milli
kl. 15 og 18 á
sunnudaginn
kemur sem jafn-
framt er síðasti
sýningardagur.
Mun listamaður-
inn einnig svara
fyrirspurnum
sýningargesta
um fagurfræði-
lega og tækniiega
þætti myndgerð-
ar sinnar, tii dæmis um túlkun trú-
arlegra viðfangsefna.
Sýningin, sem er 25. einkasýning
Benedikts, ber yfiskriftina Sköpun,
líf og ljós. Þar eru sýnd olíumál-
verk, akrýl- og pastelmyndir og eru
flest verkin unnin á síðustu þremur
árum. Sýningin er hluti myndgerð-
ar Benedikts, þar sem sköpun, líf,
trú og rannsóknir í eðlis- og geim-
vísindum eru kveikja verks og meg-
ininntak.
Safnið er opið frá kl. 12-18.
-------------
Tónleikar
endurteknir
TÓNLEIKAR með Ellen Krist-
jánsdóttur söngkonu, Tómasi R.
Einarssyni kontrabassaleikai'a,
Guðmundi Péturssyni gítarleikara
og Eyþóri Gunnarssyni kóngaslag-
verks- og píanóleikara verða endur-
teknir í kvöld, föstudagskvöld, í
Kaffileikhúsinu kl. 23.
-------------
Sýning í Alli-
ance Fran^aise
í SALARKYNNUM Alliance
Frangaise, Austurstræti 3, opnar og
kynnir forstöðumaður Álliance
Frangaise, Denis Bouclon, sýningu
á skáldsögum/leiðbeiningum í dag,
föstudag kl. 18.
-------------
Sýningu lýkur
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Benedikt
Gunnarsson
Rússnesk gullöld
TOMLIST
Háskólabfó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Sinfóníuhljómsveit íslands lék ball-
ettinn Gullöldina eftir Dimitri Sjosta-
kovitsj, Píanókonsert nr. 2 eftir
Sergei Prokofíjcv og ballettinn
Petrúska eftir Igor Stravinskfj. Ein-
ieikari var Tatjana Lazareva og
hljómsveitarstjóri Alexander Laz-
arev. Fimmtudagskvöld kl. 20.00.
ENN leitar Sinfóníuhljómsveit
íslands á rússnesk mið, á þriðju
tónleikum starfsársins, og telst
gagnrýnanda þá til að það sem af er
starfsárinu hafi aðeins hljómað eitt
verk á áskriftartónleikum sem ekki
var samið af rússnesku tónskáldi.
Það er ekki nema gott eitt um þetta
rússneska þema að segja, og gaman
að eiga þess kost að heyra úrval sin-
fónískra tónbókmennta einnar þjóð-
ar á einum vetri. Forsvarsmenn
hljómsveitarinnar hefðu gjarnan
mátt benda áskrifendum sínum á
bók sem ætti að vera skyldulesning
með rússneska vetrarþemanu, - en
það er bókin Galína, sjálfsævisaga
Galínu Vishnévskaju, einnar fræg-
ustu söngkonu Rússa á seinni hluta
aldarinnar, en Galína er gift selló-
leikaranum Mstislav Rostropovitsj,
sem hefur komið nokkrum sinnum
hingað að spila. I ævisögu sinni lýs-
ir Galína lífinu í Rússlandi á erfið-
um tímum, - allt frá seinni heims-
styrjöldinni og umsátrinu um Len-
ingrad til frægðar á sviðinu í Bols-
hoi og loks útskúfunar vegna stuðn-
ings þeirra hjóna við Alexander
Solshenitzyn. Galína lýsir kynnum
sínum og þeirra hjóna af tónskáld-
unum Sergei Prokofijev og Dimitri
Sjostakovitsj, og er sú lesning ein-
staklega áhrifai'ík og gefur ómetan-
lega innsýn í líf tónskáldanna og á
allt annan hátt en lesa má í fræði-
bókum og uppsláttarritum. En hvað
um það? Þetta er umfjöiiun um tón-
leika, en ekki sakar þó að benda
áhugasömum á þetta.
Dimitri Sjostakovitsj samdi ball-
ettinn Gullöldina fyrir Kirov-leik-
húsið í Leningrad árið 1930. Verkið
er í fjórum þáttum, og segir sagan
frá ferðum fótboitaliðs sem fer að
keppa á vesturlöndum í tengslum
við sovéska iðnsýningu sem kölluð
er Gullöldin. Verkið er háðsádeila; -
ýktur áróður um ágæti sovétskipu-
lagsins, þai- sem góðu kallarnir eru
góðir og þeir vondu vondh', og góðir
kallar allra landa stíga léttfættir
samstöðudans gegn þeim vondu.
Eftir fjönjgan inngangsþátt þar
sem kómík og gleði eru allsráðandi
kemur eini alvarlegi þáttur verks-
ins. Angurvært saxófónsóló innleið-
ir íhuguit tónaílóð með þungi'i
undh'öldu fagotta og málmblásara.
Fiðla tekur við einleiknum og loks
bariton. I þriðja þættinum, polka,
sem er þekktur einn og sér í ýmiss
konar útsetningum, tekur gleðin
aftur völd, en hún snýst smám sam-
an upp í að verða grótesk eins og
sirkustónlist, og í lokaþættinum er
stiginn þungur dans sem verður
trylltari efth' því sem á líður. I upp-
hafi virtist hljómsveitarstjóranum
ekki ætla að takast að halda verkinu
saman í tempói, - en þegar þeir örð-
ugleikar rjátluðust af var leikur
hljómsveitarinnar fínn, með mikilli
dýnamík og gleði.
Prokofijev var aðeins liðlega tví-
tugur þegar hann samdi annan pí-
anókonsert sinn. Einleikai'inn á tón-
leikunum í gærkvöldi var á sama
aldri. Tatjana Lazareva, dóttir
hljómsveitarstjórans, fór létt með
að spila verkið. Það var unun að sjá
hve fallega hún bar sig við spila-
mennskuna; - músíkölsk mýktin og
þokkinn sögðu talsvert um hæfi-
leika hennar. Hún lék vélrænt upp-
haf fyi'sta þáttarins af ljóðrænni
innlifun og agaðri einbeitingu.
Langh' sólókaflar í öllum þáttum
verksins, þar sem Prokofijev ham-
ast í skölum og brotnum hljómum,
voru fallega spilaðir. I heildarsvip
túlkunarinnar vantaði þó meiri
dýpt, skarpari andstæður og meiri
karakter. Það er kannski til mikils
ætlast af svo ungum einleikara að
hafa túlkun svo erfíðs verks full-
komlega á valdi sínu, en þessi
stúlka, svo góð sem hún er nú, á ör-
ugglega eftir að skipa sér í fremstu
röð píanóleikara þegar fram líða
stundir. Hljómsveitin lék prýðilega
með henni, - en hljómsveitarstjór-
inn virtist stundum í vandræðum
með að halda jöfnu tempói eins og í
fyrra verkinu.
Ballettinn Petráska er eitt af
skemmtilegustu verkum Stravin-
skíjs. Þótt verkið væri það elsta á
efnisskránni, eða níutíu ára, vh'tist
það samt yngst í anda, - ferskast og
frumlegast, ótrúlega ríkt af blæ-
brigðum og hljómsveitarlitum.
Þrátt fyrir söguna sem fylgir verk-
inu, um tuskudúkkuna Petrúska,
ástir hennar, ástleysi og örlög, -
stendur verkið fyllilega sjálfstætt
án hennar sem hljómsveitarsvíta.
Það er skemmst frá þvi að segja að
hljómsveitin lék verkið virkilega vel
og lífsyndið og lífsþrótturinn sem í
því búa skiluðu sér vel í fjörmiklum
og fallegum leik.
Bergþóra Jónsdóttir
SÝNINGU Helgu Magnúsdóttur í
Listhúsi Ofeigs lýkur 13. október. Á
sýningunni eru vatnslitaverk.
Listhús Ofeigs er opið á
almennum verslunartíma.
Hattar, húfur,
ALPAHÚFUR,
2 STÆRÐIR.
Mörkinni 6, s. 588 5518.
Barónsstígur
Til sölu er 3ja herbergja í búð á hæð í steinhúsi við Baróns-
stíg. Sér miðstöðvarlögn með Danfoss-lokum. Margt endur-
nýjað. Ekkert áhvílandi. Laus nú þegar. Greiðslumat kaup-
anda liggi fyrir sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur
Árni Stefánsson, hrl.,
Goðheimum 21, sími 553 4231.