Morgunblaðið - 08.10.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 08.10.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 39 UMRÆÐAN Fleinn í hold Reykjavíkur! GETUR verið ætlun Borgar- skipulags (Bsk.) að leyfa risabygg- ingu við Skógarhlíð 12 án tillits til öryggis Reykvikinga, óhagræðis nágranna og velsæm- issjónarmiða? A fundi íbúa fjölbýlishúsa við Eskihlíð með fulltrú- um Bsk. voru andmæli um slysahættu, um- ferðaröngþveiti, út- sýnisspillingu, meng- un, hávaðaáreiti o.fl. léttvæg fundin og byggingin talin hin eðlilegasta! Móthverfa lýðræðis- legra starfshátta Fundur íbúa og Bsk. 30. sept. var boðaður bréflega 27. sept. Margir komust ekki á fundinn vegna skamms fyrirvara, enda haldinn á vinnutíma. Málatil- búnaður og svör Bsk. voru áfall fyr- ir íbúana sem mættir voru; tillits- leysið við hagsmuni almennings, þjónkun við málstað byggingarað- ila. Þó var að sjá sem þau teldu af- greiðslu málsins eðlilega, þau væru að uppfylla vilja borgaryfirvalda og óskir byggingaraðila og hefðu formlega leyfi til að ganga svo frá málum. Um þetta vorum við frædd með kennslukonulegum hætti, tal- að niður til okkar, látin vita að við mættum þakka fyrir að vera boðuð, það væru 5 ár síðan byrjað væri að bjóða til slíkra funda með íbúum. Sá á, að þau eru óvön lýðræðislegri umræðu um eigin ákvarðanir. í fundarlok vorum við fróðari um vinnubrögðin, ekki að sama skapi hrifin. Einn spurði hvort þau væru ekki þjónar almennings, starfandi í umboði okkar til að vinna að al- mannaheill? Villandi fullyrðingar Fyrirsögn greinar í Mbl. 2. okt.: „Yfir 100 íbúar mótmæla bygging- aráformum við Skógarhlíð". Blekk- ing! Á undirskriftalista skrifuðu sig 244 manns. Auk þeirra voru and- mæli í 27 öðrum bréfum svo að 260- 300 nágrannar hafa mótmælt stór- hýsinu á stuttum tíma. Viðurkenndi aðalmálsvari Bsk. að borizt hefðu „geysilega margar athugasemdii- frá íbúunum". Samt var Mbl. ekki upplýst um þennan fjölda. Með skuggamælingum sést hve langt hús varpa skugga á umhverf- ið. Á fundinum voru lagðar fram myndir en miðað við júní og ágúst. Um hásumar eru skuggar með skemmsta móti! Eins og arkitekt sagði: „Skuggakönnun er varia marktæk nema hún taki yfir allt ár- ið.“ Og óráðlegt að taka hæpna könnun sem forsendu fyrir bygg- ingarleyfi! Húsbáknið tæki sólskin af mörgum íbúðum lungann úr vetri. Bsk. sagðist hafa lagað teikningu hússins, dregið úr um- fangi 6. hæðar og lengt húsið. Okkur sýndust breytingam- ar litlar. Þau leyfðu sér að kalla húsið „eig- inlega 5 hæðir, ekki 6“. Yrði þó 6. hæðin (þótt inndregin verði) 230 fermetrar! Svo er íbúum Hlíðahverfis neitað um teikningar af nýju húsgerðinni, sagt að málið sé „á of viðkvæmu stigi til að afhenda, teikningar núna“. Á að trúa því að Bsk. hafi í hyggju (eins og sagt var á fundinum) að afgreiða málið 7. okt. án þess að auglýsa teikninguna eða bjóða íbúum að gera athugasemd- ir? Er það lögformleg birting gagna? íbúar Eskihlíðar búa við hljóðmengun af Bústaðavegi, út- blástur þaðan og frá Miklubraut ár- ið um kring. Á fundinum ítrekaði ég áhyggjur af viðbótarmengun. Stef- án Finnsson frá umferðardeild hélt því fram að „aðeins yrði 1,1 desíbels hávaðaaukning" vegna umferðar kringum 163 bílastæði! Það töldu menn ekki geta staðizt um alla þá viðbótarumferð hér handan við Skógarhlíð. Engar tölur hafði hann um hver hávaðamörk hefðu reynzt á svæðinu fyrr en á hann var geng- ið; kvaðst þá minna að þau væru 60 desíbel (fari umferðarhávaði yfir 65, eiga íbúar rétt á hávaðavörn af hálfu borgarinnar). Þá taldi Stefán að „ekki yrði teljandi umferðara- ukning um Skógarhlíð" vegna húss- ins. Er það fráleitt, sbr. umsögn Slökkviliðs („Með tilkomu svo stórs húss á Skógarhlíð 12 verður að gera ráð fyrir verulegri aukningu um- ferðar um Flugvallarveg") og yfir- lækna Neyðarbíls sem spá „enn frekari aukningu umferðar um þetta svæði“ ef húsið verður byggt. Bsk. hefur ekki hag af hæpnum fullyrðingum um litla umferðar- og hávaðaaukningu. Ki-efjast íbúar rannsókna á hávaðaáreiti og meng- un á svæðinu. Vegna aðgengis slökkvi- og neyðarbíla að Bústaða- vegi gerði umferðardeild tillögu um breytta umferðarljósastýringu, sem kæmi niður á umferð um Búst- aðaveg. Umhverfisspjöll og slysahætta Húsið er í ósamræmi við nærlig- gjandi byggð, ólíkt að gerð, mun hærra en öll hús í grenndinni, myndar vegg fyrir framan Slökkvistöðina, ber litlu lægra en Skipulag Stærsta vandamálið, segir Jón Valur Jensson, er stóraukin slysahætta. turninn við hana, svo að skyggir á útsýni til mið- og austurborgar þegar ekið er yfir Oskjuhlíð vestur Bústaðaveg. Þessi fleinn í holdi höf- uðborgar (með tilheyrandi bflast- æðamalbiksvíðflæmi) er ekki það versta, heldur slysahættan af vax- andi umferð og tafir neyðaraksturs út á Bústaðaveg. Formaður Vals sendi Bsk. viðvörun um öryggi ung- menna á leið yfir Flugvalíarveg og Skógarhlíð. Slökkviliðsstjóri segir aukna umferð um Flugvallarveg geta „valdið verulegum töfum en einnig aukinni hættu á slysum vegna neyðaraksturs Slökkvilið- sins“. Umsjónarlæknar Neyðarbfls skrifa um tafir og hættu á slysum, en „ljóst er að mínútur og stundum sekúndur geta skipt máli þegar Neyðarbíllinn er kallaður til“. Starfsmenn Krabbameinsfélags skrifa „að bygging slíks stórhýsins væri mikil mistök með tilliti til um- ferðarvandamála," vísa til reynslu af biðröðum á stóru gatnamótunum og hættu á truflun fyrir Slökkvilið- ið, þetta sé mál sem snerti alla borgarbúa. „Okkur gengur ekki til að leggja stein í götu eigenda lóðar- innar við Skógarhlíð 12, en í þessu tilviki sýnast okkur hagsmunir þeirra rekast á við hagsmuni borg- arbúa“. Réttmætir hagsmunir fjöldans íbúar Eskihlíðar (yfir 500 manns í fjölbýlishúsum) gæta hagsmuna fjölskyldna sinna. Á barnafólk að hrekjast burt vegna mengunar og áreitis af ræsingum bifreiða af 163 bflastæðum og slysagildru rétt hjá húsunum? Þar um fara börn Hlíða- búa, þangað beinast göngustígar m.a. til Valsheimilis og Nauthóls- víkur. Hagsmunir fjöldans (öryggi og heilsa fólks og lífsgæði) fremur en einkaaðila (gróði fyrirtækis að byggja sem flestar hæðir) eiga að ráða úrslitum í þessu máli. Við sem gagnrýnum húsbáknið viðurkennum að mönnum beri að njóta eignar sinnar, að eðlilegt sé að byggja á lóðinni Skógarhlið 12, en ekki í óhófi. Þótt á „athafna- svæði“ sé, verður húsið við fjöl- menna íbúabyggð (mun fjölmenn- ari en við Laugaveg eða Landspítala þar sem deilt var um nýbyggingar). Því ber að minnka báknið, auka öryggi vegfarenda, takmarka hávaðaáreiti og mengun. Eins er smekklaust að leyfa hærra hús en öll önnur í hverfinu, hús sem skyggir á útsýni borgarbúa. Höfn- um þessum fleini í hold Reykjavík- ur. Höfundur er framkvæmdasljóri og íbúi við Eskihlíð. G JFlN^ Skólavörðustíg 35, sími 552 3621. Ekki fleiri ríkisQölmiðla RÍKIÐ rekur núna tvær útvarpsstöðvar og eina sjónvarpsstöð og hafa forsvarsmenn Ríkisútvarpsins kynnt hugmyndir sinar um opnun annarrar sjónv- arpsstöðvar. Aðal- fundur Heimdallar hefur mótmælt þess- um áformum harð- lega, enda er þessi leið algjörlega á skjön við þá þróun sem verið hefur á fjölmiðlamar- kaðnum með tilkomu fjölmargra einkaaðila og samkeppni. Ríkisútvarp ónauðsynlegt Þeir sem tala fyrir rekstri ríkis- útvarps hafa oft mikilla hagsmuna að gæta, að þessi stofnun haldi áfram rekstri. En rökin sem menn Fjölmiðlun Ríkið á ekki að standa í rekstri þjónustufyrir- tækja eins og fjölmiðla, segir Björgvin Guð- mundsson, þegar einka- aðilar hafa sýnt það og sannað að þeir eru mun betur til þess fallnir. nota hafa orðið veigaminni með hverju árinu og er svo komið að þau halda engan veginn. Öryggissjónarmið: Almanna- vamakerfí okkar er nú öflugra vegna tækninýjunga í fjarskiptum eins og símakerfis og gagnaflutn- inga um vefinn. Aðrir fjölmiðlar hafa einnig svipað dreifisvæði og RÚV (sem nær ekki til allra lands- manna!) og eins verður hægt _að nota núverandi dreifikerfi RÚV áfram þó að stofnunin sem slík sé lögð niður. Rökin era dauð. Lýðræðissjónarmið: Ríkisrekin útvarpsstöð tryggir ekki lýðræðis- lega umfjöllun. Ríkisrekin útvarps- stöð á oft annarlegra hagsmuna að gæta, yfir henni vakir pólitískt út- varpsráð, sem passar uppá umfjöll- un um sinn flokk og hún þrengir að frjálsu, óháðu aðilunum á markaðn- um. Rökin eru dauð. Menningarsjónarmið: Hlustend- ur útvarps og sjónvarps þurfa ekki annað en skoða þann fjölbreytileika sem þrífst með tækifærum frjálsu útvarps- og sjónvarpsstöðvanna. Við höfum klassískt, sígilt, kristið, rokkað, poppað, létt og gyllt á Gull- inu 90,9. Menningin þrífst ekki í stofnun, sem þrengir að öðrum aðil- um og styrkir alltaf þá sömu, held- ur í fjölbreytileika frjálsu stöðv- anna. Rökin eru dauð. Þrátt fyrir að Ríkisútvarpið sé lagt niður eða selt verður áfram veitt sú þjónusta sem stofnunin nú leggur tfl. Hún verður bara veitt af öðrum og okkur verð- ur ekki skylt að greiða fyrir hana frekar en við viljum. Við fáum frelsi til að velja. Enga ríkisfjölmiðla Daðm- stjórnenda RÚV við að opna aðra ríkissjónvarpsstöð og þenja báknið enn frek- ar út er því með öllu óskiljanlegt. Stærð Ríkisútvarpsins á markaðnum nú þegar þrengir verulega að öðrum sem þar eru og kemur í veg fyrir að nýir komist að. Það hefur þessa stöðu vegna tekna af lögbundnum afnotagjöldum og öfl- ugs dreifikerfis, ekki vegna vin- sælda og góðrar þjónustu. Ef önnur ríkissjónvarpsstöð verður sett á laggirnar og fjármögnuð algjöriega með auglýsingatekjum (sem ég ef- ast um að sé raunhæft af ríkisstofn- un) kæfir það frumkvæði einstakl- inga, sem eru að reyna að hasla sér völl á þessum markaði. Til marks um kæfandi faðmlag rfldsins í þess- um efnum hefur það haldið VHF- rás, sem er eina rásin sem næst til allra landsmanna, í mörg ár og því setið á auðlind sem gæti gefið af sér hundruðð milljóna á hverju ári. Ríkið á ekki að standa í rekstri þjónustufyrirtækja eins og fjöl- miðla þegar einkaaðilar hafa sýnt það og sannað að þeir eru mun bet- ur til þess fallnir. Taprekstur Rík- ^ isútvarpsins á síðasta ári var rúm- lega 345 milljónir og byggt hefur verið hús yfir stofnunina með skatt- fé almennings fyrir um 3.000 mil- ljónir. Þá á eftir að lagfæra húsið og færa í nútímalegt horf svo hægt verði að flytja Sjónvarpið þangað fyrir um 1.200 milljónir. Við erum með öðram orðum ekki að fá allt fyrir ekkert með nýrri ríkissjónv- arpsstöð. Við erum að glata tæki- færum til að byggja upp öfluga þjónustu einkaaðfla við landsmenn, sem þeir verða ekki neyddir til að greiða fyrir, og auka fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaðnum. Enga fleiri ríkisfjölmiðla takk! Höfundur er varaformaður Heimdallar, f.u.s. Laugavegi 4, sími 551 4473 Björgvin Guðmundsson - Gœðavara Gjafavara — matar- og kaífistell. Allir verðflokkar. , Heimsfrægir hönnuöir mj.Gianni Versace. VERSLUNIN Langavegi 52, s. 562 4244. Lyf&heilsa Kynning í dag og á morgun í Lyf og heilsu, Kringlunni ,3BcMgiiui. Æ£vií-.m.ui. igjL-yjaiiiil; g«7uamiii. FRIGGS D Fæst í apóteknum f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.