Morgunblaðið - 08.10.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 53
Morgunblaðið/Golli
Ný húsgagna-
og gjafavöraverslun
OPNUÐ hefur verið húsgagna- og
gjafavöruverslun með vörur frá
m.a. Indónesíu og Mexíkó. Versl-
unin ber heitið Mosó og er staðsett
í Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ.
Eigandi verslunarinnar er Mar-
ía Lára Atladóttir. Afgreiðslutími
er mánudaga kl. 11-18, þriðju-
daga og miðvikudaga kl. 10-18,
fimmtudaga kl. 10-20, föstudaga
kl. 10-19 og laugardaga ki.
11-16.
Minningarfyrirlestur Jóns Sigurðssonar
Félagsleg tengsl
á miðöldum
PRÓFESSOR Eva Österberg mun
halda minningarfyrirlestur Jóns
Sigurðssonar á vegum Sagnfræði-
stofnunar Háskóla íslands í hátíð-
arsal í Aðalbyggingu laugardaginn
9. október kl. 14. Fyrirlestur sinn
nefnir hún.* „Trust and kinship -
premodern man in perspective".
Sagnfræðistofnun býður árlega
merkum erlendum sagnfræðingi
til landsins til að halda fyrirlestur
og segir í fréttatilkynningu að
Evu Ósterberg megi telja meðal
þekktustu sagnfræðinga á Norð-
urlöndum. Hún varð doktor 1971,
prófessor í Uppsölum 1983-7 og
hefur verið prófessor í Lundi frá
1987. Aðalviðfangsefni hennar
hafa verið á sviði félags- og menn-
ingarsögu á miðöldum og allt
fram á 18. öld. Um þessar mundir
er hún fulltrúi Norðurlandanna í
stjórn heimssamtaka sagnfræð-
inga (Comité International des
Sciences Historiques = CISH eða
ICHS á ensku) og á sæti í þriggja
manna valnefnd samtakanna sem
undirbýr heimsþing sagnfræðinga
sem haldið verður í Ósló árið
2000.
Eva Österberg hefur stjórnað
stórum rannsóknarverkefnum,
ekki síst um afbrot og refsingar og
gaf út bókina Crime and Social
Control in Medieval and Early
Modern Swedish Towns (1988, með
öðrum).
Nýjustu bækur Evu Österberg
eru: Folk förr. Historiska essaer
(1995). Jámmerdal och fröjdesal.
Kvinnor i stormaktstidens Sverige
(1997).
í fyrirlestri sínum, sem Öster-
berg flytur á ensku, mun hún fjalla
um það sem fræðimenn telja að
einkenni miðaldasamfélagið og geri
það ólíkt nútímasamfélagi. Hún
mun fjalla um mikilvægi félags-
legra tengsla á miðöldum, svo sem
ættartengsla, og um átök hags-
munahópa. Hún dregur upp mynd
af því sem telst einkenna „nútíma-
manninn" og ber saman við það
sem telst einkenna „miðaldamann-
inn“ og sækir efni m.a. í Islend-
ingasögurnar til að varpa Ijósi á
málið. Hún mun gera því nokkur
skil hvernig norrænir og aðrir
fræðimenn hafa tekið á íslenskum
söguritum frá miðöldum sem heim-
ildum um menningarsögu.
A undan fyrirlestrinum verður
Jóns Sigurðssonar minnst með fá-
einum orðum.
Námskeið um börn
og Netið, fxkniefni
og sjónvarp
HJÁ Endurmenntunarstofnun
hefjast innan skamms þrjú nám-
skeið um börn og unglinga í nútíma
samfélagi. Þar er fyrst að nefna
námskeiðið „Börn og foreldrar á
Netinu", en þar verður fjallað um
þá fjölmörgu möguleika sem Netið
opnar og börn og foreldrar geta
skoðað og fengist við saman. Sýnt
verður hvernig foreldrar geta
stuðlað að öryggi barna sinna í
Netnotkun. Námskeiðið hefst
fimmtudaginn 14. október og nær
yfir fjögur kvöld.
Þá er námskeiðið „Fíkniefni:
verkun, einkenni og útlit og vís-
bendingar um neyslu og viðbrögð
við henni“. Helstu ólöglegu fíkni-
efnin verða sýnd eins og þau birt-
ast á fíkniefnamarkaði hér á landi
og áhöld og hlutir sem tengjast
neyslu efnanna. Vísbendingar um
neyslu nemenda og hvaða ráðstaf-
ana er hægt að grípa til í slíkum til-
vikum. Námskeiðið verður haldið
1. nóvember kl. 9-17.
Síðasta námskeiðið í þessum
flokki er „Áhrif sjónvarps á börn
og unglinga". Þar fjallar Guðbjörg
Hildur Kolbeins lektor um áhrif
sjónvarps á íslensk börn og ung-
linga og leggur hún sérstaka
áherslu á sambandið milli ofbeldis-
mynda og andfélagslegrar hegðun-
ar. Námskeiðið hefst 26. október
kl. 20 og verður átta kvöld.
FRÉTTIR
Málþing
Rannsókn-
arstofnunar
KHÍ
RANNSÓKNIR, nýbreytni, þró-
un er yfirskrift málþings sem
haldið verður á vegum Rannsókn-
arstofnunar Kennaraháskóla Is-
lands (RKHÍ) laugardaginn 9.
október næstkomandi. Er þetta í
þriðja sinn sem málþing af þessu
tagi er haldið. Menntamálaráðu-
neytið og Leikskólar Reykjavíkur
mun bera hluta af kostnaði.
Helsta markmið málþingsins er
að skapa vettvang til kynningar á
verkefnum á sviði þróunar- og ný-
breytnistarfs og efla rannsóknar-
og þróunarviðleitni kennara og
annarra uppeldisstétta.
Málþingið stendur frá kl. 8.15-
15.50 og hefst með því að Þórir
Ólafsson, rektor Kennaraháskól-
ans, setur þingið.
Á málþinginu verða kynnt á
sjötta tug rannsóknar- og þróun-
arverkefna, í erindum og á vegg-
spjöldum, sem flest hafa hlotið
styrki frá opinberum aðilum eða
samtökum kennara. Verkefnin eru
ný, ýmist eru þau enn í fram-
kvæmd eða þeim hefur verið lokið
á síðastliðnum tveimur árum. Þau
verða kynnt eitt af öðru og eru 15-
20 mínútur ætlaðar hverju þeirra.
Kynningar fara fram í sex lotum
samtímis, fyrir og eftir hádegi.
Einnig mun Námsgagnastofnun
standa fyrir sýningu á nýju náms-
efni.
Málþingið verður haldið í hús-
næði Kennaraháskólans við
Stakkahlíð og er öllum 'opið. Þátt-
tökugjald er 1.000 kr. Dagskrá
hefur verið sent öllum leik- og
grunnskólum og mörgum fram-
haldsskólum og er einnig að fínna
á netinu: http://www.khi.is/
khi/malthing/tilkynning.htm
Leikhúsnámskeið
Endurmenntunar-
stofnunar HÍ
Fyrirlestrar
um Brecht og
Krítarhring--
inn í Kákasus
LEIKHÚSNÁMSKEIÐ Endur-
menntunarstofnunar í samvinnu
við Þjóðleikhúsið hefst þriðjudag-
inn 12. október. Á námskeiðinu
verða fyrirlestrar um leikritið
Kj'ítarhringinn í Kákasus og leik-
skáldið Bertolt Brecht. Þátttak-
endur fara einnig í heimsókn á æf-
ingu í Þjóðleikhúsinu um miðjan
æfingatímann og sjá svo sýning-
una fullbúna, rétt fyrir fnimsýn-
ingu. Námskeiðinu lýkur með um-
ræðum með þátttöku aðstandenda
sýningarinnar, að þvi er segir í
fréttatilkynningu.
Þýska skáldið, leikstjórinn og
kenningasmiðurinn Bertolt
Brecht (1898-1956) er einn þeirra
sem hafa haft hvað mest áhrif á
þróun evrópskrar leiklistar á 20.
öldinni. Þjóðleikhúsið frumsýnir í
nóvember eitt af þekktustu verk-
um Brechts, Krítarhringinn í
Kákasus, sem hann skrifaði 1944,
þegar hann dvaldi í Bandaríkjun-
um í útlegð frá Þýskalandi nas-
ismans. í verkinu er tekið tO með-
ferðar efni sem frægt hefur orðið í
bókmenntum, en það er defla
tveggja kvenna um barn, deila
sem dómari leiðir til lykta með
óvenjulegum hætti.
Efnið kemur meðal annars fyrir
í gömlu kínversku leikriti, Ki-ítar-
hringnum, sem var samið um svip-
að leyti og Njála, og í aðeins
annarri mynd í sögunni um
Salómonsdóminn í Gamla testa-
mentinu. Krítarhringurinn í
Kákasus er nú sýndur í fyrsta sinn
á íslensku leiksviði. Leikstjóri
sýningarinnar er Stefan Metz.
Hann kemur frá leikhúsinu
Théatre de Complicité í London,
sem hefur á síðustu árum hlotið
heimsfrægð fyrir óvenjulegai' og
magnaðar leiksýningar. Með hon-
um í för er dramatúrginn Philippe
Bischof.
Heilsustofnun NLFÍ
Námskeið
gegn
reykingum
NÆSTA vikunámskeið gegn
reykingum í Heflsustofnun NLFÍ
í Hveragerði hefst 18. október nk.
Gert er ráð fyrir því að 10 manns
verði saman í hópi og er enn hægt
að bæta við þátttakendum. Gesta-
fyrirlesari á þessu námskeiði verð-
ur Gyða K. Jónsdóttir ráðgjafí í
„neuro-linguistic programming",
en það er aðferð til þess að hjálpa
fólki að finna sér markmið og að
ná þeim. Gyða starfaði í Heilsu-
stofnun fyrr á árinu.
Meginmarkmiðið með nám:
skeiðum Heilsustofnunar NLFI
er að þátttakendur hætti að
reykja fyrir lífstíð. Á námskeiðun-
um er áhersla lögð á félagslega,
líkamlega og andlega uppbygg-
ingu. Beiðni þarf ekki frá lækni á
þessi námskeið.
Fyrirlestur
um einhverfu
PRÓFESSOR Christopher Gill-
berg heldur í dag fyrirlestur á
vegum Umsjónarfélags ein-
hverfra. Fyrirlesturinn ber nafnið
Einhverfurófið - þróunin í dag og
verður íluttur síðdegis í dag,
föstudag, á Grand Hóteli, Sigtúni
38, milli klukkan 16 og 18.
í fréttatilkynningu segir að Gill-
berg standi framarlega í rann-
sóknum á sviði taugageðlæknis-
fræði barna og þá sérstaklega á
sviði einhverfu. Hann flutti bæði
fyrirlestra á nýafstöðnu þingi evr-
ópskra bamalækna, sem haldið
var í Hamborg, og fyrstu samnor-
rænu ráðstefnunni um rannsóknir
á sviði einhverfu og Asperger-heil-
kennisins.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og er aðgangseyrir 500 krónur.
Skálholtskórinn
til Evrópu
Styrktartón-
leikar í Skál-
holtskirkju
SKÁLHOLTSKÓRINN heldur á
sunnudag kl. 16 styi'ktartónleika í
Skálholtskirkju og verður þar
flutt efni, sem kórinn hyggst flytja
í ferð til Frakklands og Italíu á
næstunni.
Kórnum var ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur söngkonu boðið til
Rouffach í Frakklandi til að
syngja í tengslum við alþjóðlega
læknaráðstefnu nú í október. Um
50 manna hópur mun halda af
landi brott 13. október.
Á tónleikunum verður fjölbreytt
dagskrá með kirkjulegri og ver-
aldlegri tónlist. Þar má meðal
annars heyra Hallelújakórinn úr
Messíasi, Hear my prayer eftir
Mendelssohn og margt fleira.
Hjónin Diddú og Þorkell Jóels-
son homleikari flytja dúett, orgel-
leikari verður Kári Þormar og
stjómandi kórsins er Hilmar Örn
Agnarsson.
Styrktarmiðar fást í Verslun-
inni Borg í Grímsnesi og í Versl-
uninni J og J í Kjamanum á Sel-
fossi.
Hrossarétt
á Melgerðis-
melum
RÉTTAÐ verður í nýju hrossa-
réttinni á Melgerðismelum laugar-
daginn 9. október kl. 11 en hún tók
við hlutverki Borgarréttar og var
vígð í fyrra.
Hrossaræktarsamtök Eyfirð-
inga og Þingeyinga reka nú um-
fangsmikla starfsemi á Melgerðis-
melum og í haust er mest áhersla
lögð á markaðsmálin og félags-
menn efna til sölusýningar á rétt-
ardaginn kl. 15. Þar verða sýnd á
þriðja tug hrossa sem nú em á
sölumiðstöðinni. Þessi hross em
flest kynnt á heimasíðu og þar er
mikinn fróðleik að finna um inn-
viði og starf Hrossaræktarsam-
takanna. Slóðin er www.orri.
is/eything
Félagar í hestamannafélaginu
Funa verða með kaffisölu á staðn-
um og standa fyrir réttarballi í
Sólgarði um kvöldið.
Haustlitaferð
í Borg-arfjörð
SKÓGRÆKTARFÉLAG íslands
og Ferðafélag íslands gangast
sameiginlega fyrir dagsferð í
Borgarfjörð laugardaginn 9. októ-
ber nk. Farið verður í hópferðabif-
reið frá húsi Ferðafélags Islands,
Mörkinni 6, kl. 9.
Ekið verður um Borgarfjörð og
fjölbreytflegir skógar héraðsins
skoðaðir í einstöku litskrúði
haustsins. Verð ferðarinnar, akst-
ur og leiðsögn er 3.000 kr. á
mann. Þátttakendur taki með sér
nesti.
Gönguferð
um Gufunes
FÉLAGS- og tómstundamið-
stöðin Gufunesbær stendur fyrir
gönguferð um jörðina Gufunes
laugardaginn 9. október. Lagt
verður af stað kl. 10 frá Gufu-
nesbæ við Gufunesveg. Fjallað
verður um sögu staðarins og
helstu örnefni í nágrenninu.
Skoðaðir verða minjastaðir og
annar fjársjóður sem saga Gufu-
ness geymir.
Að lokinni göngu verður boðið
upp á kaffi og vöfflur í Gufunes-
bæ. Leiðsögumaður verður Anna
Lísa Guðmundsdóttir frá Árbæj-
arsafni.
Kynna viðhorf
til gagna-
grunns
NEFND á vegum Alþjóðafélags
lækna, World Medical Association
(WMA), hefur tekið afstöðu tfl
laga um gagnagrann á heflbrigðis-
sviði.
F orsvarsmenn WMA verða
gestir á aðalfundi Læknafélags Is-
lands dagana 8.-9. október nk. þar
sem niðurstaða nefndarinnar
verður kynnt. Fulltrúarnir era
þeir Delon Human, framkvæmda-
stjóri WMA og Ánders Milton,
formaður WMA-ráðsins, sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri
sænska læknafélagsins. Þeir
munu jafnframt kynna fulltrúum
heilbrigðis- og tryggingamála-
nefndar Alþingis, landlækni, vís-
indasiðanefndum, tölvunefnd, full-
trúum heilbrigðisráðuneytisins og
fleirum þetta nefndarálit sem
verður á dagskrá Alþjóðafélags
lækna í Israel í næstu viku, segir í
fréttatilkynningu.