Morgunblaðið - 08.10.1999, Síða 60
/60 FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Hljómsveitin Yoga á Gauki á stöng í kvöld
í j ógastellingu
um aldamótin
Morgunblaðið/Þorkell
Per, Jens, Sebastian og Richard verða á Gauki á Stöng í kvöld
og á laugardagskvöldið.
ÞEIR Per Kalenius og
Jens Bjurman úr sænsku
hljómsveitinni Yoga voru
kátir og hressir er blaða-
maður hitti þá, enda nýkomnir til
landsins og fullir tilhlökkunar að
spila á tónleikum á Gauki á Stöng
í kvöld og annað kvöld. „Við spil-
uðum á Jazzhátíð Reykjavíkur
hér í fyrra og fannst það svo
gaman að við þáðum það með
þökkum að koma aftur hingað,"
sagði Jens og brosti sínu blíðasta.
„Við erum virkilega ánægðir að
vera komnir aftur því að það er
svo indælt að hafa áheyrendur
sem skilja tónlistina okkar og eru
áhugasamir,“ segir Per og bætir
* við að það sé engin spurning að
Islendingar séu þannig áheyrend-
ur; draumaáheyrendurnir.
Auk þeirra tveggja skipa
hljómsveitina Sebastian Öberg
sellóleikari og Richard Nett-
ermalm trommuleikari.
Ferðalag framundan
- Hafið þið spilað víða síðan þið
voruð hér fyrir ári?
„Nei, reyndar ekki,“ segir Per.
„Við höfum verið uppteknir í
hljóðveri að taka upp tónlist fyrir
aðrar hljómsveitir. En núna
stendur til að fara í ferðalag."
- Þið starfið þá við að taka upp
t tónlist fyrir aðra?
' „Já, og ekki bara Drum & Bass
tónlist eins og við spilum heldur
bara hvað sem er. A síðasta ári
unnum við með popphljómsveit-
um og hipp-hoppurum svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Yoga hefur gefið út samnefnda
breiðskífu sem að sögn Jens og
Per hefur selst ágætlega, þar á
meðal á Islandi, sem er einkar
gleðilegt að þeirra mati. Ný
breiðskífa er í bígerð og binda
þeir félagar vonir við að hún geti
komið í verslanir næsta vor.
- Hvað hafið þið tveir þekkst
lengi?
„I yfír fimmtán ár,“ segja þeir
næstum samtímis og hlæja. „Við
höfum nánast verið að vinna sam-
an að tónlist allan þann tíma,“
segir Jens.
Hljómsveitin Yoga var síðan
stofnuð fyrir um það bil þremur
árum. „Við höfum verið að ein-
beita okkur að þróun tónlistarinn-
ar,“ segir Per. „Við erum fjórir í
sveitinni núna, Sebastian og Ric-
hard spila á hefðbundin hljóðfæri
og við spilum á hljóðsmala (e.
sampler) og tónastokk (e.
sequences) og svo spinnum við
saman tónlistina."
Blönduð tónlist
- En hvernig mynduð þið lýsa
tónlistinni ykkar í stuttu máli?
„Ja, hún er oft flokkuð sem
drum & bass tónlist en það segir
samt aðeins hálfa söguna,“ segir
Jens. „Hún er blanda af „break-
beat“, fönkuðu drum & bass, hip-
hop og jazzi. Það má líka greina í
henni áhrif frá áttunda áratugn-
um svo eitthvað sé nefnt.“
- Ég hefheyrt að Bob Marley
og James Brown séu ykkar helstu
áhrifavaldar í tónlistinni, má
greina það?
„Eg vona að svo sé, upp að
vissu marki,“ segir Per. „Ahrifin
eru ekki augljós í tónlist okkar
en þau eru vissulega til staðar."
- Hvað um nafnið á hljómsveit-
inni?
Per og Jens líta spurnaraugum
á blaðamann og svo hvor á annan
og hika áður en þeir svara. „Þetta
var nafn sem kom upp hjá okkur
og við sitjum uppi með það,“ segir
Per. „Þetta er indælt og hlýlegt
orð og okkur féll vel sú einbeiting
og hugarró sem íylgir því og því
sem það stendur fyrir. Nafnið
passar líka vel við þá tónlist sem
við flytjum."
- Hafíð þið spilað víða í Svíþjóð?
„Já, aðallega í Stokkhólmi því
við búum þar,“ segir Jens. Þeir eru
sammála um að ástandið í klúbb-
unum þar í borg fari versnandi og
sífellt erfiðara sé að finna góða
klúbba til að spila lifandi tónlist.
„Stundum er verið að loka slíkum
klúbbum en einnig er verið að
breyta þeim,“ segir Per. „Þetta er
hálfsorglegt og skrítið, við skiljum
ekki hvað veldur þessari þróun.“
- Hvað fáum við síðan að heyra
á tónleikunum?
„Það verður að mestu nýtt efni,
en einnig höfum við mixað eldri lög
og sett þau í nýjan búning," segir
Per. „Við erum farnir að gera tón-
listina meira í sameiningu á svið-
inu svo að útkoman getur orðið
óvenjuleg. Við hlökkum líka til að
spila með íslensku hljómsveitunum
og heyra hvað er að gerast í ís-
lenskri tónlist."
- Að lokum, hvar verðið þið um
aldamótin?
„Allavegana ekki í flugvél,“ segir
Per og brosir. „Líklega verð ég í
einhverju partíi í Stokkhólrni með
vinum og vandamönnum." „I
jógastellingu," bætir Jens við hlæj-
andi.
N
^IZUID
^IZUID
KVIKMYNDIR/Regnboginn frumsýnir um helgina gamanmynd-
-----7------------- --- . -----------------------
ina Ut úr kortinu með Shawn Hatosy, Jon Abrahams og Alec
Baldwin í leikstjórn Michael Corrente.
Amy Smart og Shawn Hatosy í
hlutverkum sínum.
íyrstu skáldsögu sína áður en hann og
bróðir hans, Bobby, urðu þekktir fyrir
gamanmyndir sínar í Hollywood.
Hann byggði söguna á eigin lífs-
reynslu en hann ólst upp á Rhode Is-
land á áttunda áratugnum. Mörgum
árum síðar kom Corrente að máli við
hann um möguleikann á því að breyta
skáldsögunni í kvikmynd. Á þeim tíma
fékkst Corrente við að semja leikrit
með litlum árangri en Fan-elly-bræð-
ur unnu að kvikmyndahandriti sem
fékk heitið Heimskur heimskari.
„Ég keypti sögu Farrellys fyrir
einn dollar í fornbókabúð," er haft eft-
Shawn
Hatosy er í
sínu stærsta
hlutverki til
þessa.
Timothy gengrir memitaveginn
ir Corrente. „Ég er sjálfm- frá Rhode
Island og bókin gerðist þar svo ég
ákvað að slá til. Eg byrjaði lesturinn
og fannst sagan sprenghlægileg.
Þetta er einhver skemmtilegasta bók
sem ég hef lesið og ég hugsaði strax
með mér að ég skyldi gera bíómynd
eftir henni.“
„Sagan er miklu meira drama en við
höfum verið að kvikmynda hingað til,“
er haft eftir Bobby Farrelly. „Hún er
ólík öðnim myndum okkai- vegna þess
að fyndnin byggist á persónusköpun
en ekki hamagangsbröndurum.“ Þeir
bræður settust niður með leikstjóran-
um og bjuggu til handrit upp úr bók-
inni á milli þess sem þeir kvikmynd-
uðu „Kingpin" og undii’bjuggu
„There’s Something About Mary“.
„Ég lærði heilmikið um gamanmyndir
af þeim bræðrum," segir Corrente.
„Þeii' hafa hæfileika til þess að sjá það
fyndna í fari fólks og þeir ganga eins
langt og þeim sýnist.“
Nær óþekktir leikarar fara með
helstu hlutverk í myndinni eins og
Shawn Hatosy, sem leikur aðalhlut-
verkið, Jon Abrahams og Tommy Bo-
ne. Tvö kunnug andlit er þó að finna
innan um og saman við, Alec Baldwin
og George Wendt, eina barfluguna í
Staupasteini.
Bandan'ska gamanmyndin Út
úr kortinu eða „Outside
Providence“ er byggð á
fyrstu skáldsögu Peter
Farrellys en hann og bróðir hans,
Bobby, hafa sem kunnugt er getið sér
gott orð sem gamanmyndasmiðir, nú
síðast með „There’s Something About
Mary“.
Myndin segir þroskasögu ungs
manns í verkamannabænum Pawt-
ucket á Rhode Island. Timothy Dun-
phy (Shawn Hatosy) heitir hann og
kemur frá sundruðu heimili, hundur-
inn hans er þrífættur og hann sjálfur
sífellt í vandræðum. Vinir hans eiga
enga framtíð fyrir sér en hann skal
eignast framtíð hvort sem honum lík-
ar það betur eða verr. Eftir að hann
ekur á kyrrstæða lögreglubifreið
Kunnugleg andlit, Alec Baldwin og George Wendt.
sendir faðir hans (Alec Baldwin) hann
í fínan einkaskóla þar sem hann sting-
ur mjög í stúf við umhverfið, hefur
engan klassa og er í algjörum minni-
hluta.
Handrit Út úr kortinu er gert af
þeim Farrelly-bræðrum ásamt leik-
stjóranum Michael Corrente, sem
gerði áður myndina „American
Buffalo". Peter Farrelly skrifaði
Verslunin hættir
Frábært verð á skóm, fatnaði o.fl.
Opið alla lausardaga frá kl. 10-16.
iþrótt
Skipholti 50d, sími 562 0025.
Frumsýning