Morgunblaðið - 08.10.1999, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVJK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Forsendur til að lækka langtímavexti
segir í mánaðarskýrslu FBA
Astæða til mik-
ils aðhalds í
peningamálum
Burðarás á nú 27% í HB
Kaupverðið
1,1 milljarður
BURÐARÁS hf. er nú stærsti hlut-
hafmn í Haraldi Böðvarssyni hf. eftir
. kaup á 16% hlutabréfa að nafnverði
76 milljónir króna á genginu 6,45.
í tilkynningu til Verðbréfaþings
Islands kemur fram að kaupverð
bréfanna hafí því verið 1.135,2 millj-
ónir króna. Fyrir átti Burðarás hf.
um 11%, og er því eignarhlutur
Burðaráss hf. í Haraldi Böðvarssyni
hf. orðinn 27%. Seljandi hlutabréf-
anna eru eigendur Miðness hf.
■ Eignarhlutur/18
--------------
Þeyttist tugi
metra af bifhjóli
ÖKUMAÐUR bifhjóls var fluttur
fótbrotinn með sjúkrabifreið á slysa-
"*deild eftir að bifreið var ekið í veg
fyrir hann við Miðdal á Vesturlands-
vegi í Hvalfirði um kl. 22 í gær. Öku-
maður hjólsins, sem var á vesturleið,
þeyttist tugi metra af hjólinu við
höggið. Eftir áreksturinn kom önnur
bifreið og ók yfir hjólið svo það dróst
með henni um 200 metra eftir vegin-
um. Enginn í bifreiðunum meiddist.
unni á húsnæðismarkaði þegar líða
taki á næsta ár. Þá megi benda á að
innflutningsverðlag í erlendri mynt
gæti farið hækkandi, aðallega
vegna áhrifa hækkandi hrávöru-
verðs.
I skýrslunni segir að aðhald í op-
inberum fjármálum sé mikilvægt
við núverandi aðstæður í efnahags-
málum. I ljósi mikils viðskiptahalla
sýni tekjujöfnuður hins opinbera
ekki nægilegt aðhald þrátt fyrir að
afkoma ríkissjóðs hafi stórbatnað á
síðustu árum. Aðhaldið sé hins veg-
ar meira þegar mið sé tekið af
hreinum lánsfjárafgangi ríkissjóðs,
þrátt fyrir að hallarekstur sveitar-
félaga dragi úr þeim afgangi.
„Batnandi rekstur ríkissjóðs hefur
jákvæð áhrif á stöðu efnahagsmála
en miðað við núverandi aðstæður
og spár Þjóðhagsstofnunar um
áframhaldandi viðskiptahalla er
ljóst að ekki má mikið út af bregða í
hagstjórn á næstunni. Aðhald í op-
inberum fjármálum er, enn sem
fyrr, ákaflega mikilvægt," segir
einnig.
Þá segir að háir skammtímavextir
og vaxtamunur því samfara muni
valda áframhaldandi styrkingu á
gengi krónunnar. Ekki kæmi á
óvart þótt krónan næði sögulegu há-
marki á næstunni, en ólíklegra sé að
hún geti haldist sterk til lengri tíma.
I skýrslunni kemur ennfremur
fram að forsendur eru til lækkunar
langtímavaxta á næstunni að mati
FBA og byggir það á fyrirsjáanleg-
um samdrætti ríkistryggðra bréfa
á næsta ári og því einnig að aðlög-
unartímabili reglna um laust fé
lánastofnana er lokið og því hafi
þrýstingur á hækkun langtíma-
vaxta minnkað.
■ FBA telur/21
Sjúkraflutningamaður slasaðist fyrir níu árum
Læknir og heilsu-
gæslustöð dæmd ábyrg
HÆSTIRETTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli
sjúkraflutningamanns, sem slasaðist
í ágúst 1990 þegar hann var að bera
sjúkrabörur niður tröppur. Slysið
var rakið til þess að læknir, sem fór
niður þröngan stigann meðfram bör-
unum til að opna útidyr, hefði ekki
gætt nægilegrar varúðar. Dæmt var
að læknirinn og Heilsugæslustöðin
Sólvangi í Hafnarfirði sem vinnuveit-
andi hans bæru óskipta bótaábyrgð
gagnvart sjúkraflutningamanninum.
Er slysið bar að höndum voru
tveir sjúkraflutningamenn að bera
sjúkling niður þröngan stiga við
erfiðar aðstæður. Læknirinn gekk
á eftir þeim niður stigann. Er hann
varð þess áskynja að útidyr voru
lokaðar smeygði hann sér fyrir-
varalaust meðfram sjúkrabörunum
í því skyni að opna dyrnar fyrir
sjúkraflutningsmönnunum. Rak
hann sig þá í börurnar og jafnvægi
burðarmannanna raskaðist með
þeim afleiðingum að annar féll aft-
ur fyrir sig og slasaðist, þegar mjó-
bak hans rakst í járnhandrið. Hér-
aðsdómur, og nú Hæstiréttur, taldi
að læknirinn hefði ekki viðhaft
nægilega aðgát og að slys sjúkra-
flutningamannsins yrði rakið til
þess. Hann hefur átt við bakmeiðsli
að stríða frá slysdegi, en alvara
þeirra hafí ekki verið ljós fyiT en á
árinu 1993.
Hæstaréttardómararnir Guðrún
Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason og
Hrafn Bragason dæmdu í málinu.
Guðrún skilaði sératkvæði og vildi
sýkna lækninn og heilsugæslustöð-
ina. Læknirinn hefði ekki farið nið-
ur stigann að nauðsynjalausu held-
ur til að flýta fyrir flutningi sjúk-
lingsins og hann teldi sig hafa farið
eins varlega og aðstæður leyfðu. Þá
vísaði dómarinn til þess að 6 ár
hefðu liðið frá slysinu þar til hinn
sjúkraflutningamaðurinn hefði gef-
ið skýrslu og dómskýrslur hefðu
ekki verið teknar fyrr en í janúar
1999. Væri með öllu ósannað að
læknirinn hefði sýnt af sér sak-
næmt gáleysi.
FULL ástæða er fyrir Seðlabanka
Islands að viðhalda miklu aðhaldi í
peningamálum til að sporna gegn
verðbólgu, þvi ennþá er mikill
þrýstingui- á verðlag í landinu, að
því er fram kemur í mánaðar-
skýrslu Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, sem út kom í gær.
í skýrslunni segir einnig að bú-
ast megi við áframhaldandi kostn-
aðarþrýstingi, bæði af innlendum
og erlendum uppruna. Fyrirtækin
þurfi að mæta því með hagræðingu
og framleiðniaukningu eða með
hækkun verðlags. Innlend eftir-
spurn virðist enn vera sterk, en bú-
ast megi við að slakna fari á spenn-
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Klifrað í trjám
Það er oft freistandi að klifra í Þingholtunum ákvað að reyna
trjám og skoða heiminn frá öðru hversu hátt hann kæmist en það
sjónarhorni. Asgeir Mogensen í er vissara að fara varlega.
Strobe Talbott, aðstoðarutanríkisráðherra Bandarikjanna, situr ráðstefnu um konur og lýðræði
Framsýni að halda
ráðstefnuna hér
STROBE Talbott, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði við
komuna til Islands frá Bretlandi
skömmu eftir miðnætti í nótt að Is-
lendingar hefðu sýnt örlæti og fram-
sýni með því að taka að sér að halda
ráðstefnuna um konur og lýðræði
við árþúsundamót, sem hefst í dag.
Hann bætti við að það væri ein
ástæðan fyrir því að Hillary Rod-
ham Clinton, forsetafrú í Bandaríkj-
unum, hefði viljað koma til íslands,
en hún kemur hingað síðdegis í dag
og ávarpar ráðstefnuna á sunnudag.
Talbott sagði að ætti að taka eitt-
hvert eitt atriði, sem skipti mestu
máli fyrir konur og lýðræði í Aust-
ur-Evrópu og Rússlandi, væri það
jafn réttur kvenna og karla á vinnu-
markaði og í pólitískri forustu.
„Það verður hins vegar að taka
fram að sérstaklega hefur mætt á
konum í þeim harðindum, sem fylgt
hafa breytingunni frá kommúnista-
þjóðfélagi til opins þjóðfélags, þótt
það sé vissulega að öðru leyti já-
kvæð þróun,“ sagði hann. „Eg held
að við eigum eftir að heyra mikið
talað um tölur frá þessum heims-
hluta, sem sýna glöggt að í efna-
hagsmálum hafa konur átt undir
högg að sækja.“
Hann kvaðst vilja leggja áherslu á
að það væri til fyrirmyndar að Is-
lendingar væru gestgjafar. Hann
hefði haft tíma til að kynna sér hvað
mikið hefði verið Iagt í ráðstefnuna.
Þá væri sérstakt tækifæri fyrir hann
að koma hingað vegna þess að hann
ætti þess kost að ræða við Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra.
„Þar getum við rætt mikilvæg
mál, sem varða eitt styrkasta tví-
hliða samband, sem Bandaríkja-
menn eiga við annað ríki,“ sagði
hann. „Við munum ræða öryggi í
Evrópu, heimsókn utanríkisráð-
herra Rússlands hingað fyrir
skömmu og heimsókn [Halldórs] til
Ukraínu innan skamms."
Þá sagði hann að ráðstefnan yrði
ekki aðeins mikilvæg fyrir ísland,
heldur öll Norðurlönd og Eystra-
saltsríkin. „Það er mikilvægt að
ráðstefnan skuli haldin á íslandi fyi’-
ir margra hluta sakir,“ sagði hann.
„í fjrsta lagi er það landfræðileg
lega landsins. Þá má nefna virka ut-
anríkisstefnu landsins, Island er
mjög góður bandamaður Bandaríkj-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strobe Talbott kemur á Hótel Sögu í íylgd með Sverri Hauki Gunn-
laugssyni, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu.
anna, ísland hefur opnað dyrnar og
auðlindir sínar til að hjálpa fyrrver-
andi kommúnistaríkjum að aðlagast.
Eg þeld að það sé mjög viðeigandi
að Island sé gestgjafi. Um leið er
þetta stórt verkefni og það ber vitni
örlæti og framsýni að ísland skuli
taka þetta að sér. Það er ein ástæð-
an íýrir því að forsetafrúin vildi
koma hingað.“
■ Þátttakendur/12