Morgunblaðið - 23.01.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.01.2000, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000 GAGNAGRUNNUR A HEILBRIGÐISSVIÐI MORGUNBLAÐIÐ ALLAR UPPLÝSINGi SAMEIGN ÍSLENSKl REKSTRARLEYFITIL HANDA ÍSLENSKRIERFÐ AGREININ GU EHF. TIL GERÐAR OG STARFRÆKSLU GAGNAGRUNNS Á HEILBRIGÐISSVIÐI Heilbrigðis- og tryggingam áiaráðh errn gaf í gær út rekstrarleyfi til Islenskrar erfðagrein- ingar ehf. til starfrækslu gagnagrunns á heil- brigðissviði. Efni samningsins fer hérá eftir: 1. gr. Inngangur. Rekstrarleyfi þetta er gefið út með það að markmiði að gerður verði og starfræktur á ís- landi miðlægur gagnagrunnur á heilbrigðis- sviði, í leyfinu einnig nefndur gagnagrunnur á heilbrigðissviði eða gagnagrunnur, með óper- sónugreinanlegum heilsufarsupplýsingum í þeim tilgangi að auka þekkingu til þess að bæta heilsu og efla heilbrigðisþjónustu. Gerð og starfræksla gagnagrunnsins miðar að því að móta heildstætt upplýsingasafn þar sem skráðar verði tölulegar og kóðaðar upp- lýsingar úr meginhluta þeirra sjúkraskráa sem þegar liggja fyrir og liggja munu fyrir á gildis- tíma rekstrarleyfisins hér á landi og ekki er takmarkaður aðgangur að samkvæmt ákvæð- um í rekstrarleyfi þessu. Upplýsingarnar skulu unnar með það að leiðarljósi að þær nýtist heil- brigðiskerfinu í heild, einstökum heilbrigðis- stofnunum, sjálfstætt starfandi heilbrigðis- starfsmönnum og þjóðinni allri. Rekstrarleyfið er gefið út af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sem í leyfinu er nefnd- ur rekstrarleyfisveitandi eða leyfisveitandi, á grundvelli laga nr. 139/1998, um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Rekstrarleyfið er veitt Islenskri erfðagrein- ingu ehf., kt. 691295-3549, Lynghálsi 1, Reykjavík, sem í leyfinu er einnig nefnd rekstr- arleyfishafi eða leyfishafi, með öllum þeim skil- yrðum, réttindum og skyldum sem fram koma í rekstarleyfi þessu, lögum nr. 139/1998, um gagnagrunn á heilbrigðissviði og reglugerðum settum samkvæmt þeim við gildistöku rekstr- arleyfisins og á gildistíma þess. Rekstrarleyfið er veitt á grundvelli upplýs- inga um starfssvið, verkefni og verkáætlun rekstrarleyfishafa, sem lagðar hafa verið fram af hans hálfu, og á grundvelli tækni-, öryggis- og skipulagsskilmála tölvunefndar, sem íylgja með rekstrarleyfi þessu sem VIÐAUKIG. Rekstrarleyfið tekur til gerðar og starf- rækslu miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði samkvæmt lögum nr. 139/1998, um gagna- grunn á heilbrigðissviði eins og þau eru á hverj- um tíma og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Rekstrarleyfið, starfræksla gagnagrunnsins og meðferð upplýsinga úr honum skal á hverj- um tíma vera í samræmi við íslensk lög og reglugerðir, eins og þau eru á hveijum tíma, al- þjóðasáttmála, alþjóðasamninga og hvers kon- ar alþjóðlegar samþykktir sem ísland er eða verður aðili að. Allar upplýsingar sem fara í gagnagrunn á heilbrigðissviði eru sameign íslensku þjóðar- innar og í umsjá og á forræði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins. Gildir það bæði um þann tíma sem rekstrarleyfíð er í gildi og eftir að leyfistími þess rennur út. í rekstrarleyfinu er kveðið á um þau skilyrði sem eru upphaflegur grundvöllur fyrir veitingu rekstrarleyfis til gerðar og starfrækslu gagna- grunns á heilbrigðissviði. Á gildistíma rekstr- arleyfisins kunna þau skilyrði að breytast í ljósi reynslu og frekari krafna eftirlitsaðila, leyfís- veitanda og rekstrarleyfishafa. í einstökum ákvæðum rekstrarleyfisins er vísað til viðauka sem rekstrarleyfinu fylgja og allir bera auðkenni heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytis en þeir eru allir jafnframt óað- skiljanlegur hluti rekstrarleyfisins. Viðaukarn- ir, alls sjö talsins, eru auðkenndir með bókstöfunum A-G, svo sem fram kemur í við- aukayfirliti sem fylgir rekstrarleyfinu á bls. 22. 2. gr. Skilgreiningar. Alls staðar þar sem þau koma íyrir í rekstr- arleyfi þessu, skulu eftirtalin heiti hafa þá merkingu sem tilgreind er hér á eftir: „Almenn kröfulýsing" merkir almenn kröfu- lýsing fyrir sjúkraskrárkerfi eins og hún er og verður á hverjum tíma uppfærð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, nú uppfærð skýrsla ráðuneytisins frá því í janúar 2000, og fylgir rekstrarleyfinu sem VIÐAUKIA. „Beinn aðgangur“ merkir aðgangur að frum- gögnum í gagnagrunninum eða afriti af þeim, sbr. 3. mgr. 10. gr. laganna. „Dulkóðun" merkir umbreyting orða eða talna í óskiljanlega runu af táknum. „Dulkóðun í eina átt“ merkir umbreyting orða eða talna í óskiljanlega runu af táknum sem ekki er hægt að rekja til baka með grein- ingarlykli. „Erfðafræðilegar upplýsingar" merkir hvers kyns upplýsingar sem varða erfanlega eigin- leika einstaklings eða erfðamynstur slíkra eig- inleika innan hóps skyldra einstaklinga, enn fremur allar upplýsingar sem varða flutning erfðaupplýsinga (erfðavísa) er lúta að eiginleik- um sem ákvarða sjúkdóma og heilsu einstakl- ings og hóps skyldra einstaklinga án tillits til þess hvort unnt er að greina þessa eiginleika eða ekki. „Flutningur upplýsinga í gagnagrunn" merkir yfirlit yfir meðferð og flutning upplýs- EKKI er heimilt að flytja í gagnagrunn á heilbrigðissviði erfðafræðilegar upp- lýsingar sem fengnar eru með sam- eindaerfðafræðilegum rannsóknum, nema með samþykki sjúklings. Kemur þetta fram í reglum heilbrigðisráðu- neytisins um flutning upplýsinga frá sjúkrahúsum í gagnagrunninn. f viðauka rekstrarleyfis, sem saminn er af samstarfshóp fulltrúa sjúkrahúsanna og Is- lenskrar erfðagreiningar með ráðgjöf frá Tölvunefnd og Landlæknisembættinu, er ná- kvæmur listi um það hvaða upplýsingar heimilt er að flytja frá sjúkrahúsunum í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Annars vegar er um að ræða heilsufarsupplýsingar sem skráðar hafa verið áður en samræmd rafræn sjúkraskrá hefur verið tekin í notkun og til eru í rafrænu formi. Hins vegar er um að ræða heilsufarsupplýsingar sem skráðar eru eftir að samræmd rafræn sjúkraskrá hefur verið tekin í notkun. Mun ítarlegri upplýsingar berast í gagna- grunninn eftir siðar leiðinni. Meðal annars er um að ræða upplýsingar um heilbrigðisstofn- un, auðkenni sjúklings, innlögn og meðferð á sjúkrastofnun, lyfjagjöf, samskiptaupplýsing- ar í sjúkraskrá og margt fleira. Þess má geta að fram kemur hvort sjúklingurinn reykir eða ekki. Jafnframt er kveðið á um hvaða upplýsingar skulu verða kóðaðar og dulkóð- aðar. inga í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og fylgir rekstrarleyfinu sem VIÐAUKIB. „Fyrirspurnalag" merkir hugbúnaður ætl- aður til að vinna rannsóknir eða fyrirspurnir í gagnagrunni á heilbrigðissviði. „Gagnagrunnur á heilbrigðissviði" merkir safn gagna er hefur að geyma heilsufarsupp- lýsingar sem skráðar eru á samræmdan kerfis- bundinn hátt í einn miðlægan gagnagrunn sem ætlaður er til úrvinnslu og upplýsingamiðlunar eins og nánar er kveðið á um í lögum nr. 139/ 1998, um gagnagrunn á heilbrigðissviði, reglu- gerð um gagnagrunn á heilbrigðissviði og í rekstrarleyfi þessu. „Heilsufarsupplýsingar“ merkir upplýsing- ar er varða heilsu einstaklinga, þ.m.t. erfða- fræðilegar upplýsingar. „Helstu form- og efnisatriði samninga" merkir yfirlitsskjal um form- og efnisatriði samninga á milli rekstrarleyfishafa og heil- brigðisstofnana og sjálfstætt starfandi heil- brigðisstarfsmanna og fylgir rekstrarleyfinu sem VIÐAUKIC. „Hugverkaréttindi" merkir eftirtalin rétt- indi: i.) Hvers kyns réttindi á sviði hugverka- Heimilt að flytja félagslegar upplýsingar Heimilt er með samningum að flylja í gagnagrunn þær félagslegu upplýsingar um sjúklinginn sem kóðaðar eru. Erfðafræðilegar upplýsingar sem fengnar eru með sameindaerfðafræðilegum rann- sóknum er eingöngu heimilt að flytja í gagna- grunninn með samþykki sjúklings. Þó er heimilt að fiytja þangað sjúkdómsgreiningar sem fengist hafa með skoðun á erfðaefni eða öðrum athugunum, til dæmis sjúkdómsgrein- ingar arfgengra sjúkdóma. Einnig greining- ar sem byggðar eru á litningarannsóknum, til dæmis á meðfæddum eða illkynja sjúkdóm- um. Óheimilt er að flytja í gagnagrunninn upp- lýsingar úr afmörkuðum kerfum sem gerð hafa verið fyrir vfsindarannsóknir og aðra starfsemi sem ekki tengist beint þjónustu við sjúklinga, nema um það sé gert sérstakt sam- komulag við upphafsmenn og eigendur þeirra. Einnig er óheimilt að flytja upp- lýsingar úr afmörkuðum kerfum sem sett eru upp í tilrauna- eða þróunarskyni nema fyrir liggi um það sérstakt samkomulag. I tilvitnuðum reglum um flutning upp- lýsinga í gagnagrunn er gert ráð fyrir því að á síðari stigum muni ýmsir aðilar setja fram óskir um vinnslu eða flutning viðbótarupplýs- inga í grunninn. Fram kemur að þá verði að skoða með hvaða skilyrðum slikur flutningur yrði heimilaður. og auðkennaréttar yfir hugbúnaði sem nauð- synlegur er til gerðar og starfrækslu gagna- grunnsins, þ.e. höfúndaréttur, vörumerkjarétt- ur, einkaleyfaréttur, hönnunarréttur, við- skipta- og tækniþekking eða annars konar réttindi. Með hugbúnaði í þessu sambandi er átt við tölvuforrit, hvers kyns kerfislýsingar og skyld gögn og hvers kyns handbækur og önnur fylgigögn. ii.) Hvers kyns réttindi á sviði hug- verka- og auðkennaréttar yfir gagnagrunnin- um, þ.e. höfundaréttur og sinnar tegundar réttur, sem kveðið er á um í tilskipun Evrópu- sambandsins nr. 96/9 frá 11. mars 1996 um lög- verndun gagnagrunna, vörumerkjaréttur, einkaleyfaréttur, hönnunarréttur, viðskipta- og tækniþekking eða annars konar réttindi. iii) Hvers kyns réttindi á sviði hugverka- og auð- kennaréttar, þ.e. höfundaréttur, vömmerkja- réttur, einkaleyfaréttur, hönnunarréttur, við- skipta- og tækniþekking eða annars konar réttindi þótt þau taki hvorki beinlínis til hug- búnaðar eða gagnagrunns, ef réttindin em nauðsynleg til gerðar eða starfrækslu gagna- grannsins. í öllum tilfellum er átt við réttindi hvort sem þau era þekkt nú eða kunna að stofn- ast síðar og hvort sem um ræðir réttindin í heild eða hvers kyns nytjaleyfi til þeirra. „Miðlægur gagnagrannur á heilbrigðissviði" og „gagnagrannur“ merkir gagnagrannur á heilbrigðissviði samkvæmt lögum nr. 139/1998, um gagnagrann á heilbrigðissviði, reglugerð um gagnagrann á heilbrigðissviði og rekstrar- leyfiþessu. „Ópersónugreinanlegar upplýsingar" merk- ir upplýsingar um einstakling sem ekki era persónuupplýsingar samkvæmt skilgreiningu n-liðar hér að neðan. „Persónuupplýsingar" merkir allar upplýs- ingar um persónugreindan eða persónugrein- anlegan einstakling. Maður telst persónugrein- anlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í kenni- tölu eða einn eða fleiri þætti sem sérkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti. „Reglugerðin" merkir reglugerð um gagna- grunn á heilbrigðissviði. „Rekstrarleyfi" með eða án greinis merkir rekstrarleyfi þetta. „Skilmálar um íjárhagslegan aðskilnað“ merkir nánari skilyrði og skilmálar um fjár- hagslegan aðskilnað reksturs rekstrarleyfis- hafa á gagnagranni og öðram rekstri hans, og fylgja þeir rekstrarleyfinu sem VIÐAUKIE. „Skrá yfir heilbrigðisstéttir" merkir sérstök skrá yfir löggiltar heilbrigðisstéttir og fylgir hún rekstrarleyfinu sem VIÐAUKIF. „Starfrækslunefnd" merkir nefnd um gerð og starfrækslu gagnagranns á heilbrigðissviði, sbr. 6. gr. laga nr. 139/1998 og V. kafla reglu- gerðar. „Stöðulýsing á heilbrigðisupplýsingum“ merkir stöðulýsingu á heilbrigðisupplýsingum eins og hún er og verður á hverjum tíma upp- færð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, nú uppfærð skýrsla ráðuneytisins frá því í janúar 2000, sem fylgir rekstrarleyfinu sem VIÐAUKID. „Tegundir fyrirspuma“ merkir tilteknar tegundir fyrirspurna sem eru sambærilegar og unnar með hugbúnaði í fyrirspurnalagi í gagnagranni á heilbrigðissviði. „Tölvunefnd" merkir tölvunefnd skv. 30. gr. laga nr. 121/1989 um skráningu og meðferð persónuupplýsinga, sbr. og 2. tölul. 5. gr. og 1. mgr. 12. gr. laga nr. 139/1998 og VII. kafla reglugerðar um gagnagrunn á heilbrigðissviði. „Vísindasiðanefnd" merkir vísindasiðanefnd skv. 1. gr. reglugerðar nr. 552/1999, um vís- indarannsóknir á heilbrigðissviði, sbr. 4. mgr. 2. gr. laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga. „Þverfagleg siðanefnd" merkir þverfagleg siðanefnd skv. 3. mgr. 12. gr. laga nr. 139/1998 og VI. kafla reglugerðar. „Öryggisskilmálar tölvunefndar" merkir skilyrði og öryggiskröfur tölvunefndar í tækni-, öryggis- og skipulagslýsingu gagna- grunns á heilbrigðissviði, svo og helstu örygg- iskröfur og skilyrði tölvunefndar til starf- rækslu gagnagrunnsins eins og þær era og Ekki heimilt að flytja erfðaf ræði- legar upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.